Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
Valur
3
0
KR
Elín Metta Jensen '2 1-0
Elín Metta Jensen '20 2-0
Hlín Eiríksdóttir '29 3-0
12.06.2020  -  19:15
Origo völlurinn
Pepsi-Max deild kvenna
Dómari: Gunnar Freyr Róbertsson
Maður leiksins: Elín Metta Jensen
Byrjunarlið:
12. Sandra Sigurðardóttir (m)
Ásgerður Stefanía Baldursdóttir
4. Guðný Árnadóttir
7. Elísa Viðarsdóttir
8. Ásdís Karen Halldórsdóttir ('80)
10. Elín Metta Jensen
11. Hallbera Guðný Gísladóttir (f)
14. Hlín Eiríksdóttir ('89)
21. Lillý Rut Hlynsdóttir ('89)
22. Dóra María Lárusdóttir ('69)
23. Fanndís Friðriksdóttir ('80)

Varamenn:
1. Fanney Inga Birkisdóttir (m)
12. Aldís Guðlaugsdóttir (m)
3. Arna Eiríksdóttir ('89)
9. Ída Marín Hermannsdóttir ('80)
15. Bergdís Fanney Einarsdóttir ('89)
18. Málfríður Anna Eiríksdóttir ('69)
40. Málfríður Erna Sigurðardóttir
77. Diljá Ýr Zomers ('80)

Liðsstjórn:
Pétur Pétursson (Þ)
Eiður Benedikt Eiríksson (Þ)
Ásta Árnadóttir
Jóhann Emil Elíasson
María Hjaltalín
Kjartan Sturluson

Gul spjöld:
Hallbera Guðný Gísladóttir ('55)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
3-0 !

Valur kláraði þetta í fyrri hálfleik og þurftu ekki að hafa mikið fyrir seinni hálfleiknum verður að segjast.
90. mín
Viðbótartími er 3 mínútur
89. mín
Inn:Bergdís Fanney Einarsdóttir (Valur) Út:Hlín Eiríksdóttir (Valur)
Afmælisbarnið og maður leiksins fær heiðursskiptingu
89. mín
Inn:Arna Eiríksdóttir (Valur) Út:Lillý Rut Hlynsdóttir (Valur)
87. mín
Boltinn hrekkur í teiginn vinstra megin fyrir utan á Þórdísi. Hún fær tíma og bombar á markið! Sandra ver þetta vel og heldur þessu vel í bleytunni
84. mín
Vel gert Elín Metta! Snýr Þórunni Helgu svakalega snyrtilega af sér og setur hann út til hægri á Hlín. Nær sendingu fyrir. Boltinn rúllar svo framhjá fjærstönginni
82. mín
Það er ekki mikið í gangi þessa stundina. Skemmtilegt að það eru systur á vellinum út um allt. Hlín og Malla Eiríksdætur í Val. Og svo Ída Marín og Thelma Lóa Hermannsdætur í sitthvoru liðinu
80. mín
Inn:Ída Marín Hermannsdóttir (Valur) Út:Ásdís Karen Halldórsdóttir (Valur)
80. mín
Inn:Diljá Ýr Zomers (Valur) Út:Fanndís Friðriksdóttir (Valur)
Tvöföld skipting
77. mín
Þórunn setur hann háan inn fyrir vinstra megin á Thelmu Lóu. Thelma nær þessum ekki. Þetta er of erfitt fyrir KR inga
75. mín
Fanndís fær góða hlaupabraut til að munda skotfótinn. Enginn ætlar að mæta en svo ákveður Laufey að mæta. Fanndís nær skoti en það er misheppnað og framhjá
73. mín
Fanndís snýr aukaspyrnunni yfir vegginn og nær skoti út við stöng hægra megin! Ingibjörg er mætt þangað og las Fanndísi vel þarna! Mjög gott skot
72. mín
Inn:Þórunn Helga Jónsdóttir (KR) Út:Rebekka Sverrisdóttir (KR)
Ömurlegt, Rebekka lendir í tæklingu og þarf að yfirgefa völlinn eftir korter
71. mín
Valur fær aukaspyrnu beint fyrir framan teig. Þetta er á hættulegum stað!! Þær standa nokkrar yfir boltanum. Það vilja væntanlega allar taka þetta enda gerast aukaspyrnurnar ekki á betri stað
71. mín
Fanndís keyrir á vörnina vinstra megin. Finnur Elínu Mettu í lappir inn í teig. Hún býr til vegg og sendir svo boltann út á Fanndísi á hárréttum tíma. Fanndís nær góðu skoti meðfram jörðinni í fjærhornið niðri en Ingibjörg ver þetta vel!

Mjög hugguleg sókn
69. mín
Inn:Málfríður Anna Eiríksdóttir (Valur) Út:Dóra María Lárusdóttir (Valur)
Dóra kemur út fyrir Málfríði Önnu. Malla kemur beint inn á miðjuna
67. mín
Inn:Inga Laufey Ágústsdóttir (KR) Út:Alma Mathiesen (KR)
Ölmu skipt út af. Hún skipti frá Gróttu yfir í KR fyrir þetta tímabil. Sýndi skemmtilega takta í dag. Inn fyrir hana kemur Inga Laufey sem kom frá Aftureldingu fyrir þetta tímabil
66. mín
Inn:Hlíf Hauksdóttir (KR) Út:Katrín Ómarsdóttir (KR)
66. mín
Dóra og Fanndís með skemmtilega útfærslu af horni. Fanndís nær fyrirgjöf en Ingibjörg grípur þennan vel
64. mín
Hallbera með misheppnaða hreinsun. Beint í fæturnar á Ölmu. Hún keyrir bara á þær, fer framhjá varnarmanni og nær skoti. Boltinn hrekkur út á Katrínu Ómars sem nær góðu skoti en niðri framhjá hægra megin
63. mín
Hallbera með sendingu inn á milli miðverða KR Laufeyjar og Ingunnar. Þetta á ekki að gerast. Fanndís nær góðu tötsi og hleypur ein í gegn. Setur hann niðri rétt framhjá fjærstönginni! Þetta var ansi nálægt
62. mín
Geggjuð fyrirgjöf frá Hallberu. Hlín svífur á fjærstönginni og nær skalla en Ingibjörg grípur
60. mín
KR með ágæta sókn sem endar á Ölmu hægra megin. Hún hendir í skæri og nær fyrirgjöf á móti Hallberu en þetta er beint á Söndru. Þarna var allt KR liðið kom fram og þetta þarf bara að nýta betur
56. mín
Ingibjörg að leika sér að eldinum! Komin með hann á sinn miðjan vallarhelming, tekur einni snertingu of mikið og gerir ekki ráð fyrir rigningunni. Missir hann of langt frá sér sem endar á því að hún rennur út á velli, Dóra María með opið markið og reynir skot en það fer rééétt framhjá!
55. mín Gult spjald: Hallbera Guðný Gísladóttir (Valur)
Hallbera býður Ölmu velkomna í Pepsi Max deildina! Veður í bakið á henni og Alma fellur við. Hallbera ekki sátt með það að dæmt sé á það og lætur Gunnar Freyr dómara heyra það. Gult á Hallberu
55. mín
Skemmtilegur þríhyrningur hjá Thelmu Lóu og Þórdísi inn fyrir! Endar á því að Thelma Lóa nær góðu skoti inn í teig en Sandra ver þetta vel í horn
54. mín
Katrín Ómars kallar á liðið sitt og segir þeim að fara framar. Þær þurfa mark eða mörk þar að segja
53. mín
Þarna fór Elín mjög illa úti hægra megin með fyrrum 1995 kollega sinn úr Val Ingunni. Ingunn reynir að hanga í henni en dettur og Elín kemur boltanum fyrir og Valur fær horn
52. mín
Þórdís úti hægra megin með góðan bolta inn á teiginn en þarna vantar bara einhvern KR ing til að setja tána í þetta. Boltinn spýtist til Söndru og hún grípur þetta
51. mín
KR ingar pressa og vinna boltann. Þær reyna að byggja upp sókn og finna leiðir inn fyrir vörnina en Valsarar koma þessu frá
48. mín
Katrín Ásbjörns snýr Lillý snyrtilega af sér og nær skoti en það er beint á Söndru í markinu.
47. mín
Ágæt sókn hjá KR. Ana hleypur inn á völlinn með boltann og setur hann upp í hornið á Katrínu Ómars. Hún nær að koma honum fyrir en Sandra grípur þennan örugglega
46. mín
Jón Þór er að sjálfsögðu mættur í stúkuna með rjúkandi bolla
46. mín
Inn:Rebekka Sverrisdóttir (KR) Út:Kristín Erla Ó Johnson (KR)
Það er allt reynt til að stoppa afmælisbarnið Hlín í dag. Rebekka fær það hlutverk í seinni hálfleik
46. mín
Inn:Thelma Lóa Hermannsdóttir (KR) Út:Kristín Erna Sigurlásdóttir (KR)
Thelma Lóa kemur inná í sínum fyrsta leik fyrir KR
45. mín
Leikur hafinn
Leikurinn er hafinn!
45. mín
Hálfleikur
KR liðið hefur verið sprækt fram á við en er veikt til baka og það hafa Valsarar nýtt sér heldur betur. 3-0 í hálfleik
45. mín
1 mín í uppbótartíma
44. mín
Taka þessa aukaspyrnu stutt. Ana fær boltann úti hægra megin og fær góðan tíma en setur hann aftur fyrir markið. Klaufalegt
43. mín
Dóra setur hann inn í teig en Ingibjörg grípur þennan
43. mín
Brotið á Elínu Mettu hægra megin fyrir utan teiginn. Dóra María stendur yfir boltanum og sendir inn í teig. Of snemma segir dómarinn og Dóra stillir sér upp aftur
42. mín
Hann flaggar aftur þegar Elín er komin ein í gegn eftir misheppnaða sendingu út úr vörninni hjá KR. Ekki viss með þetta heldur en hann hlýtur að hafa klárað dómaraskólann og vita þetta betur en ég
40. mín
Leikur hafinn
Þvílík sending frá Hallberu inn fyrir. Hlín stingur sér fram fyrir varnarmann KR og á algjöran draumaskalla sem fer í fjærhornið! Þvílík fegurð

Dómarinn dæmir rangstöðu?? Ég er ansi viss um að hann hafi rangt fyrir sér þarna.
36. mín Gult spjald: Lára Kristín Pedersen (KR)
Ásdís Karen liggur á vellinum eftir samstuð. Valsmenn koma honum út af

Lára Kristín fær gult
34. mín
Töts hjá Elínu inn á Ásdísi. Ásdís kemur honum yfir á Hlín hægra megin sem leikir á varnarmann KR en missir hann aðeins of langt frá sér. Boltinn dettur á Fanndísi sem á svo skot rétt framhjá
31. mín
Adda aftur á Guðnýju sem lúðrar honum upp vinstri vænginn á Fanndísi. Hún kemur honum í utan á hlaup á Elínu Mettu. Hún ætlar að stinga varnarmann KR af en tekst ekki og boltinn aftur fyrir endamörk
29. mín MARK!
Hlín Eiríksdóttir (Valur)
NEIIIII

Við vorum að tala um að það var afmælisbarn á vellinum sem heitir Hlín Eiríksdóttir! Þá kemur hún út á miðjum vallarhelming KR inga hægra megin og setur hann í fjærhornið! Var þetta sending eða skot??

Ég hef ekki hugmynd um það. En til hamingju með afmælið Hlín!
27. mín
Adda með skot fyrir utan og Ingibjörg þarf að hafa sig alla við að verja þennan út við stöng vinstra megin! Adda fékk allan tímann í heiminum til að stilla þessu upp
25. mín
Valsliðið sækir upp vinstra megin, Fanndís reynir sendingu yfir allan völlinn en Hlín nær þessu ekki, boltinn aftur fyrir og markspyrna
25. mín
Alma of hvatvís, reynir skot langt fyrir utan þegar KR var í góðri uppbyggingu á sókn. KR liðið er þræl sprækt fram á við og ætla sér að pressa lið Vals
21. mín
Akkurat þegar KR ingar eru að vinna sig í leikinn og búin að eiga stórgóð færi þá kemur mark í andlitið á þeim. 2-0 er ekki óskastaða á móti þessu Valsliði, það er á hreinu.
20. mín MARK!
Elín Metta Jensen (Valur)
Stoðsending: Elísa Viðarsdóttir
ÞETTA ER SKOT!! Elísa nær skoti með vinstri fyrir utan teig!

Þvílíkt skot í slánna og hann skoppar niður. KR ingar of lengi að átta sig og Elín nær frákastinu og setur hann í mark!
20. mín
Valur er í sókn núna. Fanndís nær skoti en hittir hann ekki nægilega vel. Valsarar halda áfram í sókn. Ásdís Karen vinnur hornspyrnu
17. mín
Dauðafæri hinum megin! Þetta eru svakalegar mínútur. Hlín fær boltann inn í teig og nær góðu skoti meðfram jörðinni. Ingibjörg ver þetta í stöng og út!!

Er þetta borðtennisleikur?? Svakalegar 20 mínútur
16. mín
Hvað er að gerast?? Guðný er með boltann inn í teig og gerir ráð fyrir að Sandra taki hann. Katrín Ómars stígur inn í hana og er ein á móti Söndru! Þetta fer réttframhjá!!
15. mín
KR ingar eru að pressa hátt! Boltinn sendur til baka á Söndru, hún hittir ekki boltann! Boltinn dettur beint út á Katrínu Ásbjörns!! Lillý kemur á ögurstundu og verður á undan! Þarna hefði Katrín verið í dauðafæri!
14. mín
Katrín spyrnir honum inn í teiginn. Fastur niðri. Boltinn skoppar út í teiginn og þar kemur Ana Cate og smellhittir hann! Hann endar hinsvegar í Katrínu Ásbjörns, maganum á henni, hefði þetta farið á markið?
13. mín
Brotið á Þórdísi úti vinstra megin. Þetta er alvöru færi fyrir KR. Aukaspyrna á hættulegum stað. Katrín Ómars stillir sér upp
12. mín
Kristín Erla með góðan bolta upp en Guðný skallar þetta útaf og KR ingar eiga innkast.
11. mín
Katrín finnur Þórdísi á miðjunni, hún snýr vel en missir boltann of langt frá sér. Rennir sér í hann með takkana of dónalega á undan sér og aukaspyrna
10. mín
Þvílíkur sprettur hjá Hallberu! Og hraðinn á henni?? Hún nær þessu og kemur með sturlaða sendingu fyrir markið með jörðinni. Hlín kemur á fullri ferð en hittir hann ekki nógu vel og þetta fer út í sandinn
9. mín
Leikmenn KR inga vilja open aukaspyrnu þegar Lillý kassar hann til baka á Söndru. Fá ekki neitt
8. mín
Laufey með háan bolta inn á teig, klafs inn á teig sem endar með því að Valsarar hreinsa út af.
7. mín
Leikmenn eru að ná áttum eftir þetta. Markið var blaut tuska í andlitið á KR ingum sem ætluðu sé eflaust alls alls ekki að byrja leikinn svona
6. mín
Við náðum ekki einu sinni að koma með byrjunarlið Vals áður en markið kom en hér kemur það:

Fanndís-Elín metta-Hlín
Ásdís Karen
Adda - Dóra María
Elísa-Lillý-Guðný-Hallbera
Sandra
5. mín
KR ingar í sókn sem endar með skoti hjá Katrínu Ómars úti við vinstra vítateigshorn. Boltinn rennur vel í bleytunni en Sandra ver þetta örugglega.
2. mín MARK!
Elín Metta Jensen (Valur)
Stoðsending: Hlín Eiríksdóttir
Það er komið MARK!! Það voru einungis komnar 90 sekúndur á klukkuna og þá fara Valsarar upp hægri kantinn nákvæmlega einsog þær gerðu þúsund sinnum í fyrra! Hlín leggur hann út í teig, skelfileg dekkning inn á teig hjá KR, boltinn beint fyrir Elínu Mettu sem leggur hann í hornið!
2. mín
Sýnist KR spila 4-3-3
Byrjunarliðið er svona upp stillt

Alma- Katrín Á- Kristín Erna
Þórdís hrönn
Lára kristín- Katrín ómars
Kristín erla- Ingunn- Laufey- Ana cate
Ingibjörg
1. mín
KR ingar byrja með boltann
1. mín
Leikur hafinn
BYRJAÐ
Fyrir leik
Liðin eru að ganga út á völlinn! Gæsahúð!
Fyrir leik
Heiðurgestur leiksins er Margrét Lára Viðarsdóttir fyrrum leikmaður Vals.
Ég veit ekki einu sinni hvar ég ætti að byrja ef ég ætlaði að telja upp afrekin hennar.

Takk MLV9 fyrir að færa knattspyrnuna á hærra level. Held að ég kvitti bara undir þetta frá mér og landi og þjóð, svei mér þá.
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru komin í hús!

Valskonur byrja nánast með sama lið og spilaði Meistaraleikinn á móti Selfossi en það er ein breyting. Dóra María kemur á miðjuna fyrir Málfríði Önnu.

Spurningin er hvort að Elín og Fanndís verða tvær frammi með tígulmiðju fyrir aftan sig í þeim Ásdísi Karen, Hlín, Dóru og Ásdísi Karen eða hvort að þær spili með Elínu Mettu fremsta með Hlín og Fanndísi á köntunum.

Gaman verður að fylgjast með Ásdísi Karen í liði Vals en hún er uppalin í KR og spilaði með KR á síðustu leiktíð. Fædd árið 1999 og komin tími til að hún komi sér vel fyrir í góðu liði Vals af krafti!

KR liðið teflir fram sínu sterkasta liði en það hafa verið meiðsli hjá þeim í æfingaleikjum. Líklegt er að þær Katrín Ómars og Lára verði á miðjunni með Þórdísi Hrönn fyrir framan sig og þrjár fremstar í þeim Ölmu, Katrínu Ásbjörns og Kristínu Ernu.

Gaman verður að fylgjast með Ölmu Mathiesen sem er fædd árið 2003. Mjög skemmtilegur leikmaður sem fær núna tækifæri í opnunarleik sumarsins!
Fyrir leik
Tölfræðin er Valskonum í hag. Það verður bara að segja.

KR vann Val síðast 17.ágúst 2008. Fyrir áhugafólk í stærðfræðinni eru það 11 ár, 9 mánuðir og 26 dagar. Það er ansi langur tími í fótbolta.

Valsarar hafa því farið í gegnum 18 deildarleiki á móti KR án þess að tapa. Þær hafa unnið 15 af þeim leikjum og markatalan 62-8 Völsurum í hag.
Fyrir leik
Ég er alla vega alveg afskaplega spennt fyrir leik kvöldsins og er löngu komin í stellingar!

Guðni forseti mætir á opnunarleikinn og þá þýðir ekki að vera minni maður en að skella sér líka í stúkuna.

Það er stórfínt fótboltaveður og lífið gæti ekki verið betra.

Allir á völlinn!

LET´S GO
Fyrir leik
Jóhannes Karl Sigursteinsson, þjálfari KR:
Markmiðið er alltaf að stefna hærra en síðasta ár og við viljum færa okkur í efri hluta deildarinnar og berjast þar. Eins og mörg önnur lið viljum við sjá í toppinn og helst hafa tækifæri til að sækja þangað allt til enda móts.
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fyrir leik
Hallbera Guðný Gísladóttir, fyrirliði Íslandsmeistara Vals:
Ég er rosalega spennt að byrja loksins. Þetta er búið að vera lengsta undirbúningstímabil lífsins og það verður rosalega gaman að byrja Undirbúningstímabilið hefur gengið vel, við vorum með prógram frá Val og það var fylgst vel með okkur; það þurftu allir að æfa vel. Ég ætla samt ekki að ljúga að þetta var ekki skemmtilegt og sem betur fer er þetta búið.
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fyrir leik
KR liðið er Stjörnuprýtt 2015 lið þar sem þær Þórdís Hrönn, Katrín Ásbjörns, Lára Kristín og Ana Cate hafa bæst í hópinn. Þetta eru allt reynslumiklir leikmenn sem kunna að vinna leiki. Verður liðið nógu samstillt í kvöld eða þarf liðið kannski lengri tíma að slípa sig saman?

Með tilkomu þessara leikmanna er alveg ljóst að KR ætlar sér stærri hluti en síðustu ár og Vesturbærinn getur alveg gert meiri kröfur en 5.sætið þegar liðið er búið að sanka að sér svona gæðaleikmönnum.
Fyrir leik
Mikið hefur verið rætt um brotthvarf Margrétar Láru úr liði Vals og hvaða áhrif það mun hafa á liðið. Margrét kom að 23 mörkum liðsins í fyrra af 65 mörkum með því að skora eða leggja upp. Mun Pétur skella Ásdísi Karen eða Ídu beint í holuna eða verður breytt um leikkerfi í kvöld?

Valsliðið er ógnarsterkt og ætlar sér titilinn, það er alveg á hreinu.
Fyrir leik
Íslandsmeistarar Vals taka á móti splunkunýju KR liði sem endaði í 7.sæti á síðustu leiktíð.

Íslandsmeisturunum er þó hvergi spáð 1.sæti í ár og var til að mynda spáð þriðja sæti í spá formanna, þjálfara og fyrirliða sem birt var á kynningarfundi KSÍ í gær á eftir Breiðablik og Selfossi.

KR-ingum er hinsvegar spáð 5.sæti í þeirri spá.
Fyrir leik
ÞAÐ ER KOMIÐ AÐ ÞVÍ! VEISLAN ER AÐ HEFJAST!

Verið velkomin á fyrsta leik í Pepsi Max. Í kvöld mætast Reykjavíkurstórveldin Valur og KR og leikurinn hefst kl 19:15.
Byrjunarlið:
29. Ingibjörg Valgeirsdóttir (m)
Ana Victoria Cate
2. Kristín Erla Ó Johnson ('46)
3. Ingunn Haraldsdóttir (f)
4. Laufey Björnsdóttir
6. Lára Kristín Pedersen
8. Katrín Ómarsdóttir ('66)
9. Katrín Ásbjörnsdóttir
11. Kristín Erna Sigurlásdóttir ('46)
16. Alma Mathiesen ('67)
27. Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir

Varamenn:
23. Birna Kristjánsdóttir (m)
6. Rebekka Sverrisdóttir ('46) ('72)
7. Guðmunda Brynja Óladóttir
9. Hlíf Hauksdóttir ('66)
10. Inga Laufey Ágústsdóttir ('67)
11. Thelma Lóa Hermannsdóttir ('46)
20. Þórunn Helga Jónsdóttir ('72)

Liðsstjórn:
Jóhannes Karl Sigursteinsson (Þ)
Guðlaug Jónsdóttir
Sædís Magnúsdóttir
Hildur Björg Kristjánsdóttir
Gísli Þór Einarsson
Ragna Lóa Stefánsdóttir
Aníta Lísa Svansdóttir
Karólína Jack

Gul spjöld:
Lára Kristín Pedersen ('36)

Rauð spjöld: