Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Breiðablik
3
0
FH
Ísak Snær Þorvaldsson '45 1-0
Kristinn Steindórsson '71 2-0
Ísak Snær Þorvaldsson '72 3-0
01.05.2022  -  19:15
Kópavogsvöllur
Besta-deild karla
Aðstæður: Bongó blíða!
Áhorfendur: 2017
Maður leiksins: Ísak Snær Þorvaldsson
Byrjunarlið:
1. Anton Ari Einarsson (m)
3. Oliver Sigurjónsson ('77)
4. Damir Muminovic
7. Höskuldur Gunnlaugsson (f)
8. Viktor Karl Einarsson ('86)
10. Kristinn Steindórsson ('86)
11. Gísli Eyjólfsson
14. Jason Daði Svanþórsson ('81)
21. Viktor Örn Margeirsson
22. Ísak Snær Þorvaldsson ('86)
25. Davíð Ingvarsson

Varamenn:
12. Brynjar Atli Bragason (m)
13. Anton Logi Lúðvíksson ('86)
16. Dagur Dan Þórhallsson ('77)
19. Sölvi Snær Guðbjargarson ('81)
24. Ásgeir Galdur Guðmundsson ('86)
30. Andri Rafn Yeoman
67. Omar Sowe ('86)

Liðsstjórn:
Óskar Hrafn Þorvaldsson (Þ)
Halldór Árnason (Þ)
Ólafur Pétursson
Marinó Önundarson
Aron Már Björnsson
Særún Jónsdóttir
Alex Tristan Gunnþórsson

Gul spjöld:
Davíð Ingvarsson ('12)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Leikurinn var aldrei í hættu fyrir Blika!
Sannfærandi sigur heimamanna staðreynd.
91. mín
Omar Some með gott skot sem Gunnar ver.
91. mín
Við fáum +2 á skiltið.
89. mín
Klukkan er gleði hjá Kópacabana í stúkunni en þeim leiðist það nákvæmlega ekki neitt að vera 3-0 yfir í þessum leik og syngja bara og tralla.
88. mín
Inn:Úlfur Ágúst Björnsson (FH) Út:Oliver Heiðarsson (FH)
88. mín
Inn:Jóhann Ægir Arnarsson (FH) Út:Ástbjörn Þórðarson (FH)
86. mín
Inn:Omar Sowe (Breiðablik) Út:Viktor Karl Einarsson (Breiðablik)
Þreföld skipting hjá Blikum.
86. mín
Inn:Anton Logi Lúðvíksson (Breiðablik) Út:Ísak Snær Þorvaldsson (Breiðablik)
86. mín
Inn:Ásgeir Galdur Guðmundsson (Breiðablik) Út:Kristinn Steindórsson (Breiðablik)
85. mín
Áhorfendur hér á Kópavogsvelli eru 2017.
84. mín
Inn:William Cole Campbell (FH) Út:Steven Lennon (FH)
84. mín
Inn:Arngrímur Bjartur Guðmundsson (FH) Út:Björn Daníel Sverrisson (FH)
81. mín
Inn:Sölvi Snær Guðbjargarson (Breiðablik) Út:Jason Daði Svanþórsson (Breiðablik)
81. mín
Anton Ari með misheppnaða sendingu sem endar í hornspyrnu.
79. mín
Vuk Oskar með bjartsýnistilraun að marki Blika.
77. mín
Inn:Dagur Dan Þórhallsson (Breiðablik) Út:Oliver Sigurjónsson (Breiðablik)
74. mín
Frábær fótbolti sem Blikar eru að bjóða uppá!
72. mín MARK!
Ísak Snær Þorvaldsson (Breiðablik)
Stoðsending: Davíð Ingvarsson
MAARK!

HVAÐ ER Í GANGI HÉRNA!?
Afmælisbarnið með sitt annað mark!
Aftur er það Davíð sem er að valda FH vandræðum sem á sendinguna fyrir markið sem Ísak Snær klippir í markið!
71. mín MARK!
Kristinn Steindórsson (Breiðablik)
MAARK!!

Davíð Ingvars með flott hlaup upp vænginn og kemur með fastan bolta fyrir sem Gunnar Nielsen missir í gegnum klofið og Ísak Snær reynir að tækla boltann inn en Logi Hrafn bjargar á línu en boltinn endar á endanum hjá Kidda Steindórs sem brást ekki bogalistinn og tvöfaldaði forystu Blika.
68. mín
FH aðeins náð að færa sig ofar á völlinn og vinna horn.
Ekkert verður hinsvegar úr því.
65. mín
Inn:Vuk Oskar Dimitrijevic (FH) Út:Baldur Logi Guðlaugsson (FH)
63. mín
Höskuldur finnur Viktor Karl sem rennur í skotinu en fær horn.
61. mín
Þetta virðist ekki ætla að vera spurning um hvort heldur hvenær Blikar ætla að bæta við marki.
58. mín
Pressan hjá Blikum er stórkostleg og FH virðist eiga afskaplega fá svör við henni.
57. mín
Ástbjörn dæmdur brotlegur þegar hann keyrir Ísak Snær niður. Þarf að passa sig því hann er á spjaldi.
56. mín
Hætta skapast í horninu en Blikar óheppnir og FH á sama tíma mjög heppnir að Ísak Snær náði ekki að leggja fyrir sig boltann sem datt dauður inn í teig.
55. mín
Jason Daði með frábæran sprett og nær skoti að marki sem Gunnar Nielsen ver í horn.
53. mín
Matti Vil að komast í ákjósanlega stöðu en sendingin fyrir markið var ekki góð og rann því út í sandinn.
50. mín
Jason Daði með flottan sprett upp að endamörkum og reynir sendingu fyrir markið en FH komast fyrir.
Blikar eru aðeins að skrúfa upp hitann.
48. mín
Steven Lennon með brot á Höskuldi. Hefðum sennilega einhvertíman séð spjald þarna en hann sleppur.
47. mín
Ísak Snær ekki langt frá því að bæta við stoðsendingu en FH bjara á ögurstundu frá Gísla Eyjólfs.
46. mín
Kiddi Steindórs á upphafssparkið í seinni hálfleik.
45. mín
Hálfleikur
+2
Gott sem flautumark frá Blikum í fyrri hálfleik.
45. mín MARK!
Ísak Snær Þorvaldsson (Breiðablik)
Stoðsending: Davíð Ingvarsson
+1

MAARK! BLIKAR KOMAST YFIR!
Ísak Snær og Davíð Ingvars spila vel sín á milli og lítið virtist vera í gangi en Ísak keyrir inn á teig og setur hann svo frábærlega á milli fóta Gunnars í marki FH!
45. mín
Fáum að minnsta kosti tvær mínútur í uppbótartíma.
43. mín
Jason Daði þræddur á bakvið vörn FH og kemst upp að endamörkum og reynir fyrirgjöf ætlaða Ísak Snæ inni í teig en Gunnar Nielsen grípur boltann.
40. mín
FH farnir að bíta frá sér. Steven Lennon kemst í gott skotfæri en Anton Ari ver í horn.
37. mín
Máni Austmann liggur eftir vistarskiptin sín við Ísak Snær. Fær aðhlýningu.
36. mín
FH hársbreidd frá því að vera komnir einn á markmann en Blikar ná að komast fyrir á ögurstundu.
34. mín
Blikarnir eru virkilega öflugir í pressunni og hafa unnið ófáa boltana tilbaka á vallarhelmingi FH en við bíðum enn eftir fyrsta alvöru færinu í leiknum.
30. mín Gult spjald: Ástbjörn Þórðarson (FH)
Ísak Snær fór illa með hann og Ástbjörn braut.
26. mín
Brotið á Gísla Eyjólfs og dæmt aukaspyrna. FH ekki sáttir og töldu sig hafa átt að fá aukaspyrnu rétt áður. Steven Lennon reynir að hjálpa Gísla á fætur við dræmar undirtektir.
24. mín
Má til með að hrósa þeim fjölda sem hafa gert sér ferð á völlinn en það er þétt setið sem er skemmtilegt að sjá og virðist ennþá vera streyma inn.
21. mín
Davíð Ingvas að leika sér að eldinum hérna. Brýtur á Ástbirni og er á spjaldi.
19. mín
FH ná máttlausu skoti að marki Blika en Anton Ari ekki í teljandi vandræðum.
17. mín
FH eru í örlitlu brasi með Blikna þessar fyrstu mínúturnar.
14. mín
Blikar að reyna þræða sig í gegn með flottu samspili en FH bjargar í horn.
12. mín Gult spjald: Davíð Ingvarsson (Breiðablik)
11. mín
Ísak Snær fær boltann og leggur hann út á Davíð Ingvars sem kemur með sendingu fyrir markið ætlaða Gísla Eyjólfs en FH bjarga í horn.
8. mín
Höskuldur kemst upp að endamörkum og nær að koma boltanum fyrir markið en boltinn ekki góður og FH nær að koma þessu frá.
6. mín
Baldur Logi með hornspyrnuna en hún svífur yfir alla og einhverjir FH-ingar falla í teignum en leikurinn heldur áfram.
6. mín
FH fær fyrstu hornspyrnu leiksins.
5. mín
Blikar við það að komast í færi en fyrsta snertingin sveik Davíð Ingvars þarna.
4. mín
Skotið ekki gott og yfir markið úr spyrnunni.
3. mín
Brotið á Gísla Eyjólfs og aukaspyrna dæmd á ákjósanlegum stað.
1. mín
Ísak Snær fékk afmælissönginn sunginn við upphafssparkið.
1. mín
FH byrjar leikinn.
Fyrir leik
Það er frábært veður og enginn ástæða til þess að láta sig vanta á völlinn!
Kópacabana heldur uppi stuðinu í stúkunni.
Fyrir leik
Heimamenn í Breiðablik mæta með óbreytt lið frá síðasta leik gegn KR.

FH gera þá þrjár breytingar breytingar. Haraldur Einar Ásgrímsson, Kristinn Freyr Sigurðsson og Finnur Orri Margeirsson detta út og inn koma Baldur Logi Guðlaugsson, Oliver Heiðarsson og Máni Austmann Hilmarsson.
Fyrir leik
Dómarar

Erlendur Eiríksson verður með flautuna í dag og honum til aðstoðar verða þeir Jóhann Gunnar Guðmundson og Andri Vigfússon.
Vilhjálmur Alvar Þórarinsson verður á skiltinu og Jón Magnús Guðjónsson mun sjá til þess að allt fari sómasamlega fram.


Fyrir leik
Tölfræði Breiðabliks eftir 2 umferðir lítur svona út:

Breiðablik
Sæti:1
Leikir:2
Sigrar:2
Jafntefli:0
Töp:0
Mörk skoruð:5
Mörk fengin á sig:1
Markatala:+4

Markahæstir:
Ísak Snær Þorvaldsson - 2 Mörk
Jason Daði Svanþórsson - 2 Mörk
Viktor Karl Einarsson - 1 Mark


Fyrir leik
Þegar 2 umferðir eru búnar af mótinu stendur tölfræði FH svona fyrir 3.umferð

FH
Sæti:8
Leikir:2
Sigrar:1
Jafntefli:0
Töp:1
Mörk skoruð:5
Mörk fengin á sig:4
Markatala:+1

Markahæstir:
Ólafur Guðmundsson - 1 Mark
Vuk Oskar Dimitrijevic - 1 Mark
Steven Lennon - 1 Mark
Máni Austmann Hilmarson - 1 Mark
Matthías Vilhjálmsson - 1 Mark


Fyrir leik
Heimamenn í Breiðablik hafa farið vel af stað og eru með fullt hús eftir fyrstu 2 umferðirnar.
Sigur á Keflavík í fyrstu umferð og sterkur útisigur gegn KR í síðustu umferð.

FH hafa verið örlítið hikstandi, töpuðu fyrsta leik gegn Íslands-og Bikarmeisturum Víkinga og eftir smá bras í síðasta leik gegn Fram náðu þeir að klára leikinn á lokamínútum leiksins.
Fyrir leik
Komið margblessuð og sæl og verið hjartanlega velkominn í þráðbeina textalýsingu frá Kópavogsvelli þar sem heimamenn í Breiðablik fá hafnfriðingana í FH í heimsókn.


Byrjunarlið:
1. Gunnar Nielsen (m)
4. Ólafur Guðmundsson
7. Steven Lennon ('84)
9. Matthías Vilhjálmsson (f)
10. Björn Daníel Sverrisson (f) ('84)
16. Guðmundur Kristjánsson
17. Baldur Logi Guðlaugsson ('65)
22. Oliver Heiðarsson ('88)
22. Ástbjörn Þórðarson ('88)
23. Máni Austmann Hilmarsson
34. Logi Hrafn Róbertsson

Varamenn:
32. Atli Gunnar Guðmundsson (m)
3. Haraldur Einar Ásgrímsson
23. Vuk Oskar Dimitrijevic ('65)
26. William Cole Campbell ('84)
33. Úlfur Ágúst Björnsson ('88)
40. Arngrímur Bjartur Guðmundsson ('84)

Liðsstjórn:
Ólafur Jóhannesson (Þ)
Ólafur H Guðmundsson
Fjalar Þorgeirsson
Jóhann Ægir Arnarsson
Kári Sveinsson
Sigurbjörn Örn Hreiðarsson
Jóhann Emil Elíasson
Jón Páll Pálmason

Gul spjöld:
Ástbjörn Þórðarson ('30)

Rauð spjöld: