
Slúðrið heldur áfram að vinda upp á sig og spennandi verður að sjá hvernig leikmannamarkaðurinn þróast fram að nýju tímabili. BBC tekur allt það helsta saman.
Arsenal hefur bæst í hóp Chelsea, Liverpool og Manchester United í kapphlaupinu um franska framherjann Hugo Ekitike (23) hjá Eintracht Frankfurt. (Sport Bild)
Borussia Dortmund, Bayer Leverkusen, Eintracht Frankfurt, RB Leipzig og Stuttgart hafa áhuga á enska miðjumanninum James McAtee (22) hjá Manchester City. (Times)
Liverpool er tilbúið að bjóða skoska vængmanninn Ben Doak (19) sem hluta af samningi til að tryggja sér enska varnarmanninn Marc Guehi (24) frá Crystal Palace. (Sun)
Sænski framherjinn Viktor Gyökeres (27) hefur tilkynnt Sporting Lissabon að hann vilji ekki snúa aftur og stefni á félagaskipti í sumar. (Record)
Manchester United hefur áfram áhuga á Moise Kean (25), framherja Fiorentinu, en 52 milljóna evra (44 milljóna punda) riftunarákvæði Ítalans rennur út 15. júlí. (Corriere dello Sport)
Thomas Partey (32) mun yfirgefa Arsenal þegar samningur hans rennur út á mánudag, eftir að viðræður um nýjan samning runnu út í sandinn. (Athletic)
Sunderland hefur boðið Reinildo Mandava (31), vinstri bakverði frá Mósambík, tveggja ára samning að andvirði 65 þúsund punda á viku eftir að hann yfirgaf Atletico Madrid. (Guardian)
Nottingham Forest er nálægt því að ganga frá kaupum á brasilíska framherjanum Igor Jesus (24) frá Botafogo fyrir 10 milljónir punda. (Telegraph)
Manchester United er tilbúið að samþykkja lægri sölu á Tyrell Malacia sem PSV Eindhoven ákvað að kaupa ekki alfarið eftir að lánssamningur leikmannsins rann út. Hollendingurinn er 25 ára gamall. (Mirror)
Sunderland er meðal nokkurra úrvalsdeildarfélaga sem hafa áhuga á enska U21-miðverðinum Charlie Cresswell (22) hjá Toulouse, en riftunarákvæði hans er sagt nema 18 milljónum punda. (Sun)
Katar hefur átt í viðræðum við FIFA um möguleikann á að halda heimsmeistarakeppni félagsliða árið 2029, sem myndi þurfa að fara fram að vetrarlagi. (Guardian)
Athugasemdir