Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
ÍBV
1
0
Stjarnan
Óskar Elías Zoega Óskarsson '114 1-0
01.05.2019  -  16:00
Hásteinsvöllur
Mjólkurbikar karla
Aðstæður: 8° hiti og blankalogn
Dómari: Þorvaldur Árnason
Áhorfendur: 430
Maður leiksins: Telmo Castanheira
Byrjunarlið:
93. Rafael Veloso (m)
Jonathan Glenn
Matt Garner
2. Sigurður Arnar Magnússon
3. Felix Örn Friðriksson ('106)
7. Evariste Ngolok ('101)
8. Telmo Castanheira
17. Róbert Aron Eysteinsson ('77)
73. Gilson Correia
77. Jonathan Franks ('70)
92. Diogo Coelho

Varamenn:
21. Halldór Páll Geirsson (m)
2. Nökkvi Már Nökkvason
6. Dagur Austmann ('101)
11. Víðir Þorvarðarson ('70)
12. Eyþór Orri Ómarsson ('106)
24. Óskar Elías Zoega Óskarsson ('77)

Liðsstjórn:
Pedro Hipólito (Þ)
Ian David Jeffs
Björgvin Eyjólfsson
Richard Matthew Goffe
Gunný Gunnlaugsdóttir

Gul spjöld:
Diogo Coelho ('13)
Víðir Þorvarðarson ('74)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
+2
Eyjamenn eru komnir áfram og bikarmeistararnir úr leik.
120. mín
+2
Stjörnumenn eiga horn og Haraldur er mættur inn í teig.
120. mín
+1
2 min bætt við.
119. mín
Eyjamenn reyna allt til þess að éta niður tíman.
114. mín MARK!
Óskar Elías Zoega Óskarsson (ÍBV)
MARK!!!!!! Óskar Zoega fylgir eftir skoti frá Eyþóri Orra.
112. mín
Inn:Brynjar Gauti Guðjónsson (Stjarnan) Út:Hilmar Árni Halldórsson (Stjarnan)
Og hér kemur hún.
111. mín
Hilmar Árni biður um skiptingu
109. mín
Það er komin mikil þreyta í mannskapinn.
107. mín
Hilmar Árni er farinn að haltra, líklegt að honum verði fljótlega skipt útaf
106. mín
Seinni hálfleikur framlengingar hafinn.
106. mín
Inn:Eyþór Orri Ómarsson (ÍBV) Út:Felix Örn Friðriksson (ÍBV)
Hinn ungi og efnilegi Eyþór Orri fær að spreyta sig.
105. mín
Hálfleikur í framlengingu.
105. mín
Guðmundur Steinn með kraftlausan skalla sem Rafael grípur.
101. mín
Inn:Dagur Austmann (ÍBV) Út:Evariste Ngolok (ÍBV)
Ngolok búinn á því.
100. mín
Glenn með góða fyrirgjöf en Víðir nær ekki til boltans.
96. mín
Eyjamenn vilja meina að Haraldur hafi brotið á Víði fyrir utan teig, en Eyjamenn fá bara hornspyrnu sem ekkert verður úr.
93. mín
Stjörnumenn sækja af miklum krafti.
91. mín
Framlengingin er hafin. Stjörnumenn hefja leik.
90. mín
+3
Venjulegum leiktíma lokið við erum að fara í framlengingu.
90. mín
Stefnir allt í framlengingu.
90. mín
3 mín í uppbót.
89. mín
ÍBV skorar en dæmd rangstæða.
87. mín
Stjörnumenn fá hornspyrnu.
78. mín
Guðmundur steinn með skalla yfir markið.
77. mín
Inn:Óskar Elías Zoega Óskarsson (ÍBV) Út:Róbert Aron Eysteinsson (ÍBV)
Róbart Aron fer útaf eftir flottan leik, búinn að hlaupa fyrir tvo meirihluta leiks.
74. mín Gult spjald: Víðir Þorvarðarson (ÍBV)
71. mín
Ekkert að gerast þessa stundina.
70. mín
Inn:Víðir Þorvarðarson (ÍBV) Út:Jonathan Franks (ÍBV)
69. mín Gult spjald: Guðmundur Steinn Hafsteinsson (Stjarnan)
Sparkar í magan á Garner
65. mín
Inn:Guðmundur Steinn Hafsteinsson (Stjarnan) Út:Guðjón Baldvinsson (Stjarnan)
64. mín
Þórarinn Ingi bjargar boltanum frá innkasti og rennir sér á Geisla logoið, sumir segja að hann hafi fengið gallaða þvottavél frá þeim.
61. mín
Hörku skot frá Telmo en Haraldur ver meistaralega í markinu.
60. mín
Áhorfendur á Hásteinsvelli í dag eru 430, töluverð bæting frá því í síðasta leik.
59. mín
Eyjamenn með slappa hornspyrnu og Stjörnumenn fara í skyndisókn sem ekkert verður úr.
58. mín
Lítið búið að gerast í upphafi seinni hálfleiks.
57. mín
Inn:Nimo Gribenco (Stjarnan) Út:Sölvi Snær Guðbjargarson (Stjarnan)
46. mín
Leikur hafinn
Leikur hafinn á ný.
46. mín
Inn:Eyjólfur Héðinsson (Stjarnan) Út:Alex Þór Hauksson (Stjarnan)
45. mín
Hálfleikur
Tíðindalitlum fyrri hálfleik lokið.
45. mín
2 mín bætt við.
38. mín
Rafael liggur eftir með eymsli í baki.
Halldór Páll er farinn að hita upp.
37. mín
Stjörnumenn fá dauðafæri eftir misheppnaða sendingu til baka frá Felix. Rafael ver vel frá Þorsteini.
36. mín Gult spjald: Alex Þór Hauksson (Stjarnan)
Eftir tæklingu á Glenn.
35. mín
Eyjastúkan er farin að lifna við.
33. mín
Stjörnumenn búnir að liggja í sókn síðustu 5 mín.
27. mín
Glenn aftur í góðu færi eftir undirbúning frá Ngolok en boltinn fer hátt yfir markið.
21. mín
Jonathan Glenn fær gott færi eftir frábært spil Eyjamanna en Haraldur gerir vel í markinu.
13. mín Gult spjald: Diogo Coelho (ÍBV)
Diogo fær gult spjald eftir að hafa dýft sér innan vítateigs.
11. mín
Stjörnumenn þurftu að gera breytingu á sínu liði rétt fyrir leik en Þorsteinn Már kom inn fyrir Ævar Inga.
10. mín
Stjörnumenn með hættulega hornspyrnu, Jonathan Glenn liggur eftir í grasinu eftir skot í sparistellið.
6. mín
Leikurinn fer rólega af stað.
1. mín
Leikur hafinn
Stjörnumenn byrja með boltann og sækja í átt að Herjólfsdal.
Fyrir leik
Stjarnan hefur spilað tvo alvöru leiki á þessari leiktíð og mótherjar þeirra fengið rautt spjald í þeim báðum, gegn KR og Val. Illa hefur Stjörnunni þó gengið að skora manni fleiri en gaman verður að sjá hvort að þeir nái að raða inn mörkum í dag.
Fyrir leik
Gaman að sjá að ÍBV byrjar með þrjá uppalda Eyjamenn allir fæddir árið 1999 en það eru þeir Róbert Aron Eysteinsson, Sigurður Arnar Magnússon og Felix Örn Friðriksson sem er mættur aftur heim frá Danmörku þar sem hann spilaði með Vejle.
Fyrir leik
Líklegt er að Eyjamenn verði í leikkerfinu 5-3-2, með Glenn og Franks uppi á topp.
Fyrir leik
Sindri Snær Magnússon og Guðmundur Magnússon leikmenn ÍBV eru báðir í leikbanni í dag. Þá er Alfreð Már Hjaltalín meiddur.
Fyrir leik
Í liði Stjörnumanna eru 4 fyrrum leikmenn ÍBV en það eru þeir Guðmundur Steinn, Þórarinn Ingi, Brynjar Gauti og Guðjón Orri. Þórarinn og Guðjón Orri eru báðir uppaldir Eyjamenn.
Fyrir leik
Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Stjörnunnar gerir 5 breytingar á liði sínu frá jafnteflinu gegn KR.

Daníel Laxdal tekur stöðu Brynjars Gauta Guðjónssonar. Baldur Sigurðsson sem meiddist á hálsi í leiknum gegn KR fer á bekkinn. Þá koma þeir Ævar Ingi Jóhannesson, Sölvi Snær Guðbjargarson og Elís Rafn Björnsson einnig inn í liðið.
Fyrir leik
Pedro Hipolito, þjálfari ÍBV, gerir fjórar breytingar á liði sínu frá tapinu gegn Fylki. Rafael Veloso kemur inn í markið fyrir Halldór Pál og þá koma þeir Evariste Ngolok, Róbert Aron Eysteinsson og Felix Örn Friðriksson inn í liðið.
Fyrir leik
Liðin tvö eru meistarar síðustu tveggja ára, Stjörnumenn eru ríkjandi bikarmeistarar en ÍBV vann árið áður.
Fyrir leik
Góðan daginn og verið velkomin í bikarleik ÍBV og Stjörnunar. Liðin áttu bæði heimaleik í fyrstu umferð Pepsi Max deildarinnar en Eyjamenn tóku á móti Fylki þar sem þeir töpuðu 0-3 og Stjarnan fékk KR í heimsókn og endaði leikurinn með 1-1 jafntefli.
Byrjunarlið:
Haraldur Björnsson
7. Guðjón Baldvinsson ('65)
9. Daníel Laxdal
10. Hilmar Árni Halldórsson ('112)
11. Þorsteinn Már Ragnarsson
15. Þórarinn Ingi Valdimarsson
18. Sölvi Snær Guðbjargarson ('57)
19. Martin Rauschenberg
21. Elís Rafn Björnsson
29. Alex Þór Hauksson (f) ('46)

Varamenn:
23. Guðjón Orri Sigurjónsson (m)
2. Brynjar Gauti Guðjónsson ('112)
8. Baldur Sigurðsson
14. Nimo Gribenco ('57)
16. Ævar Ingi Jóhannesson
20. Eyjólfur Héðinsson ('46)
22. Guðmundur Steinn Hafsteinsson ('65)

Liðsstjórn:
Rúnar Páll Sigmundsson (Þ)
Veigar Páll Gunnarsson
Fjalar Þorgeirsson
Davíð Sævarsson
Andri Freyr Hafsteinsson
Halldór Svavar Sigurðsson

Gul spjöld:
Alex Þór Hauksson ('36)
Guðmundur Steinn Hafsteinsson ('69)

Rauð spjöld: