Fotbolti.net
Premier League
Aston Villa
Aston Villa
0 - 0
Sunderland
Sunderland
Fyrir leik
Xhaka og Brobbey ekki með Sunderland

Granit Xhaka og Brian Brobbey munu báðir missa af leik Sunderland gegn Aston Villa, þar sem hvorugur leikmaðurinn gat snúið aftur til æfinga í landsleikjahléinu.

Xhaka meiddist á kálfa í upphitun fyrir sigurinn á Chelsea og entist aðeins í nokkrar mínútur. Hann verður frá keppni í nokkrar vikur en Sunderland er enn í fallsæti þrátt fyrir sigurinn á Chelsea.

Sóknarmaðurinn Brobbey var ein af stjörnum Sunderland þegar liðið vann sinn annan deildarsigur á tímabilinu, en hann gat ekki klárað leikinn þar sem hann meiddist í kálfa í seinni hálfleik. Meiðsli hans eru ekki eins alvarleg og hjá Xhaka en hann mun þó ekki spila á Villa Park á laugardaginn.

„Varðandi Granit verður þetta aðeins lengri tími. Þetta er kálfavandamál, svo við verðum að sjá til. Við höfum ekki nákvæma dagsetningu, við verðum að bíða aðeins,“ segir Regis Le Bris.

Granit Xhaka Sunderland
EPA
Fyrir leik
Dagskráin

Laugardagur
15:00 Aston Villa - Sunderland
15:00 Bournemouth - Nott. Forest
15:00 Chelsea - Leeds
15:00 Coventry - Crystal Palace
15:00 Tottenham - Ipswich Town
17:30 Newcastle - Arsenal

Sunnudagur
14:00 Hull City - Brighton
16:30 Liverpool - Man Utd

Mánudagur
20:00 Brentford - Everton

Fyrir leik
Aston Villa - Villa Park
EPA
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.