Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
KA
0
2
Stjarnan
0-1 Ísak Andri Sigurgeirsson '22
0-2 Emil Atlason '70
Steingrímur Örn Eiðsson '71
21.05.2022  -  16:00
Dalvíkurvöllur
Besta-deild karla
Dómari: Elías Ingi Árnason
Maður leiksins: Daníel Laxdal
Byrjunarlið:
13. Steinþór Már Auðunsson (m)
Hallgrímur Mar Steingrímsson ('76)
3. Dusan Brkovic
4. Rodrigo Gomes Mateo
5. Ívar Örn Árnason (f)
7. Daníel Hafsteinsson
8. Sebastiaan Brebels ('63)
21. Nökkvi Þeyr Þórisson
26. Bryan Van Den Bogaert ('46)
27. Þorri Mar Þórisson
30. Sveinn Margeir Hauksson ('63)

Varamenn:
12. Kristijan Jajalo (m)
2. Oleksii Bykov ('46)
9. Elfar Árni Aðalsteinsson ('63)
14. Andri Fannar Stefánsson
23. Steinþór Freyr Þorsteinsson ('76)
29. Jakob Snær Árnason
77. Bjarni Aðalsteinsson ('63)

Liðsstjórn:
Hallgrímur Jónasson (Þ)
Arnar Grétarsson (Þ)
Halldór Hermann Jónsson
Petar Ivancic
Branislav Radakovic
Steingrímur Örn Eiðsson
Igor Bjarni Kostic

Gul spjöld:
Rodrigo Gomes Mateo ('45)
Ívar Örn Árnason ('71)
Daníel Hafsteinsson ('91)

Rauð spjöld:
Steingrímur Örn Eiðsson ('71)
Leik lokið!
Þrjú stig í Garðabæinn!
94. mín
Nökkvi með skot úr aukaspyrnu sem Halli ver og heldur boltanum.
93. mín
Haurits skorar en hann er flaggaður rangstæður.
93. mín
Nökkvi með fyrirgjöf sem fer yfir allan pakkann.
91. mín Gult spjald: Daníel Hafsteinsson (KA)
Fer af krafti í Ísak og fær verðskuldað spjald.
88. mín
Inn:Einar Karl Ingvarsson (Stjarnan) Út:Daníel Laxdal (Stjarnan)
87. mín
KA reynir að sækja en gengur ekkert.
83. mín
Inn:Oliver Haurits (Stjarnan) Út:Emil Atlason (Stjarnan)
80. mín
Bjarni með skot úr aukaspyrnu sem Halli er í brasi með. KA fær horn og Bjarni finnur Ívar inná markteig en skallinn yfir!
79. mín
Inn:Óskar Örn Hauksson (Stjarnan) Út:Jóhann Árni Gunnarsson (Stjarnan)
79. mín Gult spjald: Eggert Aron Guðmundsson (Stjarnan)
76. mín
Inn:Steinþór Freyr Þorsteinsson (KA) Út:Hallgrímur Mar Steingrímsson (KA)
74. mín
Nökkvi kemst í boltann inná teignum en skotið frá honum fer hátt yfir.
73. mín
KA á hornspyrnu.
71. mín Gult spjald: Ívar Örn Árnason (KA)
71. mín Rautt spjald: Steingrímur Örn Eiðsson (KA)
Mótmæli í kjölfar marksins.
70. mín MARK!
Emil Atlason (Stjarnan)
Einföld skyndisókn, sending innfyrir af vallarhelmingi Stjörnunnar og vörn KA er galopin. Emil er einn á móti Stubbi og rennir boltanum í netið.
67. mín
KA á hornspyrnu en gestirnir ná að hreinsa.
63. mín
Inn:Bjarni Aðalsteinsson (KA) Út:Sebastiaan Brebels (KA)
63. mín
Inn:Elfar Árni Aðalsteinsson (KA) Út:Sveinn Margeir Hauksson (KA)
62. mín
Stjarnan verið að ógna síðustu mínútur án þess að eiga tilraun.
57. mín
Eggert með tilraun en hún fer í varnarmann KA.

Heimamenn eru að sækja samt þessar síðustu mínútur en gengur illa að opna vörn gestanna.
52. mín
Nökkvi fær boltann við teig Stjörnunnar og á góða tilraun. Halli skutlar sér og ver til hliðar.
50. mín
Daníel Laxdal með skot yfir mark KA.
49. mín
Ívar í brasi og Eggert vinnur boltann við teig KA. Eggert skýtur en Stubbur er alltaf með þetta.
48. mín
Bykov með fasta fyrirgjöf sem Haraldur er í smá brasi með og Þórarinn hreinsar í horn.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn!
46. mín
Inn:Eggert Aron Guðmundsson (Stjarnan) Út:Ólafur Karl Finsen (Stjarnan)
46. mín
Inn:Oleksii Bykov (KA) Út:Bryan Van Den Bogaert (KA)
45. mín
Hálfleikur
Stjarnan leiðir og það má alveg segja verðskuldað. Heimamenn aðeins farnir að láta Elías dómara fara í taugarnar á sér.
45. mín
Óli Kalli skallar boltann á Emil sem á tilraun en framhjá fór skotið.
45. mín Gult spjald: Rodrigo Gomes Mateo (KA)
Brýtur á Adolf, fannst hann fara í boltann en Adolf féll. Erfitt að meta þetta. Rodri ekki sáttur.
43. mín
Þorri með fyrirgjöf sem finnur Svein en tilraun hans fer hátt yfir mark Stjörnunnar.
42. mín
Nökkvi slæsar boltann í teignum og sókn KA endar á því að Bryan brýtur af sér. Ekki alveg að ganga upp hjá gulum.
37. mín
Óli og Bryan í kapphlaupi, Bryan grípur aðeins í Óla og er dæmdur brotlegur við vítateig Stjörnunnar.
34. mín
Bryan kominn inná aftur.
33. mín
KA einum færri sem stendur. Daníel leysir vinstri bakvörðinn.
31. mín
Bryan situr á vellinum. Bykov er að undirbúa sig á bekknum, gæti verið skipting.
30. mín
Óli Kalli fellur í vítateig KA, veik köll frá gestunum en þetta var ekki neitt.
28. mín
Emil fær aðhlynningu en er komin inná aftur.
27. mín
Daníel vinnur hornspyrnu fyrir KA.

Ívar reynir að komast í boltann, varnarmaður Stjörnunnar skallar í burtu og Emil Atlason liggur eftir.
25. mín
Þorri með skot úr teig Stjörnunnar sem fer í hliðarnetið. Engin hætta.
22. mín MARK!
Ísak Andri Sigurgeirsson (Stjarnan)
Stoðsending: Óli Valur Ómarsson
Óli Valur með sendingu hægra megin úr teignum, Ísak fær boltann, á snertingu til hægri og á rosalegt skot úr vítateig KA! Boltinn í þverslána og inn!
20. mín
Jóhann þræðir boltanum inn á Daníel sem á tilraun en Stubbur rennir sér út á móti og bjargar því sem bjarga varð. Jóhann með alltof mikinn tíma við teiginn!
19. mín
Emil gerir vel inn á teig heimamanna, nær að snúa en skottilraun hans fer vel yfir mark KA.
16. mín
Tvær ódýrar aukaspyrnur sem Stjarnan hefur fengið og bekkur KA ekki ánægður með það.
15. mín
Brebels með skottilraun af löngu færi en boltinn í leikmann Stjörnunnar og í innkast.
14. mín
Ekkert kom upp úr hornspyrnunni.
13. mín
KA gerði ekki nógu vel með sína hornspyrnu og Stjarnan komst í skyndisókn. Stjarnan á aukaspyrnu sem Jóhann tekur inn á teiginn en hún er skölluð aftur fyrir og Stjarnan á horn.
11. mín
Nökkvi gerir vel gegn Birni og Daníel kemst í skotfæri. Skömmu síðar fær KA sitt fyrsta horn.
8. mín
Stubbur í vandræðum en KA nær að hreinsa.
7. mín
Ísak með tilraun í varnarmann og Stjarnan á annað horn.
6. mín
Jóhann reynir að finna Adolf á teignum en Rodri kemst á milli og hreinsar í horn.
5. mín
Fín sókn hjá KA sem endar með því að Hallgrímur reynir að finna Svein á fjær en boltinn aðeins of hár.
2. mín
Stjarnan
Haraldur
Óli - Björn - Sindri - Þórarinn
Daníel
Jóhann - Ólafur
Adolf - Emil - Ísak
2. mín
KA
Stubbur
Þorri - Dusan - Ívar - Bryan
Rodri
Daníel - Brebels
Sveinn - Nökkvi - Hallgrímur
1. mín
Leikur hafinn
Stjarnan byrjar með boltann.
Fyrir leik
Arnar Grétarsson gerir eina breytingu á liði sínu sem gerði góða ferð á Skagann í síðustu umferð og vann ÍA 3-0. Elfar Árni Aðalsteinsson sest á bekkinn og Sebastian Brebels kemur inná í hans stað.

Stjarnan vann sterkan sigur á Val 1-0 í síðustu umferð. Oliver Haurits skoraði eina markið í uppbótartíma. Það er ein breyting á byrjunarliðinu frá þeim leik. Ísak Andri Sigurgeirsson kemur inn í liðið, Eggert Aron Guðmundsson fær sér sæti á bekknum.
Fyrir leik
Dómarinn

Dómari leiksins er Elías Ingi Árnason og honum til aðstoðar eru Antoníus Bjarki Halldórsson og Sveinn Þórður Þórðarson. Eftirlitsmaður er Vilhelm Adolfsson og varadómari er Sigurður Hjörtur Þrastarson.


Elías sér um flautukonsertinn í dag.
Daníel Smári Magnússon
Fyrir leik
Lærisveinar Ágústs Gylfasonar í Stjörnunni hafa einnig farið ágætlega af stað og hafa nú þegar spilað á móti þremur af sterkustu liðum deildarinnar í Val, Breiðabliki og Víkingi R. Nú síðast vann liðið einkar sætan sigur á Völsurum, þar sem að Oliver Haurits skoraði sigurmarkið í uppbótartíma eftir undirbúning Óskars Arnar Haukssonar. Þeir verma 4. sæti deildarinnar með 11 stig, eftir 6 leiki.

Í liði Stjörnunnar hefur framherjinn Emil Atlason komið skemmtilega á óvart og byrjað tímabilið af krafti. 6 mörk í 6 leikjum er uppskeran hingað til og afgreiðslurnar hver annarri glæsilegri. Hann hefur nú þegar bætt sína bestu markatölfræði í efstu deild og það er vonandi fyrir Garðbæinga að hann stoppi ekki alveg strax.


Emil hefur skorað í fjórum af sex leikjum Stjörnunnar á tímabilinu.
Daníel Smári Magnússon
Fyrir leik
Heimamenn í KA hafa farið virkilega vel af stað í deildinni og sitja í 2. sæti með 16 stig eftir 6 umferðir - þremur stigum á eftir toppliði Breiðabliks sem að eru með fullt hús stiga, eða 18 stig.

Liðið hefur aðeins fengið á sig tvö mörk, bæði í 3-2 sigri á Keflavík og hefur skorað 11. Dalvíkingurinn Nökkvi Þeyr Þórisson hefur farið afar vel af stað og skorað fjögur mörk í upphafi móts - þar af sigurmörk á lokamínútunum gegn Keflavík og FH. Á hinum enda vallarins hefur Ívar Örn Árnason komið virkilega sterkur inn í miðvarðarstöðuna og hefur þrívegis verið valinn í lið umferðarinnar hjá Fótbolta.net


Ívar Örn hefur byrjað mótið frábærlega.
Daníel Smári Magnússon
Fyrir leik
Góðan daginn! Hér mun fara textalýsing á leik KA og Stjörnunnar í Bestu deild karla.
Daníel Smári Magnússon
Byrjunarlið:
Haraldur Björnsson
Björn Berg Bryde
4. Óli Valur Ómarsson
6. Sindri Þór Ingimarsson (f)
7. Ísak Andri Sigurgeirsson
8. Jóhann Árni Gunnarsson ('79)
9. Daníel Laxdal ('88)
11. Adolf Daði Birgisson
15. Þórarinn Ingi Valdimarsson
17. Ólafur Karl Finsen ('46)
22. Emil Atlason ('83)

Varamenn:
33. Viktor Reynir Oddgeirsson (m)
7. Eggert Aron Guðmundsson ('46)
7. Einar Karl Ingvarsson ('88)
10. Hilmar Árni Halldórsson
18. Guðmundur Baldvin Nökkvason
19. Daníel Finns Matthíasson
23. Óskar Örn Hauksson ('79)
99. Oliver Haurits ('83)

Liðsstjórn:
Ágúst Þór Gylfason (Þ)
Jökull I Elísabetarson (Þ)
Davíð Sævarsson
Rajko Stanisic
Audrey Freyja Clarke
Þór Sigurðsson

Gul spjöld:
Eggert Aron Guðmundsson ('79)

Rauð spjöld: