15.09.26 - 20:21
Hafþór Örn Laursen
Gaui Lýðs eftir vítakeppni: Búnir að berja helvíti oft á þessa blessuðu hurð
Auglýsing

Gaui Lýðs, þjálfari Hauka

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gaui Lýðs, þjálfari Hauka

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég er mjög stoltur af strákunum að hafa klárað þetta.'', sagði Guðjón Pétur Lýðsson, þjálfari Hauka, eftir að hafa fellt Kormák/Hvöt úr leik eftir vítaspyrnukeppni í undanúrslitum Gatorade-bikars Fótbolta.net.
Lestu um leikinn: Kormákur/Hvöt 4 - 5 Haukar
„Við vorum búnir að berja helvíti oft á þessa blessuðu hurð, en hún gaf sig ekkert fyrr en í vítaspyrnukeppninni.''
„Heilt yfir vorum við mjög öflugir. Áttum mikið af færum og mér finnst hálf ótrúlegt að við kláruðum þetta ekki í venjulegum leiktíma.''
Kormákur/Hvöt bjargaði tvisvar sinnum á línu í fyrri hálfleik.
„Við vorum kannski óheppnir að klára þau færi ekki en ég gef fullt kredit á Kormák/Hvöt. Þeir eru eitt af bestu liðunum í 2. deild, ég hef horft á nokkra leiki í sumar hjá þeim og þeir eru vel spilandi og ættu að hafa fleiri stig en raun ber vitni. En bikar er bikar og við þurftum að fara erfiðu leiðina, en sem betur fer datt þetta okkar megin''.
Ljóst er eftir þennan leik að Haukar mæta Selfossi í úrslitaleik Gatorade-bikarsins á Laugardalsvelli, en hann hefur verið færður til föstudags, klukkan 19:00.
Selfoss sigraði Álftanes örugglega, en sá leikur fór 5-0. Gaui, sem er Álftnesingur, var spurður hvort hann hefði frekar viljað Álftanes í úrslitaleikinn.
„Ég er mjög þakklátur að þurfa ekki að spila á móti Álftanesi. Manni þykir hreinlega of vænt um félagið, maður á bræður í kringum og í liðinu þannig það er ákveðinn léttir að þurfa ekki að spila á móti þeim þótt það hefði verið geggjaður leikur líka''.
„Selfoss hefur verið okkar helsti keppinautur í deildinni og við förum upp með þeim. Vonandi vinnum við þennan leik á föstudaginn,(þegar viðtalið er tekið var ekki vitað hvort leikurinn yrði á sunnudaginn eða föstudaginn)vonandi græjar KSÍ það fyrir okkur.''
Haukar og Selfoss mættust í 21. umferð 2. deildar fyrir stuttu síðan en Selfoss vann þann leik 1-2. Lestu um leikinn
„Á þeim tímapunkti vorum við komnir með titil, nú er þetta úrslitaleikur og við mætum all in í hann.''
Úrslitaleikur Fótbolta.net-bikarsins verður spilaður föstudaginn 18. september klukkan 19:00 á Laugardalsvelli.
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum fyrir ofan.