Breiðablik
0
0
Þór/KA
01.08.2019  -  18:00
Kópavogsvöllur
Pepsi-Max deild kvenna
Dómari: Egill Arnar Sigurþórsson
Maður leiksins: Bryndís Lára Hrafnkelsdóttir
Byrjunarlið:
Ásta Eir Árnadóttir
Sonný Lára Þráinsdóttir
7. Agla María Albertsdóttir (f)
8. Heiðdís Lillýardóttir
9. Karólína Lea Vilhjálmsdóttir
10. Berglind Björg Þorvaldsdóttir
16. Alexandra Jóhannsdóttir
20. Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir ('90)
21. Hildur Antonsdóttir ('84)
24. Hildur Þóra Hákonardóttir
27. Selma Sól Magnúsdóttir

Varamenn:
26. Ásta Vigdís Guðlaugsdóttir (m)
2. Sóley María Steinarsdóttir
4. Bergþóra Sól Ásmundsdóttir ('84)
6. Isabella Eva Aradóttir
6. Þórhildur Þórhallsdóttir
14. Berglind Baldursdóttir ('90)
19. Esther Rós Arnarsdóttir

Liðsstjórn:
Ólafur Pétursson (Þ)
Þorsteinn H Halldórsson (Þ)
Ragna Björg Einarsdóttir
Jóhanna Kristbjörg Einarsdóttir
Særún Jónsdóttir
Aron Már Björnsson
Tinna Harðardóttir

Gul spjöld:
Selma Sól Magnúsdóttir ('93)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Þá er þessu lokið. Blikastelpur ná ekki að koma inn marki og missa tvo mikilvæg stig í baráttunni við Val um Íslandsmeistaratitilinn.
Skýrsla og viðtöl síðar í kvöld
93. mín Gult spjald: Selma Sól Magnúsdóttir (Breiðablik)
91. mín
Alexandra Jóhanns í tveimur dauðafærum í röð. Ver stórkostlega frá henni eftir gott skot innan teigs og svo á Alexandra skalla rétt yfir
90. mín
Við erum komin í uppbótartíma í Kópavoginum. 3 mínútum bætt við
90. mín
Inn:Berglind Baldursdóttir (Breiðablik) Út:Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir (Breiðablik)
89. mín
DAUÐAFÆRI. Alexandra fær knöttinn innan teigs og á skot sem Bryndís ver
89. mín
Inn:Arna Sif Ásgrímsdóttir (Þór/KA) Út:Jakobína Hjörvarsdóttir (Þór/KA)
87. mín
Nú reynir Berglind skot en það er hátt yfir
86. mín
Ásta eir nú með skot langt fyrir utan teig og það er langt framhjá markinu. Blikar þurfa að gera miklu betur ef þær vilja taka 3 stig
84. mín
Inn:Bergþóra Sól Ásmundsdóttir (Breiðablik) Út:Hildur Antonsdóttir (Breiðablik)
83. mín
Þá tekur Agla við hinum megin og prjónar sig í gegnum vörnina en skotið er slakt og beint á Bryndísi í markinu
82. mín
Þarna munaði litlu hjá Þór/KA. Sonný missir ævintýralega af boltanum en nær þó til hans fyrir rest.
81. mín
Enn eitt hornið sem blikar sækja. Það hefur ekkert komið úr þeim so far
78. mín
Hildur Antons á nú skot fyrir blika en Bryndís á ekki í vandræðum og handsamar boltann
75. mín
Blikar fá hér aukaspyrnu á hættulegum stað. Boltinn berst á Berglindi sem tekur skot en það fer í varnarmann og Þór/KA hreinsa.
72. mín
ÞVÍLÍKT SKOT HJÁ KARÓLÍNU!! Karólína fær boltann á vítateigslínunni og ætlar að smyrja honum í Samúel en Bryndís ver FRÁBÆRLEGA. Klárlega ein af vörslum sumarsins
72. mín
Blikar sækja enn eitt hornið
70. mín
Dauðafæri hjá Blikum. Agla átti skot sem fór rétt framhjá. Það héldu allir á vellinum að þessi væri inni.
69. mín
Nú eru Þór/KA byrjaðar að færa sig aðeins framar á völlinn og reynir Andrea Mist skot rétt fyrir utan teig. Sonný á þó ekki í vandræðum með þetta og grípur boltann
66. mín
Enn eitt hornið hjá Blikastelpum. Það kemur ekkert úr horninu
64. mín
Selma Sól reynir hér skot fyrir utan vítateiginn en það er framhjá markinu
62. mín
Það er mjög lítið að gerast þessa stundina. Blikar að reyna að sækja en ekki að skapa sér neitt. Þær þurfa aðeins að fara að gefa í ef þær vilja fá stigin 3
62. mín
Inn:Ísfold Marý Sigtryggsdóttir (Þór/KA) Út:Magðalena Ólafsdóttir (Þór/KA)
56. mín
Berglind nær loksins að koma boltanum í markið eftir hornið sem Áslaug Munda tók en markið er dæmt af vegna rangstöðu. Þetta var mjög tæpt.
55. mín
Og annað horn hjá Blikum
52. mín
Jæja Blikar fá enn eitt hornið. Það fyrsta í seinni hálfleik. Ágætis bolti fyrir og eftir smá klafs í teignum ná Þór/KA að hreinsa boltann í burtu
48. mín
Karólína í ágætisfæri eftir góðan sprett frá Áslaugu Mundu.Karólína skýtur þó í varnarmann svo það verður ekkert úr þessu
46. mín
Þá er þetta komið aftur af stað. Nú byrja Þór/KA með boltann og sækja í átt að Fífunni
45. mín
Hálfleikur
0-0 í fyrri hálfleik þegar Egill flautar þetta af. Blikar sóttu án afláts allan fyrri hálfleikinn en náðu ekki að koma knettinum í netið.
43. mín
Ekkert að gerast þessa stundina, Blikar halda bara áfram að sækja án þess að skapa sér mikið af færum. Fáum við mark fyrir hálfleik?
39. mín
Annað tækifæri hjá Blikum. Ásta með fyrirgjöf inn í teig og Agla nær skallanum en boltinn fer rétt framhjá!
38. mín
DAUÐAFÆRI hjá Breiðablik. Blikar taka hornspyrnuna og Hildur skallar boltann sem virðist vera á leiðinni inn en þá tekst Berglindi að vera fyrir og Þór/KA nær að hreinsa
37. mín
Og annað horn
35. mín
Blikar að fá enn eitt hornið
34. mín
Karólína á ágætissprett á hægri kantinum fyrir Blika, sem endar með skoti sem Bryndís ver
33. mín
Jæja nú fá Blikar horn. Illa útfært horn hjá Blikum.
31. mín
Þór/KA færa sig aðeins framar á völlinn og sækja upp hægri kantinn og ná sendingu á Þórdísi Hrönn sem tekur hann utanfótar og skýtur yfir markið
29. mín
Blikar aftur komnar í sókn sem endar þannig að Selma Sól fær boltann á vítateigslínunni en skýtur hátt hátt yfir. Lélegt skot.
26. mín
DAUÐAFÆRI HJÁ ÞÓR/KA EFTIR HORNSPYRNUNA. Sonný stekkur upp og gerir sig líklega til að grípa boltann en missir af honum og þá hefst mikið klafs í teignum, en þær svartklæddu reyna eins og þær geta að koma boltanum inn en Blikastelpurnar eru fyrir og ná loks að hreinsa.
26. mín
Þór/KA fær hér annað horn
24. mín
Þór/KA fær horn! Hornið er ekki gott og Sonný grípur
23. mín
Blikastúlkur sækja og sækja þessa stundina. Eru samt ekki að ná að opna Þór/KA neitt sérstaklega, hafa ekki fengið mikið af opnum marktækifærum. Þór/KA liggja mjög aftarlega
18. mín
Blikar fá annað horn sem Agla tekur en það er beint á Bryndísi í markinu.
16. mín
Blikar fá hér enn eitt hornið sem Áslaug Munda tekur. Það kemur ekkert úr því
12. mín
Nú á Karólína fína fyrirgjöf inn í teig en Berglind Björg á lélégan skalla sem Bryndís á ekki í neinum vandræðum með
12. mín
AGLA MARÍA MEÐ SKOT RÉTT YFIR. Hún fær bara að snúa sér inni í teig Þór/KA og á ágætis skot en það er rétt yfir markið
11. mín
Þór/KA fær hér aukaspyrnu á miðjum vallarhelmingi Blika. Þórdís Hrönn tekur en blikavörnin hreinsar.
7. mín
Blikar hafa verið að sækja stöðugt síðustu mínúturnar án þess þó að skapa sér hættuleg færi. Hef ekkert getað sagt nánar frá þessum færum þar sem það er netlaust í Kópavoginum. Vonandi lagast það sem fyrst.
3. mín
Blikar fá hér horn sem Agla tekur. Hún tekur hornið stutt, fær boltann aftur og skýtur þá yfir markið
1. mín
Blikar byrja þetta að krafti og fá dauðafæri þegar Bryndís missir af boltanum eftir fyrirgjöf inn í teig en nær á ótrúlegan hátt að stökkva á boltann áður en sóknarmenn blika komast í hann.
1. mín
Leikur hafinn
Þá er þetta farið af stað og Blikar byrja með boltann og sækja í átt að Fífunni.
Fyrir leik
Jæja þá ganga liðin út á völlinn! Þetta er að hefjast
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru komin inn og þau má sjá hér til hliðanna!

Þór/KA gerir eina breytingu frá síðasta deildarleik en Magðalena Ólafsdóttir kemur inn fyrir Agnesi Birtu Stefánsdóttur.

Blikar gera líka eina breytingu frá síðasta leik þar sem Áslaug Munda kemur inn fyrir Andreu Rán. Það þýðir þá að Selma Sól spilar líklega á miðjunni í dag.
Fyrir leik
Markahæstu menn Breiðabliks eru Berglind Björg og Agla María en þær eru báðar komnar með 11 mörk í deildinni í sumar. Þær eru markahæstar í deildinni ásamt Elínu Mettu, Hlín Eiríksdóttur og Chloé Lacasse.

Sandra Mayor er markahæst í liði Þór/KA með 10 stykki.
Fyrir leik
Fyrri leikur liðanna var spilaður 21. maí en þar sigruðu Blikar örugglega 4-1. Hildur Antons, Agla María, Berglind Björg og Áslaug Munda skoruðu mörk þeirra grænklæddu en Sandra Mayor skoraði eina mark Þór/KA.
Fyrir leik
Þór/KA situr í 3.sæti deildarinnar með 20 stig, einu stigi meira en Selfoss sem eru í 4.sætinu.

Þór/KA spiluðu gegn ÍBV í síðasta leik og unnu góðan 5-1 sigur og komust aftur á sigurbraut eftir þriggja leikja taphrinu.

Akureyrarliðið hefur verið án mexíkóana tveggja, Biancu Sierra og Söndru Mayor í síðustu tveimur leikjum en þær eru í landsliðsverkefni með Mexíkó. Þetta er síðasti leikur Þór/KA án þeirra í bili.
Fyrir leik
Valur og Breiðablik hafa verið í algjörum sérflokki í sumar og munu líklega berjast um titilinn allt til síðasta leiks. En bæði liðin eru enn taplaus í deildinni.
Breiðablik er sem stendur í 2. sæti deildarinnar, með jafn mörg stig og Valur (34 stig) en lakari markatölu. Með sigri komast því blikastelpur á toppinn!

Blikar spiluðu síðast gegn Keflavík þar sem þær sigruðu 5:2.
Fyrir leik
Góðan og blessaðan daginn kæru lesendur og verið velkomin í beina textalýsingu úr leik Breiðabliks og Þór/KA í Pepsi-Max deild kvenna.
Leikurinn hefst á slaginu 18:00 á Kópavogsvelli.
Byrjunarlið:
Bryndís Lára Hrafnkelsdóttir
8. Lára Einarsdóttir
8. Andrea Mist Pálsdóttir
9. Karen María Sigurgeirsdóttir
10. Lára Kristín Pedersen
16. Jakobína Hjörvarsdóttir ('89)
17. María Catharina Ólafsd. Gros
18. Magðalena Ólafsdóttir ('62)
22. Hulda Ósk Jónsdóttir
24. Hulda Björg Hannesdóttir
27. Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir

Varamenn:
1. Harpa Jóhannsdóttir (m)
25. Helena Jónsdóttir (m)
2. Rut Matthíasdóttir
3. Anna Brynja Agnarsdóttir
11. Arna Sif Ásgrímsdóttir ('89)
22. Eygló Erna Kristjánsdóttir
25. Heiða Ragney Viðarsdóttir
26. Ísfold Marý Sigtryggsdóttir ('62)

Liðsstjórn:
Halldór Jón Sigurðsson (Þ)
Andri Hjörvar Albertsson (Þ)
Saga Líf Sigurðardóttir
Ingibjörg Gyða Júlíusdóttir
Einar Logi Benediktsson
Haraldur Ingólfsson

Gul spjöld:

Rauð spjöld: