Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
Í BEINNI
Besta-deild karla
HK
35' 0
0
FH
Fylkir
2
0
Grótta
Valdimar Þór Ingimundarson '62 , víti 1-0
Valdimar Þór Ingimundarson '72 2-0
2-0 Óliver Dagur Thorlacius '86 , misnotað víti
29.06.2020  -  19:15
Würth völlurinn
Pepsi Max-deild karla
Aðstæður: 17 gráður og logn. Leikmenn fá ekki betra fótboltaveður
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson
Áhorfendur: 915
Maður leiksins: Valdimar Þór Ingimundarson (Fylkir)
Byrjunarlið:
1. Aron Snær Friðriksson (m)
Daði Ólafsson
2. Ásgeir Eyþórsson (f)
5. Orri Sveinn Stefánsson
11. Valdimar Þór Ingimundarson
11. Djair Parfitt-Williams
13. Arnór Gauti Ragnarsson ('68)
17. Birkir Eyþórsson
18. Nikulás Val Gunnarsson
23. Arnór Borg Guðjohnsen
28. Helgi Valur Daníelsson ('51)

Varamenn:
32. Arnar Darri Pétursson (m)
4. Arnór Gauti Jónsson
9. Hákon Ingi Jónsson ('68)
10. Andrés Már Jóhannesson
11. Þórður Gunnar Hafþórsson
16. Ólafur Ingi Skúlason ('51)
33. Natan Hjaltalín

Liðsstjórn:
Rúnar Pálmarsson (Þ)
Ólafur Ingi Stígsson (Þ)
Atli Sveinn Þórarinsson (Þ)
Björn Metúsalem Aðalsteinsson
Óðinn Svansson
Ólafur Ingvar Guðfinnsson
Halldór Steinsson

Gul spjöld:
Nikulás Val Gunnarsson ('23)
Daði Ólafsson ('87)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Sigurður Hjörtur flautar til leiksloka.

2-0 sigur Fylkis staðreynd

Ég verð einhvern tíma að jafna mig eftir þennan ROSALEGA LEIK

Viðtöl og skýrsla á leiðinni.
90. mín
HVERNIG VAR ÞETTA EKKI MARK. Djair rennir honum á Hákon Inga sem setur hann á óskiljanlegan hátt framhjá
90. mín Gult spjald: Karl Friðleifur Gunnarsson (Grótta)
STÁLHEPPINN AÐ FÁ EKKI RAUTT ÞARNA

Keyrir inn í leikmann Fylkismann sem liggur eftir, sé ekki alveg hvern
90. mín
Ásgeir Eyþórs setur boltan í netið en virðist brjóta á Hákoni Rafni
89. mín
Ólíver brýtur aftur og í þetta skipti á Ólafi Inga.
88. mín Gult spjald: Óliver Dagur Thorlacius (Grótta)
Fer aftan í Djair Parfitt
87. mín Gult spjald: Daði Ólafsson (Fylkir)
86. mín Misnotað víti!
Óliver Dagur Thorlacius (Grótta)
Aron skutlar sér í rétt horn og ver vel
85. mín
GRÓTTUMENN FÁ VÍTI!!!

Ásgeir Eyþórs dæmdur brotlegur
83. mín
Inn:Ágúst Freyr Hallsson (Grótta) Út:Kristófer Orri Pétursson (Grótta)
83. mín
Inn:Kristófer Melsted (Grótta) Út:Bjarki Leósson (Grótta)
80. mín
ÉG Á EKKI TIL ORÐ.

Það er allt að sjóða uppúr hérna í Lautinni. Mikill hiti í þessu innan sem utan vallar. Sigurður Hjörtur í aðalhlutverki þessa stundina
79. mín
Patrik Orri rennir honum út á Gabríel sem á fína fyrirgjöf en Aron kýlir frá
78. mín
Gabríel Hrannar með fína tilraun en boltin beint á Aron
77. mín
Hiti kominn í þetta og báðir þjálfarar eru vitlausir út á hliðarlínu út í Sigurð Hjört dómara leiksins
76. mín
ÞARNA MUNAÐI LITLU HJÁ FYLKI

Daði Ólafs ætlar að koma með fyrirgjöf frá vinstri en það endar með ágætri marktilraun og boltin rétt yfir markið.
75. mín Gult spjald: Pétur Theódór Árnason (Grótta)
Rennir sér í Ásgeir sem var búin að senda boltan frá sér
73. mín
Inn:Gabríel Hrannar Eyjólfsson (Grótta) Út:Axel Sigurðarson (Grótta)
72. mín MARK!
Valdimar Þór Ingimundarson (Fylkir)
VALDIMAR ÞÓR!!!!!!!!

Komst inn í sendingu Gróttumanna og tekur einn áður en hann setur boltan snyrtilega í netið!!!!

2-0
70. mín
Djair vinnur hornspyrnu fyrir Fylkismenn eftir gott samspil við Valdimar Þór

Daði Ólafs tekur spyrnuna en boltin endar afturfyrir
68. mín
Inn:Hákon Ingi Jónsson (Fylkir) Út:Arnór Gauti Ragnarsson (Fylkir)
Arnór Gauti hlaupið úr sér lungun hérna í dag.
65. mín
ALVÖRU FJÖR Í ÞESSU.

Ég hef varla undan að skrifa þetta allt saman. Fylkismenn sleppa í gegn og Arnór Gauti setur hann í hliðarnetið.
65. mín
Inn:Karl Friðleifur Gunnarsson (Grótta) Út:Sigurvin Reynisson (Grótta)
65. mín
Inn:Óskar Jónsson (Grótta) Út:Axel Freyr Harðarson (Grótta)
63. mín
GRÓTTUMENN FÁ DAUÐAFÆRI!!!!!

Óliver Dagur á geggjaðan bolta fyrir en Pétur Theódor hittir ekki boltan
62. mín Mark úr víti!
Valdimar Þór Ingimundarson (Fylkir)
FYRSTA MARKIÐ ER KOMIÐ!!!

Valdimar Þór setur hann fastan niðrí vinstra hornið
62. mín
FYLKISMENN FÁ VÍTI!!!!!!

Hár bolti fyrir og Hákon keyrir í Nikulás að mér sýndist.
60. mín
BESTA FÆRI LEIKSINS KEMUR HÉR EFTIR KLUKKUTÍMA LEIK

Arnór Gauti fær boltan hægrameginn og kemur boltanum á Djair Parfitt Williams en skot hans rétt yfir markið.
57. mín
Axel Sigurðarson keyrir upp vinstramegin og rennir honum á Pétur og nær ekki að snúa að marki og Fylkismenn hreinsa í innkast.
55. mín
Birkir tekur spyrnuna sem er föst en Hákon vel á verði og grípur boltan
55. mín Gult spjald: Arnar Þór Helgason (Grótta)
Brýtur á Valdimar Þóri og Fylkismenn fá aukspyrnu á hættulegum stað
53. mín
Óliver Dagur á aukspyrnu af 30 metrunum og reynir skot en spyrna hans yfir markið
51. mín
Inn:Ólafur Ingi Skúlason (Fylkir) Út:Helgi Valur Daníelsson (Fylkir)
Ólafur Ingi kemur inn fyrir Helga
50. mín
Helgi Valur er borin af velli og stuðningsmenn standa upp og klappa fyrir honum
47. mín
ÚFF ÞETTA LEIT EKKI VEL ÚT

Helgi Valur virðist snúa upp á hnéð eftir baráttu sína við Sigurvin Reynisson sýndist mér og kallað er eftir sjúkrabíl.
46. mín
Djair og Valdimar Ingi taka gott þríhrynarspil á milli sín og Djair á fyrirgjöf sem Gróttumenn hreinsa
46. mín
Sigurður Hjörtur flautar síðari hálfleikinn á

Ég kalla eftir mörkum!
45. mín
Hálfleikur
+1

Sigurður Hjörtur flautar til hálfleik og stuðningsmenn Gróttu vilja Sigga í sóttkví ,,Dómarann í sóttkví" syngja þeir
45. mín
Uppbótartími fyrrihálfleiks er 1. mínúta
42. mín
Valdimar Ingi keyrir á Ástbjörn sem virðist standa kjurr en Ástbjörn dæmdur brotlegur fyrir litlar sakir

Daði Ólafs tekur spyrnuna og Gróttumenn hreinsa í innkast.
39. mín
Axel Sigurðsson vinnur hornspyrnu fyrir Gróttu sem Óliver Dagur tekur en Fylkismenn koma boltanum í burtu.
37. mín
Arnór Borg og Valdimar Þór eiga gott samspil sem endar með að Valdimar fær flugbrautina fyrir framan teig Gróttu en brotið er á honum og fær Fylkir aukaspyrnu á hættulegum stað!!

Arnór Borg tekur spyrnuna en boltin beint í varnarvegg Gróttu.
30. mín
Axel Sigurðsson finnur Pétur í fætur við teigin sem rennir honum á Axel Frey en skot hans slakt og framhjá markinu.
29. mín
Birkir á góðan bolta fyrir sem Arnór Gauti nær ekki til og á sama tíma er Arnór flaggaður rangstæður.
27. mín
Óliver Dagur á góðan boltan fyrir frá hægri en Daði Ólafs nær að hreinsa í horn

Kristófer Orri á spyrnuna en Fylkismenn hreinsa
23. mín Gult spjald: Nikulás Val Gunnarsson (Fylkir)
Rennir sér aftan í Patrik Orra
21. mín
GRÓTTA KEMUR BOLTANUM Í NETIÐ EN RANGSTÆÐA DÆMD

Axel Sigurðsson fær boltan innfyrir og Hákon Rafn kemur á móti og ætlar að hreinsa en setur boltan í Axel og boltin inn.
19. mín
Færi á báða boga þessa stundina

Fyrsta markið hlýtur að fara að koma.
17. mín
VÁÁÁAAA

Axel Freyr sleppur einn í gegn en GEGGJUÐ tækling hjá Ásgeiri Eyþórs sem kemur í veg fyrir að Axel leggi hann í netið
14. mín
DAUÐAFÆRI FYLKIR!!!!

Birkir Eyþórsson kemur boltanum fyrir frá hægri en Arnór Gauti hittir ekki boltan

Þarna hefði staðan geta orðið 1-0
11. mín
Axel Sigurðsson á góðan sprett upp vinstra megin hjá Gróttu og reynir að finna Pétur Theódór út i teig en góður varnarleikur hjá Orra Svein.
9. mín
Við bíðum enþá eftir fyrsta færi leiksins. Liðin að reyna finna opnanir en bæði lið gríðarlega vel skipulögð
6. mín
Arnór Gauti á fínan sprett upp hægra megin hjá heimamönnum og á fyrirgjöf sem Gróttumenn hreinsa
5. mín
Fylkismenn aðeins að komast inn í þetta og er mikil barátta í þessu og alveg ljóst að menn ætla að selja sig dýrt hérna í kvöld.
3. mín
Gróttumenn byrja leikinn af miklum krafti og hafa heimamenn varla komist yfir miðju.
1. mín
Fyrsta hornspyrna leiksins er gestana. Kristófer Orri tekur hana frá hægri en Aron Snær kýlir boltan afturfyrir og í aðra hornspyrnu hinumegin frá sem Ástbjörn tekur frá vinstri og ekkert verður úr henni.
1. mín
Leikur hafinn
Fylkismenn eiga upphafspyrnu leiksins

Leikurinn er hafinn. Góða skemmtun!
Fyrir leik
Liðin ganga inn á völlinn á eftir Sigurði Hjört og hans aðstoðarmönnum og verið er að kynna liðin!
Fyrir leik
Minni fólk á myllumerkið #Fotboltinet á meðan leik stendur!

Styttist í þetta hérna í Árbænum, stuðningsmenn Gróttu eru mættir og láta þeir vel í sér heyra!
Fyrir leik
Bæði liðin voru í sviðsljósinu í 32-liða úrslitum bikarsins í vikunni og fengu þau bæði þægileg verkefni og eru bæði komin áfram í 16-liða úrslitin

Fylkismenn heimsóttu ÍH í Skessunni og sigruðu þeir þann leik nokkuð þægilega 0-8 þar sem Arnór Borg setti meðal annars þrennu, hann einmitt byrjar hér í kvöld

Gróttumenn fengu Hött/Huginn í heimsókn á Nesið og unnu 3-0 þar sem Axel Sigurðsson,Arnar Þór Helgason og Gabríel Hrannar Eyjólfs skoruðu mörk Gróttumanna.
Fyrir leik
Liðin eru mætt út á völl og byrjuð að hita, gríðarlega einbeiting er hjá báðum liðum.

Vonandi fáum við hörku leik og væri ég alveg til í sjá nokkur mörk hérna í Lautinni í kvöld
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru klár og má sjá þau hér til hliðana

Atli Sveinn og Ólafur Stígs gera tvær breytingar frá tapinu gegn Blikum í síðustu umferð. Arnór og Nikulás Val Gunnarsson koma inn í liðið fyrir Sam Hewson og Hákon Inga Jónsson.

Gústi Gylfa gerir þrjár breytingar á sínu liði fá 0-3 tapinu gegn Val í síðustu umferð. Arnar Þór Helgason snýr aftur eftir leikbann og þeir Bjarki Leósson og Patrik Orri Pétursson koma einnig inn í liðið. Út fara þeir Óskar Jónsson, Kristófer Melstad og Halldór Kristján Baldursson.
Fyrir leik
Síðustu daga hefur verið könnun á forsíðunni þar sem lesendur giska á úrslit leiksins. 2.345 tóku þátt í þessari könnun.

61% lesenda spá því að Fylkir muni vinna leikinn, 16% spá jafntefli en 23% spá því að nýliðarnir sæki þrjú stig í Árbæinn.

Þess má geta að þessi tvö lið áttust við í Mjólkurbikarnum í fyrra, þegar Grótta var í B-deild, og vann Fylkir þar 2-1 eftir að hafa lent undir í leiknum.

Pétur Theódór Árnason kom þá Gróttu yfir en Arnór Gauti Ragnarsson skoraði bæði mörk Árbæinga.
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Fylkismenn fengu Blika í heimsókn í síðustu umferð og eina mark leiksins gerði Damir Muminovic í 0-1 sigri Blika

Gróttumenn fengu Valsmenn í heimsókn á teppið á Nesinu og endaði sá leikur 0-3 fyrir Valsmönnum
Fyrir leik
Þetta er RISA leikur fyrir þær sakir að bæði þessi lið eru stigalaus eftir fyrstu tvær umferðirnar og má segja að um 6 stiga leik sé að ræða og bæði lið ætla sér sigur hér í kvöld
Fyrir leik
Góðan og gleðilegan daginn og verið hjartanlega velkomin í beina textalýsingu frá Lautinni. Hér í kvöld mætast Fylkir og Grótta í þriðju umferð Pepsí Max-deildar karla. Leikurinn í kvöld fer fram við toppaðstæður
Byrjunarlið:
1. Hákon Rafn Valdimarsson (m)
Pétur Theódór Árnason
2. Arnar Þór Helgason
3. Bjarki Leósson ('83)
5. Patrik Orri Pétursson
6. Sigurvin Reynisson (f) ('65)
9. Axel Sigurðarson ('73)
10. Kristófer Orri Pétursson (f) ('83)
19. Axel Freyr Harðarson ('65)
22. Ástbjörn Þórðarson
29. Óliver Dagur Thorlacius

Varamenn:
1. Jón Ívan Rivine (m)
12. Gabríel Hrannar Eyjólfsson ('73)
14. Ágúst Freyr Hallsson ('83)
19. Kristófer Melsted ('83)
20. Karl Friðleifur Gunnarsson ('65)
21. Óskar Jónsson ('65)

Liðsstjórn:
Ágúst Þór Gylfason (Þ)
Dagur Guðjónsson
Halldór Kristján Baldursson
Björn Valdimarsson
Þór Sigurðsson
Guðmundur Steinarsson
Þorleifur Óskarsson
Jón Birgir Kristjánsson

Gul spjöld:
Arnar Þór Helgason ('55)
Pétur Theódór Árnason ('75)
Óliver Dagur Thorlacius ('88)
Karl Friðleifur Gunnarsson ('90)

Rauð spjöld: