Kópavogsvöllur
mánudagur 11. maí 2015  kl. 19:15
Pepsi-deild karla 2015
Aðstæður: Völlur ágætur - Veður gott
Dómari: Valgeir Valgeirsson
Áhorfendur: 1945
Maður leiksins: Sören Fredriksen
Breiðablik 2 - 2 KR
1-0 Höskuldur Gunnlaugsson ('10)
1-1 Óskar Örn Hauksson ('45)
1-2 Sören Frederiksen ('70)
2-2 Guðjón Pétur Lýðsson ('71)
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Byrjunarlið:
0. Gunnleifur Gunnleifsson
4. Damir Muminovic
5. Elfar Freyr Helgason
7. Höskuldur Gunnlaugsson (f)
7. Kristinn Jónsson
15. Davíð Kristján Ólafsson ('87)
19. Gunnlaugur Hlynur Birgisson
22. Ellert Hreinsson ('61)
29. Arnór Sveinn Aðalsteinsson
30. Andri Rafn Yeoman
45. Guðjón Pétur Lýðsson

Varamenn:
24. Aron Snær Friðriksson (m)
9. Ismar Tandir ('61)
13. Sólon Breki Leifsson
21. Guðmundur Friðriksson
21. Viktor Örn Margeirsson

Liðstjórn:
Olgeir Sigurgeirsson

Gul spjöld:
Damir Muminovic ('65)
Guðjón Pétur Lýðsson ('85)

Rauð spjöld:
@bjorgvinpeturs Björgvin Stefán Pétursson
93. mín Leik lokið!
Leik lokið hér í kvöld, skýrsla og viðtöl væntanleg á síðuna.
Eyða Breyta
90. mín
VÁÁÁ Kristinn Jónsson setur boltann fyrir en Gunnar Þór rétt kemst í boltann áður en Olgeir potar honum yfir línuna! Horn sem ekkert kemur upp úr.
Eyða Breyta
88. mín
KR skorar en Valgeir flautar og markið ekki gilt. Hér sá enginn hvað gerðist. En KR-ingar kvarta ekki mikið.
Eyða Breyta
87. mín Olgeir Sigurgeirsson (Breiðablik) Davíð Kristján Ólafsson (Breiðablik)

Eyða Breyta
87. mín Almarr Ormarsson (KR) Sören Frederiksen (KR)

Eyða Breyta
87. mín
KR með alvöru sókn, Þorsteinn setur hann á Óskar sem að skýtur en Gulli ver vel!
Eyða Breyta
85. mín Gult spjald: Guðjón Pétur Lýðsson (Breiðablik)
Alveg eins brot og hjá Balbi.
Eyða Breyta
84. mín Gult spjald: Gonzalo Balbi Lorenzo (KR)
Professional foul frá Balbi. Braut á Kidda Jóns.
Eyða Breyta
81. mín
Guðjón Pétur setur boltann yfir úr aukaspyrnunni.
Eyða Breyta
80. mín
Blikar fá hornspyrnu. Guðjón Pétur snýr boltann fyrir markið en KR skalla boltann beint á Guðjón aftur sem er svo klipptur niður af Skúla Jón rétt fyrir utan teig.
Eyða Breyta
78. mín Þorsteinn Már Ragnarsson (KR) Gary Martin (KR)
Gary fann sig ekki alveg í dag.
Eyða Breyta
75. mín
Þvílíkar mínútur og nú skiptast liðin á því að sækja. Ég lofaði mörkum og það koma mörk. Það verður sigurmark hér, ég er viss.
Eyða Breyta
71. mín MARK! Guðjón Pétur Lýðsson (Breiðablik)
HVAÐ ER AÐ GERAST HÉRNA??? BLIKAR BRUNA FRAM OG SKORA STRAX!! Guðjón Pétur með hörkuskot af 25 metra færi sem Stefán Logi ver inn. Stefán hefði klárlega getað gert betur.
Eyða Breyta
70. mín MARK! Sören Frederiksen (KR), Stoðsending: Gonzalo Balbi Lorenzo
MAAAAARK!!
Frábær skyndisókn hjá KR. Balbi þaut upp hægra megin, sendir hann innfyrir á Sören sem renndi boltanum framhjá Gulla í markinu. Vel gert! Það verður þó að setja spurningamerki við varnarleik Blika í þessu marki, mjöf fáliðaðir til baka.
Eyða Breyta
69. mín
Gary setur hann vel innfyrir á Óskar sem er ranglega flaggaður rangstæður! Óskar brjálaður...
Eyða Breyta
68. mín
VÁÁÁÁÁ!!! Óskar með magnað skot sem að stefndi beint í vinkilinn en Gulli ver þetta frááábærlega! Þvílík varsla og frábært skot!!
Eyða Breyta
65. mín Gult spjald: Damir Muminovic (Breiðablik)
Fyrsta spjald leiksins fær Damir fyrir tæklingu á Gary. Það sást alla leið úr blaðamannastúkunni að Damir tók boltann. Skrítin ákvörðun að spjalda.
Eyða Breyta
65. mín
Liðin skiptast á að sækja án þess að það komi nokkuð úr því. Ég óska eftir marki.
Eyða Breyta
62. mín
Þarna skall hurð nærri hælum hjá Blikum. Óskar með sendingu fyrir á Sören sem skallar boltann rétt framhjá!!!
Eyða Breyta
61. mín Ismar Tandir (Breiðablik) Ellert Hreinsson (Breiðablik)
Ismar Tandir kominn inná fyrir meiddan Ellert Hreinsson. Stór og stæðilegur maður hann Ismar.
Eyða Breyta
60. mín
Ellert er á leið útaf, hann er sestur á bekkinn. Blikar því einum færri eins og er.
Eyða Breyta
59. mín
Ellert er staðinn upp og heldur um nefið. Leikurinn kominn í gang.
Eyða Breyta
56. mín
ÚFFF!! Harður árekstur á milli Rasmus og Ellerts, þeir liggja báðir eftir og eru sjúkraþjálfarar beggja liða komnir inná. Rasmus er staðinn upp en Ellert liggur eftir og virðist þjáður. Þeir settu hausana duglega saman þarna.
Eyða Breyta
54. mín
Arnór Sveinn liggur í sínum eigin teig eftir að hafa fengið fast skot Óskars í sig. Virtist fá hann í magann en hann er staðinn upp. En er enn utan vallar.
Eyða Breyta
53. mín
KR-ingar komnir 3 á 3 en Damir tekur eina fullorðins tæklingu í boltann og síðan Óskar Örn og uppsker lófatak úr stúkunni.
Eyða Breyta
52. mín
Mikill atgangur í teig Blika eftir hornspyrnu KR-inga en á endanum hreinsa þeir hann í burtu. KR líklegri þessar fyrstu mínútur í seinni.
Eyða Breyta
49. mín
Blikar fá horn og ungir stuðningsmenn Blika syngja "inn með boltann". En KR hreinsa hornspyrnuna í burtu.
Eyða Breyta
47. mín
KR með flotta sókn. Pálmi sendir á Schoop sem sendir Óskar í gegn. En hann tekur snertingu of mikið og missir hann aðeins of langt frá sér og því er skotið laust. En Gulli ver í horn sem ekkert verður úr.
Eyða Breyta
46. mín
Valgeir Valgeirsson flautar seinni hálfleikinn á. Hér munu koma fleiri mörk, það er loforð.
Eyða Breyta
46. mín Hálfleikur
KR komnir út á völl en enn láta Blikar bíða eftir sér.
Eyða Breyta
45. mín MARK! Óskar Örn Hauksson (KR)
MAAAAAARK!!!!
Sören með sendingu fyrir og Arnór Sveinn ætlar að kassa hann niður fyrir Gulla en mjög léleg sending til baka frá Arnóri, Óskar kemst inn í hana og skorar!! Og í þann mund er Blikar taka miðju flautar Valgeir til hálfleiks. KR fengu þarna mark á silfurfati eftir að hafa lítið getað í fyrri hálfleik. Í seinni hálfleik verður fjör!
Eyða Breyta
42. mín
Jæja Blikar fara í fyrstu sókn sína í dágóðan tíma. Spila sig í gegn en Balbi gerir vel og hendir Höskuldi af boltanum en boltinn berst svo á Davíð sem að á misheppnaða sendingu sem stíluð var á Höskuld.
Eyða Breyta
40. mín
Heimamenn eru að verjast vel en hafa ekki fengið að hafa boltann núna í dágóðan tíma. KR eins og freki krakkinn á sparkvellinum og einoka boltann.
Eyða Breyta
36. mín
Blikar spila þétta og góða vörn og eru KR-ingar ekki að finna neinar glufur. Fá þó hornspyrnu sem Gulli grípur.
Eyða Breyta
33. mín
Hér á Kópavogsvelli er sitið í öllum sætum í báðum stúkum. Frábær mæting.
Eyða Breyta
31. mín
Rólegt þessar mínúturnar hér á Kópavogsvelli en KR þó ívið meira með boltann. Rétt í þessu var verið að flagga Gary Martin rangstæðan.
Eyða Breyta
30. mín


Eyða Breyta
28. mín
Pálmi og Schoop með sitthvort skotið núna á stuttum tíma. KR-ingar færast nær.
Eyða Breyta
26. mín
KR-ingar fá hornspyrnu sem Balbi snýr fyrir markið. Eftir atgang í teignum snýr Pálmi hann fyrir markið þar er Sören hársbreidd frá því að ná til boltans!! Þetta var hættulegt!
Eyða Breyta
23. mín
Óskar Örn með hættulega fyrirgjöf frá vinstri en Damir hreinsar hana úr teignum. KR-ingar eru að vakna til lífsins eftir vægast sagt daprar fyrstu 23 mín.
Eyða Breyta
21. mín
Bödker að vanta æstasti maðurinn á vellinum og lætur Sören heyra það fyrir að fara ekki upp í skallabolta.
Eyða Breyta
20. mín
Davíð Kristján tekur spyrnuna en hún er hættulaus og Stefán Logi leyfir henni að svífa yfir.
Eyða Breyta
18. mín
Höskuldur tekinn niður utan teigs eftir að hafa leikið á 3 KR-inga. Rasmus tekur hann niður en sleppur við spjald, við litla hrifningu Blika á vellinum.
Eyða Breyta
17. mín
Pálmi er utan vallar eins og er. Virðist blæða úr putta miðjumannsins.
Eyða Breyta
16. mín
Óskar Örn Hauksson með svaka tilraun, tekur hann á lofti fyrir utan teig en boltinn fer rétt yfir. Gulli tók sjónvarpsskutlu en snerti boltann ekki. Þetta var nálægt!
Eyða Breyta
10. mín MARK! Höskuldur Gunnlaugsson (Breiðablik), Stoðsending: Guðjón Pétur Lýðsson
MAAAAAARK!!!
Bikar fá aukaspyrnu 30 metra frá marki. Guðjón Pétur setur boltann fyrir og þar mætir Höskuldur, minnsti maður vallarins og stangar hann í netið. Einn og óvaldaður. Samba-blikar komnir yfir!!!!
Eyða Breyta
8. mín
Ellert og Kristinn spila fallega á milli sín, Kristinn sendir hann út til hægri á Arnór sem kemur með fyrirgjöf en Skúli Jón skallar hana í burtu.
Eyða Breyta
6. mín
Breiðablik fá aukaspyrnu á álitlegum stað. Úti á hægri vængnum. Kristinn Jónsson setur boltann fyrir en finnur aðeins hendurnar á Stefáni Loga.
Eyða Breyta
4. mín
Fyrsta hornspyrna leiksins er KR-inga. En ekkert kemur upp úr henni.
Eyða Breyta
1. mín Leikur hafinn
BYRJAÐ!! Blikar byrja með boltann og sækja í átt að Sporthúsinu.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Liðin að ganga út á völlinn. Pálmi Rafn og Arnór Sveinn leiða sín lið. KR í sínum svörtu og hvítu búningum. Breiðablik fagurgrænir. Þetta verður veisla hér í dag.
Eyða Breyta
Fyrir leik
60 ára afmæli Kópavogs í dag. Óskum Kópavogsbúum til hamingju með það.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Byrjunarliðin farin inn í klefa. Veislan fer að byrja. Ég hvet fólk til þess að drífa sig á völlinn ef að það er á höfuðborgarsvæðinu. Ef ekki þá mæli ég með því að þið fylgist með hér á .net.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Þjálfarar liðanna eru mjög flottir í tauinu í kvöld. Bjarni Guðjónsson í svörtum jakkafötum, hvítri skyrtu og með glæsilegt bindi. Arnar Grétarsson er að vinna með ljósara þema, ekki síður glæsilegur.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Dómari leiksins er Valgeir Valgeirsson og honum til aðstoðar eru Frosti Viðar Gunnarsson og Björn Valdimarsson. Þeir skokka sömu leið og Arnþór Ari skokkaði hérna áðan.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Fólk byrjað að streyma á völlinn. Hálftími í leik, sól og blíða. Gæti ekki verið betra.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Blikar mættir út að hita. Hinu megin er aðeins Henrik Bödker mættur út á völl.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Hér í blaðamannaherberginu kvarta menn sáran yfir því að "Kópavogsdjúsinn" sé ekki kominn í hús.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Gunnleifur fyrstur út að hita. Með bleikt teip upp hálsinn.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru klár, Grétar Sigfinnur fer út hjá KR og inn kemur Gunnar Þór. Hinu megin kemur Guðjón Pétur inn fyrir Arnþór Ara sem er meiddur. Ekkert óvænt þar á ferð.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Arnþór Ari skokkar hliðarlína á milli, gengur greinilega ekki heill til skógar. Haltrar þegar að hann stígur í vinstri löppina. Tignarlegur í sólinni.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Leikur umferðarinnar. Blikar áttu leik seint í fyrstu umferð og það mun gera gæfumuninn. KR-ingar mæta ferskari til leiks og klára þennan leik 1-2. Arnþór Ari byrjar sína Pepsi deild þarna og skorar markið fyrir Blika. Skúli Jón skorar fyrsta mark KR og svo kemur Atli Sigurjóns inn á, nýtir tækifærið og klárar leikinn. - Þetta segir spámaður umferðarinnar Egill Ploder um leikinn.
Ólíklegt að þetta verði rétt spá hjá kauða, enda er Arnþór Ari meiddur og ekki með í dag.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Þessi lið mættust einnig í 2. umferð í fyrra, þá á Samsung-velli Stjörnumanna, og vann KR þann leik 2-1. KR sló Breiðablik líka út úr bikarnum í fyrra með 2-0 sigri á Kópavogsvelli en síðari leikur liðanna í deildinni, á KR-velli, endaði með jafntefli 1-1.
Eyða Breyta
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Það er stórleikur framundan hér í Kópavogi! Breiðablik og KR etja kappi í 2. umferð. Blikar gerðu jafntefli við Fylki í 1. umferðinni á meðan KR-ingar töpuðu fyrir FH 1-3.

Byrjum þetta á tölfræði sem fengin er af heimasíðu Breiðabliks:

Breiðablik og KR hafa mæst 79 sinnum í opinberum leikjum frá upphafi. Fyrsti leikur liðanna (A-liða) var í 8-liða úrslitum í Bikarkeppni KSÍ 24. október árið 1970. Leikið var á gamla Melavellinum eftir að KR-ingar mótmæltu að leika á Vallargerðisvellinum. Leiknum lauk með 1-0 sigri KR-inga í leik sem Blikar léku vel.

En alls hafa liðin mæst 79 sinnum frá upphafi og hefur KR vinninginn með 40 sigra á móti 18 sigrum Blika og jafnteflin eru 19.
Eyða Breyta
Elvar Geir Magnússon
Byrjunarlið:
1. Stefán Logi Magnússon (m)
3. Rasmus Christiansen
4. Gonzalo Balbi Lorenzo
6. Gunnar Þór Gunnarsson
7. Skúli Jón Friðgeirsson
7. Gary Martin ('78)
8. Jónas Guðni Sævarsson
10. Pálmi Rafn Pálmason (f)
19. Sören Frederiksen ('87)
20. Jacob Toppel Schoop
22. Óskar Örn Hauksson (f)

Varamenn:
13. Sindri Snær Jensson (m)
2. Grétar Sigfinnur Sigurðarson
8. Þorsteinn Már Ragnarsson ('78)
11. Almarr Ormarsson ('87)
16. Kristinn Jóhannes Magnússon
18. Aron Bjarki Jósepsson
23. Atli Sigurjónsson

Liðstjórn:

Gul spjöld:
Gonzalo Balbi Lorenzo ('84)

Rauð spjöld: