ÍA
2
0
Stjarnan
Einar Logi Einarsson
'54
1-0
Steinar Þorsteinsson
'93
2-0
26.05.2019 - 17:00
Norðurálsvöllurinn
Pepsi Max-deild karla
Aðstæður: Sól og blíða. Smá gola. Völlurinn flottur
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson
Maður leiksins: Steinar Þorsteinsson(ÍA)
Norðurálsvöllurinn
Pepsi Max-deild karla
Aðstæður: Sól og blíða. Smá gola. Völlurinn flottur
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson
Maður leiksins: Steinar Þorsteinsson(ÍA)
Byrjunarlið:
12. Árni Snær Ólafsson (m)
Arnar Már Guðjónsson
Einar Logi Einarsson
Arnór Snær Guðmundsson
2. Hörður Ingi Gunnarsson
3. Óttar Bjarni Guðmundsson (f)
10. Tryggvi Hrafn Haraldsson
('81)
17. Gonzalo Zamorano
('69)
18. Stefán Teitur Þórðarson
19. Bjarki Steinn Bjarkason
('26)
93. Marcus Johansson
Varamenn:
1. Aron Bjarki Kristjánsson (m)
2. Þórður Þorsteinn Þórðarson
6. Jón Gísli Eyland Gíslason
8. Albert Hafsteinsson
('81)
9. Viktor Jónsson
('69)
10. Steinar Þorsteinsson
('26)
16. Brynjar Snær Pálsson
Liðsstjórn:
Jóhannes Karl Guðjónsson (Þ)
Páll Gísli Jónsson
Hlini Baldursson
Gunnar Smári Jónbjörnsson
Daníel Þór Heimisson
Sigurður Jónsson
Kjartan Guðbrandsson
Gul spjöld:
Tryggvi Hrafn Haraldsson ('45)
Rauð spjöld:
Leik lokið!
Leiknum er lokið með sigri Skagamenna 2-0 og þeir styrkja stöðu sína á toppnum!
93. mín
MARK!
Steinar Þorsteinsson (ÍA)
MAAAAAAAAAARK!!!!!!! Skagamenn skora aftur!! Stefán Teitur með aukaspyrnu frá hægri og smá darraðadans í teignum. Boltinn berst á Steinar alveg við stöngina og hann potar honum yfir línuna.
85. mín
Baldur Sig með skot vel utan teigs en Árni grípur. Var samt nálægt því að missa hann.
84. mín
Stjörnumenn fengu hérna horn en Árni grípur vel. Ef mér skjátlast ekki þá var þetta fyrsta hornspyrnan þeirra í leiknum.
81. mín
Inn:Albert Hafsteinsson (ÍA)
Út:Tryggvi Hrafn Haraldsson (ÍA)
Skagamenn með sína síðustu skiptingu.
79. mín
Jói Kalli er alveg brjálður yfir dómgæslu hérna. Sigurður dæmir á Tryggva þegar Guðjón Orri skalla boltann fyrir utan teig en það áttar sig enginn á því í blaðamannstúkunni á hvað var dæmt.
76. mín
Stjörnumenn í stúkunni vilja víti en ekkert dæmt. Held að það hafi ekkert verið í þessu.
75. mín
Inn:Sölvi Snær Guðbjargarson (Stjarnan)
Út:Jóhann Laxdal (Stjarnan)
Rúnar Páll hendir í tvöfalda skiptingu.
66. mín
Inn:Guðjón Orri Sigurjónsson (Stjarnan)
Út:Haraldur Björnsson (Stjarnan)
Halli getur ekki haldið leik áfram eftir þetta samtuð. Við vonum að þetta sé ekki alvarlegt.
63. mín
Menn liggja hér á vellinum hver í kapp við annan. Tryggvi rétt áðan eftir tæklinguna hjá Jóa Lax og núna Halli Björns eftir samstuð í teignum.
Ekki eru fermingar þennan sunnudaginn upp á skaga. Frábær mæting #fotboltinet
— GÃsli Þorkelsson (@gislithorkels) May 26, 2019
58. mín
Aftur hörkusókn hjá ÍA upp vinstri vænginn og Hörður með fyrirgjöf sem er hreinsuð í innkast.
56. mín
Skagamenn strax aftur í færi en skotið frá Tryggva er ekki nógu gott og Halli ver.
54. mín
MARK!
Einar Logi Einarsson (ÍA)
Stoðsending: Steinar Þorsteinsson
Stoðsending: Steinar Þorsteinsson
MAAAAAAAAARK!!!!! Það er komið mark í leikinn!! Stefán Teitur ætlaði að taka langt innkast en tók það snöggt á Steinar Þorsteins sem kom með geggjaðann bolta og Einar Logi potaðin honum inn.
51. mín
Fínasta spil hjá ÍA og þeir eru við það að spila sig í gegn en síðasta sending klikkaði. Stjarnan beint í sókn en sendingin fyrir er slök.
46. mín
Þá er seinni hálfleikur hafinn og það eru Skagamenn sem byrja með boltann í seinni og sækja í átt frá höllinni.
45. mín
Gult spjald: Tryggvi Hrafn Haraldsson (ÍA)
Aftur hárrétt hjá Sigurði. Tryggvi teikaði Hilmar Árna all hressilega.
45. mín
Gonzalo með skallnn en yfir markið. Slakur skalli hjá honum. Það er 3 mínútum bætt við
43. mín
Gult spjald: Baldur Sigurðsson (Stjarnan)
Hárrétt hjá Sigurði. Smalilnn fer í eina af gamla skólanum.
36. mín
Skagamenn fengu aukaspyrnu á hættulegum stað en skotið frá Tryggva er yfir markið.
33. mín
Það er afskaplega lítið að gerast þannig. Liðin átt sitt hvora ágætis fyrirgjöfina á síðustu 5 mín án þess að einhver alvöru hætta hafi skapast.
26. mín
Inn:Steinar Þorsteinsson (ÍA)
Út:Bjarki Steinn Bjarkason (ÍA)
Bjarki Steinn hefur eitthvað meiðst og þarf að fara af velli.
25. mín
Stjörnumenn spila hérna frábærlega í gegnum pressuna hjá ÍA sem endar með fyrirgjöf en Árni nær boltanum.
20. mín
Lars Marcus kominn sem fremsti maður hérna hjá ÍA og vinnur aukaspyurnu við hornfánann
13. mín
Mikill atangur í teig Skagamanna eftir aukaspyrnu frá Hilmari en Stjörnumönnum tekst að koma boltanum í markið.
10. mín
Tryggvi Hrafn með fyrirgjöf úr aukaspyrnu en boltinn lekur til Halla í markinu. Vantaði bara að menn væru aðeins vakandi í teignum.
9. mín
Stjörnumenn meira með boltann þessar fyrstu mínútur án þess að ógna markinu eitthvað. Vindurinn virðist aðeins vera að trufla menn sem eru svo sem ekkert nýjar fréttir á Akranesi.
6. mín
Skagamenn fengu fyrstu hornspyrnu leiksin en Halli með allt á hreinu og grípur boltann þægilega.
4. mín
Skagamenn heimta hér spjald er það virðist gripið í Árna markmann þegar hann reynir að sparka boltanum strax eftir aukapyrnu. Skagamenn beint í sókn og Stefán Teitur með skot en framhjá.
1. mín
Leikur hafinn
Leikurinn er farinn af stað. Það eru Stjörnumenn sem hefja leikinn og sækja í átt frá höllinni. Skagamenn að sjálfsögðu gulir og svartir og Stjörnumenn bláir og hvítir.
Byrjunarlið @ia_akranes gegn @FCStjarnan #fotboltinet pic.twitter.com/AguP8IMWAH
— ÃATV (@ia_sjonvarp) May 26, 2019
Fyrir leik
Það eru rétt rúmar 20 mín í leik hjá okkur á Akraensi og bæði lið að hita upp. Ekki frá því að það sé bara nokkuð létt yfir mannskapnum.
Fyrir leik
Byrjunarliðin er dottin í hús og má sjá þau hér til hliðar. Það kemur ekki á óvart að Jóhannes Karl þjálfari ÍA stillir upp sama liði og vann Breiðablik í síðasta leik.
Rúnar Páll þjálfari Stjörnunnar gerir aftur á móti fimm breytingar. Út detta þeir Daníel Laxdal, Heiðar Ægisson, Þórarinn Ingi Valdimarsson, Guðmundur Steinn Hafsteinsson og Alex Þór Hauksson. Inn koma Brynjar Gauti Guðjónsson, Jósef Kristinn Jósefsson, Jóhann Laxdal, Eyjólfur Héðinsson og Baldur Sigurðsson.
Rúnar Páll þjálfari Stjörnunnar gerir aftur á móti fimm breytingar. Út detta þeir Daníel Laxdal, Heiðar Ægisson, Þórarinn Ingi Valdimarsson, Guðmundur Steinn Hafsteinsson og Alex Þór Hauksson. Inn koma Brynjar Gauti Guðjónsson, Jósef Kristinn Jósefsson, Jóhann Laxdal, Eyjólfur Héðinsson og Baldur Sigurðsson.
Fyrir leik
Dómari í dag er Sigurður Hjörtur Þrastarson og honum til aðstoðar eru þeir Birkir Sigurðarson og Þórður Arnar Árnason. Varadómari er Arnar Ingi Ingvarsson og eftirlitsmaður KSÍ er enginn annar Kristinn Jakobsson.
Allt klárt à Skaganum#fotboltinet pic.twitter.com/hbO4lzhALI
— Helgi Seljan Jóhannsson (@helgiseljan) May 26, 2019
Fyrir leik
Byrjunarliðin detta í hús uþb klukkutíma fyrir leik. Undirritaður gerir fastlega ráð fyrir sama byrjunarliði hjá ÍA og síðasta leik en það verður gaman að sjá hvað Rúnar Páll þjálfari Stjörnunnar gerir eftir tapið á móti KA.
Svo minni ég lesendur á myllumerkið okkar #fotboltinet fyrir ummæli um leikinn. Valdar færslur gætu birst í textalýsingunni.
Fyrir leik
Ég vil hvetja alla til að mæta á leikinn í dag, jafnt heimamenn sem Garðbæinga, já og bara alla sem hafa gaman að fótbolta. Það er glampandi sól á Akranesi, smá gola. Toppaðstæður og ekkert annað að gera en að skella sér á völlinn í þessu geggjaða veðri.
Fyrir leik
Þetta er alls ekki eini leikur dagsins í Pepis Max deild karla en klukkan 19:15 hefast tveir leikir. FH-ingar bregða sér í Lautina í Árbænum og mæta Fylki og Origo vellinum á Hlíðarenda fer fram leikur Vals og Breiðablik.
Umferðin hófst hins vegar í gær með þremur leikjum þar sem KA vann ÍBV fyrir norðan 2-0, HK og Grindavík gerðu 0-0 jafntefli í logninu í Kórnum og að lokum vann KR 0-1 útisigur á Víkingi R.
Umferðin hófst hins vegar í gær með þremur leikjum þar sem KA vann ÍBV fyrir norðan 2-0, HK og Grindavík gerðu 0-0 jafntefli í logninu í Kórnum og að lokum vann KR 0-1 útisigur á Víkingi R.
Fyrir leik
Liðin hafa mæst alls 34 sinnum í leikjum á vegum KSÍ og þar hafa Skagamenn vinninginn. Þeir hafa unnið 15 leiki á meðan Stjarnan hefur unnið 11 leiki og 8 sinnum hafa liðin gert jafntefli, þannig við megum búast við hörkuleik hérna í dag.
Þess má til gamans geta að liðin mættust í vetur í Lengjubikarnum og þar höfðu Skagamenn betur 6-0.
Þess má til gamans geta að liðin mættust í vetur í Lengjubikarnum og þar höfðu Skagamenn betur 6-0.
Fyrir leik
Stjörnumenn myndu klárlega vilja hafa náð í fleiri stig í upphafi móts en þeir sitja í sjöunda sæti deildarinnar með 8 stig eftir að hafa tapað sínum fyrsta leik í síðustu umferð þegar KA lagði þá að velli 0-2 í Garðabænum.
Fyrir leik
Skagamenn hafa eins og flestir vita byrjað tímabilið frábærlega og koma inní þennan leik taplausir á toppnum í deildinni. Þeir hafa unnið síðustu þrjá leiki á móti Val, FH og núna síðast Breiðablik á útivelli þar sem Einar Logi Einarsson skoraði sigurmarkið í uppbótartíma.
Byrjunarlið:
Haraldur Björnsson
('66)
2. Brynjar Gauti Guðjónsson
3. Jósef Kristinn Jósefsson
4. Jóhann Laxdal
('75)
6. Þorri Geir Rúnarsson
('75)
7. Guðjón Baldvinsson
8. Baldur Sigurðsson
10. Hilmar Árni Halldórsson
11. Þorsteinn Már Ragnarsson
19. Martin Rauschenberg
20. Eyjólfur Héðinsson
Varamenn:
23. Guðjón Orri Sigurjónsson (m)
('66)
2. Heiðar Ægisson
9. Daníel Laxdal
15. Þórarinn Ingi Valdimarsson
18. Sölvi Snær Guðbjargarson
('75)
22. Guðmundur Steinn Hafsteinsson
('75)
29. Alex Þór Hauksson
Liðsstjórn:
Rúnar Páll Sigmundsson (Þ)
Veigar Páll Gunnarsson
Fjalar Þorgeirsson
Davíð Sævarsson
Andri Freyr Hafsteinsson
Halldór Svavar Sigurðsson
Gul spjöld:
Baldur Sigurðsson ('43)
Jóhann Laxdal ('61)
Jósef Kristinn Jósefsson ('87)
Rauð spjöld: