Enrique efstur á lista Man Utd - Hættir Pep hjá City í sumar? - Man Utd ætlar ekki að lána Rashford aftur til Barca
   fös 20. mars 2026 08:15
Elvar Geir Magnússon
Enrique efstur á lista Man Utd - Hættir Pep hjá City í sumar?
Powerade
Luis Enrique, stjóri PSG, er orðaður við Man Utd.
Luis Enrique, stjóri PSG, er orðaður við Man Utd.
Mynd: EPA
Pep Guardiola, stjóri Manchester City.
Pep Guardiola, stjóri Manchester City.
Mynd: EPA
Amorim er orðaður við Benfica.
Amorim er orðaður við Benfica.
Mynd: EPA
Stjóramál Manchester liðanna, áhugi á Bruno Guimaraes og framtíð Marcus Rashford er meðal þess sem fjallað er um í slúðurpakkanum í dag. Eigið góða helgi!

Óvíst er hvort Michael Carrick muni fá starfið hjá Manchester United til frambúðar þrátt fyrir gott gengi. Luis Enrique er sagður efstur á óskalista félagsins en ekki er vitað hvort hann sé klár í að yfirgefa Paris Saint-Germain. (Mirror)

Auknar líkur eru á að Pep Guardiola hætti hjá Manchester City eftir tímabilið og félagið er farið að líta í kringum sig. (Football Insider)

Newcastle vill halda Bruno Guimaraes (28) og er að búa sig undir viðræður um nýjan samning. Manchester United og Real Madrid vilja fá brasilíska miðjumanninn. (Teamtalk/Reuters)

Manchester United mun hafna tilraunum Barcelona til að fá Marcus Rashford (28) aftur lánaðan á næsta tímabili. United vill að Barcelona borgi þær 26 milljónir punda sem samið var um eða sendi framherjann aftur á Old Trafford. (Mirror)

Sóknarmaðurinn Randal Kolo Muani (27), sem er hjá Tottenham á láni frá Paris Saint-Germain, er orðaður við sölu til Juventus en þar var hann á síðasta tímabili. (Gazzetta dello Sport)

Egypski framherjinn Mohamed Salah (33) hjá Liverpool hefur enn ekki tekið ákvörðun um framtíð sína. Mikill áhugi er á honum frá Sádi-Arabíu. (Mail)

Belgíski miðjumaðurinn Youri Tilemenas (28) hjá Aston Villa er tilbúinn að hafna öllum tilboðum en félög í Sádi-Arabíu eru með hann á blaði. (Football Insider)

Real Madrid er í viðræðum við þýska varnarmanninn Antonio Rudiger (33) um nýjan samning. (Marca)

Borussia Dortmund hefur áhuga á að fá Jadon Sancho (25) aftur til sín. Sancho er hjá Aston Villa á láni frá Manchster United en samningur hans við United rennur út í júní. (Athletic)

Cristian Romero (27), varnarmaður Tottenham, hefur kveðið niður umræðu um möguleg félagaskipti í sumar og er einbeittur á að hjálpa félagi sínu að forðast fall. (Independent)

Inter vill fá Guglielmo Vicario (29), markvörður Tottenham. Hann er sagður opinn fyrir því að snúa aftur til Ítalíu. (Calciomercato)

Carl Rushworth (24), markvörður Brighton sem er hjá Coventry, er á blaði hjá sex úrvalsdeildarfélögum. (Talksport)

Rúben Amorim, sem var rekinn frá Manchester United, er orðaður við Benfica ef portúgalska félagið rekur Jose Mourinho. Amorim stýrði áður keppinautum Benfica í Sporting Lissabon. (Mirror)
Athugasemdir
banner