Sævar Þór og Þórhallur Dan hættir hjá Fylki
Framherjinn Sævar Þór Gíslason og varnarmaðurinn Þórhallur Dan Jóhannsson eru báðir hættir hjá Fylki en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins. Þar segir að stjórn meistaraflokksráðs Fylkis hafi undanfarna daga verið að ræða við leikmenn sem að eru með lausa samninga og ekki hafi náðst samkomulag við Sævar og Þórhall. Því eru þeir hættir hjá félaginu.
Eins og við greindum frá í síðustu viku eru sex lið á eftir Sævari, fjögur úr úrvalsdeild og tvö í neðrideildunum. Sævar kom til Fylkis frá ÍR árið 2000 og skoraði hann fjögur mörk í sautján leikjum með Fylki í efstu deild í sumar.
Þórhallur Dan er reyndur leikmaður en hann kom til Fylkis árið 1999 eftir að hafa leikið í Danmörku. Hann spilaði alls sautján leiki með Fylki í efstu deild í sumar.
Sjá einnig:
Hin Hliðin á Þórhalli (Maí 2002)
Hin Hliðin á Sævari (September 2002)
Sex lið vilja fá Sævar Þór

