Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
Kórdrengir
4
3
Selfoss
0-1 Gonzalo Zamorano '14
0-2 Hrvoje Tokic '23 , víti
Sverrir Páll Hjaltested '58 , víti 1-2
Sverrir Páll Hjaltested '65 2-2
Arnleifur Hjörleifsson '67 3-2
Þórir Rafn Þórisson '68 4-2
4-3 Hrvoje Tokic '79 , víti
16.06.2022  -  19:15
Framvöllur
Lengjudeild karla
Aðstæður: 11 gráður og skýjað, smá vindur
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason
Maður leiksins: Sverrir Páll Hjaltested
Byrjunarlið:
12. Daði Freyr Arnarsson (m)
4. Fatai Gbadamosi
5. Loic Mbang Ondo (f)
6. Hákon Ingi Einarsson ('75)
8. Kristján Atli Marteinsson
10. Þórir Rafn Þórisson ('91)
14. Iosu Villar
15. Arnleifur Hjörleifsson
17. Gunnlaugur Fannar Guðmundsson
22. Nathan Dale
77. Sverrir Páll Hjaltested ('79)

Varamenn:
1. Óskar Sigþórsson (m)
7. Marinó Hilmar Ásgeirsson ('91)
9. Daníel Gylfason
19. Kristófer Jacobson Reyes ('75)
20. Óskar Atli Magnússon ('79)
21. Guðmann Þórisson
33. Magnús Andri Ólafsson

Liðsstjórn:
Davíð Smári Lamude (Þ)
Logi Már Hermannsson
Hilmar Þór Hilmarsson
Heiðar Helguson
Jóhann Ólafur Schröder
Jóhann Ólafur Sveinbjargarson
Unnar Arnarsson

Gul spjöld:
Gunnlaugur Fannar Guðmundsson ('22)
Sverrir Páll Hjaltested ('25)
Hákon Ingi Einarsson ('44)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Þessum ótrúlega leik er hér lokið og eru það Kórdrengir sem taka 3 stigin eftir geggjaða endurkomu!

Viðtöl og skýrsla koma innan skams.
93. mín
Kórdrengir fá aukaspyrnu hjá hornfána Selfyssinga.
93. mín
Kórdrengir ná að halda boltanum hér mun betur en Selfyssingar.
92. mín
Kórdrengir tefja hér hjá hornfána Selfyssinga.
91. mín
Inn:Marinó Hilmar Ásgeirsson (Kórdrengir) Út:Þórir Rafn Þórisson (Kórdrengir)
90. mín
Kórdrengir fá hér aukaspyrnu hjá hornfána Selfyssinga.
90. mín Gult spjald: Chris Jastrzembski (Selfoss)

87. mín
Darraðadans hér í teig Kórdrengja en heimamenn ná að hreinsa boltanum frá.
84. mín
Hrovje Tokic fær hér boltann frá Gonza í teig Kórdrengja en skotið fer yfir markið, Selfyssingar sækja hér grimmt.
79. mín
Inn:Óskar Atli Magnússon (Kórdrengir) Út:Sverrir Páll Hjaltested (Kórdrengir)
79. mín Mark úr víti!
Hrvoje Tokic (Selfoss)
ÞVÍLÍKUR LEIKUR!

Tokic tekur í sama horn og nánast sama víti Daði fer í rétta átt en nær ekki að verja!
Ná Selfyssingar að jafna leikinn?
78. mín
ÞRIÐJA VÍTIÐ Í LEIKNUM!

Valdimar Jóhannson tekinn niður í teignum eftir frábæran undirbúning!
75. mín
Inn:Kristófer Jacobson Reyes (Kórdrengir) Út:Hákon Ingi Einarsson (Kórdrengir)
70. mín
Inn:Valdimar Jóhannsson (Selfoss) Út:Adam Örn Sveinbjörnsson (Selfoss)
70. mín
Kórdrengir halda áfram að sækja hvergi nærri hættir!
68. mín MARK!
Þórir Rafn Þórisson (Kórdrengir)
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA!!!

Er ennþá að skrifa um síðasta mark Kórdrengja og þeir skora aftur!
Þórir kominn einn í gegn og sólar Stefán markmann Selfyssinga og rennir boltanum í autt markið. Hvað er í gangi hérna í Safamýrinni þvílíka endurkoman!!!
67. mín MARK!
Arnleifur Hjörleifsson (Kórdrengir)
ÞVÍLIK ENDURKOMA!!!

Arnleifur er á vinstri kantinum kominn í teig Selfyssinga og tekur skotið sem fer í varnarmann Selfoss og inn í netið!!!
Kórdrengir allt annað lið hér í seinni hálfleik!
65. mín MARK!
Sverrir Páll Hjaltested (Kórdrengir)
KÓRDRENGIR JAFNA!!!

Arnleifur kemur með frábæra fyrirgjöf og Sverrir Páll er á fjærstöng og stekkur hæst og nær að stýra boltanum niður í hægra hornið og í netið.
Frábært mark!
64. mín
Inn:Ívan Breki Sigurðsson (Selfoss) Út:Jón Vignir Pétursson (Selfoss)
61. mín
Kórdrengir komu allt aðrir í seinni hálfleikinn mikill andi í heimamönnum þessa stundina!
58. mín Mark úr víti!
Sverrir Páll Hjaltested (Kórdrengir)
Sverrir Páll skorar af öryggi rennir boltanum niðri í hægra hornið og sendir markmanninn í rangt horn.
Komið líf í leikinn!
57. mín
Kórdrengir fá víti!!!

Sé ekki hver en það er einhver rifinn niður í teignum í hornspyrnunni. Sverrir Páll tekur!
57. mín
Kórdrengir fá hornspyrnu þeir eru að vakna!
55. mín
Selfyssingar skalla aukaspyrnuna frá aen boltinn kemur aftur inn og er það Gunnlaugur hafsent Kórdrengja sem fær boltann en tekur laust skot sem Stefán handsamar.
55. mín
Kórdrengir fá hér aukaspyrnu í fyrirgjafafæri.
54. mín
SELFYSSINGAR HEPPNIR!

Hákon Ingi er við endalínu og kemur með fasta fyrirgjöf boltinn fer í Stefán markmann og í stöngina og út!
49. mín
TÆPT!

Gonzalo tekur skotið og boltinn fer rétt yfir markið, í skamma stund hélt ég að boltinn væri á leiðinni inn í netið.
48. mín
Selfyssingar fá hér aukaspyrnu rétt fyrir utan teig Kórdrengja, Gonzalo Zamorano tekur.
46. mín
Leikur hafinn
Gunnar Oddur dómari leiksins flautar seinni hálfleik hér af stað og eru það Kórdrengir sem byrja með boltann.
45. mín
Inn:Þorlákur Breki Þ. Baxter (Selfoss) Út:Gary Martin (Selfoss)
45. mín
Hálfleikur
Gunnar Oddur flautar hér til loks fyrri hálfleiks, staðan 2-0 fyrir gestunum.
45. mín
Stefán grípur boltann úr horninu.
45. mín
Kórdrengir fá hér horn.
44. mín Gult spjald: Hákon Ingi Einarsson (Kórdrengir)
Hákon fær hér gult fyrir tuð.
43. mín
DAUÐAFÆRI!

Fatai fær boltann keyrir á vörn Selfyssinga og sendir boltann í gegnum hjartað á vörninni og Arnleifur er kominn einn í gegn en þrusar boltanum framhjá.
42. mín
Selfyssingar taka stutt horn en ekkert kemur upp úr því.
41. mín
Selfyssingar fá hér horn eftir fyrirgjöf frá Ingva Rafn sem Arnleifur nær að verjast vel og í horn
37. mín
Mikill pirringur í Kórdrengja liðinu þessa stundina.
35. mín
Jón Vignir tekur spyrnuna og er hún fyrirgjöf sem engin snertir og aftur fyrir endamörk fer boltinn.
35. mín
Selfoss fær hér aukaspyrnu á miðjum vallarhelming Kórdrengja.
33. mín
Arnleifur tekur hornið og er það Nathan Dale sem nær skallanum sem fer framhjá og í markspyrnu.
32. mín
Kórdrengir sækja nú og uppskera horn.
28. mín
Gary Martin tekur spyrnuna og fer hún í hliðarnetið, þarna munaði mjóu.
27. mín
Fatai brýtur hér á Gary Martin rétt fyrir utan teiginn, stórhættulegt færi.
25. mín Gult spjald: Sverrir Páll Hjaltested (Kórdrengir)
Fær hér gult spjald vegna tuðs.
23. mín Mark úr víti!
Hrvoje Tokic (Selfoss)
Tokic tekur vítið sjálfur og skorar það örugglega uppi vinstri, Daði fer í rétta átt en á ekki séns.
22. mín Gult spjald: Gunnlaugur Fannar Guðmundsson (Kórdrengir)
22. mín
VÍTII!!!

Gunnlaugur tekur Tokic niður í teignum algjört víti!
Klaufalegur varnaleikur hjá Gunnlaugi.
22. mín
Gonzalo Zamorano tekur hér þrumuskot fyrir utan teig en yfir fer boltinn
20. mín
Arnleifur tekur hornið en Gary Martin nær að hreinsa boltann frá.
20. mín
Kórdrengir fá hér horn.
16. mín
Selfyssingar halda áfram að sækja eftir markið Danijel Majkic á skot fyrir utan teig sem fer yfir.
14. mín MARK!
Gonzalo Zamorano (Selfoss)
MAAARK!!!

Selfyssingar taka hornið stutt Gonzalo fær boltann fyrir utan teig tekur einn tvo við Gary Martin og tekur skotið sem endar í netinu.

Frábærlega vel útsett hornspyrna!
14. mín
Þormar kemur með fyrirgjöf sem er skölluð frá og í horn
12. mín
Ekkert kom úr horni gestanna Kórdrengjir ná boltanum og æða í skyndisókn sem er á endanum stöðvuð, Selfyssingar nú með boltann.
11. mín
Gonzalo tekur skot hérna í teig Kórdrengja sem Daði þarf að slá yfir markið og í horn.
6. mín
Stefán grípur horn Kórdrengja.
4. mín
Þórir fær hér frábæran bolta inn fyrir úr öftustu línu þar sem hann er í einn á einn stöðu við Stefán markmann Selfyssinga en Stefán ver vel í horn. Þórir liggur niðri eftir skotið þar sem hann og Stefán rukust saman.
2. mín
Ekkert hættulegt kemur úr horninu.
1. mín
Aron Darri kemur með hættulegan bolta fyrir en Arnleifur kemur hættunni frá og í horn.
1. mín
Leikur hafinn
Gunnar Oddur flautar leikinn hér af stað og eru það gestirnir sem byrja með boltann og sækja í átt að safamýrinni.
Fyrir leik
Liðin ganga hér inn á völlinn nú styttist í veisluna!
Fyrir leik
Byrjunarliðin komin inn!

Dean Martin gerir eina breytingu á liði sínu Danijel Majkic kemur inn í stað Arons Einarssonar

Davíð Smári gerir tvær breytingar á sínu liði þeir Sverrir Páll Hjaltested og Hákon Ingi Einarsson koma inn í liðið í stað Daníel Gylfasonar og Kristófer Reyes.



Fyrir leik
Kórdrengir

Heimamenn í Kórdrengjum eru í 7 sæti deildarinnar með 7 stig. Þeir hafa þó aðeins tapað 1 leik af 6 en gert jafntefli í 4 og unnið 1 leik. Áhugavert er að sjá að bæði lið hafa aðeins fengið á sig 6 mörk í 6 leikjum.


Fyrir leik
Selfoss

Selfyssingar hafa byrjað tímabilið ótrúlega vel og tróna þeir á toppi Lengjudeildarinnar með 14 stig eftir 6 leiki og eru enn ósigraðir, spennandi að sjá hvort það haldist eftir leik kvöldsins.


Fyrir leik
Góðan og blessaðan daginn lesendur góðir og veriði hjartanlega velkomin í þráðbeina textalýsingu frá leik milli Kórdrengja og Selfoss í 7. umferð Lengjudeild karla.

Leikurinn fer fram í Safamýri og má búast við hörkuskemmtun þar í kvöld!


Byrjunarlið:
1. Stefán Þór Ágústsson (m)
2. Chris Jastrzembski
3. Þormar Elvarsson
5. Jón Vignir Pétursson (f) ('64)
6. Danijel Majkic
7. Aron Darri Auðunsson
8. Ingvi Rafn Óskarsson
9. Hrvoje Tokic
10. Gary Martin ('45)
19. Gonzalo Zamorano
22. Adam Örn Sveinbjörnsson ('70)

Varamenn:
12. Arnór Elí Kjartansson (m)
2. Ívan Breki Sigurðsson ('64)
4. Jökull Hermannsson
17. Valdimar Jóhannsson ('70)
24. Elfar Ísak Halldórsson
25. Sesar Örn Harðarson
45. Þorlákur Breki Þ. Baxter ('45)

Liðsstjórn:
Dean Martin (Þ)
Þorsteinn Daníel Þorsteinsson
Stefán Logi Magnússon
Arnar Helgi Magnússon
Atli Rafn Guðbjartsson
Guðjón Björgvin Þorvarðarson
Bára Kristbjörg Rúnarsdóttir

Gul spjöld:
Chris Jastrzembski ('90)

Rauð spjöld: