Einkaviðtal við Guðlaug Baldursson þjálfara ÍBV
Guðlaugur Baldursson er yngsti þjálfari deildarinnar en hann tók við ÍBV í haust og er að þjálfa meistaraflokk í fyrsta skipti. Guðlaugur er kennari í Hafnarfirði og við heimsóttum hann í skólann og ræddum við hann um tímabilið framundan, markmiðin og ýmislegt fleira.
Ertu ánægður með undirbúningstímabilið hjá Eyjamönnum?
Já ég er tiltölulega sáttur við undirbúningstímabilið. Reyndar erum við kannski í erfiðari stöðu en flest liðin. Við erum með hópinn tvískiptan og getum lítið æft allir saman nema einstaka helgar og notum svo alla leiki til þess að allir komi saman og spila. Það er erfitt að púsla þessu saman. Huginn annars flokks þjálfari hefur aðstoðað mig með strákana út í Eyjum og þeir hafa æft hjá honum og þetta hefur bara gengið nokkuð vel.
Hvernig hafiði æft hérna í bænum?
Við erum með meirihlutann af hópnum hérna í bænum og æfum hér fimm sinnum í viku og svo er leikur. Við erum út um allt með æfingaaðstöðu. Við lyftum og hlaupum í Sporthúsinu og svo erum við með einn tíma á Leiknisvelli, og tvo tíma í Garðabænum. Vorum svo líka hérna á Sörlastöðum í Hafnarfirði. Það er erfitt að koma sér fyrir. Það eru öll félög búin að pakka sínum flokkum á bestu tímana þannig að þetta er svolítill bardagi fyrir okkur að finna pláss.
Er ekki erfitt fyrir þig þá að geta valið rétt í hópinn þegar þú sérð ekki alla strákana?
Við höfum verið það fámennir í vetur að það hefur ekki kostað mikla vinnu að velja í hóp en það hefur hinsvegar haft þá kosti með sér að ég er búinn að sjá heilmikið af ungum strákum og meira heldur en margur af þessum ungu peyjum sem eru í Eyjum. Annars flokks gaurarnir hafa náttúrulega fengið mjög mikið að spila og þessir strákar sem eru að koma upp. Þetta er mjög jákvætt þegar til lengri tíma er litið.
Verðið þið svo í Eyjum í sumar?
Já við förum til Eyja nú um helgina og ætlum að spila þar. Við erum að vinna í að fá lið þangað til að spila við okkur á grasi sem er nú að smella saman sýnist mér. Svo verðum við allir komnir út í Eyjar skömmu eftir fyrsta leik. Við eigum Fram á Laugardalsvelli í fyrsta leik og svo reynum við að stefna öllu liðinu út strax eftir það.
Verður það ekki erfitt fyrir þig. Þú verður hér í skólanum í Hafnarfirði fram í byrjun júní og mótið hefst 16. maí?
Ég er með mjög velviljaða vinnuveitendur og hefur gengnið vel að púsla þessu. Ég hef engar áhyggjur af þessu. Við leysum það. Ég mun sjá um alla hluti sem lúta að kennslunni en verð kannski ekki alla daga á staðnum. Ég hef nú ekki upplifað haust ennþá í Vestmannaeyjum en á haustin er þetta svo yfirleitt þannig skilst mér að þjálfarar og leikmenn fari í lok ágúst enda margir leikmenn í skóla hér. Annars er maður ekki farinn að hugsa svo langt ennþá.
Ertu búinn að styrkja hópinn núna?
Við erum að verða nokkuð góðir en við erum ekki alveg búnir að loka dyrunum ennþá.
Ég var nokkuð ánægður með hann. Hann er hérna ennþá og ég á frekar von á að það verði samið við hann. Hann er framherji og verður með okkur aftur í æfingaleik á fimmtudag. Eftir það verður sagt af eða á en ég á frekar von á að það verði samið við hann. (ATH: ÍBV samdi við Sam í gær)
Áttu jafnvel von á að styrkja liðið enn frekar?
Já, eins og ég segi þá erum við ekki enn búnir að loka dyrunum. Við munum þá horfa til Englands. Okkur líkar vel við England og erum með góða menn þar sem eru að skoða fyrir okkur. Við erum aðeins að spá hvort við tökum einn í viðbót.
Birkir Kristinsson markvörður er kominn á fimmtugsaldurinn. Verður hann áfram hjá ÍBV í sumar?
Já, Birkir verður áfram og er í formi eins og tuttugu og tveggja þannig að ég hef engar áhyggjur af því. Við erum mjög vel settir í markvarðarstöðunni og erum líka með mjög efnilegan strák, Hrafn Davíðsson sem er mikið efni og bíður eftir sínu tækifæri.
Birkir er mun eldri en þú, er ekki erfitt fyrir þig að segja honum til á æfingum?
Nei, nei, það má kannski segja að þetta er oft öðruvísi með markmann. Maður er með markmannsþjálfara með sér sem tekur menn sérstaklega fyrir og þetta eru svona önnur atriði. En Birkir er mikill höfðingi og tekur einu og öllu og er mér innan handar. Það er mjög gott að hafa svona reynslubolta með sér. Hann miðlar líka af þekkingu sinni til mín.
Jú það kom mér á óvart. Ég var tiltölulega þolinmóður og rólegur ennþá þó það hafi verið stefnan að færa sig upp í meistaraflokk von bráðar. Maður átti ekki von á að fyrsta verkefnið væri lið úr úrvalsdeild og í Evrópukeppni sem er með mikla sögu á bakvið sig. Maður átti ekki von á að fá þann séns en að sjálfsögðu tekur maður glaður við svoleiðis möguleikum og reynir að nýta þá til hins ýtrasta.
Þú treystir þér alveg í þetta verk?
Já, það er alveg ljóst að ég treysti mér fullkomnlega. Ef ég geri það ekki, hver gerir það þá?
Hafðirðu haft einhverja reynslu með að vinna með meistaraflokki áður, aðra en að spila?
Já, ég og Siggi Jóns vorum saman með FH liðið fyrir þremur árum síðan áður en Óli og Leifur tóku við. Þá fékk maður líka reynslu því við vorum í Evrópukeppni þar, eða Intertoto, og fórum bæði til Makedóníu og Spánar og gekk þokkalega.
Leggið þið mikla áherslu á Evrópukeppnina í ár?
Við leggjum mikla áherslu á allt það sem við erum að eiga við. En við erum ekki mikið byrjaðir að hugsa svo langt. Við erum aðallega að einbeita okkur að því að púsla saman þessu liði okkar. Við hefðum viljað púsla þessu örlítið fyrr en þetta er bara eins og flest liðin eru að eiga við þá er þetta gríðarlega mikið púsluspil og erfitt að fá leikmenn sem eru að koma frá Englandi og öðrum stöðum. Þeir koma ekkert löngu áður en tímabilið hefst til Íslands. Þessar varaliðsdeildir í Evrópu eru til dæmis bara að klárast núna.
Er Evrópusætið kannski að auðvelda ykkur að fá leikmenn frá Englandi núna?
Já það er meiri skilningur allavega frá enskum leikmönnum. Þeim finnst mikið í það spunið að fá að taka þátt í Evrópukeppni. Mun meira en ungum íslenskum leikmönnum sem við höfum reynt að ná í.
Er vonlaust að fá íslenska leikmenn til Eyja í dag?
Það er afskaplega erfitt. Það verður að segjast alveg eins og er. Við tókum þátt í þessum slag um þessa stráka sem voru í boði. Það virðist vera auðveldara að færa sig um set innan þessa svæðis en að færa sig um set og til Vestmannaeyja.
Ég hef fylgst vel með þeim en eins og er eru þeir búnir að semja við FH og sumir eru farnir á lán annað. Fyrir þetta ár virðist ég ekki fá að njóta krafta þeirra. En það eru margir virkilega góðir strákar sem eiga eftir að láta að sér kveða. En ég vona að ég þurfi ekki að leita eftir fleiri leikmönnum því ég sé kominn með þann hóp sem ég þurfi. Ég treysti þeim hóp sem ég er með fyrir þessu verkefni. Þetta er mjög samheldinn hópur. Við vitum hvert við erum að fara og hvað við erum að fara að gera. En ég held að við séum komnir með mjög sterkan hóp fyrir utan kannski mögulega styrkingu á einum leikmanni eða svo.
Hverjir verða lykilmenn hjá þér í sumar?
Það er reynsluboltinn í markinu, hann er lykilmaður. Páll Hjarðar er orðinn góður af sínum meiðslum og er klár í slaginn þar. Ég á ekki marga reynslubolta. Steingrímur sem er svona fram á við hefur verið að spila vel fyrir okkur og það verður líka lögð mikil ábyrgð lögð á herðar útlendinganna. Atli Jóhannsson hefur verið meiddur að undanförnu hjá okkur en það vita allir sem hafa fylgst með honum að hann er gríðarlega hæfileikaríkur. En við vonum að hann fari að fá sig góðan af þessum meiðslum því hann er mjög mikilvægur fyrir okkur.
Er einhver ungur og efnilegur sem á eftir að fá tækifæri hjá þér?
Ég fór að fara yfir ártölin á þessum strákum. Manni finnst maður ekki vera gamall og telst nú ekki gamall í þessari þjálfarastétt en manni finnst maður vera gamli maðurinn þegar maður fer að fara yfir kennitölurnar þeirra. Þetta eru allt saman strákar sem eru fæddir ´81, ´82 og ´83 fyrir utan Birki, Palla, Bjarna Geir og Steingrím. Andri hefur verið undanfarin ár. Hann er fæddur ´85 þessi strákur, hann er ungur. Bjarni Hólm er að koma til okkar og svo eru þessi ungu strákar, þetta verður bara að koma í ljós. Maður er ekkert búinn að ákveða að þessi verður spútnik maðurinn. Þeir þurfa bara að standa sig og halda áfram. Þá eru þeim allir vegir færir.
KR, FH og Valur.
Hvar ætlið þið að vera?
Ég held að hin sjö liðin eigi öll möguleika á að vera í sætunum þar á eftir. Oft er nú eitt spútnik lið líka sem blandar sér í baráttuna. Ég held að styrkur hinna liðanna sjö sé mjög svipaður. Ég held hinsvegar að þessi þrjú lið séu best mönnuð og það er möguleiki á að þau stingi af ef allt gengur upp hjá þeim.
Hvað er markmiðið hjá þér?
Ég er búinn að æfa mig í frösunum. Einn leikur í einu, núll stig þegar við byrjum, þrjú stig í hverjum leik. Nei, hópurinn okkar er að myndast og við erum bara á þessum tíma að setja okkur markmið. Við munum setja okkur markmið í bútum. Við setjum okkur markmið fyrir fyrstu fjórar umferðirnar og munum svo skoða málin eftir það og reyna að fara ekki fram úr okkur.
Ég get ekki spáð um það. Mér finnst ómögulegt að greina á milli þessara sjö liða. Ég hef spilað gegn mörgum af þessum liðum. Til dæmis Grindavík sem menn eru að spá slöku gengi. Mér finnst þeir vera með fínt lið og þeir eru að bæta mönnum við sig núna og ef þeir smella rétt inní þá verða þeir alls ekki slakir. Framararnir sýnist mér vera tiltölulega sterkir. Ég horfði á hluta af leik hjá Þrótti í gær. Mjög fínt lið og vel spilandi og með áhrif Ásgeirs í botni. Halda boltanum vel og spila fínan bolta. Ég veit ekki hvaða lið eiga að vera þarna í botni.
Hvernig mun ÍBV liðiið spila undir þinni stjórn?
Ég vil vera með boltann sem allra mest og legg mikla áherslu á að við höldum boltanum og viljum sækja. Það er þannig hjá okkur að þegar við erum að sækja þá viljum við sækja á eins mörgum mönnum og við getum og þegar við erum að verjast þá viljum við verjast á eins mörgum mönnum og við getum. Þetta er ekkert voðalega flókið.
Hvað með leikkerfi?
Við höfum verið að spila 4-51 og höfum aðeins spilað 4-4-2. Það kemur í ljós hvernig það verður. Nú eru síðustu mennirnir að koma inn og leikkerfið fer eftir hvernig menn eru og hvernig þeir passa inn. Mest höfum við verið að spila eins og langflest íslensk lið. 4-3-3 / 4-5-1.
Ertu búinn að mynda þér skoðun á byrjunarliðinu?
Nei, ég er ekki búinn að því. Við erum búnir að vera í allskonar meiðslum og veikindum og öllu þessu í vetur og þessvegna er ég búinn að sjá marga menn. En ég er ekki búinn að stilla því upp ennþá þó við færumst nær því með hverri vikunni..
Og bresku leikmennirnir verða allir byrjunarliðsmenn?
Ég vona að þeir Bretar sem við fáum til okkar verði það öflugir að þeir verði allir í byrjunarliðinu.
Ég hef ennþá talað íslensku. Held ræðurnar á íslensku en hef skotið inn enskunni fyrir þá sérstaklega þegar ég vil tala beint til þeirra. Svo tek ég þá yfirleitt undan eða eftir og fer í gegnum hlutina með þeim á þeirra tungumáli. Ekki getur maður gert ráð fyrir að þeir séu orðnir það sleipir í íslenskunni strax allavega, ekki fyrr en í ágúst.
Gengur þeim vel að aðlagast hérna?
Já þeim gengur mjög vel. Þetta er ábyggilega ekki ólíkt á margan hátt þetta umhverfi sem þeir eru að alast upp í Bretlandi. Allavega virðast þeir strax smella inn í þetta dæmi sem við erum með hérna.
Eruð þið að fá þá bara út tímabilið eða er hugsað lengra til framtíðar?
Nei, við erum að reyna að semja við þá til lengri tíma. Ég þekki ekki alveg stöðuna á hvort það sé frágengið eða ekki. Ég kem ekki nálægt samningamálunum beint.
Maður hefur heyrt af því að það komi fyrir hér í deildinni að leikmenn séu sendir til liðsins án vitundar eða nánara sambands við þjálfarann. Hvernig er þessu háttað hjá ÍBV?
Við vinnum þetta saman og ÍBV er með góð sambönd við Crewe. Við fórum þangað út fyrir áramótin og kíktum þar á leikmenn og skoðuðum hvaða möguleika við ættum. Þar töluðum við við þeirra forráðamenn sem eru okkur mjög hliðhollir. Í framhaldinu höfum við svo unnið þetta mest saman ég og Gísli Hjartarson. Við gerum þetta alveg í sameiningu og þetta er ekkert gert án vitundar minnar.
Hver eru þín persónulegu markmið í þjálfuninni?
Mín markmið eru að festa mig í sessi sem þjálfari á þessu stigi og sýna að ég á heima þarna. Þarna vil ég vera. Svo sjáum við bara til hvað kemur næst.


