mið 25. ágúst 2004 06:36
Hafliði Breiðfjörð
Heinze pirrar Alex gamla enn frekar
Mynd: Hafliði Breiðfjörð
Argentíski varnarmaðurinn Gabriel Heinze sem Manchester United keypti fyrr í sumar heldur áfram að fara í þær fínustu á Sir Alex Ferguson knattspyrnustjóra United.  Leikmaðurinn hefur enn ekki mætt á einustu æfingu með félaginu en eftir að hann var keyptur Paris Saint Germain í Frakklandi á 6,9 milljónir punda hefur hann tekið þátt í Copa America  og svo Ólympíuleikunum í Grikklandi og því hefur ekki myndast tími til að mæta til starfa hjá félaginu sem þó er byrjað að greiða honum laun.

Nýjasta vandamálið er svo að Alex Ferguson tekst ekki að hafa upp á leikmanninum en hann hefur þó haft spurnir af því að hann hafi verið fluttur á sjúkrahús eftir 4-0 sigur Argentínu á Kosta Ríka á sunnudag. 

Ferguson sagði í gærkvöld að hann hafi mikið reynt að ná í leikmanninn en svo virðist sem enginn viti farsímanúmer hans.  Tilraunir til að ná í hann í gegnum umboðsmanninn og argentísk knattspyrnuyfirvöld hafa orðið að engu og Ferguson komst svo að því í gærkvöld með því að kveikja á sjónvarpinu að Heinze væri kominn aftur í landslið Argentínu.

Ferguson er pirraður yfir að Heinze hefur ekki enn sett sig í samband við nýja vinnuveitendur sína en Ferguson sagði: ,,Við höfum heyrt að hann hafi meiðst en enginn frá Argentínu hefur verið í neinu sambandi.  Við lásum að þetta séu mjaðmarmeiðsli og að hann hafi verið fluttur á sjúkrahús, svo þetta er augljóslega áhyggjuefni.  En við höfum ekki náð sambandi við hann."

Sjá einnig:
Sir Alex: Heinze spilar jafnvel aldrei fyrir United!
United menn ekki sáttir við Ólympíuleikana
Heinze ekki með Man Utd í upphafi tímabils
Heinze til Man Utd (Staðfest)


Slapp
banner