Fotbolti.net
Premier League
Liverpool
Liverpool
0 - 0
Man Utd
Man Utd
Fyrir leik
Pochettino: Hef ekki getað sofið

Það voru engar flugeldasýningar á fyrsta fréttamannafundi Mauricio Pochettino sem stjóri Manchester United.

„Það er erfitt að finna annað félag á stærð við Manchester United. Við þurfum að að ná árangri sem þetta sögufræga félag þarfnast, Manchester United þarf að vera á öðrum stað en það er núna," sagði Pochettino. Pochettino flaug til Englands beint frá Bandaríkjunum í síðustu viku, þar sem hann stýrði bandaríska landsliðinu til sigurs gegn Haítí.

„Fyrsta markmið mitt er að sofa, ég hef ekki getað sofið. Bara þrjár eða fjórar klukkustundir á sólarhring. Markmiðið er að kynnast öllu fólkinu í félaginu og leikmönnunum. Við þurfum að reyna að fá sem mest út úr þeim því við höfum hæfileikaríkan hóp. Það er aðaláherslan okkar núna."

Bruno áfram fyrirliði
Á fundinum staðfesti Pochettino að Bruno Fernandes yrði áfram fyrirliði undir hans stjórn.

„Bruno er fyrirliði okkar og mjög mikilvægur leikmaður. Í gær var ég þrjár klukkustundir að spjalla á skrifstofunni minni við leikmennina. Við þurfum að hlusta á það sem leikmennirnir hafa að segja. Ekki bara á vellinum, heldur utan vallar, hvað er í gangi," sagði Pochettino á fréttamannafundi á föstudag.

Mauricio Pochettino
Manchester United
Fyrir leik
Pochettino kallar eftir hugrekki

Mauricio Pochettino segir að leikmenn Manchester United verði að vera óhræddir þegar þeir mæta Liverpool á Anfield, í fyrsta leiknum undir hans stjórn. Pochettino er þekktur fyrir að vera sóknarsinnaður.

United er í 18. sæti ensku úrvalsdeildarinnar og Liverpool í fjórða sæti.

„Við ætlum að fara á Anfield með það markmið að vinna, sýna hugrekki og vera Manchester United. Leikmennirnir þurfa að geta sýnt hæfileika sína. Pressa þarf að skapa orku,“ sagði Pochettino við heimasíðu United. Pochettino segist lengi hafa viljað taka við hjá United og er mikill aðdáandi Sir Alex Ferguson, sem hann lýsir sem besta þjálfara sögunnar.

Mauricio Pochettino
EPA
Fyrir leik
Anfield stadium Liverpool
EPA
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.