Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Í BEINNI
Besta-deild karla
Stjarnan
17' 0
0
Valur
Kórdrengir
1
3
Selfoss
0-1 Kenan Turudija '4
0-2 Hrvoje Tokic '32
Davíð Þór Ásbjörnsson '75 1-2
Arnleifur Hjörleifsson '85
1-3 Hrvoje Tokic '88
14.05.2021  -  19:15
Domusnovavöllurinn
Lengjudeild karla
Dómari: Kristinn Friðrik Hrafnsson
Maður leiksins: Þormar Elvarsson
Byrjunarlið:
12. Sindri Snær Vilhjálmsson (m)
Albert Brynjar Ingason ('64)
5. Loic Mbang Ondo (f)
6. Hákon Ingi Einarsson
8. Davíð Þór Ásbjörnsson
9. Daníel Gylfason ('55)
15. Arnleifur Hjörleifsson
17. Gunnlaugur Fannar Guðmundsson
19. Connor Mark Simpson
20. Conner Rennison ('45)
22. Nathan Dale

Varamenn:
2. Endrit Ibishi
3. Egill Darri Makan Þorvaldsson ('64)
3. Goran Jovanovski
4. Ásgeir Frank Ásgeirsson ('55)
11. Gunnar Orri Guðmundsson
23. Róbert Vattnes Mbah Nto
33. Magnús Andri Ólafsson

Liðsstjórn:
Logi Már Hermannsson
Leonard Sigurðsson
Davíð Örn Aðalsteinsson
Heiðar Helguson

Gul spjöld:
Davíð Þór Ásbjörnsson ('35)
Daníel Gylfason ('49)
Egill Darri Makan Þorvaldsson ('76)
Arnleifur Hjörleifsson ('85)

Rauð spjöld:
Arnleifur Hjörleifsson ('85)
Leik lokið!
Flottur sigur hjá Selfyssingum. Sannfærandi og þeir geta ekki verið annað en sáttir með þetta.

Takk fyrir að fylgjast með!
93. mín
Gary með skot rétt yfir. Hann hefði getað gert út um leikinn þarna.
92. mín
Selfoss verst mjög vel og lýtur allt út fyrir að þeir ætla að klára þennan leik.
88. mín MARK!
Hrvoje Tokic (Selfoss)
Stoðsending: Kenan Turudija
FRÁBÆRT MARK!

Aron fær boltann fyrir hjá miðjunni og setur flotta stungu á Kenan sem kemur með frábæran bolta á Hrvoje Tokic sem hreinlega kann ekki að klúðra úr svona færi.

1-3!
85. mín
Inn:Jón Vignir Pétursson (Selfoss) Út:Valdimar Jóhannsson (Selfoss)
85. mín Rautt spjald: Arnleifur Hjörleifsson (Kórdrengir)
Rosalega heimskulegt hjá Arnleifi sem brýtur á Adam og uppsker gult spjald, hleypur síðan í burtu og ýtir Þormari af nákvæmlega engri ástæðu og fær þar með sitt annað gula spjald og því rautt.
85. mín Gult spjald: Arnleifur Hjörleifsson (Kórdrengir)
83. mín
Skyndisókn hjá Selfoss.

Gary á gott hlaup með boltann og Tokic með honum og þeir einir á móti Hákoni sem verst vel.
83. mín
Kórdrengir fá aðra hornspyrnu.

Skopp í teignum og boltinn út á Ásgeir sem krossar í slánna og út.
81. mín Gult spjald: Adam Örn Sveinbjörnsson (Selfoss)
77. mín
Inn:Þór Llorens Þórðarson (Selfoss) Út:Þorsteinn Daníel Þorsteinsson (Selfoss)
Þorsteinn hefur fengið eitthvað högg á rifbeinið og getur ekki haldið leik áfram. Kenan tekur við bandinu.
76. mín Gult spjald: Egill Darri Makan Þorvaldsson (Kórdrengir)
Ljótt brot hjá Agli á Aron
75. mín MARK!
Davíð Þór Ásbjörnsson (Kórdrengir)
DAVÍÐ ÞÓR!!!

Kórdrengir með flott spil og Davíð á endanum setur fast skot niðri í nær.

1-2! Þetta er ekki búið
73. mín
Hornspyrna fyrir heimamenn.
72. mín
Hákon aftur með fínan bolta inní og Leonard sentimetrum frá því að setja fótinn í þetta og stýra boltanum í nærstöngina framhjá Stefáni.
69. mín
Egill Darri setur hann í Þormar eftir flottan kross frá Hákoni. Kórdrengir að ógna mikið meira þessa stundina.
67. mín
Gary leysir Tokic og sendir flottan bolta í gegn. Hann er dæmdur rangur en þetta gæti ekki verið tæpara.
64. mín
Inn:Egill Darri Makan Þorvaldsson (Kórdrengir) Út:Albert Brynjar Ingason (Kórdrengir)
Albert hefur greinilega meiðst illa og kemur hér útaf.
64. mín
Tæpt!

Skot Arnleifs sleikir utanverða stöngina.
63. mín
Kórdrengir að fá aukaspyrnu á besta stað. Aron brýtur rétt fyrir utan D boga.
62. mín
Þormar hreinsar í hornspyrnu. Kórdrengir verða að nýta þessi tækifæri.

Þormar skallar burt og endar í horspyrnu á hinni hliðinni.
61. mín
Hákon Ingi með innísendingu fyrir Kórdrengi en Adam skallar frá. Vörn Selfoss ekki gert feilspor í þessum leik ennþá.
59. mín
Albert Brynjar leggst í jörðina í miðju hlaupi. Verður dýrkeypt að missa hann af velli.
55. mín
Inn:Ásgeir Frank Ásgeirsson (Kórdrengir) Út:Daníel Gylfason (Kórdrengir)
Daníel á gulu og var líklegur að næla sér í rautt.
54. mín
Sindri Snær mjög haltur í marki Kórdrengja. Spurning hvort hann eigi mikið meira eftir.
52. mín
Aron vinnur hornspyrnu frábærlega fyrir Selfoss. Virkilega öflugur þessi strákur.

Spyrnar skoppar úr teignum og endar hjá Þormari sem setur flottan bolta inní en beint á Sindra sem missir hann og Tokic setur boltann yfir autt markið.
50. mín
Hornspyrna fyrir Kórdrengi. Mikilvæg fyrir þá.

Þeir fá aðra hornspyrnu en ekkert verður úr því.
49. mín Gult spjald: Daníel Gylfason (Kórdrengir)
Brýtur á Kenan sem er ekki sáttur með þessa tæklingu frá Daníel.
45. mín
Leikur hafinn
Leikurinn hafinn á ný
45. mín
Inn:Leonard Sigurðsson (Kórdrengir) Út:Conner Rennison (Kórdrengir)
Conner ekki búinn að eiga góðan leik og Kórdrengir þurfa meiri ógn. Skiljanleg skipting hjá Heiðari.
45. mín
Hálfleikur
Kristinn ekki með mikinn uppbótartíma og flautar hér strax til hálfleiks. Heiðar mun vilja fá sína menn í allt annan gír hér í síðari hálfleik.
44. mín
Gunnlaugur brýtur óþarfslega á Gary fyrir utan teig og annað færi fyrir Selfoss að skora.

Þetta endar í engu.
38. mín
Þormar og Aron búnir að vera frábærir saman á hægri hlið Selfyssinga hingað til
35. mín Gult spjald: Davíð Þór Ásbjörnsson (Kórdrengir)
Mjög klaufalegt gult spjald hjá Davíð sem ákveður að negla Gary niður inná vallarhelmingi Selfyssinga. Kórdrengir farnir að pirrast.
32. mín MARK!
Hrvoje Tokic (Selfoss)
Stoðsending: Þormar Elvarsson
TOKIC!!!

Þormar með frábæran bolta beint á pönnuna á Hrvoje Tokic sem skallar hann í fjærhornið og Sindri á engan séns.

0-2!
30. mín
Aron vinnur aukaspyrnu vinstra megin við teig Kórdrengja.

Þorsteinn tekur spyrnuna og hún skoppar af mönnum í teignum en hann endar hjá Valdimar sem setur hann yfir.
26. mín
Daníel Gylfason á tilraun langt utan af velli og boltin rétt yfir. Sjálfstraustið aðeins að byrja að sjást í Kórdrengjum.
25. mín
Aukaspyrna fyrir Kórdrengi í skotfæri. Emir brýtur á Albert rétt fyrir utan teig.

Conner setur boltann lausan beint á Stefán í markinu.
23. mín
Selfyssingar rangstæðir enn og aftur, í þetta skiptið er það Valdimar.
21. mín
Góður kross frá vinstri hlið Kórdrengja að Conner en hann lendir í samstuði við Stefán Þór og aukaspyrna í markteig Selfoss.
19. mín
Danijel brýtur á Daníel. Aukaspyrna fyrir Kórdrengi á góðum stað.

Hár bolti inní frá Arnleifi en boltinn af leikmanni Kórdrengja og aftur fyrir. Besta færi Kórdrengja hingað til.
17. mín
Þormar reynir háan bolta í gegn á Tokic en hann því miður ekki alveg nógu snöggur.
15. mín
Selfoss með flott spil og endar með hornspyrnu.

Hornspyrnan tekin stutt og fer niður á Adam Örn í vörninni sem kemur með draumabolta yfir vörnina á Gary Martin sem er rangstæður.
14. mín
Gary með flottan bolta inná teig beint á ennið á Tokic en skalli hans framhjá.
14. mín
Selfyssingar eiga aukaspyrnu hérna á besta stað. Danijel liggur eftir en sýnist það vera í lagi með hann. Gary tekur.
12. mín
Connor Simpson með skot hátt yfir fyrir utan teig.
10. mín
Kórdrengir meira með boltann þessar fyrstu mínútur. Nathan með háan bolta á Conner sem skallar niður á Albert sem brýtur af sér.
4. mín MARK!
Kenan Turudija (Selfoss)
Stoðsending: Þormar Elvarsson
ÞETTA VAR EKKI LENGI GERT!!!

Selfyssingar skora eftir flotta innisendingu frá Þormari. Hákon Ingi chestar boltann niður og Kenan stendur þar og setur hann á Sindra í markinu en boltinn lekur í hægra hornið.

Flott byrjun hjá Selfoss, 0-1.
1. mín
Leikur hafinn
Leikurinn er hafinn!
Fyrir leik
Liðin ganga hér inná völlinn í fylgd dómara. Þorsteinn Daníel fyrirliði Selfoss vinnur uppkastið og ákveður að skipta um vallarhelming og að heimamenn byrji því með boltann.
Fyrir leik
Leikurinn er einnig sýndur á streymi inná Lengjudeildin.is á aðeins 1000kr
Fyrir leik
Selfyssingar ganga aftur til klefa og Kórdrengir fylgja stuttu eftir.

Þetta er að bresta á.
Fyrir leik
Kórdrengir henda í gamla góða tvær raðir í upphitun. Heiðar Helgu ekkert að flækja hlutina hérna fyrir leik.
Fyrir leik
Liðin er komin út á völl að hita.
Fyrir leik
Byrjunarlið eru komin inn.

Kórdrengir gera eina breytingu á liði sínu frá leiknum gegn Aftureldingu. Út dettur Ásgeir Frank Ásgeirsson og inn kemur hann Nathan Dale. Enginn af þrem nýju leikmönnum Kórdrengja er í hóp í dag.

Selfyssingar gera einnig bara eina breytingu á sínu liði. Arnar Logi Sveinsson fór snemma af velli í seinasta leik vegna meiðsla og er því ekki með í dag en inn fyrir hann kemur Valdimar Jóhannsson.
Fyrir leik
Kórdrengir hafa nælt sér í þrjá leikmenn í vikunni, þá Djordje Panic, Fatai Adebowale Gbadamosi og í dag nældu þeir sér í markmann frá Burnley, dani að nafni Lukas Jensen. Spennandi verður að sjá hvort þeir allir spila hér í kvöld.


Fyrir leik
Kristinn Friðrik Hrafnsson er dómari leiksins í kvöld.

Með honum verða Óli Njáll Ingólfsson og Steinar Gauti Þórarinsson. Eftirlitsmaður verður Jón Sigurðsson og eins gott að dómararnir standa sig hér í kvöld.
Fyrir leik
Kórdrengir byrjuðu deildina á 1-1 jafntefli gegn Aftureldingu og fengu þeir 2 rauð spjöld í þeim leik og verða því þjálfarinn Davíð Smári Lamude og varamaðurinn Þórir Rafn Þórisson í banni í kvöld.

Selfyssingar byrjuðu á 0-3 tapi á heimavelli gegn Vestri og munu þeir vilja svara fyrir það hér í kvöld.
Fyrir leik
Nýliðarnir mættust í bikarnum fyrr á tímabilinu og unnu Kórdrengir þann leik 1-0 í æsispennandi leik. Þar skoraði Emir Dokara sjálfsmark.
Fyrir leik
Komiði sæl og blessuð gott fólk og velkomin í beina textalýsingu á nýliðaslag Kórdrengja og Selfoss í Lengjudeild karla!
Byrjunarlið:
1. Stefán Þór Ágústsson (m)
Þorsteinn Daníel Þorsteinsson ('77)
3. Þormar Elvarsson
6. Danijel Majkic
9. Hrvoje Tokic
10. Gary Martin
13. Emir Dokara
17. Valdimar Jóhannsson ('85)
21. Aron Einarsson
22. Adam Örn Sveinbjörnsson
24. Kenan Turudija

Varamenn:
3. Reynir Freyr Sveinsson
4. Jökull Hermannsson
5. Jón Vignir Pétursson ('85)
7. Aron Darri Auðunsson
23. Þór Llorens Þórðarson ('77)

Liðsstjórn:
Dean Martin (Þ)
Arnar Helgi Magnússon
Óskar Valberg Arilíusson
Gunnar Geir Gunnlaugsson
Atli Rafn Guðbjartsson
Guðjón Björgvin Þorvarðarson
Einar Már Óskarsson
Oliver Helgi Gíslason

Gul spjöld:
Adam Örn Sveinbjörnsson ('81)

Rauð spjöld: