0. mín
Dómarateymið
Þórður Þorsteinsson Þórðarson dæmir leikinn í kvöld. Honum til aðstoðar verða Gylfi Már Sigurðsson og Ronnarong Wongmahadthai á flöggunum. Róbert Þór Guðmundsson er fjórði dómari og Halldór Breiðfjörð Jóhannsson er dómaraeftirlitsmaður.


0. mín
Sú allra besta
Góða kvöldið kæru lesendur og verið þið velkomnir í þessa þráðbeinu textalýsingu frá Víkingsvellinum. Hér munu Víkingur og KA etja kappi í 13. umferð Bestu deildarinnar. Þess ber að nefna að Víkingur leikur í Evrópu í ár og eru því að leika sinn fjórtanda leik í sumar rétt eins og önnur Evrópulið.





