Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
Í BEINNI
Besta-deild karla
HK
14:00 0
0
FH
Kórdrengir
4
0
Víkingur Ó.
Leonard Sigurðsson '7 1-0
Gunnlaugur Fannar Guðmundsson '15 2-0
Magnús Andri Ólafsson '83 3-0
Axel Freyr Harðarson '92 4-0
31.08.2021  -  18:00
Domusnovavöllurinn
Lengjudeild karla
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson
Maður leiksins: Daníel Gylfason (Kórdrengir)
Byrjunarlið:
1. Alexander Pedersen (m)
Leonard Sigurðsson ('60)
2. Endrit Ibishi
4. Fatai Gbadamosi
5. Loic Mbang Ondo (f)
6. Hákon Ingi Einarsson
9. Daníel Gylfason
10. Þórir Rafn Þórisson
17. Gunnlaugur Fannar Guðmundsson ('60)
18. Axel Freyr Harðarson
19. Connor Mark Simpson ('73)

Varamenn:
3. Egill Darri Makan Þorvaldsson ('60)
3. Goran Jovanovski
4. Ásgeir Frank Ásgeirsson ('60)
13. Gísli Páll Helgason
16. Alex Freyr Hilmarsson
22. Nathan Dale
33. Magnús Andri Ólafsson ('73)

Liðsstjórn:
Davíð Smári Lamude (Þ)
Logi Már Hermannsson
Andri Steinn Birgisson
Albert Brynjar Ingason
Heiðar Helguson
Árni Jóhannes Hallgrímsson
Jóhann Ólafur Schröder

Gul spjöld:
Gunnlaugur Fannar Guðmundsson ('35)
Leonard Sigurðsson ('41)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Jóhann Ingi flautar til leiksloka. Kórdrengir með öruggan 4-0 sigur.

Viðtöl og skýrsla væntanleg síðar í kvöld.
92. mín MARK!
Axel Freyr Harðarson (Kórdrengir)
Stoðsending: Egill Darri Makan Þorvaldsson
FJÓRÐA MARK KÓRDRENGJA!!

Egill Darri fær boltann til vinstri og keyrir inn á völlinn og rennir boltanum í gegn á Axel Frey sem gerir allt rétt og skorar af miklu öryggi.
90. mín
Klukkan slær 90 á Domusnovavellinum í Breiðholti.
87. mín
DARRAÐADANS Í TEIG KÓRDRENGJA!

Bjartur Bjarmi fær boltsnn inn á teignum og nær að dansa með boltann aðeins og nær síðan skoti sem Kórdrengir koma sér fyrir.

Ágætis séns þarna fyrir Ólsara.
86. mín
Inn:Simon Dominguez Colina (Víkingur Ó.) Út:Marteinn Theodórsson (Víkingur Ó.)
83. mín MARK!
Magnús Andri Ólafsson (Kórdrengir)
Stoðsending: Hákon Ingi Einarsson
MAAAAAAAAARK!!

Fatai kemur boltanum á Axel Frey sem snýr frábærlega og kemur boltanum út á Hákon Inga sem leggur boltann á Magnús Andra sem klárar vel í netið.
81. mín
Þórir fær boltann inn á teignum og er alltof lengi að koma skoti á markið og tapar boltanum, ílla farið með gott færi en Þórir var einnig með Egil Darra með sér
80. mín
Kórdrengir vinna hornspyrnu sem Ásgeir Frank ætlar að spyrna.

Ásgeir með góðan bolta sem Marvin kýlir í aðra hornspyrnu.
79. mín
FATAI AÐ BLÁSA SMÁ LÍFI Í ÞETTA!!!

Fær boltann á miðjum vallarhelming Ólsarar og lætur vaða með vinstri en boltinn rétt framhjá. Ekkert að því að reyna þetta.
75. mín
Bjarni Þór með flott tilþrif og nær skoti á markið en það frekar máttlítið beint á Pedersen.
73. mín
Inn:Magnús Andri Ólafsson (Kórdrengir) Út:Connor Mark Simpson (Kórdrengir)
70. mín
Axel Freyr fær boltann á vallarhelming Ólsarar og rennir boltanum til hliðar á Daníel Gylfason sem hleður í skot en boltinn framhjá.
69. mín Gult spjald: Marteinn Theodórsson (Víkingur Ó.)
Brýtur á Axeli Frey inn í miðjuhringnum og Gauji Þórðar ekki sáttur á hliðarlínunni.
64. mín
Mikael með aukaspyrnu frá miðjum velli inn á teig Kórdrengja og Emmanuel fær boltann einn og óvaldaður inn á teignum en skalli hans laus beint á Pedersen.
63. mín
Egill Darri kemur boltanum á Axel Freyr sem fær hann fyrir utan teig og Axel lætur vaða en boltinn yfir.
62. mín
Góð sókn hjá Kórdrengjum!!

Fatai kemur boltann úr svæðinu og færir boltann yfir á Ondo sem kemur honum hratt á Hákon Inga sem rennir boltanum í gegn á Axel Freyr sem leggur hann út í teiginn en Conor nær ekki til boltans.
61. mín Gult spjald: Juan Jose Duco (Víkingur Ó.)
Truflar Egil Darra við innkast.
60. mín
Inn:Ásgeir Frank Ásgeirsson (Kórdrengir) Út:Gunnlaugur Fannar Guðmundsson (Kórdrengir)
60. mín
Inn:Egill Darri Makan Þorvaldsson (Kórdrengir) Út:Leonard Sigurðsson (Kórdrengir)
59. mín
Leonard með góða fyrirgjöf fyrir sem Conor nær ekki til og boltinn aftufyrir.
55. mín
Ólsarar eru aðeins að lifna við og ná að halda í boltann þessa stundina.
54. mín
Inn:Kareem Isiaka (Víkingur Ó.) Út:Brynjar Vilhjálmsson (Víkingur Ó.)
52. mín
Þessi síðari hálfleikur byrjar eins og hann endaði Kórdrengir halda í boltann og Ólsarar liggja til baka og treysta á skyndisóknir.
46. mín
Síðari hálfleikurinn er hafinn. Liðin eru óbreytt.
45. mín
Hálfleikur
Jóhann Ingi flautar til hálfleiks. Þessi fyrri hálfleikur verið í eign Kórdrengja og fer liðið með 2 - 0 forskot inn í hálfleik.
45. mín
ÞÓRIR!!!

Daníel með frábærspyrnu fyrir á Conor sem nær skalla sem Marvin Darri nær að verja vel og boltinn ratar á Þóri sem setur boltann í slánna og yfir.
41. mín
Aukspyrnan kemur fyrir frá Mikael og boltinn dettur inn í teiginn fyrir fætur Berti sem nær lausu skoti á markið en Alexander Pedersen ver þægilega.

Róleg vakt hjá Pedersen í þessum fyrri hálfleik.
41. mín Gult spjald: Leonard Sigurðsson (Kórdrengir)
Lenoard með tilgangslaust brot á Mikael Hrafn út á miðjum velli og fær réttilega gult spjald.
37. mín
Leonard fær boltann út til hægri og á fyrirgjöf en enginn Kórdrengur nær til boltans og boltinn afturfyrir.
35. mín Gult spjald: Gunnlaugur Fannar Guðmundsson (Kórdrengir)
Gunnlaugur getur held ég ekki kvartað yfir þessu.
35. mín
Bjartur með góðan sprett fær boltann við miðjuna og keyrir í átt að teig Kórdrengja og Gunnlaugur Fannar klippir hann niður.
34. mín
Yfirburðir Kórdrengja halda áfram.

Fatai fær boltann á miðjum vallarhelming Ólsara og lætur bara vaða en hittir boltann ílla og boltinn framhjá.
30. mín
Þórir Rafn fær boltann og keyrir upp vænginn en Emmanuel brýtur á honum og Kórdrengir fá aukaspyrnu úti hægra megin.

Leonard tekur spyrnuna en Emmanuel skallar boltann í burtu.
29. mín
Mikael Hrafn nær fínni fyrirgjöf inn á teiginn sem Brynjar Vilhjálmsson nær ekki til og boltinn rúllar yfir í innkast.
25. mín
GUNNLAUGUR FANNAR!!

Fær boltann inn á teignum og reynir skot á markið og Marvin Darri virðist verja boltann en hornspyrna dæmd.
23. mín
Inn:Anel Crnac (Víkingur Ó.) Út:James Dale (Víkingur Ó.)
Högg fyrir Ólsara að missa fyrirliða sinn af velli eftir aðeins tuttugu mínútna leik.
21. mín
James Dale liggur eftir á vellinum, virðist hafa fengið högg á ökklann.

Varamannabekkur Ólsarar kallar á Anel Crnac sem gerir sig kláran að koma inn á.
20. mín
Ólsarar virkilega hugmyndalausir í sóknarleik sínum en liðið finnur engar opnanir á Kórdrengi. Leikurinn hefur spilast á vallarhelming Kórdrengja.
15. mín MARK!
Gunnlaugur Fannar Guðmundsson (Kórdrengir)
Stoðsending: Loic Mbang Ondo
KÓRDRENGIR AÐ TVÖFALDA!!!!

Loic Mbang Ondo tekur spyrnuna og skotið er beint á Marvin Darra sem nær ekki að grípa boltann og missir hann beint fyrir fætur Gunnlaugs sem klárar vel í netið.
14. mín
Boltinn kemur upp í fætur Conor sem leggur hann á Axel Freyr sem reynir að þræða sig inn á teiginn en James Dale brýtur á honum nánast á vítateigslínunni.
10. mín
Ólsarar hafa varla komist yfir miðju þessar fyrstu 10 mínútur. Kórdrengir með öll völd á vellinum.
7. mín MARK!
Leonard Sigurðsson (Kórdrengir)
Stoðsending: Daníel Gylfason
ÞESSI SPYRNUTÆKNI LEONARD!!!!

Daníel Gylfason fær boltann út til vinstri og á fyrirgjöf á hættusvæðið sem Ólsarar skalla beint fyrir fætur Leonards sem nær skoti í fyrsta beint niður í nærhornið. Óverjandi fyrir Marvin Darra.

1 - 0
4. mín
ÞÓRIR MEÐ SKALLA Í STÖNGINA!!!!

Hákon Ingi fær boltann hægra megin og Hákon teiknar boltann á Þóri Rafn sem fikkar boltann afturfyrir sig og boltinn í stöngina.

Ólsarar heppnir þarna!
1. mín
Axel Freyr dansar með boltann fyrir utan teig og brotið á honum og Kórdrengir fá aukaspyrnu á góðum stað.

Leonard tekur spyrnuna og hún fer af veggnum og í hornspyrnu sem Axel tekur en hún slök beint á nærstöninga og Ólsarar hreinsa boltann.
1. mín
Leikur hafinn
Jóhann Ingi startar klukkunni og leikurinn er hafinn. Ólsarar byrja með boltann.
Fyrir leik
Jóhann Ingi Jónsson leiðir liðinn inn á völlinn og vallarþulur Kórdrengja bíður Ólafsvíkinga velkomna á Domusnovavöllin.
Fyrir leik
TÍU MÍNÚTUR Í LEIK

Liðin hafa lokið upphitun og ganga til búningsherbegja. Styttist í að Jóhann Ingi Jónsson flauti þetta á.
Fyrir leik
Kórdrengir unnu í Ólafsvík

Liðin mættust í Ólafsvík þann 21.mai síðastliðin og höfðu Kórdrengir betur 1-3. Mark Ólafsvíkur í leiknum skoraði Harley Bryn Willard en mörk Kórdrengja gerðu þeir Loic Cédric Mbang Ondo, Davíð Þór Ásbjörnsson.



Davíð Þór Ásbjörnsson skoraði tvö í Ólafsvík en hann leikur ekki með liðinu í kvöld vegna meiðsla.
Fyrir leik
Víkingur Ólafsvík

Víkingar frá Ólafsvík sitja í neðsta sæti deildarinnar en liðið er fallið og spilar í C-deild að ári en liðið á fjóra leiki eftir í deildinni í bili hið minnsta og spilar liðið upp á stolltið það sem eftir er móts.

Víkingar fengu Selfoss heim til Ólafsvíkur og töpuðu 0 - 3


Fyrir leik
Kórdrengir

Liðið situr fyrir leik kvöldsins í þriðja sæti deildarinnar með 34.stig eftir átján leiki spilaða og er einu stigi á eftir ÍBV sem situr í öðru sætinu en Eyjamenn eiga tvo leiki til góða.

Kórdrengir fóru til Grindavíkur í síðustu umferð og unnu sterkan 1-2 sigur. Mörk Kórdrengja skoruðu Connor Mark Simpson og Alex Freyr Hilmarsson.


Fyrir leik
Góðan og gleðilegan!

Hér verður þráð bein textalýsing frá leik Kórdrengja og Víking Ó. í Lengjudeild karla.

Jóhann Ingi Jónsson flautar leikinn og honum til aðstoðar verða þeir Guðmundur Valgeirsson og Jónas Geirsson. Eftirlitsmaður KSÍ verða þeir Þórður Ingi Guðjónsson.
Byrjunarlið:
1. Marvin Darri Steinarsson
5. Emmanuel Eli Keke
6. James Dale (f) ('23)
7. Mikael Hrafn Helgason (f)
10. Bjarni Þór Hafstein
15. Berti Brandon Diau
16. Bjartur Bjarmi Barkarson
17. Brynjar Vilhjálmsson ('54)
19. Marteinn Theodórsson ('86)
21. Jose Javier Amat Domenech
33. Juan Jose Duco

Varamenn:
12. Konráð Ragnarsson (m)
6. Anel Crnac ('23)
8. Guðfinnur Þór Leósson
11. Harley Willard
14. Kareem Isiaka ('54)
18. Simon Dominguez Colina ('86)
23. Ísak Máni Guðjónsson

Liðsstjórn:
Brynjar Kristmundsson (Þ)
Guðjón Þórðarson (Þ)
Antonio Maria Ferrao Grave
Kristján Björn Ríkharðsson

Gul spjöld:
Juan Jose Duco ('61)
Marteinn Theodórsson ('69)

Rauð spjöld: