Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Víkingur Ó.
0
7
Fjölnir
0-1 Jóhann Árni Gunnarsson '35
0-2 Jóhann Árni Gunnarsson '37 , víti
0-3 Jóhann Árni Gunnarsson '64
0-4 Andri Freyr Jónasson '66
0-5 Hans Viktor Guðmundsson '74
0-6 Jóhann Árni Gunnarsson '83
0-7 Jóhann Árni Gunnarsson '85
20.08.2021  -  19:15
Ólafsvíkurvöllur
Lengjudeild karla
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson
Maður leiksins: Jóhann Árni Gunnarsson
Byrjunarlið:
1. Marvin Darri Steinarsson
6. Anel Crnac
7. Mikael Hrafn Helgason (f) ('74)
8. Guðfinnur Þór Leósson ('45)
10. Bjarni Þór Hafstein
11. Harley Willard
14. Kareem Isiaka
15. Berti Brandon Diau
16. Bjartur Bjarmi Barkarson
18. Simon Dominguez Colina ('45)
33. Juan Jose Duco

Varamenn:
12. Konráð Ragnarsson (m)
6. James Dale ('45)
11. Kristófer Máni Atlason
17. Brynjar Vilhjálmsson ('45)
21. Jose Javier Amat Domenech ('74)

Liðsstjórn:
Brynjar Kristmundsson (Þ)
Guðjón Þórðarson (Þ)
Antonio Maria Ferrao Grave
Kristján Björn Ríkharðsson

Gul spjöld:
Anel Crnac ('37)
James Dale ('55)
Bjarni Þór Hafstein ('85)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Dómarinn bætir engu við og flautar af.
Fínn fyrri hálfleikur hjá báðum liðum, og var maður ekki að búast við þessu í þeim seinni, Fjölnir nýttu heldur betur færin sín og stútuðu Víkingum
85. mín Gult spjald: Bjarni Þór Hafstein (Víkingur Ó.)
Brýtur á leikmanni í skyndisókn
85. mín MARK!
Jóhann Árni Gunnarsson (Fjölnir)
Skyndisókn sem Jóhann fær og hann sér markmann Víkinga að hann er vel útur markinu og Jóhann gerir sér lítið fyrir og vippar snyrtilega yfir Marvin
84. mín
Inn:Dagur Ingi Axelsson (Fjölnir) Út:Lúkas Logi Heimisson (Fjölnir)
84. mín
Inn:Helgi Snær Agnarsson (Fjölnir) Út:Andri Freyr Jónasson (Fjölnir)
83. mín MARK!
Jóhann Árni Gunnarsson (Fjölnir)
Stoðsending: Lúkas Logi Heimisson
GEGGJAÐ MARK! Sending frá Lúkasi frá vinstri kanti á fjær og Jóhann tekur hann viðstöðulaust innanfótar og hann fer í netið á fjærstong!
80. mín
Andri Freyr með flott skot með vinstri fæti sem Marvin Darri ver glæsilega! Þessi var að fara undir samskeytina
76. mín
Víkingar að fá horn, taka það stutt, Bjarni Þór hafstein sem er kominn á vinstri kantinn , tekur skot á fjær sem fer svo rétt yfir skeitina
76. mín
Inn:Kristófer Jacobson Reyes (Fjölnir) Út:Baldur Sigurðsson (Fjölnir)
Ólsarinn kominn inná á móti gamla félaginu
76. mín
Inn:Viktor Andri Hafþórsson (Fjölnir) Út:Michael Bakare (Fjölnir)
74. mín
Inn:Jose Javier Amat Domenech (Víkingur Ó.) Út:Mikael Hrafn Helgason (Víkingur Ó.)
74. mín MARK!
Hans Viktor Guðmundsson (Fjölnir)
Alltof auðvelt , Enginn pressa sett á Hans Viktor og hann bar leggur hann í fjær
73. mín
Bjartur Bjarmi gerir vel fyrir Víkinga, kemst í fínt skot en Sigurjón ver vel
72. mín
Andri Freyr liggur við að labba bara í gegnum Mikael og Brandon og tekur svo skotið sem fer framhjá
70. mín
Mikill hraði í leiknum, alls ekki fallegur fótbolti
67. mín
Inn:Hans Viktor Guðmundsson (Fjölnir) Út:Ragnar Leósson (Fjölnir)
66. mín MARK!
Andri Freyr Jónasson (Fjölnir)
Smá heppnis stimpill yfir þessu marki, virtist vera rangstæður hann Andri sem stóð alveg við markmanninn Marvin og tók dómarinn ákvörðunina, Enginn rangstaða
64. mín MARK!
Jóhann Árni Gunnarsson (Fjölnir)
Stoðsending: Lúkas Logi Heimisson
Sending upp vinstri kantinn á Lúkas Loga, og hann leggur hann fyrir j+ohann sem er alveg óvaldaður og hann tekur eina snertingu og setur hann á nærstöngina
63. mín
Fjölnir með fína sóknar uppbyggingu á hægri kantinum, Sigurpáll Melberg með flotta sendingu fyrir og þar fer skalli framhjá
61. mín
Víkingar eru hættulegri þessar mínutur og eru búnir að fá 3 hálffæri á stuttum tíma
57. mín
Víkingar með aukaspyrnu aðeins fyrir framan miðju. James Dale tekur hana, hún er inni miðju boxins og þar er Brandon næstum því einn og skallar boltanum rétt yfir slánna. Þarna hefðu Víkingar átt að skora til að komast inní leikinn
55. mín Gult spjald: James Dale (Víkingur Ó.)
Stoppa skyndisókn Fjölnis
52. mín Gult spjald: Sigurpáll Melberg Pálsson (Fjölnir)
Mótmældi hornspyrnu ákvörðun dómarans og kastar boltanum í burtu
51. mín
Víkingar að fá aukaspyrnu, James Dale tekur hana á fjær, þar fer Brandon í skalla en hittir hann ekki, Brynjar er bakvið hann og tekur hann niður og sendir hann ut á Harley og hann er með vinstri fótarskot sem fer rétt framhjá
48. mín
Kareem Isiaka fær óvænt dauðafæri eftir skallasendingu inni teig frá hægri, og hann skallar boltann yfir! Svona færi verða þeir að nýta
45. mín
Heimamenn gera tvöfalda skiptingu og setja Bynjar Vilhjálms sóknarmann inná og james Dale kemur til að styrkja miðjuspilið
45. mín
Inn:Brynjar Vilhjálmsson (Víkingur Ó.) Út:Simon Dominguez Colina (Víkingur Ó.)
45. mín
Inn:James Dale (Víkingur Ó.) Út:Guðfinnur Þór Leósson (Víkingur Ó.)
45. mín
Leikur hafinn
45. mín
Hálfleikur
Víkingur byrjuðu vel og áttu alveg sín færi og spiluðu vel fyrstu 30 min en svo svarar Fjölnir með 2 mörkum á 2 min, sjáum til hvort heimamenn koma til baka í seinni hálfleik.
44. mín
Fín sóknaruppbygging hjá Víkingum sem endar með stungu frá Harley yfir varnarlínuna á Kareem, en Sigurjón er fljótur að hugsa og kemur út á móti og stekkur upp og grípur boltann áður en Kareem nær snertingu á honum
41. mín
Fjölnir að fá horn, ekkert varð úr því
37. mín Mark úr víti!
Jóhann Árni Gunnarsson (Fjölnir)
Stoðsending: Michael Bakare
37. mín Gult spjald: Anel Crnac (Víkingur Ó.)
Togar í Michael Bakare inni teig
35. mín MARK!
Jóhann Árni Gunnarsson (Fjölnir)
Stoðsending: Arnór Breki Ásþórsson
Arnór með geggjaða sendingu frá vinstri kanti á fjær og Jóhann tekur hann viðstöðulaust með hægri í stöngina inn á fjær! geggjað mark
34. mín
Fjölnir með góða sókn, vinna horn, hornið er tekið og boltinn fer inn í markið alveg upp við skeitina! en markið dæmt af vegna brots á Marvin Darra markmanni inni teig
32. mín
Brandon Diau með aukaspyrnu fyrir aftan miðju upp hægri kantinn, þar er Bjartur og hann stígur út varnarmann sinn og tekur hann vel niður og dripplar upp hægri kantinn og sendir fyrir en Sigurjón eins og köttur í markinu og stekkur hátt upp og grípur boltann
26. mín
Harley Willard með flotta stungu á Kareem en Sigurjón Daði var fljótur að hugsa og kemur vel út úr markinu og hreinsar allann völlinn og þar hleypur Michael Bakare eftir boltanum og fer í peysutogs barráttu við Brandon Diau og Michael dettur í jörðina! Fjölnis menn eru brjálaðir og vilja víti, en fá ekkert
25. mín
Víkingar virka mun hættulegri þessar mínutur, en Fjölnir eru topplið og geta alveg refsað
22. mín
Kareem Isiaka vinnur boltann á vinstri kantinum, tekur flottann sprett og tekur skotið úr frekar þröngu færi og Sigurjón Daði ver vel í horn.

Bjartur tekur hornið og Brandon vinnur skallann og boltinn fer Rétt framhjá nfjærstönginni
20. mín Gult spjald: Michael Bakare (Fjölnir)
Alltof seinn í tæklingu
16. mín
Víkingar að fá hornspyrnu, spyrnan er í miðju þvögunar og Alexander Freyr vinnur Brandon í skalla einvígi og hreinsar
14. mín
Fjölnir með hornspyrnu, sending fyrir á fjær en boltinn er hreinsaður
13. mín
Víkingur með fast leikatriði vinstra meginn við boxið, sending á fjær þar er Brandon Diau en hann nær ekki nógu góðum skalla og boltinn fer framhjá
12. mín
Bjartur Bjarmi fyrirliði Víkinga vinnur boltann fyrir aftan miðju, tekur góðan sprett upp miðju vallarins og reynir að stinga á Kareem, en sending er blokkeruð
8. mín
DAUÐAFÆRI! Skallabolta tennis er á miðjunni, en Guðfinnur Þór lyftir boltanum yfir varnalínu Fjölnis og Kareem tekur hann snyrtilega með sér, og tekur 2 snertingar og tekur skotið með vinstri í fjær en rétt framhjá
5. mín
Hraður leikur, bæði lið skiptast á með boltann, engin alvöru marktækifæri komin
3. mín
Fjölnis menn stoppa leik, því boltinn var linur, því var lagað eins og skot
1. mín
Leikur hafinn
Víkingur byrja með boltann
Fyrir leik
Það eru 2 leikmenn Víking í banni í dag og það eru þeir Emmanuel Eli Keke og Marteinn Theodórsson. Eli Keke fékk rautt spjald á móti Fram fyrir 2 umferðum og mþór og missir af 3 leikjum. Marteinn fékk sitt fjórða gula spjald á móti Þór og missir af einum leik.
Fyrir leik
Í leikmannahóp Fjölnis er uppalinn Ólsari og Víkings leikmaður hann Kristófer Reyes eða Jacobi Rice eins og margir kalla hann.
Verður gaman að sjá hvort að pilturinn fái að byrja á móti sínu gamla félagi.
Fyrir leik
Bæði lið unnu í síðustu umferð,

Víkingur gerði sér ferð norður og unnu sannfærandi sigur á Þór 0 - 2, sem var líka þeirri fyrsti sigur í deildinni.

Fjölnir vann Aftureldingu á heimavelli mjög sannfærandi 3 - 0 og hoppuðu uppí 4. sæti. og eru einungis 2 stigum á eftir Kórdrengjum.
Fyrir leik
Komið sæl og blessuð og verið velkominn á þessa beinu textalýsingu milli Víking Ó og Fjölnis í Lengjudeild karla.

Leikurinn fer fram á Ólafsvíkurvelli.
fínt fótboltaveður í Víkinni, skýjað og mildur vindur.
Byrjunarlið:
25. Sigurjón Daði Harðarson (m)
4. Sigurpáll Melberg Pálsson
6. Baldur Sigurðsson ('76)
7. Michael Bakare ('76)
8. Arnór Breki Ásþórsson
9. Andri Freyr Jónasson ('84)
15. Alexander Freyr Sindrason
17. Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson
17. Lúkas Logi Heimisson ('84)
22. Ragnar Leósson ('67)
31. Jóhann Árni Gunnarsson

Varamenn:
2. Valdimar Ingi Jónsson
7. Dagur Ingi Axelsson ('84)
10. Viktor Andri Hafþórsson ('76)
18. Kristófer Jacobson Reyes ('76)
20. Helgi Snær Agnarsson ('84)
28. Hans Viktor Guðmundsson ('67)

Liðsstjórn:
Ásmundur Arnarsson (Þ)
Gunnar Sigurðsson
Steinar Örn Gunnarsson
Einar Hermannsson
Kári Arnórsson
Magnús Birkir Hilmarsson
Sigurður Frímann Meyvantsson

Gul spjöld:
Michael Bakare ('20)
Sigurpáll Melberg Pálsson ('52)

Rauð spjöld: