Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
Þróttur R.
3
0
Keflavík
Ólöf Sigríður Kristinsdóttir '1 1-0
Shea Moyer '47 2-0
Guðrún Gyða Haralz '88 3-0
27.07.2021  -  19:15
Eimskipsvöllurinn
Pepsi-Max deild kvenna
Aðstæður: Frábærar aðstæður, sunshine og nánast logn
Dómari: Ásmundur Þór Sveinsson
Maður leiksins: Ólöf Sigríður Kristinsdóttir (Þróttur Reykjavík)
Byrjunarlið:
1. Íris Dögg Gunnarsdóttir (m)
Sóley María Steinarsdóttir
Kate Cousins
5. Jelena Tinna Kujundzic
7. Andrea Rut Bjarnadóttir ('69)
8. Álfhildur Rósa Kjartansdóttir (f)
19. Elísabet Freyja Þorvaldsdóttir
21. Lorena Yvonne Baumann
21. Dani Rhodes ('80)
29. Ólöf Sigríður Kristinsdóttir ('88)
44. Shea Moyer ('80)

Varamenn:
2. Sigmundína Sara Þorgrímsdóttir
4. Hildur Egilsdóttir
11. Tinna Dögg Þórðardóttir
13. Linda Líf Boama ('69)
15. Ísabella Anna Húbertsdóttir ('80)
21. Lea Björt Kristjánsdóttir ('88)
25. Guðrún Gyða Haralz ('80)

Liðsstjórn:
Nik Chamberlain (Þ)
Þórkatla María Halldórsdóttir
Jamie Paul Brassington
Edda Garðarsdóttir
Henry Albert Szmydt

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Ásmundur Þór blæs í flautu sína og leiknum er lokið hér í Laugardalnum. Sanngjarn 3-0 sigur Þróttar staðreynd.

Takk fyrir mig í kvöld.
97. mín
Keflavík vinnur aukaspyrnu úti hægra megin.
96. mín
Keflavík vinnur hornspyrnu sem Chavarin tekur stutt og fær boltann aftur og á fyrirgjöf en Keflvíkingar flaggaðir fyrir innan.
96. mín
Ásmundur Þór er farinn að lýta á klukku sína.
91. mín
Linda keyrir upp vinstri vænginn og rennir honum fyrir markið á Leu sem lætur vaða en boltinn af varnarmanni og í hornspyrnu.

Katherine tekur spyrnuna en ekkert verður úr henni.
90. mín
Uppbótartíminn er að lágmarki sex mínútur.
89. mín
TINA MAROLT Í SÍNUM FYRSTA LEIK FYRIR KEFLAVÍK SETUR BOLTANN Í SLÁNNA.

Aerial Chavarin leggur boltann út á Marolt sem lætur vaða en boltinn í slánna.
88. mín
Inn:Lea Björt Kristjánsdóttir (Þróttur R.) Út:Ólöf Sigríður Kristinsdóttir (Þróttur R.)
88. mín MARK!
Guðrún Gyða Haralz (Þróttur R.)
GAME OVER HÉR Í LAUGARDALNUM!!

Guðrún Gyða fær boltann frá Álfhildi og snýr og lætur vaða og boltinn syngur í fjærhornið. Óverjandi fyrir Tiffany.
86. mín
Natasha Anasi fær boltann fyrir utan teig og snýr og reynir skot en boltinn yfir markið.
83. mín
Guðrún Gyða fær boltann og fer ílla með Evu Lind og kemst inn á teiginn og nær skoti en boltinn beint á Tiffany.

Aerial Chavarin hinumeginn fær boltann skyndilega inn á teig Þróttar og reynir skot en boltinn framhjá
81. mín
Lorena fær boltann vinstra meginn og neglir boltanum fyrir en enginn Þróttari nær til boltans og boltinn afturfyrir.
80. mín
Inn:Guðrún Gyða Haralz (Þróttur R.) Út:Shea Moyer (Þróttur R.)
80. mín
Inn:Ísabella Anna Húbertsdóttir (Þróttur R.) Út:Dani Rhodes (Þróttur R.)
79. mín
Sjúkrabíllinn er mættur hér á Eimskipvöllinn að sækja Ísabel, virðist eitthvað alvarlegt hafa komið fyrir hana og sendi ég henni batakveðjur.
77. mín
Dani Rhodes fær boltann við miðjuna og keyrir upp vænginn og inn á völlinn og reynir að finna Lindu í gegn en boltinn aðeins of fastur beint í hendur Tiffany.
76. mín
Inn:Jóhanna Lind Stefánsdóttir (Keflavík) Út:Amelía Rún Fjeldsted (Keflavík)
76. mín
Inn:Birgitta Hallgrímsdóttir (Keflavík) Út:Celine Rumpf (Keflavík)
74. mín
Linda Líf keyrir upp allan hægri vænginn og kemur sér inn á teiginn og reynir skot úr þröngu færi en Tiffany ver.
72. mín
Góð sókn hjá Keflvík!!

Dröfn Einars fær boltann og kemur honum upp á Chavrin sem kemur með boltann fyrir og boltinn hrekkur fyrir Evu Lind semm nær skoti en boltinn ratar ekki á markið.
71. mín
Þróttur vinnur hornspyrnu sem Katherine tekur og boltinn í gegnum allan pakkan og í innkast.
70. mín
Amelía brýtur á Lorenu og Þróttarar fá aukaspyrnu vinstra megin á vallarhelming Keflavíkur.

Lorena kemur boltanum fyrir en Tiffany kemur út á móti og grípur boltann.
69. mín
Inn:Linda Líf Boama (Þróttur R.) Út:Andrea Rut Bjarnadóttir (Þróttur R.)
68. mín
Keflavík lætur boltann ganga milli vinstri og hægri og endar með því að Elín Helena fær boltann út til hægri og kemur með boltann fyrir á Chavarin sem nær ekki að pota í boltann.
67. mín
Inn:Eva Lind Daníelsdóttir (Keflavík) Út:Marín Rún Guðmundsdóttir (Keflavík)
66. mín
Álfhildur með tæpa sendingu til baka á Sóleyju og Chavarin nálægt því að komast í boltann en Sóley hreinsar boltann upp.
61. mín
Ólöf kemur boltanum á Dani Rhodes sem tekur snúning fyrir utan teiginn og rennir boltanum á Andreu sem hittir boltann alls ekki.
60. mín
Shea Moyer skokkar hér inn á völlinn eftir samstuðið áðan. Líklega eitthvað blætt úr henni og þurfti hún að skipta um treyju.
57. mín
Þróttur vinnur hornspyrnu. Andrea tekur spyrnuna fyrir og eitthvað fíaskó inn á teig Keflvíkinga en Keflvíkingar koma boltanum í burtu.
55. mín
Inn:Tina Marolt (Keflavík) Út:Ísabel Jasmín Almarsdóttir (Keflavík)
Tina Marolt í sínum fyrsta leik fyrir Keflvíkinga.

Ísabel lenti í öðru samstuði og haltraði útaf og getur ekki klárað leik hér í kvöld
50. mín
Shea Moyer og Ísabel skalla saman og Shea liggur eftir og leikurinn verið stopp í 3 mínútur.

Leikurinn er farinn í gang aftur.
47. mín MARK!
Shea Moyer (Þróttur R.)
Stoðsending: Ólöf Sigríður Kristinsdóttir
SHEA MOYER AÐ TVÖFALDA FORSKOT ÞRÓTTARA!!!!

Ólöf Sigríður fær boltann við vítateigslínuna hægra megin og rennir boltanum út á Moyer sem lætur vaða og boltinn beint í fjærhornið. Tiffany Sornpao var í þessum bolta en missir boltann inn.

2-0!
46. mín
Síðari hálfleikurinn er farinn af stað.
45. mín
Hálfleikur
Ásmundur Þór flautar til hálfleiks. Þróttarar fara með verðskuldað 1-0 forskot inn í hálfleik.
44. mín
ÞARNA Á STAÐAN AÐ VERA ORÐIN 2-0!!!!!

Dani Rhodes fær boltann við vítateigslínuna og rennir honum í gegn á Elísabet Freyju sem sleppur alein á móti Tiffany en Elísabet skýtur beint á Tiffany.

Dauðafæriiii
40. mín
Ólöf Sigríður gerir frábærlega hér úti hægra megin og skiptir boltanum yfir á Andreu sem nær skoti/fyrirgjöf en boltinn framhjá markinu.
38. mín
Ólöf Sigríður fær boltann inn á teignum og nær skoti sem fer af varnarmanni og í hornspyrnu.
34. mín
Cousins finnur Dani Rhodes í gegn sem nær skoti á markið en Tiffany ver.
33. mín
Katherine Cousins fær boltann fyrir utan teig og nær skoti á markið en boltinn rétt yfir!
31. mín
Dani Rhodes við það að sleppa í gegn en Anasi setur boltann í horn.
24. mín
Keflavík vinnur hornspyrnu sem þær reyna taka stutt en það gékk alls ekki og Þróttarar stela boltanum og keyra upp í sókn en Keflavík vinnur boltann aftur.
21. mín
Keflavík fær aukaspyrnu við miðjuna og boltinn kemur fyrir og dettur fyrir Anasi og hún setur boltann í slánna en flaggið á loft.
19. mín
Dani Rhodes keyrir af stað í átt að marki Keflacvíkur og Natasha klippir hana niður en boltinn á milli og Ásmundur dæmir ekkert.
15. mín
Aerial Chavarin kemur sér inn á teiginn og reynir að leggja boltann fyrir en þar er enginn nema Þróttari sem kemur boltanum í burtu.
13. mín
DANIIIIII RHODES NÁLÆGT ÞVÍ ÞARNA!!

Danni Rhodes fær boltann inn á teig hægra meginn og ætlar að negla boltanum upp í skeytin en boltinn yfir markið.
8. mín
Dani Rhodes fær boltann inn á teiginn og reynir að setja hann á markið en boltinn framhjá.

Byrjar ágætilega hér í Laugardalnum.
5. mín
AERIAL CHAVARIN!!!!

Amelía Rún nær boltanum við teiginn hægramegin og kemur með fyrirgjöf beint á Aerial sem skallar boltann rétt framhjá.
1. mín MARK!
Ólöf Sigríður Kristinsdóttir (Þróttur R.)
Stoðsending: Dani Rhodes
ÞETTA TÓK EKKI LANGAN TÍMA!!!

Dani Rhodes fær boltann upp hægri kanntinn og rennir boltanum fyrir á Ólöfu sem fíflar varnarmann Keflavíkur áður en hún leggur boltann í netið.

1-0!
1. mín
Leikur hafinn
Ásmundur flautar og leikurinn er farinn af stað. Keflavíkur byrjar með boltann.
Fyrir leik
Liðin ganga á eftir dómaratríóinu inn á völlinn og vallarþulur Þróttarar býður áhorfendur velkomna á Eimskipsvöllin.
Fyrir leik
Skemmtilegt að segja frá því að Orri Rafn Sigurðarson lýsandi Viaplay en hann er búsettur erlendis og er mættur í stúkuna hér í Laugardalnum. Býð hann hjartanlega velkomin á klakan.


Fyrir leik
Liðin eru komin út á völl og eru byrjuð að hita upp. Vonandi fáum við markaleik!
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru klár og má sjá þau hér til hliðana.

Nik Anthony gerir þrjár breytingar á liðinu sínu frá tapinu gegn Val. Guðrún Gyða Haralz, Linda Líf Boama og Ísabella Anna byrja allar á bekknum í kvöld og inn í þeirra stað koma Ólöf Kristinsdóttir, Kathrine Amanda og Sóley María Steinarsdóttir. Gunnar Magnús Jónsson gerir engar breytingar frá tapinu gegn Stjörnunni.
Fyrir leik
Dómarinn!

Ásmundur Þór Sveinsson heldur utan um flautuna hér í kvöld og verður með þá Ágúst Hrafn Magnússon og Friðleif Kr Friðleifsson á línunum. Eftirlitsmaður KSÍ í kvöld er Sigursteinn Árni Brynjólfsson og varadómari í kvöld er Árni Snær Magnússon.


Fyrir leik
Síðasta umferð!

Þróttur Reykjavík fór á Hlíðarenda og mætti liðið Val og endaði leikurinn ílla fyrir Þrótt en leikurinn endaði með 6-1 sigri Vals.

Keflavík fékk Stjörnuna heim í síðustu umferð og endaði sá leikur með 1-2 sigri Stjörnunnar.
Fyrir leik
Staðan!

Heimastúlkur í Þrótti sitja fyrir leik kvöldsins í sjötta sæti deildarinnar og er liðið með fimmtán stig eftir 11.leiki spilaða.

Keflavík situr í fallsæti fyrir leikinn í kvöld en liðið er í 9.sæti deildarinnar með níu stig.
Fyrir leik
Góða kvöldið kæru lesendur og verið velkomin með okkur á Eimskipsvöllin. Hér í kvöld fer fram leikur Þróttar R og Keflavíkur í Pepsí Max-deild kvenna.

Flautað verður til leiks á slaginu 19:15.
Byrjunarlið:
1. Tiffany Sornpao (m)
Amelía Rún Fjeldsted ('76)
3. Natasha Anasi (f)
10. Dröfn Einarsdóttir
11. Kristrún Ýr Holm (f)
14. Celine Rumpf ('76)
16. Ísabel Jasmín Almarsdóttir ('55)
17. Elín Helena Karlsdóttir
25. Cassandra Rohan
30. Marín Rún Guðmundsdóttir ('67)
33. Aerial Chavarin

Varamenn:
13. Sigrún Björk Sigurðardóttir (m)
15. Arndís Snjólaug Ingvarsdóttir
20. Eva Lind Daníelsdóttir ('67)
21. Birgitta Hallgrímsdóttir ('76)
22. Jóhanna Lind Stefánsdóttir ('76)
24. Anita Lind Daníelsdóttir
34. Tina Marolt ('55)

Liðsstjórn:
Gunnar Magnús Jónsson (Þ)
Brynja Pálmadóttir
Ljiridona Osmani
Herdís Birta Sölvadóttir
Hjörtur Fjeldsted
Örn Sævar Júlíusson

Gul spjöld:

Rauð spjöld: