Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
Fjölnir
1
3
ÍA
0-1 Erla Karitas Jóhannesdóttir '60
0-2 Ólöf Sigríður Kristinsdóttir '64
Hjördís Erla Björnsdóttir '78 1-2
1-3 Veronica Líf Þórðardóttir '90
19.05.2019  -  14:00
Extra völlurinn
Inkasso deild kvenna
Dómari: Guðmundur Páll Friðbertsson
Maður leiksins: Tori Ornela (ÍA)
Byrjunarlið:
12. Silja Rut Rúnarsdóttir (m)
Kristjana Ýr Þráinsdóttir ('83)
Íris Ósk Valmundsdóttir
Eva Karen Sigurdórsdóttir
4. Bertha María Óladóttir (f)
5. Hrafnhildur Árnadóttir ('74)
7. Ísabella Anna Húbertsdóttir
8. Ástrós Eiðsdóttir ('74)
11. Sara Montoro
14. Elvý Rut Búadóttir
22. Nadía Atladóttir

Varamenn:
12. Helena Jónsdóttir (m)
3. Ásta Sigrún Friðriksdóttir
16. Ásdís Birna Þórarinsdóttir
17. Lilja Hanat
19. Hjördís Erla Björnsdóttir ('74)
20. Eva María Jónsdóttir ('83)
21. María Eir Magnúsdóttir
29. Lilja Nótt Lárusdóttir

Liðsstjórn:
Páll Árnason (Þ)
Magnús Haukur Harðarson (Þ)
Hlín Heiðarsdóttir
Axel Örn Sæmundsson
Hrefna Lára Sigurðardóttir
Ása Dóra Konráðsdóttir

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Guðmundur flautar til leiksloka!

Skaginn sækir 3 stig í Grafarvoginn. - Skýrsla og viðtöl á leiðinni.
91. mín
Nadía sendir fyrir og Eva María nær skotinu en beint á Tori!
90. mín MARK!
Veronica Líf Þórðardóttir (ÍA)
Stoðsending: Fríða Halldórsdóttir
MAAAARK!

ÍA er að klára þetta!

Fríða Halldórs joggar með boltann upp í vinstra hornið áður en hún teiknar boltiann á kollinn á Veró sem stýrir honum í gagnstætt horn.

Virkilega einfalt mark hjá Skagastúlkum!
90. mín
ÍA fær aukaspyrnu sem Fríða ákveður að skjóta úr, af svona 40 metra færi!
83. mín
Inn:Eva María Jónsdóttir (Fjölnir) Út:Kristjana Ýr Þráinsdóttir (Fjölnir)
79. mín
Skagastúlkur bruna upp í sókn og Veró smellir boltanum fyrir þar sem Ylfa nær ekki að pota í hann en Erla Karítas er að mæta á fjær og Kristjana hendir sér niður og boltinn stoppar og ÍA vill fá víti en ekkert dæmt!
78. mín MARK!
Hjördís Erla Björnsdóttir (Fjölnir)
Stoðsending: Sara Montoro
MAAAARK!!!

Frábær sókn hjá Fjölni þar sem Sara og Nadía spila sig upp hægri vænginn og Sara smellir honum fyrir þar sem Tori missir hann frá sér og Hjördís klárar í autt markið!
74. mín
Inn:Hjördís Erla Björnsdóttir (Fjölnir) Út:Ástrós Eiðsdóttir (Fjölnir)
74. mín
Inn:Hlín Heiðarsdóttir (Fjölnir) Út:Hrafnhildur Árnadóttir (Fjölnir)
74. mín
Inn:Ylfa Laxdal Unnarsdóttir (ÍA) Út:Ólöf Sigríður Kristinsdóttir (ÍA)
73. mín
Fínn spilkafli hjá Fjölni.

Sara tekur vel á móti hárri sendingu frá Írisi og tekur skotið en varnarmenn ÍA komast fyrir það, svo kemur fyrirgjöf frá Kristjönu en boltinn ofan á þaknetið.
70. mín
Sara reynir skot úr þröngri stöðu, beint á Tori.
68. mín
Fjölnir fær horn.

Kristjana með ágætan bolta og Íris skallar framhjá!
67. mín
Fríða reynir skot af löngu færi, í varnarmann og afturfyrir.

Hornspyrnan fer beint í hliðarnetið.
64. mín MARK!
Ólöf Sigríður Kristinsdóttir (ÍA)
Stoðsending: Bryndís Rún Þórólfsdóttir
MAAARK!

Langur bolti bakvið vörn Fjölnis sem er alls ekki á tánum og Olla sleppur alein í gegn og skorar!
61. mín
Inn:Sandra Ósk Alfreðsdóttir (ÍA) Út:Klara Kristvinsdóttir (ÍA)
61. mín
Inn:Karen Þórisdóttir (ÍA) Út:Sigrún Eva Sigurðardóttir (ÍA)
60. mín MARK!
Erla Karitas Jóhannesdóttir (ÍA)
Stoðsending: Sigrún Eva Sigurðardóttir
MAAARK!!

Þvílíkt gegn gangi leiksins kemur fyrirgjöf frá hægri og það verður einhver darraðardans fyrir framan markið þangað til að boltinn hrekkur til Erlu Karítasar sem klárar í autt markið.

Þetta er rosalega klaufalegt hjá Fjölni og gæti orðið rosalega dýrt sömuleiðis!
59. mín
Fín spyrna frá Kristjönu en Skagastúlkur koma hættunni frá.
58. mín
Eva Karen keyrir inn á völlinn og finnur markamaskínuna Berthu Maríu sem tekur skotið af löngu færi og Tori rétt nær að blaka boltanum yfir!
56. mín
FÆRI!

Langur bolti fram frá Fjölni og Sara vinnur kapphlaupið og rennir sér á boltann en Tori er mætt og ver.
51. mín
Færi eftir færi...

Eva Karen hleypur upp vinstri kantinn og skilur Anítu og Veró eftir, leggur boltann út í teiginn á Nadíu sem reynir skot með vinstri en það fór framhjá...
49. mín
DAUÐAFÆRI!!!

Nadía keyrir upp hægri kantinn og leggur boltann út í teiginn og þar er Ástrós enn eina ferðina í dauðafæri en setur boltann framhjá!!!

Þetta er sturlað... Svo ekki sé meira sagt!
47. mín
FÆRI!

Eva Karen keyrir framhjá tveimur áður en það er brotið á henni, Fjölnir tekur spyrnuna hratt og Sara fær boltann uppi vinstra megin og rennir honum inn á teiginn og Nadía er ekki nógu ákveðin! Tori kemst í boltann.
46. mín
Fyrsta marktilraun leiksins er Skagastúlkna.

Sigrún með skot framhjá!
46. mín
Leikurinn er kominn af stað aftur!

Nú byrja heimastúlkur og sækja í átt að Foldahverfinu.

Vonandi fáum við mörk í þennan seinni hálfleik.
45. mín
Inn:Veronica Líf Þórðardóttir (ÍA) Út:María Björk Ómarsdóttir (ÍA)
Hálfleiksbreyting hjá Helenu.
45. mín
Hálfleikur
Hálfleikur!

Galið að Fjölnir sé ekki yfir í hálfleik.
44. mín
Fríða Halldórs með draumabolta af miðjunni bakvið vörn Fjölnis beint í hlaup hjá Erlu Karítas sem sendir fyrir en það er engin Skagastúlka komin inn á teiginn.

Þetta hefði getað orðið hættulegt!
43. mín
Kristjana aftur að tapa boltanum á stórhættulegum stað!! - Íris bjargar henni...
40. mín
Kristjana tekur hér arfaslakt touch og tapar boltanum á hættulegum stað, Skagastúlkur koma 3v2 en Olla með hörmulega sendingu beint í hendurnar á Silju...

Þarna slapp Kristjana heldur betur vel!
39. mín
Það er hreinlega ótrúlegt að Fjölnir sé ekki búið að skora hér...

Núna tekur Bella skot af löngu færi, rétt yfir!
37. mín
DAUÐAFÆRI!!! - GUÐ MINN ALMÁTTUGUR!

Kristjana rennir boltanum niðri inn á teiginn fyrir framan markið og þar mætir Ástrós á fjær með markið fyrir framan sig en á einhvern ótrúlegan hátt skýtur hún í stöngina og afturfyrir!

Það var erfiðara að klúðra en að skora...
36. mín
Núna er brotið á Ísabellu fyrir framan teiginn, Kristjana stillir boltanum upp.
35. mín
DAUÐAFÆRI!!

Kristjana tekur hornið líka og boltinn dettur fyrir framan Nadíu sem hefur allan tímann í heiminum en tekur ömurlegt skot sem lekur framhjá!
35. mín
KRISTJANA MEÐ GEGGJAÐAN BOLTA!

Tori er stálheppin og kýlir boltann svona 3 cm framhjá stönginni, horn.
34. mín
Eva Karen gerir hrikalega vel!

Vinnur boltann af Anítu ofarlega vinstra megin og snýr þær svo tvær af sér í hringi þangað til að Erla Karítas brýtur á henni!
32. mín
Hornspyrnan frá Evu góð og boltinn fer í einhverja þvögu og endar svo á að Íris er dæmd rangstæð.
31. mín
Heyrðu ég hef ekki undan!

Núna kemur fyrirgjöf frá hægri hjá Fjölni og Eva Karen fær boltann, reynir skot en Aníta bjargar hreinlega marki með því að henda sér fyrir.

Boltinn berst út á Berthu sem skýtur í varnarmann og afturfyrir.
30. mín
Það er komið líf í þetta!

Núna fær ÍA gott færi við markteig en Silja ver!
29. mín
AFTUR DAUÐAFÆRI!!!

Sara gerir hrikalega vel í að vinna baráttu gegn Dagný við endalínuna, leggur boltann út í teiginn á Ástrósu sem er aaalein og skýtur boltanum bara í Tori!!

Svona færi verður bara að klára!
28. mín
DAUÐAFÆRI!

Kristjana tekur aukaspyrnu af miðjunni inn á teiginn, Íris reynir að skalla en boltinn fellur fyrir lappirnar á Evu sem reynir skotið en í varnarmann og þaðan kemst Ástrós í dauðafæri en skýtur beint á Tori!
27. mín
Núna komast Skagastúlkur í álitlega stöðu og fá horn.

Íris skallar frá.
25. mín
Mjög góð skyndisókn hjá Fjölni núna þar sem Nadía finnur Ástrósu í hægra hornið, Ástrós kemur sér inn á teiginn og sólar Dagný en Eva mætir og hreinsar, en ekki langt. Nadía fær boltann og reynir fyrirgjöf á fjær sem Aníta skallar frá, Eva Karen var mætt fyrir aftan Anítu og hefði hugsanlega klárað þetta.
20. mín
Fín sókn hjá Fjölni, Nadía setur boltann upp í hægra hornið í hlaup hjá Söru sem kemur boltanum fyrir en ÍA hreinsar.
15. mín
Hornspyrnan er góð og Eva María skallar rétt framhjá!
14. mín
Fríða Halldórs tekur hér skot af löngu færi og Silja blakar boltanum yfir.
11. mín
Jæja Olla labbar hérna í gegnum vörn Fjölnis og sækir svo horn.

Spyrnan alla leið á fjær en ÍA nær ekki að búa til marktilraun úr þessu.
9. mín
Lítið að frétta í þessum leik hingað til boltinn færist fram og til baka og fer í innköst hér og þar. Engin færi...
2. mín
Þarna slapp Íris með skrekkinn!

Missti boltann undir sig þegar hún reyndi að taka á móti honum en bjargaði sjálfri sér fyrir horn.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er komið í gang!

ÍA byrjar með boltann og sækir í átt að Foldahverfi.
Fyrir leik
Liðin ganga hér út á völlinn undir laginu Kickstart My Heart með Mötley Crue!
Fyrir leik
Liðin eru að klára upphitun og fara að koma sér inn í klefa.

12 mín í leik!
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru klár hér til hliðar.

2003 model markavélarnar byrja báðar, Sara Montoro pg Ólöf Sigríður Kristinsdóttir.
Fyrir leik
Helena Ólafs er mætt að taka út völlinn, sem er allavega fjarskafallegur!
Fyrir leik
Bæði lið eru með 1 stig í deildinni eftir eina umferð, Skagastúlkur gerðu jafntefli við FH á meðan að Fjölnisstelpur gerðu jafntefli við Aftureldingu.
Fyrir leik
Leikurinn fer fram á Extra vellinum í Grafarvogi, þar er alltaf sól og blíða svo ég hvet fólk eindregið til að skella sér á völlinn!
Fyrir leik
Góðan daginn gott fólk og verið velkomin í beina textalýsingu frá leik Fjölnis og ÍA í Inkasso deild kvenna.
Byrjunarlið:
1. Tori Jeanne Ornela (m)
5. Aníta Sól Ágústsdóttir
6. Eva María Jónsdóttir
7. Erla Karitas Jóhannesdóttir
8. Sigrún Eva Sigurðardóttir ('61)
9. Ólöf Sigríður Kristinsdóttir ('74)
10. Bryndís Rún Þórólfsdóttir (f)
11. Fríða Halldórsdóttir
15. Klara Kristvinsdóttir ('61)
18. María Björk Ómarsdóttir ('45)
24. Dagný Halldórsdóttir

Varamenn:
8. Lilja Björg Ólafsdóttir
9. Róberta Lilja Ísólfsdóttir
16. Veronica Líf Þórðardóttir ('45)
20. Sandra Ósk Alfreðsdóttir ('61)
21. Ylfa Laxdal Unnarsdóttir ('74)
22. Karen Þórisdóttir ('61)

Liðsstjórn:
Helena Ólafsdóttir (Þ)
Hrafnhildur Arín Sigfúsdóttir
Anna Sólveig Smáradóttir
Aníta Lísa Svansdóttir
Margrét Ákadóttir
Dagný Pálsdóttir

Gul spjöld:

Rauð spjöld: