Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Afturelding
2
3
Leiknir R.
0-1 Vuk Oskar Dimitrijevic '6
0-2 Sólon Breki Leifsson '45
0-3 Sólon Breki Leifsson '48
Kári Steinn Hlífarsson '50 1-3
Andri Freyr Jónasson '92 2-3
27.07.2020  -  19:15
Fagverksvöllurinn Varmá
Lengjudeild karla
Dómari: Kristinn Friðrik Hrafnsson
Maður leiksins: Sólon Breki Leifsson
Byrjunarlið:
1. Jon Tena Martinez (m)
3. Ísak Atli Kristjánsson ('50)
6. Alejandro Zambrano Martin
6. Aron Elí Sævarsson (f)
7. Hafliði Sigurðarson ('66)
8. Kristján Atli Marteinsson
9. Andri Freyr Jónasson
10. Jason Daði Svanþórsson (f) ('56)
10. Kári Steinn Hlífarsson ('66)
25. Georg Bjarnason
34. Oskar Wasilewski

Varamenn:
13. Jóhann Þór Lapas (m)
2. Endika Galarza Goikoetxea ('50)
14. Jökull Jörvar Þórhallsson
15. Elvar Ingi Vignisson
17. Valgeir Árni Svansson ('66)
17. Ragnar Már Lárusson
19. Eyþór Aron Wöhler ('66)

Liðsstjórn:
Magnús Már Einarsson (Þ)
Alexander Aron Davorsson (Þ)
Aðalsteinn Richter
Þórunn Gísladóttir Roth
Ingólfur Orri Gústafsson
Enes Cogic
Sævar Örn Ingólfsson

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Flottur fóotboltaleikur sem endar með 2-3 sigri Leiknismanna.

Viðtöl og skýrsla innan skamms.
92. mín MARK!
Andri Freyr Jónasson (Afturelding)
Stoðsending: Eyþór Aron Wöhler
MARK!!!!!!!

Vel klárað hjá fyrirliðanum! Er þetta of seint?
90. mín
Leiknismenn fá hornspyrnu. Taka góðan tíma í þetta.
90. mín
Alejandro með aukaspyrnu yfir markið. 90 mín komnar á klukkuna.
88. mín
Senur hér í lokin. Fyrirgjöf sem Smit kýlir upp í loftið. Heimamenn ná skoti sem Leiknismenn hreinsa en Alexander Aron nær boltanum inn í teig og fellur svo við. Alexander biður um víti en fær ekkert.
87. mín
Gestirnir virðast ætla að klára þetta.
86. mín
Inn:Arnór Ingi Kristinsson (Leiknir R.) Út:Sólon Breki Leifsson (Leiknir R.)
82. mín
Afturelding fær aukaspyrnu á fínum stað. Líklegast fyrirgjöf.

Já og gripinn í þokkabót.
77. mín
HEIMAMENN VILJA VÍTI!!!

Eyþór í baráttunni inn í teig og fellur við. Allir brjálaðir við dómarann sem dæmir ekkert.

Held nú samt að þetta hafi verið alveg rétt.
76. mín
Gestirnir taka litla sénsa þessa stundina. Kannski eðlilegt. Þeir taka glaðir 3 stig heim í Breiðholtið ef ekkert breytist.
72. mín
Inn:Shkelzen Veseli (Leiknir R.) Út:Vuk Oskar Dimitrijevic (Leiknir R.)
Ungur spennandi leikmaður út. Enn yngri leikmaður sem lofar afar góðu inn.
71. mín
Trekk í trekk komast heimamenn í góðar stöður en það vantar alltaf örlítið upp á!
70. mín
Heimamenn fá hornspyrnu.
66. mín
Inn:Eyþór Aron Wöhler (Afturelding) Út:Hafliði Sigurðarson (Afturelding)
66. mín
Inn:Valgeir Árni Svansson (Afturelding) Út:Kári Steinn Hlífarsson (Afturelding)
66. mín
Heimamenn halda áfram að sækja af krafti. Aron Elí með góða sendingu sem Alexander Aron nær á markið en Smit í marki Leiknis vel ver. Þarna hefði Flugan þurft að setja boltann í hornið.

Alexander Aron hefur samt komið með aukin kraft inn í þetta hjá Aftureldingu.
66. mín
Leiknismenn keyra upp í skyndisókn og þetta endar með hornspyrnu.

Sú spyrna er skölluð frá.
64. mín
Lítið búið að gerast síðustu mínútur. Þetta er alltaf svona næstum því hjá heimamönnum. Gestirnir komnir neðar á völlinn.
56. mín
Inn:Alexander Aron Davorsson (Afturelding) Út:Jason Daði Svanþórsson (Afturelding)
54. mín
Kraftur í heimamönnum núna.

Alejandro með ágætt skot úr þröngu færi.
50. mín
Inn:Endika Galarza Goikoetxea (Afturelding) Út:Ísak Atli Kristjánsson (Afturelding)
50. mín MARK!
Kári Steinn Hlífarsson (Afturelding)
ÞETTA ER EKKI BÚIÐ!

Heimamenn svara hér strax. Aron Elí með gott utan á hlaup á Hafliða sem rennir honum á hann. Aron með fína fyrirgjöf sem Smit slær út. Kári er fyrstur að átta sig og klárar vel.

Þetta er leikur.
48. mín MARK!
Sólon Breki Leifsson (Leiknir R.)
Stoðsending: Daði Bærings Halldórsson
LEIKNISMENN ERU LÍKLEGAST AÐ KLÁRA ÞETTA HÉRNA!

Vel gert hjá Daða sem er inn í teig en finnur Sólon út í breiddina. Sólon gerir þetta afar vel og tekur boltann utanfótar í fjærhornið.

0-3 takk fyrir.
46. mín
Þetta er farið aftur af stað.
45. mín
Hálfleikur
Kominn hálfleikur. Þetta er búið að vera nokkuð jafnt en Leiknismenn hafa skapað betri færi og nýtt þau afar vel.

Komum aftur eftir nokkrar.
45. mín MARK!
Sólon Breki Leifsson (Leiknir R.)
Stoðsending: Sævar Atli Magnússon
MARK! Leiknismenn tvöfalda hér forystuna!!!

Sævar fær boltann óvænt í gegn eftir flotta sendingu og finnur Sólon sem er aleinn á fjærstöng. Sólon á ekki í neinum erfðileikum með að klára þetta. Vel gert hjá gestunum.
43. mín
Sævar Atli með góða fyrirgjöf sem Jon Tena slær út í teiginn. Þar er Árni Elvar mættur og á skot sem varnarmenn Aftureldingar ná að henda sér fyrir.

Þarna var hætta!
42. mín Gult spjald: Sævar Atli Magnússon (Leiknir R.)
Fyrirliðinn aðeins of seinn þarna og fær réttilega gult spjald. Braut á Ísaki Atla.
37. mín
Inn:Árni Elvar Árnason (Leiknir R.) Út:Daníel Finns Matthíasson (Leiknir R.)
Sýnist Daníel hafa fengið aftan í læri og því gera Leiknismenn skiptingu.
35. mín
Sævar Atli fær boltan eftir fyrirgjöf frá Degi. Sævar nær að snúa inn í teig og á skot á markið sem Jon Tena ver auðveldlega.

Þetta var gott færi.
32. mín
Afturelding fær aukaspyrnu á hættulegum stað. Rétt fyrir utan teig úti vinstra meginn.

Leiknismenn skalla fyrirgjöfina í horn. Það kemur svo ekkert út úr horninu.
31. mín
Lítið um opnanir síðustu mínútur. Bæði lið að reyna samt.
26. mín
Aftureldingar fær aukaspyrnu um 40 m. frá marki. Boltinn berst inn í teiginn en Leiknir hreinsa í horn.

Það kemur ekkert út úr hornspyrnunni.
25. mín
Máni gerir vel og á hlaup inn í teig. Vuk finnur hann í gegn og Máni reynir fyrirgjöf sem endar í varnarmanni og aftur fyrir. Hornspyrna.

Boltinn berst á fjærstöng en heimamenn ná að hreinsa.
23. mín
Fínar stöður sem bæði lið eru að komast í en vantar örlítið betri ákvarðanartökur svo hægt sé að breyta þessu í mörk.
20. mín
Hættulegur bolti í gegn á Hafliða en Leiknismenn ná að hreinsa í horn.

Gestirnir skalla hornspyrnuna burt.
15. mín
Georg með fyrirgjöf en Leiknismenn hreinsa frá.

Ekkert alvöru færi komið eftir markið.
13. mín
Sævar fær sendingu frá Sólon inn í teig Aftureldingar en fyrsta snertingin er ekki góð og heimamenn ná að hreinsa.

Þetta hefði verið færi.
12. mín
Jason Daði gerir vel. Snýr á miðjum vellinum og finnur Georg í hlaupinu. Georg tekur eina snertingu inn í teig og skýtur en Dagur kemst fyrir skotið.
9. mín
Kristján Atli á skalla rétt framhjá marki Leiknis.
6. mín MARK!
Vuk Oskar Dimitrijevic (Leiknir R.)
Stoðsending: Sævar Atli Magnússon
Fyrsta markið er komið. Glæsilega gert hjá Sævari Atla sem fær boltann rétt fyrir utan teig heimamanna, á skemmtilega sendingu beint í hlaupaleiðina hjá Vuk sem klárar vel í hornið nær.

Gestirnir komnir yfir eftir rólegar upphafs mínútur.
3. mín
Sævar keyrir hér inn í teiginn og leikur á Ísak Atla. Boltinn snertir Ísak og fer útaf og því er þetta hornspyrna samkvæmt mínum bókum en ekkert dæmt og Jon Tena nær knettinum.
1. mín
Leikur hafinn
Heimamenn byrja leikinn.
Fyrir leik
Liðin ganga hér inn á og Kaleo hljómar í græjunum. Seiðandi rödd JJ á vel við í sumarblíðunni.

Góða skemmtun!
Fyrir leik
Liðin halda nú inn til búningsklefa. Það er stutt í leik og við eigum von á veislu! Þessi lið eru nefnilega bæði þekkt fyrir skemmtilegan fótbolta.
Fyrir leik
Það er eitthvað um tengingu milli þessara félagsliða. Tökum þrjá skemmtilega fróðleiksmola hér.

Þjálfari Aftureldingar er Magnús Már Einarsson og á hann einmitt leik fyrir Leikni í Pepsi Max deildinni árið 2015. Magnús kom þá inn á í 0-3 sigri gegn Val á Hlíðarenda.

Dagur Austmann er í byrjunarliði Leiknis í kvöld en hann spilaði fyrir Mosfellinga árið 2017. Ágúst Leó sem er á bekknum hjá Leikni var einnig í Mosfellsbænum árið 2017 og skoraði nokkur mörk.

Alexander Aron leikmaður Aftureldingar eða Flugan eins og hann er kallaður spilaði aðeins fyrir Leikni í yngri flokkunum.
Fyrir leik
Bæði þessi lið léku í Lengjudeildinni síðasta sumar.

Fyrri leikurinn endaði með 2-1 sigri Aftureldingar í Mosfellsbæ. Seinni leikurinn var uppi í Breiðholti og fór 3-2 fyrir Leikni.
Fyrir leik
Veðrið leikur við okkur hér í Mosfellsbæ og gervigrasið er vel vökvað fyrir leik.

Liðin er mætt út að hita.
Fyrir leik
Gestirnir úr Breiðholti stilla upp sama byrjunarliði og gegn Víking Ólafsvík í síðustu umferð. Sá leikur endaði 5-0, Leikni í vil.

Mosfellingar gerðu 2-2 jafntefli gegn Grindavík í síðustu umferð og stilla upp sama liði fyrir utan eina breytingu. Georg Bjarna kemur inn fyrir Gísla sem er meiddur.
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru klár og má sjá hér til hliðar.
Fyrir leik
Góðan daginn og verið velkomin í beina textalýsingu frá leik Aftureldingar og Leiknis í Lengjudeild karla.

Leikurinn hefst klukkan 19:15 á Fagverksvellinum í Mosfellsbæ.
Hafliði Breiðfjörð
Byrjunarlið:
12. Guy Smit (m)
Sólon Breki Leifsson ('86)
5. Daði Bærings Halldórsson (f)
6. Ernir Bjarnason
7. Máni Austmann Hilmarsson
10. Sævar Atli Magnússon (f)
10. Daníel Finns Matthíasson ('37)
17. Gyrðir Hrafn Guðbrandsson
20. Hjalti Sigurðsson
23. Dagur Austmann
29. Vuk Oskar Dimitrijevic ('72)

Varamenn:
1. Viktor Freyr Sigurðsson (m)
3. Ósvald Jarl Traustason
4. Bjarki Aðalsteinsson
8. Árni Elvar Árnason ('37)
10. Shkelzen Veseli ('72)
14. Birkir Björnsson
23. Arnór Ingi Kristinsson ('86)
80. Róbert Vattnes Mbah Nto

Liðsstjórn:
Sigurður Heiðar Höskuldsson (Þ)
Valur Gunnarsson
Elías Guðni Guðnason
Diljá Guðmundardóttir
Hlynur Helgi Arngrímsson
Ágúst Leó Björnsson

Gul spjöld:
Sævar Atli Magnússon ('42)

Rauð spjöld: