Sex lið vilja fá Sævar Þór
Sævar Þór Gíslason framherji Fylkis er eftirsóttur þessa dagana en fjögur lið í efstu deild og tvö neðrideildarlið hafa haft samband við hann og vila þau fá hann til liðs við sig auk þess sem að Fylkir vill halda honum en þetta staðfesti Sævar við Fótbolti.net.
Sævar sagðist ekki geta gefið upp hvaða lið hafa haft samband en hann skoraði fjögur mörk í sautján leikjum með Fylki í efstu deild í sumar.
Við munum að sjálfsögðu fylgjast með þessu máli áfram en samningur Sævars við Fylkis rennur út um áramótin.
Sjá einnig:
Hin Hliðin á Sævari (September 2002)



