0
Stadion Miejski
Vináttulandsleikur
Aðstæður: Völlurinn frábær, 26 stiga hiti
Dómari: Balazs Berke (Ung)
fyrirgjöf sem ratar á Swiderski í teignum. Hann nær að taka boltann niður og klárar afskaplega vel. Setur boltann milli fóta Hjartar og í fjærhornið.
Pólsku sjónvarpsmennirnir sýna okkur á meðan myndskeið af pirringnum sem er í gangi milli pólsku leikmennina. Er ekki að fara vel í þá að vera undir hérna!
Brynjar Ingi Bjarnason negldi boltanum ànetið og staðan orðin 2-1 fyrir ÃÂsland! #fotbolti pic.twitter.com/GLkq9tF6px
— RÚV ÃÂþróttir (@ruvithrottir) June 8, 2021
Brynjar Ingi er svo sannarlega að sýna það að það á ALDREI að tala niður leiki hjá A-landsliðinu sama hvað það vanti marga.
— Andri Már (@nablinn) June 8, 2021
Er Brynjar Ingi Bjarnason nokkuð að klára mikið fleiri leiki með KA. Með allri virðingu fyrir þvà ágæta norðlenska liði þá verður hann á miklu, miklu stærra sviði en þegar Greifavöllurinn er kominn à stand. Sá er að grÃpa tækifærið! #fyririsland
— Magnús Þór Jónsson (@maggimark) June 8, 2021
Brynjar lært ýmislegt af þvà að stúdera Lewa à aðdraganda leiks. Móttakan einkar hugguleg og markið à sama stÃl.
— Kristinn Teitsson (@kristinnpall) June 8, 2021
Stoðsending: Guðmundur Þórarinsson
Eftir aukaspyrnu fær Gummi Tóta boltann vinstra megin og á fyrirgjöf, Brynjar nær að leggja boltann fyrir sig og skorar þetta líka markið.
Eftir myndbandsdómgæslu var mark @snjallbert staðfest. Pólverjar voru hins vegar ekki lengi að jafna og staðan nú 1-1. #fotbolti pic.twitter.com/bvBw2bPJiN
— RÚV Ãþróttir (@ruvithrottir) June 8, 2021
Sennilega misstum við af memoinu að um æfingaleik væri að ræða! 😄
— Magnús Þór Jónsson (@maggimark) June 8, 2021
Atli Eðvalds gegn Frakklandi og Albert Guðmunds Jr. gegn Póllandi. Hafa fleiri skorað með hælnum fyrir karlalandsliðið à knattspyrnu?
— Kolbeinn Tumi (@kolbeinntumi) June 8, 2021
Takk VAR
— Guðlaugur Valgeirsson (@GulliValgeirs) June 8, 2021
Stoðsending: Aron Einar Gunnarsson
Það er VAR í þessum leik og eftir að atvikið var skoðað með myndbandstækninni var mark dæmt. Ég hafði ekki hugmynd um að það væri VAR í þessum leik, það er eins og dómararnir sjálfir hafi líka gleymt því, en við fögnum því að svo sé!
Aron Einar fær stoðsendinguna. Það var hann sem kom boltanum á Albert. Svo kláraði Albert færið frábærlega og laumaði boltanum skemmtilega í markið með hælnum!
Eftir hornspyrnuna er boltanum laumað á Albert sem kemur knettinum í netið af stuttu færi. Flaggið fór á loft en endursýningar sýna að þessi dómur var hreinlega rangur.
Fyrsta marktilraun Íslands! Aron Einar Gunnarsson vinnur boltann og kemur honum á Birki sem er í teignum og tekur skotið, í hliðarnetið.
Marktilraunir: Pólland 2-0 Ísland
Choose your fighter pic.twitter.com/umwpwY3sCh
— Lucas Arnold (@FotboltiLucas) June 8, 2021
Portúgalinn Paulo Sousa heldur um stjórnartaumana hjá pólska liðinu. Var verulega frambærilegur leikmaður á sínum tíma og lék yfir 50 landsleiki fyrir Portúgal ásamt því að vinna Meistaradeildina bæði með Juventus og Dortmund. Sousa tók við pólska liðinu í byrjun þessa árs.
Fótbolti.net birti líklegt byrjunarlið í gær en frá því liði voru Ísak Bergmann og Jón Dagur inni, þeir byrja hinsvegar á bekknum. Andri Fannar Baldursson og Jón Daði Böðvarsson byrja leikinn gegn Pólverjum.
Áhorfendur á vellinum
Ísland og Pólland hafa mæst sex sinnum í A landsliðum karla. Fimm sinnum hafa Pólverjar fagnað sigri, en einu sinni var niðurstaðan jafntefli og var það í vináttuleik á Laugardalsvelli árið 2001. Andri Sigþórsson skoraði mark íslenska liðsins seint í leiknum. Arnar Þór Viðarsson sem er nú við stjórnvölinn hjá íslenska landsliðinu spilaði þann leik.
Sem fyrr segir mætast liðin nú í Poznan, á heimavelli Lech Poznan, sem tekur tæplega 42 þúsund áhorfendur í sæti, en leyfilegur hámarksfjöldi að þessu sinni er helmingur af sætafjöldanum. Leikvangurinn var vígður árið 1980 og endurbættur árið 2010. Leikurinn er síðasti leikur pólska liðsins áður en það hefur þátttöku í lokakeppni EM og er búist við mikilli stemmningu á leikvanginum, sem hefur einnig hýst risatónleika listamanna á borð við Sting, Aliciu Keys og hina síungu rokkara í Iron Maiden.
"Við ætlum ekki að koma à þennan leik sem æfingafélagar". Eiður Smári Guðjohnsen aðstoðarþjálfari A landsliðs karla à viðtali fyrir vináttuleikinn við Pólland. Leikurinn hefst kl. 16:00 að Ãslenskum tÃma og er à beinni á RÚV. pic.twitter.com/yFwHIcboFb
— Knattspyrnusambandið (@footballiceland) June 8, 2021
Samkvæmt pólskum fjölmiðlamönnum má búast við því að Pólland tefli fram sínu sterkasta en liðið er að búa sig undir EM alls staðar þar sem liðið er í E-riðli með Spáni, Svíþjóð og Slóvakíu.
Fróðlegt verður að sjá hvernig okkar mönnum gengur að verjast Robert Lewandowski, einum besta sóknarmanni heims, sem hefur raðað inn mörkum fyrir Bayern München og Pólland undanfarin ár.
Hér að neðan má sjá líklegt byrjunarlið Íslands en frá sigrinum gegn Færeyjum er Kolbeinn Sigþórsson búinn að yfirgefa hópinn. Líklegt er að Albert Guðmundsson komi inn í byrjunarliðið í hans stað og þá giskum við á að Mikael Anderson byrji eftir sigurmarkið í Þórshöfn.
Guðmundur Þórarinsson gæti fengið tækifærið í vinstri bakverðinum og Brynjar Ingi Bjarnason, leikmaður KA, byrjar væntanlega sinn þriðja A-landsleik í röð.
Dómari leiksins er frá Ungverjalandi og heitir Balazs Berke.
Þetta er þriðji og síðasti landsleikur Íslands í þessum glugga. Fyrst kom naumt tap gegn Mexíkó, svo ansi tæpur sigur gegn Færeyjum.
"Ég er rosalega ánægður með ferðina hingað til. Ég er mjög ánægður með þá ákvörðun að fara út í þetta Dallas ævintýri. Það gaf okkur mjög mikið. Við erum á degi tíu og við erum búnir að geta farið í gegnum sóknar- og varnartaktík ansi oft. Við erum komnir á þann stað í ferðinni að við getum farið að einbeita okkur að einstaklingsbundnum samtölum. Við getum sýnt þeim einn á einn hvað mætti betur fara og hvar þeirra styrkleikar liggja. Þessi gluggi og þessir þrír leikir munu verða til þess að það munu leikmenn - sem eru núna með okkur - sem eru ekki bara byrjaðir að banka dyrnar, þeir eru búnir að opna hurðina. Það er þeirra að stíga inn," segir Arnar Þór Viðarsson landsliðsþjálfari.
Íslenski hópurinn:
Markmenn:
Elías Rafn Ólafsson - Fredericia
Rúnar Alex Rúnarsson - Arsenal
Ögmundur Kristinsson - Olympiacos
Varnarmenn:
Alfons Sampsted - Bodö Glimt
Brynjar Ingi Bjarnason - KA
Guðmundur Þórarinsson - New York City FC
Hjörtur Hermannsson - Bröndby IF
Ísak Óli Ólafsson - Keflavík
Kolbeinn Þórðarson - Lommel SK
Valgeir Lunddal Friðriksson - Häcken
Miðjumenn:
Andri Fannar Baldursson - Bologna
Aron Einar Gunnarsson - Al Arabi
Aron Elís Þrándarson - OB
Birkir Bjarnason - Brescia
Gísli Eyjólfsson - Breiðablik
Ísak Bergmann Jóhannesson - IFK Norrköping
Jón Dagur Þorsteinsson - AGF
Mikael Neville Anderson - FC Midtjylland
Stefán Teitur Þórðarson - Silkeborg IF
Sóknarmenn:
Albert Guðmundsson - AZ Alkmaar
Jón Daði Böðvarsson - Millwall
Sveinn Aron Guðjohnsen - OB