Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Keflavík
1
1
Breiðablik
1-0 Kristín Dís Árnadóttir '4 , sjálfsmark
1-1 Selma Sól Magnúsdóttir '88
26.08.2021  -  18:00
HS Orku völlurinn
Pepsi-Max deild kvenna
Aðstæður: SA gjóla skýjað og hiti um 13 gráður
Dómari: Jóhann Atli Hafliðason
Maður leiksins: Tiffany Sornpao
Byrjunarlið:
1. Tiffany Sornpao (m)
3. Natasha Anasi (f)
10. Dröfn Einarsdóttir
11. Kristrún Ýr Holm (f)
14. Celine Rumpf
15. Arndís Snjólaug Ingvarsdóttir
16. Ísabel Jasmín Almarsdóttir
21. Birgitta Hallgrímsdóttir ('61)
24. Anita Lind Daníelsdóttir
33. Aerial Chavarin
34. Tina Marolt

Varamenn:
31. Esther Júlía Gustavsdóttir (m)
5. Berta Svansdóttir
8. Anita Bergrán Eyjólfsdóttir
17. Elín Helena Karlsdóttir
20. Eva Lind Daníelsdóttir
22. Jóhanna Lind Stefánsdóttir
25. Cassandra Rohan

Liðsstjórn:
Gunnar Magnús Jónsson (Þ)
Ástrós Lind Þórðardóttir
Soffía Klemenzdóttir
Amelía Rún Fjeldsted
Hjörtur Fjeldsted
Örn Sævar Júlíusson
Óskar Rúnarsson

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Risastórt stig fyrir Keflavík í fallbaráttunni.

Viðtöl og skýrsla væntanleg.
92. mín Gult spjald: Ásta Eir Árnadóttir (Breiðablik)
Gult fyrir að sparka boltanum í burtu.
90. mín
Uppbótartími er að lágmarki 4 mínútur.
88. mín MARK!
Selma Sól Magnúsdóttir (Breiðablik)
Gerir vel er hún fylgir á eftir skoti Hildar sem fer af varnarmanni. Spurning með rangstöðu þarna en markið stendur.
88. mín
Selma Sól keyrir inn á teiginn og leggur hann út. En Tiffany vel á verði og hirðir boltann.
87. mín
Blikar bruna upp og fá hornspyrnu.
86. mín
Amelía Rún með skot að marki Blika en vel framhjá fer boltinn.
84. mín
Inn:Vigdís Lilja Kristjánsdóttir (Breiðablik) Út:Tiffany Janea Mc Carty (Breiðablik)
82. mín
Selma Sól!!!!

Dauðafæri af vítapunkti en setur boltann í slánna! Þetta er ótrúlegt hvað Blikum gengur illa að finna netið.

Alein fyrir opnu marki því sem næst.
81. mín
Baráttan og krafturinn í varnarleik Keflavíkur er aðdáunarverður svo ekki sé fastar að orði kveðið. Henda sér fyrir alla bolta og vinna af þvílíkri samviskusemi fyrir sínu.
78. mín Gult spjald: Hildur Antonsdóttir (Breiðablik)
Fer að full miklum krafti í skallabolta og uppsker gult. Tina Marolt liggur óvíg eftir og þarfnast aðhlynningar.
76. mín
Breiðablik fær horn. Fannst nú klárlega brotið á Natöshu þarna en Jóhann ekki á sama máli. Tiffany grípur hornið.
74. mín
Agla María með skot úr aukaspyrnu en boltinn beint í fang Tiffany. Sá þennan koma alla leið og átti ekki í vandræðum.
71. mín
Inn:Hildur Antonsdóttir (Breiðablik) Út:Chloé Nicole Vande Velde (Breiðablik)
71. mín
Agla með skotið en boltinn framhjá.
69. mín
Selma Sól í ágætu færi í teig Keflavíkur en hittir boltann illa og boltinn vel framhjá.
65. mín
Chavarin með skot úr D-boganum en Telma ver.
61. mín
Inn:Amelía Rún Fjeldsted (Keflavík) Út:Birgitta Hallgrímsdóttir (Keflavík)
Sem og Keflavík
61. mín
Inn:Taylor Marie Ziemer (Breiðablik) Út:Birta Georgsdóttir (Breiðablik)
Bkikar gera sína fyrstu breytingu.
56. mín
Boltinn í slánna á marki Keflavíkur

Ásta Eir með fyrirgjöf frá hægri sem lendir í slánni, boltinn dettur niður í teignum og upphefs smá kaðrak en enn og aftur komast Keflavíkurstúlkur upp með það. Henda sér fyrir allt og alla hérna.
54. mín
Selma Sól með tilraun úr teignum sem fer af varnarmanni og afturfyrir. Blikar fá horn sem ekkert verður úr.
50. mín
Blikar í fínum séns á skyndisókn en Karitas helst til of bráð í sendingunni og boltinn beint til Tiffany í marki Keflavíkur.
49. mín
Keflavík fær hornspyrnu.

Og annað.
47. mín
Keflvíkingar tvær gegn einni óvænt en Chavarin fer illa með tækifærið og gefur boltann beint á eina Blikan sem var nærri.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn

Gestirnir hefja leik hér í síðari hálfleik.
45. mín
Hálfleikur
Hér í hálfleik heiðruðu Keflvíkingar sameiginlegan 5.flokk Keflavíkur Reynis og Víðis sem átti frábæru gengi að fagna í mótum sumarsins. Virkilega fjölmennur og fríður hópur þar á ferð og óskum við hér á Fótbolta.net þeim til hamingju með árangur sumarsins og hlökkum til að sjá þær á völlum landsins í framtíðinni.


45. mín
Hálfleikur
Flautað til hálfleiks hér í Keflavík þar sem heimakonur leiða. Telst mögulega seint sanngjarnt en þær uppskáru mark og hafa svo sannarlega unnið fyrir því að halda sínu marki hreinu. Seinni hálfleikur að vörmu spori.
45. mín
+ 1 uppbótartími í fyrri hálfleik er að lágmarki tvær mínútur.
45. mín
Arndís bjargar á línu!

Karitas fær boltann í teig Keflavíkur og kemur honum á markið. Tiffany hvergi nærri en þá poppar Arndís upp á línunni og kemur boltanum frá.
44. mín
Birta með hörkuskalla að marki Keflavíkur en boltinn yfir markið.
42. mín
Arndís helst til of áköf í baráttu við Öglu Maríu og Blikar fá aukaspyrnu í fyrirgjafarstöðu.

Spyrnan slök og heimakonur fá markspyrnu.
40. mín
Farið að örla á pirringi í liði Breiðabliks. Lítið gengið upp af því fjölmarga sem þær hafa reynt.

Karitas með skotið en Tiffany sem fyrr með allt á hreinu og grípur boltann.
38. mín
Chavarin vinnur boltann hátt á vellinum og kemst einn á einn gegn varnarmanni. Kemst inn að teig Blika en ekki lengra og Blikar hreinsa í innkast.
32. mín
Agla María með fyrirgjöf en Blika skortir áræðni í boxinu. Engin sem ræðst á boltann.
31. mín
Keflavík með sókn.

Dröfn með boltann úti á hægri kanti en fyrirgjöf hennar beint í fang Telmu.
29. mín
Eftir þrjár hornspyrnur í röð berst boltinn út á Chloe sem nær skotinu en boltinn langt frá því að hitta á markið.
28. mín
Breiðablik fær horn.
26. mín
Hvernig er Breiðblik ekki búið að jafna?

Tiffany Mc Carty fær boltann um 30-40 cm frá marki en Natasha og Tiffany markvörður í sameiningu henda sér fyrir hana og koma í veg fyrir að hún skori. Boltinn við það að berast á Öglu Maríu úr frákastinu en Tiffany hendir sér á eftir boltanum og handsamar hann.
24. mín
Hafrún aftur á ferðinni. Nú með skotið af talsverðu færi en boltinn vel yfir markið.

Leikurinn fer nánast eingöngu fram á vallarhelmingi Keflavíkur sem stendur.
23. mín
Hafrún Rakel með hættulegan bolta frá vinstri inn á teig Keflavíkur en þar vantar smá ákveðni og boltinn siglir í gegnum teiginn.
21. mín
Karitas með skalla að marki eftir aukaspyrnu frá hægri en boltinn framhjá markinu.
17. mín
Selma Sól með skot af talsverðu færi en boltinn í fang Tiffany.

Gestirnir farnir að þjarma vel að Keflavíkurstúlkum.
16. mín
Agla María með lipur tilþrif í teig Keflavíkur, leggur boltann svo út á Karitas sem á skotið en boltinn beint í fang Tiffany.
10. mín
Blikaliðið virkar jafnvel hálf slegið. Keflavík að gefa þeim alvöru leik. Keflavík fær horn.

Aníta með spyrnuna yfir á fjær en boltinn siglir alla leið yfir og í innkast.
7. mín
Karitas Tómasdóttir í fínu færi í teig Keflavíkur eftir fyrirgjöf. Tiffany mætt út úr marki sínu og nær Karitas skallanum yfir hana en því miður yfir markið líka.
6. mín
Ja hérna hér. Keflavík vann fyrri leik liðana í sumar en ég held að fáir hafi séð þetta fyrir. Óheppni hjá Blikum vissulega en að því er ekki spurt.
4. mín SJÁLFSMARK!
Kristín Dís Árnadóttir (Breiðablik)
Hættulegur bolti inn á teiginn sem að Blikar reyna að hreinsa. Það heppnast þó ekki betur en svo að boltinn fer beint í Kristínu og þaðan í netið.

Kristín liggur eftir og þarfnast aðhlynningar.
3. mín
Birta Georgsdóttir vinnur horn fyrir gestina eftir fínan sprett.

Agla María spyrnir boltanum inn en Tiffany mætir út og hrifsar til sín boltann.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað hér í Keflavík. Það eru sem heimakonur sem hefja hér leik.
Fyrir leik
Fyrri viðureignir í efstu deild

13 leiki hafa liðin leikið innbyrðis í efstu deild frá aldamótum.

Keflavík Tveir sigrar og 13 mörk skoruð
Breiðablik Tíu sigrar og 43 mörk skoruð
Aðeins einum leik hefur lokið með jafntefli.

Fyrri leik liðanna á Kópavogsvelli í sumar lauk með 1-3 útisigri Keflavíkur sem vann þar sinn fyrsta deildarsigur á Breiðblik í 14 ár. Aerial Chavarin (2) og Ísabel Jasmín Almarsdóttir gerðu mörk Keflavíkur í leiknum en Hafrún Rakel Halldórsdóttir gerði mark Blika.


Fyrir leik
Keflavík

Keflavík situr í 8.sæti deildarinnar fyrir leik kvöldsins með 12 stig. Fylkir situr sæti neðar með jafnmörg stig en talsvert lakari markatölu auk þess sem Keflavík á leikinn í kvöld inni á Fylkisstúlkur. Heimakonur sem unnu lið ÍBV í Vestmannaeyjum eyja því möguleika á að halda sæti sínu í deildinni og kæmu sér í verulega vænlega stöðu með sigri hér í dag.

Leikirnir sem Keflavík á eftir
Breiðablik (H)
Tindastóll (Ú)
Valur (H)
Þór/KA (Ú)



Fyrir leik
Breiðablik

Blikastúlkur verja ekki Íslandsmeistaratitilinn þetta árið það varð ljóst í gær með stórsigri Vals á liði Tindastóls. Blikastúlkur hafa verið sveiflukenndar þetta sumarið og tapað þó nokkrum leikjum óvænt til að mynda heimaleik sínum gegn Keflavík fyrr í sumar. Það tap er jafnvel óvæntara en ella sökum þess að í umferðinni á undan lagði lið Breiðabliks Val að velli á Origovellinum 7-3. Töp Blika eru alls 4 það sem af er þetta sumarið í deildinni en það eru fleiri töp en liðið hefur þurft að þola í deildinni síðustu 3 tímabil samanlagt. Deildin hefur þó boðið upp á mun fleiri óvænt úrslit í sumar en mörg undanfarin ár og ákveðin teikn á lofti að mögulega ætli fleiri lið að fara blanda sér í baráttuna um þann stóra á komandi árum.

Tímabilinu er þó langt í frá lokið hjá Breiðablik þótt titilinn sé úr þeirra höndum. Framundan eru leikir gegn NK Osijek frá Króatíu og vinni Breiðablik einvígið gegn þeim verða Blikastúlkur fyrstar Íslenskra liða til að spila í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu.


Fyrir leik
Heil og sæl kæru lesendur og verið líkt og ávallt hjartanlega velkomin í beina textalýsingu Fótbolta.net frá leik Keflavíkur og Breiðabliks í 15.umferð Pepsi Max deildar kvenna.
Byrjunarlið:
12. Telma Ívarsdóttir (m)
5. Hafrún Rakel Halldórsdóttir
7. Agla María Albertsdóttir
8. Heiðdís Lillýardóttir
13. Ásta Eir Árnadóttir (f)
14. Chloé Nicole Vande Velde ('71)
16. Tiffany Janea Mc Carty ('84)
17. Karitas Tómasdóttir
18. Kristín Dís Árnadóttir
27. Selma Sól Magnúsdóttir
28. Birta Georgsdóttir ('61)

Varamenn:
6. Margrét Brynja Kristinsdóttir
8. Taylor Marie Ziemer ('61)
15. Vigdís Lilja Kristjánsdóttir ('84)
21. Hildur Antonsdóttir ('71)
23. Vigdís Edda Friðriksdóttir

Liðsstjórn:
Vilhjálmur Kári Haraldsson (Þ)
Birna Kristjánsdóttir
Ólafur Pétursson
Jóhanna Kristbjörg Einarsdóttir
Aron Már Björnsson
Úlfar Hinriksson
Ágústa Sigurjónsdóttir

Gul spjöld:
Hildur Antonsdóttir ('78)
Ásta Eir Árnadóttir ('92)

Rauð spjöld: