Breiðablik
3
1
Stjarnan
Sveindís Jane Jónsdóttir '16 1-0
1-1 Aníta Ýr Þorvaldsdóttir '40
Sveindís Jane Jónsdóttir '64 2-1
Rakel Hönnudóttir '84 3-1
09.09.2020  -  19:15
Kópavogsvöllur
Pepsi-Max deild kvenna
Aðstæður: Skítaveður, rigning og rok
Dómari: Bríet Bragadóttir
Áhorfendur: 224
Maður leiksins: Sveindís Jane Jónsdóttir
Byrjunarlið:
Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir
Sonný Lára Þráinsdóttir
5. Hafrún Rakel Halldórsdóttir
7. Agla María Albertsdóttir (f)
8. Heiðdís Lillýardóttir
9. Karólína Lea Vilhjálmsdóttir ('91)
16. Alexandra Jóhannsdóttir
17. Sveindís Jane Jónsdóttir
18. Kristín Dís Árnadóttir
22. Rakel Hönnudóttir ('85)
24. Hildur Þóra Hákonardóttir

Varamenn:
26. Íris Dögg Gunnarsdóttir (m)
4. Bergþóra Sól Ásmundsdóttir ('85)
15. Vigdís Lilja Kristjánsdóttir
19. Esther Rós Arnarsdóttir
20. Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir
21. Hildur Antonsdóttir
23. Vigdís Edda Friðriksdóttir ('91)
27. Selma Sól Magnúsdóttir

Liðsstjórn:
Ólafur Pétursson (Þ)
Þorsteinn H Halldórsson (Þ)
Ragna Björg Einarsdóttir
Jóhanna Kristbjörg Einarsdóttir
Særún Jónsdóttir
Aron Már Björnsson

Gul spjöld:
Kristín Dís Árnadóttir ('55)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Þessu er þá lokið hér í kvöld með 3-1 sigri Blika.
Viðtöl og skýrsla koma inn við fyrsta tækifæri
93. mín
Hornspyrna 16 hjá Blikum (á meðan hefur stjarnan ekki fengið eina einustu)
91. mín
Inn:Vigdís Edda Friðriksdóttir (Breiðablik) Út:Karólína Lea Vilhjálmsdóttir (Breiðablik)
90. mín
Smá tæknileg vandræði hjá mér, en bæði Sveindís og Agla eru búnar að eiga skot rétt yfir markið
86. mín
Og hér er hornspyrna 15
85. mín
Blikar fá hér hornspyrnu númer sirka 14. Stjarnan hreinsar strax í horn
85. mín
Inn:Bergþóra Sól Ásmundsdóttir (Breiðablik) Út:Rakel Hönnudóttir (Breiðablik)
84. mín
Inn:Katrín Mist Kristinsdóttir (Stjarnan) Út:Arna Dís Arnþórsdóttir (Stjarnan)
84. mín MARK!
Rakel Hönnudóttir (Breiðablik)
Stoðsending: Sveindís Jane Jónsdóttir
ÞRIÐJA MARKIÐ KOMIÐ Í HÚS HJÁ BLIKUM.
Sveindís prjónar sig í gegnum vörn Stjörnunnar og þegar hún er komin upp að endalínu sendir hún boltann á Rakel sem stendur svona meter frá og potar honum yfir línuna.
78. mín
SVEINDÍS MEÐ SKALLA Í SLÁ.
Agla tekur hornspyrnuna og Sveindís bíður á fjær og skallar boltann en eins og áður sagði fer boltinn í slána og gestirnir koma boltanum í burtu
77. mín
Og blikar fá aftur horn
75. mín
Inn:Elín Helga Ingadóttir (Stjarnan) Út:Katrín Ósk Sveinbjörnsdóttir (Stjarnan)
Þreföld skipting hjá Stjörnunni
75. mín
Inn:Snædís María Jörundsdóttir (Stjarnan) Út:Angela Pia Caloia (Stjarnan)
75. mín
Inn:Anna María Baldursdóttir (Stjarnan) Út:Sædís Rún Heiðarsdóttir (Stjarnan)
Anna María að koma inn í fyrsta skipti í sumar. Gaman að sjá hana aftur á vellinum
72. mín
Og hvað haldið þið? Enn eitt hornið sem Blikar fá
71. mín
Og enn eitt hornið sem Blikar fá, líklega níunda spyrnan í seinni. Stjarnan hreinsar
67. mín
Blikar fá hér enn eitt hornið. Kemur ekkert úr henni
64. mín
Inn:Hildigunnur Ýr Benediktsdóttir (Stjarnan) Út:Aníta Ýr Þorvaldsdóttir (Stjarnan)
Aníta búin að vera langbest í Stjörnuliðinu í kvöld. Skil ekki alveg afhverju hún er að fara út
64. mín MARK!
Sveindís Jane Jónsdóttir (Breiðablik)
Það hlaut bara að koma að því!
Agla tekur spyrnuna, mér sýndist svo Shameeka reyna að hreinsa en flikkar boltanum áfram á Sveindísi sem bíður á fjær og klárar framhjá Erin í markinu
63. mín
Enn eitt hornið sem Blikar fá
63. mín
Nú er það Sveindís sem reynri skot en það er auðvelt fyrir Erin í markinu
61. mín
Rakel reynir hér skot en það er framhjá markinu
58. mín
ANNAÐ DAUÐAFÆRI HJÁ BLIKUM
Kemur eftir hornspyrnu sem Agla tekur. Alexandra skallar að markinu og Sveindís sem stendur rétt fyrir framan marklínu setur boltann yfir á ótrúlegan hátt.
Blikar sækja mjög stíft þessa stundina
56. mín
DAUÐAFÆRI HJÁ BLIX
Karólína keyrir upp hægri kantinn og kemur með frábæran bolta fyrir á Sveindísi sem rennir sér en rétt missir af boltanum sem fer rétt framhjá markinu. Þarna munaði litlu
55. mín Gult spjald: Kristín Dís Árnadóttir (Breiðablik)
Kastar boltanum frá sér þegar hún færi ekki innkastið sem hún hélt að blikar ættu
54. mín
Blikar koma mjög beittar í þennan seinni hálfleik
52. mín
Blikar sækja aðra hornspyrnu. Karólína tekur og kemur boltanum á Alexöndru sem beygir sig niður og skallar en boltinn fer framhjá markinu.
51. mín
Enn sækja Blikar. Í þetta skiptið tekur Rakel við boltanum og skýtur rétt framhjá markinu. Bríet dæmdi þó hendi á hana svo þetta hefði ekki talið
49. mín
Aftur fá blikar horn. Karólína tekur en Stjarnan hreinsar strax.
47. mín
Blikar vinna hér hornspyrnu. Agla tekur spyrnuna beint á Rakel sem stendur í miðjum teignum en skotið er beint á Erin í markinu
46. mín
Blikar byrja þetta sterkt. Alexandra fær boltann rétt fyrir utan teig og tekur skotið en það er rétt framhjá markinu
46. mín
Leikur hafinn
45. mín
Hálfleikur
Bríet flautar hér til hálfleiks.
Blikar virðast ekki alveg rétt stilltar í fyrri hálfleiknum og Stjarnan verið virkilega flottar og þéttar fyrir. Spennandi að sjá hvað seinni hálfleikurinn færir okkur
41. mín
Þá fara blikar í færi. Sveindís tekur langt innkast, Karólína flikkar boltanum lengra inn í teiginn og Agla skallar framhjá markinu. Hefði verið sterkt að svara markinu strax
40. mín MARK!
Aníta Ýr Þorvaldsdóttir (Stjarnan)
STJÖRNUSTELPUR BÚNAR AÐ JAFNA LEIKINN!!
Rakel Hönnu stingur bara boltanum á Anítu sem klára snyrtilega framhjá Sonný í vinstra hornið.
Þetta skrifast alfarið á Rakel. Hræðileg sending til baka
36. mín
Gestirnir aðeins að sækja þessa stundina og eru að spila vel saman, vantar þó að ógna markinu
33. mín
ANÍTA ÝR MEÐ SKOT Í STÖNG!
Hún bara sólar vörn blika upp úr skónum, keyrir frá vinstri kanti og inn í teig og tekur skotið en það fer í stöngina og Hafrún hreinsar. Á meðan sneri Sonný sér í hring að leita að boltanum.
27. mín
Agla reynir hér skot, rétt fyrir utan teig hægra megin en það er bæði framhjá og yfir markið
27. mín
Blikar aftur í fínu færi. Rakel keyrir upp og gefur út til Alexöndru á hægri kantinum sem kemur með flottan bolta fyrir en Katrín Ósk nær að koma tánum í boltann og hreinsar.
21. mín
Fínasta færi hjá Blikum.
Sveindís fer upp vinstri kantinn og sendir boltann út á Andreu sem stendur rétt fyrir utan teig. Andrea tekur fast skot en boltinn fer beint á Erin í markinu.
16. mín MARK!
Sveindís Jane Jónsdóttir (Breiðablik)
Stoðsending: Agla María Albertsdóttir
SVEINDÍS ER BÚIN AÐ KOMA BLIKUM YFIR!
Karólína tekur hornið stutt á Öglu sem kemur með bolta fyrir beint á Sveindísi sem hoppar hæst og skallar knettinum inn.
15. mín
Hörkuhörku skot frá Karólínu rétt fyrir utan teig en Elín ver og blikar fá horn. Spurning hvort þessi bolti hafi verið inni?
9. mín
SVEINDÍS!
Hún fær boltann rétt fyrir utan teig og reynir skot en það fer rétt yfir. Þetta var algjör þruma
6. mín
Karólína fer hér upp hægri kantinn og reynir skot, en það er varið.
3. mín
Fyrsta horn leiksins fá Blikar. Það kemur ekkert úr því, Stjarnan hreinsar í burtu
1. mín
Leikur hafinn
Þá er leikurinn hafinn. Stjarnan byrjar með boltann og sækja í átt að Fífunni.
Fyrir leik
Korter í leik og byrjunarliðin eru að sjálfsögðu komin inn.
Engar breytingar eru á liðunum frá síðasta leik enda unnu bæði lið síðustu leiki sína í deildinni.
Fyrir leik
Gengi Stjörnunnar hefur verið upp og ofan í sumar og eru þær nú í 6. sæti með 14 stig.
Stjarnan hefur unnið síðustu tvo leiki sína í deildinni, gegn ÍBV og Selfossi.
Fyrir leik
Breiðablik er í 2. sæti deildarinnar með 30 stig, einu stigi á eftir toppliði Vals en Blikar þó einn leik til góða.
Blikaliðið hefur verið afar sannfærandi í sumar og unnið alla leiki sína nema einn, það var 1-2 tap gegn Selfyssingum 24. ágúst.
Fyrir leik
Góða kvöldið og verið hjartanlega velkomin í þessa beinu textalýsingu þar sem Breiðablik tekur á móti Stjörnunni í Pepsi-Max deild kvenna.

Leikurinn fer fram á Kópavogsvelli og hefst á slaginu 19:15.
Byrjunarlið:
83. Erin Katrina Mcleod (m)
3. Arna Dís Arnþórsdóttir ('84)
4. Katrín Ósk Sveinbjörnsdóttir ('75)
7. Aníta Ýr Þorvaldsdóttir ('64)
7. Shameeka Nikoda Fishley
8. Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir
11. Betsy Doon Hassett
16. Sædís Rún Heiðarsdóttir ('75)
18. Jasmín Erla Ingadóttir
19. Angela Pia Caloia ('75)
24. Málfríður Erna Sigurðardóttir

Varamenn:
12. Birta Guðlaugsdóttir (m)
10. Anna María Baldursdóttir ('75)
14. Snædís María Jörundsdóttir ('75)
15. Katrín Mist Kristinsdóttir ('84)
19. Elín Helga Ingadóttir ('75)
23. Gyða Kristín Gunnarsdóttir
31. Hildigunnur Ýr Benediktsdóttir ('64)

Liðsstjórn:
Kristján Guðmundsson (Þ)
Þórdís Ólafsdóttir
Andri Freyr Hafsteinsson
Óskar Smári Haraldsson
Rajko Stanisic
Elfa Björk Erlingsdóttir
Guðrún Halla Finnsdóttir

Gul spjöld:

Rauð spjöld: