Andrew Sam semur við ÍBV
Sóknarmaðurinn Andrew Sam mun semja við ÍBV en þetta staðfesti Gísli Hjartarson hjá knattspyrnudeild liðsins í samtali við Fótbolti.net í dag. Sam sem er 22 ára hefur verið til reynslu hjá ÍBV að undanförnu og hann skoraði meðal annars þegar að liðið sigraði Fylki í æfingaleik í dag.
Sam mun gera tveggja ára samning við ÍBV en hann hefur síðustu ár leikið með Cal State Fullerton háskólanum í Kaliforníu í Bandaríkjunum. Sam mun fara til Bandaríkjana á morgun en koma svo aftur til Íslands í næstu viku og verða klár í slaginn þegar að ÍBV mætir Fram á útivelli í fyrstu umferð efstu deildar þann 16.maí næstkomandi.
Sam fæddist í Leeds á Englandi og áhugamál hans eru tónlist, mannleg samskipti og ferðalög. Hann hefur einnig keppt í ruðning og blaki samkvæmt heimasíðu Cal State Fullerton háskólans.
