
                    HK
                
                
                    1
                
                
                    2
                
                
                    Víkingur R.
                
            
                                                            Arna Sól Sævarsdóttir
                                '2
                                                                                                                                                                    
                                                                                        1-0
                            					    
            		
                                                        1-1
                                                            Hafdís Bára Höskuldsdóttir
                                '28
                                                                                                                                                                                                    
                                                            					    
                        
                                                        1-2
                                                            Christabel Oduro
                                '46
                                                                                                                                                                                                    
                                                            					    
                        
        25.08.2022  -  19:15
Kórinn
Lengjudeild kvenna
Dómari: Soffía Ummarin Kristinsdóttir
Áhorfendur: 324
Maður leiksins: Hulda Ösp Ágústsdóttir
                    
Kórinn
Lengjudeild kvenna
Dómari: Soffía Ummarin Kristinsdóttir
Áhorfendur: 324
Maður leiksins: Hulda Ösp Ágústsdóttir
Byrjunarlið:
            
				
										1. Audrey Rose Baldwin (m) 				
				
																																																																																																																																															
				
			
        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        				
				
										 Henríetta Ágústsdóttir  				
				
																	
('23)
																																																																																																																																							
				
			
        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        				
('23)
																																																																																																																																							
				
			
				
										 Emma Sól Aradóttir  				
				
																																									
('67)
																																																	
																																																																											
				
			
        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        				
('67)
																																																	
				
										3. Hildur Björk Búadóttir  				
				
																																																																																																																																															
				
			
        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        				
				
										5. Rakel Lóa Brynjarsdóttir  				
				
																																																																																																																																															
				
			
        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        				
				
										8. Lára Einarsdóttir  				
				
																																																																																																																																															
				
			
        	        	        	        	        	        	        	        	        				
				
											
																10. Isabella Eva Aradóttir  (f)				
				
																																																																																																																																															
				
			
        	        	        	        	        	        	        	        	        				
				
										14. Arna Sól Sævarsdóttir  				
				
																																																																																																																											
																																	
				
			
        	        	        	        	        	        	        	        	        				
				
										15. Magðalena Ólafsdóttir  				
				
																																																																																																																																															
				
			
        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        				
				
										26. Kristín Anítudóttir Mcmillan  				
				
																																																																																																																																															
				
			
        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        				
				
										42. Gabriella Lindsay Coleman  				
				
																																																																																																																																															
				
			
        	        	        	        	        	        												- Meðalaldur 26 ár
			            Varamenn:
            
				
										4. Andrea Elín Ólafsdóttir 				
				
        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        																																																																																		
                    
			
        	        				        				        				        				        				            
				
										6. Lára Hallgrímsdóttir 				
				
        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        																																																																																		
                    
			
        	        				        				        				        				        				        				        				        				        				        				        				        				        				        				        				        				        				        				        				        				        				        				        				        				        				        				        				        				        				        				        				        				            
				
										19. Amanda Mist Pálsdóttir 				
				
        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        																																																																																		
                    
			
        	        				            
				
											
																19. Ragnhildur Sóley Jónasdóttir 				
				
        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        																																																																																		
                    
			
        	        				        				        				            
				
											
																21. Katrín Rósa Egilsdóttir 				
				
        	        					
 ('23)
        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        																																																																																		
                    
			
        	        				        				        				        				        				        				            
 ('23)
        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        																																																																																		
                    
			
				
										23. Sóley María Davíðsdóttir 				
				
        	        	        	        	        	        	        	        					
 ('67)
        	        	        	        	        	        	        	        	        																																																																																		
                    
			
        	        				        				        				        				        				        				        				        				        				        				        				        				        				        				        										- Meðalaldur 19 ár
				            
 ('67)
        	        	        	        	        	        	        	        	        																																																																																		
                    
			Liðsstjórn:
            
				Guðni Þór Einarsson (Þ)
				
            																																																																
                    
			
                                                
				Lidija Stojkanovic (Þ)
				
            																																																																
                    
			
                                                                                                
				Kristjana Ása Þórðardóttir 
				
            																																																																
                    
			
                                                                        
				Birkir Örn Arnarsson 
				
            																																																																
                    
			
                                                                                                
				Ragnheiður Lóa Stefánsdóttir 
				
            																																																																
                    
			
                                                                                                                        
				Ragnheiður Soffía Georgsdóttir 
				
            																																																																
                    
			
                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                            Gul spjöld:
            
        	        	Emma Sól Aradóttir ('44)
        				
        				Rauð spjöld:
            Leik lokið!
	
	
				Leiknum er lokið!
Víkingar vinna 2-1 útisigur eftir að hafa lent undir snemma leiks. Þetta þýðir að FH-ingar eru komnar upp í Bestu-deildina og Tindastóll er í lykilstöðu til að fylgja þeim þangað.
Þegar tvær umferðir eru eftir af deildinni er staðan svona:
1. FH - 40 stig
2. Tindastóll - 37 stig
3. HK - 33 stig
3. Víkingur - 32 stig
Ég þakka annars fyrir samfylgdina og minni á viðtöl og skýrslu síðar í kvöld.
	
			Víkingar vinna 2-1 útisigur eftir að hafa lent undir snemma leiks. Þetta þýðir að FH-ingar eru komnar upp í Bestu-deildina og Tindastóll er í lykilstöðu til að fylgja þeim þangað.
Þegar tvær umferðir eru eftir af deildinni er staðan svona:
1. FH - 40 stig
2. Tindastóll - 37 stig
3. HK - 33 stig
3. Víkingur - 32 stig
Ég þakka annars fyrir samfylgdina og minni á viðtöl og skýrslu síðar í kvöld.
			91. mín
		
	
						
				VÓÓÓ!
Gabriella kemst af stað og lætur vaða vinstra megin utan teigs. Þrumuskot hennar svífur rétt framhjá fjærstönginni!
	
			Gabriella kemst af stað og lætur vaða vinstra megin utan teigs. Þrumuskot hennar svífur rétt framhjá fjærstönginni!
			90. mín
		
	
						
				Víkingar fá aukaspyrnu og reyna að kreista einhverjar sekúndur af klukkunni með því að spila stutt og senda Christabel upp í horn með boltann.
		
	
			
			89. mín
		
	
						
				Nú eru HK-ingar ósáttar við að fá dæmda á sig aukaspyrnu. Ég sá ekki hvað gerðist þarna úti við hliðarlínu fjær en ungur HK-kórinn í stúkunni syngur "dómarann í sturtu". Það er í nægu að snúast fyrir dómaratríóið í kvöld enda mikið undir og hiti í mannskapnum, bæði innan og utanvallar.
		
	
			
			87. mín
				
		Gult spjald: Emma Steinsen Jónsdóttir (Víkingur R.)
	
	
						
		Gult spjald: Emma Steinsen Jónsdóttir (Víkingur R.)
	
	
				Víkingar reyna að drepa leikinn niður við hvert tækifæri. Emma er búin að gefa sér góðan tíma í innköst og fer svo að reima þegar hún á að taka aukaspyrnu svo Soffía lyftir gulu spjaldi fyrir tafir.
		
	
			
			83. mín
		
	
						
						
				HK-ingum gengur illa að skapa sér sénsa. Katrín Rósa var að fá boltann utarlega í teignum en viðstöðulaust skot hennar geigar.
		
	
			
			82. mín
				
		
						
		
			Inn:Sigdís Eva Bárðardóttir (Víkingur R.)
			Út:Brynhildur Vala Björnsdóttir (Víkingur R.)
		
	
	
				Tvöföld skipting hjá Víkingum.
		
	
			
			82. mín
				
		
			
	
			
						
						
		
			Inn:Sigdís Eva Bárðardóttir (Víkingur R.)
			Út:Hulda Ösp Ágústsdóttir (Víkingur R.)
		
	
	
			80. mín
		
	
						
				Tindastóll er að vinna 2-0 fyrir norðan og er að öllum líkindum að fara í 37 stig. 
		
	
			
			80. mín
		
	
						
				Það er ljóst að ef að Víkingar vinna HK hér í kvöld þá eru FH-ingar á leið upp um deild.
FH er komið í 40 stig og hvorki HK né Víkingur getur náð þeim.
	
			FH er komið í 40 stig og hvorki HK né Víkingur getur náð þeim.
			74. mín
		
	
						
				Bergdís og Tara græja aukaspyrnuna saman. Bergdís tekur stutt, Tara leggur boltann aftur til baka og Bergdís lætur vaða en skýtur yfir!
		
	
			
			73. mín
		
	
						
				HK-ingar afar ósáttar hér þegar Víkingar fá aukaspyrnu rétt utan D-bogans. Christabel fékk mann í bakið og féll við, leikmönnum HK til lítillar ánægju.
		
	
			
			70. mín
		
	
						
				Gabriella snýr laglega úti í vinstra horninu en reynir svo bjartsýnisskot í stað þess að setja boltann fyrir.
HK-ingar ekki á sínum besta degi gegn sprækum Víkingum.
	
			HK-ingar ekki á sínum besta degi gegn sprækum Víkingum.
			67. mín
				
		
						
		
			Inn:Sóley María Davíðsdóttir (HK)
			Út:Emma Sól Aradóttir (HK)
		
	
	
				Guðni og Lidija freista þess að fríska upp á leik síns liðs og færa til hjá sér. Unglingalandsliðskonan Sóley María fer í vinstri bakvörðinn. Rakel Lóa þann hægri og Hildur upp á vinstri kant.
		
	
			
			64. mín
		
	
						
				Hættulegt!
Christabel kemst inná teig hægra megin. Hún gerir vel og bíður eftir aðstoð. Rennir boltanum svo fyrir markið á Bergdísi sem reynir skot. Mér sýnist það vera Kristín sem hendir sér fyrir skotið.
Bergdís nær boltanum aftur og reynir skot á ný. Liggjandi Kristín nær hinsvegar aftur að komast fyrir skotið!
Bergdís fær boltann enn eina ferðina en í þriðju tilraun skýtur hún í Christabel samherja sinn sem er dæmd rangstæð.
Þung sókn gestanna!
	
			Christabel kemst inná teig hægra megin. Hún gerir vel og bíður eftir aðstoð. Rennir boltanum svo fyrir markið á Bergdísi sem reynir skot. Mér sýnist það vera Kristín sem hendir sér fyrir skotið.
Bergdís nær boltanum aftur og reynir skot á ný. Liggjandi Kristín nær hinsvegar aftur að komast fyrir skotið!
Bergdís fær boltann enn eina ferðina en í þriðju tilraun skýtur hún í Christabel samherja sinn sem er dæmd rangstæð.
Þung sókn gestanna!
			58. mín
		
	
						
				Það er hart tekist á og Soffía dómari hefur þurft að stoppa leikinn þónokkrum sinnum vegna meiðsla leikmanna. Hér er mikið í húfi og það sést langar leiðir!
		
	
			
			56. mín
				
		
			
	
			
						
		
			Inn:Ólöf Hildur Tómasdóttir (Víkingur R.)
			Út:Hafdís Bára Höskuldsdóttir (Víkingur R.)
		
	
	
			55. mín
		
	
						
				STÓRHÆTTA!
Vandræðagangur á Emmu sem missir langan bolta yfir sig og í hlaup hjá Gabriellu sem reynir að lyfta boltanum yfir Andreu í fyrsta!
Víkingar geta andað léttar því það er ekki næg mýkt í þessu hjá Gabriellu sem setur boltann yfir!
	
			Vandræðagangur á Emmu sem missir langan bolta yfir sig og í hlaup hjá Gabriellu sem reynir að lyfta boltanum yfir Andreu í fyrsta!
Víkingar geta andað léttar því það er ekki næg mýkt í þessu hjá Gabriellu sem setur boltann yfir!
			53. mín
		
	
						
				Christabel er of sein í tæklingu og brýtur á Hildi. HK fær aukaspyrnu vinstra megin. Magðalena setur hættulegan bolta inná teig og Rakel Lóa virðist verða fyrir bakhrindingu. Ekkert dæmt nema hvað að boltinn fer af varnarmanni og aftur fyrir og HK fær horn sem þær ná ekki að nýta sér.
		
	
			
			49. mín
		
	
						
				Boltinn dettur fyrir Isabellu Evu utarlega í vítateig Víkings en Isabella fer vel undir boltann og þrumar honum hátt yfir!
		
	
			
			46. mín
				
		MARK!
						
		MARK!Christabel Oduro (Víkingur R.)
	
	
				Takk fyrir túkall!
Þetta var ekki lengi að gerast. Kristín misreiknar einfaldan bolta fram völlinn og missir bæði boltann og Christabel aftur fyrir sig.
Gæðaleikmaður eins og Christabel þiggur að sjálfsögðu slíka gjöf og klárar örugglega framhjá Audrey.
Níunda mark Christabel í sumar og Víkingar eru komnar yfir!
	
			Þetta var ekki lengi að gerast. Kristín misreiknar einfaldan bolta fram völlinn og missir bæði boltann og Christabel aftur fyrir sig.
Gæðaleikmaður eins og Christabel þiggur að sjálfsögðu slíka gjöf og klárar örugglega framhjá Audrey.
Níunda mark Christabel í sumar og Víkingar eru komnar yfir!
			46. mín
		
	
						
				Gabriella á fyrstu tilraun síðari hálfleiksins. Á máttlaust skot úr þröngu færi í teignum sem Andrea á ekki í neinum vandræðum með.
		
	
			
			46. mín
				
						
Leikur hafinn
	
	
				Þá hefjast leikar að nýju. Engar breytingar hafa verið gerðar á liðunum.
		
	
			
			45. mín
				
						
Hálfleikur
	
	
				Úrslitin liggja fyrir í fyrsta leik kvöldsins í Lengjudeildinni. Topplið FH styrkir stöðu sína þar. Hafnfirðingar fara í 40 stig eftir 4-0 útisigur í Grindavík. Sjóðheit Telma Hjaltalín skoraði þar þrennu og varnarjaxlinn Maggý Lárentsínusdóttir gerði fjórða markið.
Það er hálfleikur í hinum leikjum kvöldsins. Tindastóll leiðir 2-0 gegn Fjölni og það er jafnt í leik Fylkis og Augnabliks, 1-1.
	
			Það er hálfleikur í hinum leikjum kvöldsins. Tindastóll leiðir 2-0 gegn Fjölni og það er jafnt í leik Fylkis og Augnabliks, 1-1.
			45. mín
				
						
Hálfleikur
	
	
				Það er kominn hálfleikur í Kórnum og staðan er 1-1.
Guðni, annar þjálfari HK, fylgir dómurunum áleiðis inn í klefa og liggur greinilega margt á hjarta.
HK-ingar fengu draumabyrjun og komust yfir strax í byrjun leiks. Víkingar voru svolítið skelkaðar strax á eftir en hafa unnið sig vel inn í leikinn og uppskáru sanngjarnt jöfnunarmark.
Nú er bara spurning hvað gerist hér í síðari hálfleik. "Do or die" fyrir bæði lið í toppbaráttunni.
	
			Guðni, annar þjálfari HK, fylgir dómurunum áleiðis inn í klefa og liggur greinilega margt á hjarta.
HK-ingar fengu draumabyrjun og komust yfir strax í byrjun leiks. Víkingar voru svolítið skelkaðar strax á eftir en hafa unnið sig vel inn í leikinn og uppskáru sanngjarnt jöfnunarmark.
Nú er bara spurning hvað gerist hér í síðari hálfleik. "Do or die" fyrir bæði lið í toppbaráttunni.
			45. mín
				
		Gult spjald: John Henry Andrews (Víkingur R.)
	
	
						
		Gult spjald: John Henry Andrews (Víkingur R.)
	
	
				Soffía dómari fær skilaboð í eyrun. Stoppar leikinn og skokkar að varamannabekk Víkings þar sem hún sýnir John Andrews gula spjaldið.
		
	
			
			44. mín
				
		Gult spjald: Emma Sól Aradóttir (HK)
	
	
						
		Gult spjald: Emma Sól Aradóttir (HK)
	
	
				Emma Sól fær pirringsspjald. Sparkar boltanum (laust) í mótherja eftir að dæmt var á hana.
		
	
			
			40. mín
		
	
						
				Það er hiti í þessu og nú eru Víkingar að fá aukaspyrnu úti vinstra megin. Tara tekur spyrnuna og setur góðan bolta. Upp úr því hefst svokallaður darraðadans þar sem bæði Christabel og Unnbjörg eru nálægt því að na til boltans en HK-ingar verjast kröftuglega og koma boltanum frá! 
		
	
			
			36. mín
		
	
						
				Víkingar taka fimmtu hornspyrnu sína en enn eru þær ekki að ná að ógna almennilega úr þessum föstu leikatriðum.
		
	
			
			34. mín
		
	
						
				Víkingar eru frískari og áræðnari. Mikill kraftur í fremstu fjórum hjá þeim og liðspressan góð.
		
	
			
			33. mín
		
	
						
				Það er rosaleg barátta framundan á toppi Lengjudeildarinnar. FH-ingar leiða með 37 stig, þar á eftir kemur Tindastóll með 34. Þá HK með 33 og loks Víkingar í 4. sæti með 29 stig. Ef Víkingar ætla að halda drauminum um Bestu-deilar sæti lifandi þá verða þær að vinna hér í kvöld.
		
	
			
			30. mín
		
	
						
				Þetta eru áhugaverðar mínútur og leikurinn er stál í stál úti á velli. Víkingar þó að komast ofar með liðið sitt.
		
	
			
			28. mín
				
		MARK!
						
		MARK!Hafdís Bára Höskuldsdóttir (Víkingur R.)
Stoðsending: Hulda Ösp Ágústsdóttir
	
	Stoðsending: Hulda Ösp Ágústsdóttir
				Alvöru afgreiðsla!
Víkingar jafna leikinn!
Hulda Ösp gerir vel og leggur boltann út á móti Hafdísi Báru sem hamrar boltann í netið!
Gullfallegt mark og staðan orðin jöfn!
	
			Víkingar jafna leikinn!
Hulda Ösp gerir vel og leggur boltann út á móti Hafdísi Báru sem hamrar boltann í netið!
Gullfallegt mark og staðan orðin jöfn!
			24. mín
		
	
						
				Víkingar taka hornspyrnuna. Gömlu Völsungarnir tengja. Hulda Ösp setur boltann á kollinn á Dagbjörtu en hún skallar yfir!
		
	
			
			23. mín
				
		
						
		
			Inn:Katrín Rósa Egilsdóttir (HK)
			Út:Henríetta Ágústsdóttir (HK)
		
	
	
				Henríetta getur því miður ekki haldið áfram leik. Vont fyrir HK-inga að missa hana af miðsvæðinu svona snemma leiks. Katrín Rósa leysir hana af.
		
	
			
			23. mín
		
	
						
				Hvað gerðist hér?
HK-ingar eru að undirbúa skiptingu og þá rýkur John Andrews, þjálfari Víkings, brjálaður að aðstoðardómara 1. Það hefur eitthvað gerst í teignum. Leikmaður Víkings liggur í teignum og liðsfélagar hennar standa yfir henni.
Ég var með augu á hliðarlínunni og sá ekki hvað gerðist þarna en þetta var sérkennilegt í meira lagi.
	
			HK-ingar eru að undirbúa skiptingu og þá rýkur John Andrews, þjálfari Víkings, brjálaður að aðstoðardómara 1. Það hefur eitthvað gerst í teignum. Leikmaður Víkings liggur í teignum og liðsfélagar hennar standa yfir henni.
Ég var með augu á hliðarlínunni og sá ekki hvað gerðist þarna en þetta var sérkennilegt í meira lagi.
			22. mín
		
	
						
				Víkingar keyra upp völlinn og sækja fjórðu hornspyrnuna sína. Áður en spyrnan er tekin er leikurinn hinsvegar stöðvaður. Henríetta situr eftir í teignum og mér sýnist sjúkraþjálfari HK gefa merki um að hún þurfi að fara af velli.
		
	
			
			21. mín
		
	
						
				Hulda Ösp er lífleg á vinstri kantinum hjá Víkingum. Hún var að reyna skot utan af velli en setti boltann yfir!
		
	
			
			19. mín
		
	
						
				Skemmtileg tilþrif hjá HK-ingum. Isabella stingur sér inná teig og tekur við krefjandi bolta. Reynir skot en færið er orðið þröngt og hún setur boltann beint á Andreu.
Isabella Eva er búin að eiga þrususumar og hefur notið sín sérstaklega vel eftir að hún var færð fremst á miðjuna. Þaðan hefur hún raðað inn mörkum.
	
			Isabella Eva er búin að eiga þrususumar og hefur notið sín sérstaklega vel eftir að hún var færð fremst á miðjuna. Þaðan hefur hún raðað inn mörkum.
			15. mín
		
	
						
				Víkingar ná sér í tvær hornspyrnur með stuttu millibili en ná ekki að nýta þær nægilega vel til að skapa hættu.
		
	
			
			12. mín
		
	
						
				Það er stemmning í Kórnum. Nóg af trommum og fullt af ungu og flottu stuðningsfólki sem lætur vel í sér heyra.
Það er auðvitað mikil saga á milli þessara liða sem léku lengi vel saman undir nafni HK/Víkings. Samstarfinu farsæla lauk eftir tímabilið 2019 og báðir klúbbar hafa farið í mikla uppbyggingu síðan. Í ár stilla bæði félög upp gríðarsterkum Lengjudeildarliðum og yngri flokka starfið blómstrar.
	
			Það er auðvitað mikil saga á milli þessara liða sem léku lengi vel saman undir nafni HK/Víkings. Samstarfinu farsæla lauk eftir tímabilið 2019 og báðir klúbbar hafa farið í mikla uppbyggingu síðan. Í ár stilla bæði félög upp gríðarsterkum Lengjudeildarliðum og yngri flokka starfið blómstrar.
			10. mín
		
	
						
				Víkingar fá aukaspyrnu úti hægra megin. Tara setur boltann fyrir og í áttina að Christabel en hún finnur ekki skotið. 
HK-ingar vinna þá boltann og geysast í skyndisókn. Arna ber upp boltann vinstra megin og gerir vel í að gefa Rakel Lóu tíma til að bruna upp hægra megin. Arna spilar svo yfir og Rakel neglir að marki með hægri fæti! Því miður fyrir HK-inga svífur skotið yfir markið.
	
			HK-ingar vinna þá boltann og geysast í skyndisókn. Arna ber upp boltann vinstra megin og gerir vel í að gefa Rakel Lóu tíma til að bruna upp hægra megin. Arna spilar svo yfir og Rakel neglir að marki með hægri fæti! Því miður fyrir HK-inga svífur skotið yfir markið.
			8. mín
		
	
						
				Lið Víkings:
Andrea
Unnbjörg - Emma - Dagbjört - Kiley
Tara - Brynhildur
Bergdís - Cristabel - Hulda Ösp
Hafdís Bára
	
			Andrea
Unnbjörg - Emma - Dagbjört - Kiley
Tara - Brynhildur
Bergdís - Cristabel - Hulda Ösp
Hafdís Bára
			7. mín
		
	
						
				Nú sækja Víkingar hornspyrnu. Spurning hvort þeim takist jafn vel til og HK-ingum áðan.
Tara setur hættulegan bolta inn á teig en það er dæmt á Víkinga.
	
			Tara setur hættulegan bolta inn á teig en það er dæmt á Víkinga.
			5. mín
		
	
						
				Lið HK:
Audrey
Emma Sól - Lára - Kristín - Hildur
Henríetta - Magðalena
Rakel Lóa - Isabella - Arna Sól
Gabriella
	
			Audrey
Emma Sól - Lára - Kristín - Hildur
Henríetta - Magðalena
Rakel Lóa - Isabella - Arna Sól
Gabriella
			4. mín
		
	
						
						
				Boltinn skoppar í grasinu og snýst upp í höndina á Unnbjörgu rétt fyrir utan D-bogann. Aukaspyrna dæmd.
Magðalena reynir skot úr spyrnunni en setur boltann beint á Andreu markvörð.
	
			Magðalena reynir skot úr spyrnunni en setur boltann beint á Andreu markvörð.
			2. mín
				
		MARK!
					
		MARK!Arna Sól Sævarsdóttir (HK)
	
	
				Þvílík byrjun hér!
HK-ingar láta hornspyrnuna telja!
Setja boltann á fjær þar sem Víkingar hafa gleymt að fylgjast með Örnu Sól sem þakkar pent fyrir sig og lyftir boltanum í fjærhornið!
	
			HK-ingar láta hornspyrnuna telja!
Setja boltann á fjær þar sem Víkingar hafa gleymt að fylgjast með Örnu Sól sem þakkar pent fyrir sig og lyftir boltanum í fjærhornið!
			2. mín
		
	
					
					
				Heimakonur byrja vel. Gabriella reynir skot úr teignum en skotið fer af varnarmanni og aftur fyrir. Fyrsta hornspyrnan staðreynd.
		
	
			
			Fyrir leik
		
	
					
				Allt er orðið klár í Kórnum og byrjunarliðin má sjá hér til hliðar. Soffía Ummarin dómari er að fara yfir málin með fyrirliðunum Isabellu Evu og Dagbjörtu Ingvars og veislan fer alveg að hefjast!
		
	
			Byrjunarlið:
            
				
										1. Andrea Fernandes Neves (m) 				
				
																																																																																																																																																																					
			
			        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        				
				
										 Dagbjört Ingvarsdóttir  				
				
																																																																																																																																																																					
			
			        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        				
				
										4. Brynhildur Vala Björnsdóttir  				
				
																																																																				
 ('82)
																																																																																																														
			
			        	        	        	        				
 ('82)
																																																																																																														
			
				
											
																5. Emma Steinsen Jónsdóttir  				
				
																																																																																																																								
																																																										
			
			        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        				
				
										9. Christabel Oduro  				
				
																																																																																																																																																																			
															
			
			        	        	        	        	        	        	        	        				
				
										11. Hafdís Bára Höskuldsdóttir  				
				
																																						
 ('56)
																																																																																																																															
																										
			
			        	        	        	        	        	        	        	        	        	        				
 ('56)
																																																																																																																															
				
										13. Kiley Norkus  				
				
																																																																																																																																																																					
			
			        	        	        	        				
				
										14. Unnbjörg Jóna Ómarsdóttir  				
				
																																																																																																																																																																					
			
			        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        				
				
										19. Tara Jónsdóttir  				
				
																																																																																																																																																																					
			
			        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        				
				
										23. Hulda Ösp Ágústsdóttir  				
				
																																																																																			
 ('82)
																																																																																															
			
			        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        				
 ('82)
																																																																																															
			
				
											
																26. Bergdís Sveinsdóttir  				
				
																																																																																																																																																																					
			
			        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        															- Meðalaldur 21 ár
				            Varamenn:
            
				
											
																1. Sigurborg K. Sveinbjörnsdóttir (m)				
				
        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        																																																																																							
			
        	        				        				        				        				        				        				        				        				        				        				        				        				        				        				        				        				        				        				        				        				        				        				        				        				        				        				        				        				        				        				        				        				        				        				        				        				        				        				        				        				        				        				        				        				        				        				        				        				        				        				        				        				        				        				        				        							
				
										6. Elísa Sól Oddgeirsdóttir 				
				
        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        																																																																																							
			
        	        				        				        				        				        							
				
										8. Arnhildur Ingvarsdóttir 				
				
        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        																																																																																							
			
        	        				        				        				        				        				        				        				        				        				        				        				        				        				        				        				        				        				        				        				        							
				
										17. Svanhildur Ylfa Dagbjartsdóttir 				
				
        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        																																																																																							
			
        	        				        				        				        				        				        				        				        							
				
										22. Nadía Atladóttir 				
				
        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        																																																																																							
			
        	        				        				        				        				        				        							
				
										24. Sigdís Eva Bárðardóttir 				
				
        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        					
 ('82)
        	        	        	        					
 ('82)
        	        	        																																																																																							
			
        	        				        							
 ('82)
        	        	        	        					
 ('82)
        	        	        																																																																																							
			
				
										25. Ólöf Hildur Tómasdóttir 				
				
        	        	        	        	        					
 ('56)
        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        																																																																																							
			
        	        				        				        				        				        				        				        				        				        							
 ('56)
        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        																																																																																							
			
				
										29. Halla Hrund Ólafsdóttir 				
				
        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        																																																																																							
			
        	        							
				
										32. Freyja Friðþjófsdóttir 				
				
        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        	        																																																																																							
			
        	        				        				        				        										- Meðalaldur 19 ár
				            Liðsstjórn:
            
				John Henry Andrews (Þ)
				
            																
																																																														
			
                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                            			
				María Björg Marinósdóttir 
				
            																																																																					
			
                                    			
				Þorsteinn Magnússon 
				
            																																																																					
			
                                    			
				Ingibjörg Ásta Halldórsdóttir 
				
            																																																																					
			
                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                            Gul spjöld:
            
        	        	John Henry Andrews ('45)
        				
        				
        	        	Emma Steinsen Jónsdóttir ('87)
        				
        	            Rauð spjöld:
            