Kópavogsvöllur
sunnudagur 28. ágúst 2011
kl. 18:00
Pepsi-deild karla
Aðstæður: Mistur yfir og úði. Blautur völlur.
Dómari: Erlendur Eiríksson
Áhorfendur: 861
Maður leiksins: Tómas Óli Garðarsson, Breiðablik
Breiðablik 1 - 1 Valur
1-0 Andri Rafn Yeoman ('37)
1-1 Guðjón Pétur Lýðsson ('90)
Myndir: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
Byrjunarlið:
7. Þórður Steinar Hreiðarsson
8. Rafn Andri Haraldsson
16. Viggó Kristjánsson
17. Jökull I Elísabetarson
18. Arnar Már Björgvinsson ('44)
19. Kristinn Jónsson
23. Árni Vilhjálmsson
27. Tómas Óli Garðarsson
30. Andri Rafn Yeoman

Varamenn:
2. Gísli Páll Helgason
11. Olgeir Sigurgeirsson ('44)
26. Páll Olgeir Þorsteinsson
31. Guðmundur Friðriksson

Gul spjöld:
Kristinn Steindórsson ('92)
Rafn Andri Haraldsson ('46)
Tómas Óli Garðarsson ('29)

Rauð spjöld:

Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Komiði sæl og veriði velkomin í beina textalýsingu af leik Breiðabliks og Vals í Pepsi-deild karla. Liðsuppstilling liðanna er klár hér hér sitthvorum megin við textalýsinguna.
Eyða Breyta
Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Sigmar Ingi stendur enn í rammanum og Ingvar Kale þarf að sætta sig við að vera á varamannabekknum.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Færeyingarnir Jónas Tór Næs og Christian Mouritsen eru ekki með Valsmönnum í dag. Margt athyglisvert í þeirra uppstillingu og nóg af breytingum frá tapleiknum gegn Fram. Hörður Sveinsson er mættur í byrjunarliðið og einnig Ólafsvíkingurinn Brynjar Kristmundsson.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Íslandsmeistarar Breiðabliks sitja í sjötta sæti með 19 stig en þeir eru með kornunga leikmenn á bekknum í dag.Valur er í fjórða sæti með 28 stig.

Bendum fólki á að nota hashtagið #fótbolti ef það skrifar færslur um leikinn á Twitter. Valdar færslur verða birtar í textalýsingunni.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Spáð í spilin - Blaðamenn á vellinum spá í úrslit leiksins.
Stefán Árni Pálsson, Fréttablaðinu: 2-0 fyrir Val. Hörður Sveins með bæði.
Tómas Meyer á Stöð 2 Sport: Í ljósi úrslita síðustu umferða þá telur Meyerinn að Valur hafi ekki það sem þurfi. Blikar vinna 3-1.
Kristján Jónsson á Mbl: Bolvíska stálið segir 4-4.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Guðmundur Kristjánsson og Finnur Orri Margeirsson taka út leikbann hjá Blikum. Jónas Tór Næs, Atli Sveinn Þórarinsson og Arnar Sveinn Geirsson eru í banni hjá Valsmönnum.
Eyða Breyta
1. mín
Erlendur Eiríksson málarameistari hefur flautað til leiks. Valsmenn byrjuðu með boltann en þeir sækja í átt að Smáranum.
Eyða Breyta
2. mín
Jökull Elísabetarson með fyrsta skotið en það fór viðsfjarri markinu.
Eyða Breyta
5. mín
Valsmenn leysa leikbönn Atla Sveins og Jónasar með því að nota Sigurbjörn Hreiðarsson og Brynjar Kristmundsson í bakvörðunum en Pól Jóhannus færist í miðvörðinn við hlið Halldórs.
Eyða Breyta
7. mín
Gestur V Svansson:
Öruggur sigur Valsmanna í kvöld Kolli setur hann svo kemur efnilegur piltur inná í seinni hálfleik Haukur Ásberg og skorar #fotbolti
Eyða Breyta
13. mín
Ég neita því ekki að það er furðuleg tilfinning að fara frá því að horfa á Manchester United - Arsenal yfir í að horfa á þessu tvö vængbrotnu lið mætast á Kópavogsvelli. Kristinn Steindórsson var að skjóta framhjá úr ágætis færi.
Eyða Breyta
16. mín
Mikil hætta við mark Blika! Stórskemmtileg sókn Vals sem endaði með því að Matthías Guðmundsson komst í fínt færi í teignum. Skot hans breytti um stefnu af varnarmanni og fór naumlega framhjá.
Eyða Breyta
21. mín
Stangarskot! Boxarinn Kolbeinn Kárason með frábært skot sem hafnaði í stönginni. Blikar stálheppnir þarna.
Eyða Breyta
26. mín
Aron Heiðdal:
5 leikmenn á 16. ári og 3. leikmenn á 17. ári í leikmannahóp Blika og Vals í kvöld. M.a. einn starter #KynslóðaskiptiÍBoltanum #fotbolti
Eyða Breyta
29. mín Gult spjald: Tómas Óli Garðarsson (Breiðablik)
Tómas Óli fær gult fyrir brot.
Eyða Breyta
36. mín
Akureyringurinn Andri Fannar Stefánsson með lúmskt skot fyrir utan teig. Sigmar í marki Breiðabliks misreiknaði boltann en náði að redda þessu með sérstakri vörslu.
Eyða Breyta
37. mín MARK! Andri Rafn Yeoman (Breiðablik)
Blikar hafa tekið forystuna eftir mikinn darraðadans í teignum. Völsurum tókst ekki að hreinsa boltann í burtu og fór hann meðal annars í gegnum klof Hauks Páls Sigurðssonar áður en hann barst til Andra. Fínt skot hjá honum í fjærhornið. Vonandi kemur þetta mark með aukið líf í þennan leik.
Eyða Breyta
40. mín
Arnar Már Björgvinsson með fínt skot af löngu færi. Um að gera að reyna. Boltinn naumlega yfir Valsmarkið.
Eyða Breyta
43. mín
Tómas Meyer:
Það er ekki Manchester-bragur á þessu hér í Kópavoginum ennþá allavega #fotbolti
Eyða Breyta
44. mín Olgeir Sigurgeirsson (Breiðablik) Arnar Már Björgvinsson (Breiðablik)
Arnar farinn meiddur af velli.
Eyða Breyta
44. mín
Valsmenn nálægt því að jafna. Halldór Kristinn átti skot í varnarmann eftir hornspyrnu, boltinn barst á Kolbein sem var í dauðafæri en skot hans fór í varnarmann og þaðan út af.
Eyða Breyta
45. mín
Flautað hefur verið til hálfleiks í Kópavoginum. Blikar leiða 1-0. Hefur verið fremur bragðdauft.
Eyða Breyta
46. mín Gult spjald: Rafn Andri Haraldsson (Breiðablik)
Seinni hálfleikur nýhafinn þegar Rafn fær gult fyrir peysutog.
Eyða Breyta
56. mín
Það er kominn aukinn hiti í leikinn og greinilega smá pirringur í mönnum á vellinum. Kristján Guðmundsson og Freyr Alexandersson eru gríðarlega líflegir á hliðarlínunni og var annar þeirra að fá áminningu frá Erlendi dómara.
Eyða Breyta
59. mín
Guðjón Lýðs fékk fínt færi hérna rétt áðan en skaut yfir.
Eyða Breyta
62. mín
Valur einum færri núna meðan Matthías Guðmundsson er að skipta um skó. Kristinn Steindórsson átti skot að marki en Haraldur Björnsson varði örugglega.
Eyða Breyta
62. mín Gult spjald: Guðjón Pétur Lýðsson (Valur)
Braut á Þórði Steinari.
Eyða Breyta
64. mín
861 áhorfandi á þessum leik á Kópavogsvelli í kvöld.
Eyða Breyta
65. mín Gult spjald: Haukur Páll Sigurðsson (Valur)

Eyða Breyta
67. mín Arnar Sveinn Geirsson (Valur) Kolbeinn Kárason (Valur)
Valsmenn gera breytingu í þeirri von að ná jöfnunarmarki.
Eyða Breyta
70. mín
Guðjón Lýðsson minnir á að hann er skotmaður góður. Tekur fast skot með jörðinni sem hittir þó ekki rammann.
Eyða Breyta
75. mín Ingólfur Sigurðsson (Valur) Hörður Sveinsson (Valur)
Hörður lét ekki mikið að sér kveða í þessum leik frekar en öðrum leikjum í sumar.
Eyða Breyta
77. mín
Fannar Örn Arnarsson:
Allt að verða vitlaust í Kópavoginum við tíðindin um að Yeomaðurinn sé kominn í gang! #SergioBusquetsÍslands #fotbolti
Eyða Breyta
82. mín Christian Mouritsen (Valur) Andri Fannar Stefánsson (Valur)

Eyða Breyta
84. mín
Jón Vilhelm Ákason nær að koma knettinum í netið en var flaggaður rangstæður af Andra Vigfússyni aðstoðardómara.
Eyða Breyta
88. mín
Skemmtanagildið í leikjum dagsins í Pepsi-deildinni í algjöru lágmarki. Markalaust á Akureyri og eitt mark komið hér í Kópavoginum... afskaplega lítið athyglisvert átt sér stað.
Eyða Breyta
90. mín MARK! Guðjón Pétur Lýðsson (Valur)
Valur jafnar á 90. mínútu! Guðjón Lýðsson skoraði glæsilega beint úr aukaspyrnu. Ætli við fáum dramatískt sigurmark hérna í uppbótartímanum?
Eyða Breyta
92. mín Gult spjald: Kristinn Steindórsson (Breiðablik)

Eyða Breyta
94. mín
Leik er lokið með jafntefli 1-1 á Kópavogsvelli.
Eyða Breyta
Byrjunarlið:
7. Haukur Páll Sigurðsson
9. Kolbeinn Kárason ('67)
10. Guðjón Pétur Lýðsson
11. Matthías Guðmundsson
23. Andri Fannar Stefánsson ('82)

Varamenn:
8. Rúnar Már Sigurjónsson
14. Arnar Sveinn Geirsson ('67)
26. Jón Hilmar Karlsson
30. Haukur Ásberg Hilmarsson

Gul spjöld:
Haukur Páll Sigurðsson ('65)
Guðjón Pétur Lýðsson ('62)

Rauð spjöld: