Eduardo Camavinga, Adam Wharton, Julian Brandt, Elliot Anderson og fleiri koma við sögu í slúðurpakka dagsins.
Real Madrid mun hlusta á tilboð í franska miðjumanninn Eduardo Camavinga, 23, í sumar en nokkur félög í ensku úrvalsdeildinni hafa sýnt honum áhuga. (Marca)
Arseenal er í viðræðum við RB Leipzig um kaup á franska miðjumanninum Castello Lukeba, 23. (L'Equipe)
Chelsea, Liverpool og Man Utd munu berjast um að fá enska miðjumanninn Adam Wharton, 22, frá Crystal Palace. (Football Insider)
Chelsea og Man Utd eru einnig tvö af þeim félögum sem eru í baráttunni um hinn 19 ára gamla Said el Mala sem er þýskur framherji Köln. (Caughtoffside)
Aston Villa er í baráttu við nokkur félög í Evrópu um þýska miðjumanninn Julian Brandt en samningur hans við Dortmund rennur út í sumar. (Fichajes)
Newcastle gæti fengið Elliot Anderson, 23, aftur en þessi enski miðjumaður Nottingham Forest er talinn vera fullkominn til að taka við af brasilíska miðjumanninum Bruno Guimaraes, 28, eða ítalskamiðjumanninum Sandro Tonali, 25, ef annar hvor þeirra yfirgefur félagið. (Teamtalk)
Brasilíumaðurinn Alisson, 33, markvörður LIverpool er undir smásjá Juventus. (Gazzetta dello Sport)
Man Utd og Liverpool eru fremst í kapphlaupinu um Yan Diomande, 19, vængmann Leipzig eftir að Bayern dró sig úr kapphlaupinu um Fílabeinsstrendinginn. (Christian Falk)
Manchester City vill tryggja að enski miðjumaðurinn Phil Foden, 25 ára, verði áfram hjá félaginu eftir að núverandi samningur hans rennur út árið 2027 og vilja hraða ferlinu við að ganga frá nýjum samningi. (Football Insider)
Man Utd er tilbúið að borga um 100 milljónir evra riftunarákvæði í samningi Nico Williams, 23, vængmanns Athletic Club. (Fichajes)
Liverpool ætlar að semja við skoska varnarmanninn Dara Jikiemi, 16, eftir að hann hafnaði þriggja ára samningstilboði frá Celtic. (Teamtalk)
Athugasemdir



