Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
Í BEINNI
Úrslitaleikur Lengjubikars kvenna
Valur
86' 2
1
Breiðablik
Afturelding
0
1
HK
0-1 Stefán Ingi Sigurðarson '48
05.08.2022  -  19:15
Malbikstöðin að Varmá
Lengjudeild karla
Aðstæður: Skýjað og 13 gráður
Dómari: Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson
Áhorfendur: 411
Maður leiksins: Arnar Freyr Ólafsson
Byrjunarlið:
1. Esteve Pena Albons (m)
2. Gunnar Bergmann Sigmarsson
6. Aron Elí Sævarsson (f)
9. Javier Ontiveros Robles
10. Kári Steinn Hlífarsson ('83)
11. Gísli Martin Sigurðsson (f) ('90)
14. Jökull Jörvar Þórhallsson ('62)
17. Ásgeir Frank Ásgeirsson
20. Marciano Aziz
21. Elmar Kári Enesson Cogic
33. Andi Hoti

Varamenn:
12. Arnar Daði Jóhannesson (m)
4. Sigurður Kristján Friðriksson
7. Sigurður Gísli Bond Snorrason ('83)
7. Hallur Flosason ('90)
8. Guðfinnur Þór Leósson ('62)
26. Hrafn Guðmundsson

Liðsstjórn:
Magnús Már Einarsson (Þ)
Baldvin Jón Hallgrímsson
Þorgeir Leó Gunnarsson
Enes Cogic
Sævar Örn Ingólfsson
Amir Mehica
Davíð Örn Aðalsteinsson

Gul spjöld:
Aron Elí Sævarsson ('66)
Gunnar Bergmann Sigmarsson ('85)
Ásgeir Frank Ásgeirsson ('93)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Aðalbjörn Heiðar flautar til leiksloka!
Spennuþrungnar lokamínútur en HK hélt leikinn út og styrkir stöðu sína á toppnum.

Viðtöl og skýrsla innan skams.
93. mín Gult spjald: Ásgeir Frank Ásgeirsson (Afturelding)
93. mín
Örvar skorar en dæmd rangstaða á HK.
90. mín
Inn:Hallur Flosason (Afturelding) Út:Gísli Martin Sigurðsson (Afturelding)
89. mín
Afturelding fær aukaspyrnu utarlega í fyrirgjafastöðu, darraðadans í teignum en HK kemur boltanum burt.
87. mín Gult spjald: Birkir Valur Jónsson (HK)
85. mín Gult spjald: Gunnar Bergmann Sigmarsson (Afturelding)
83. mín
Inn:Sigurður Gísli Bond Snorrason (Afturelding) Út:Kári Steinn Hlífarsson (Afturelding)
77. mín
Heimamenn sækja grimmt þessa stundina.
76. mín
Inn:Hassan Jalloh (HK) Út:Bjarni Páll Linnet Runólfsson (HK)
70. mín
JA HÉRNA HÉR!!!

Javier Robles á gott skot í teignum sem Arnar Freyr ver og boltinn fer fyrir aftan Arnar og sýnist mér boltinn fara yfir línuna áður en Arnar nær boltanum aftur. Dómarar leiksins dæma svo furðulega rangstöðu á sóknarmann Aftureldingar!
67. mín
Birkir Valur með góða fyrirgjöf sem ratar á kollinn á Stefáni Inga en boltinn fer yfir.
66. mín Gult spjald: Aron Elí Sævarsson (Afturelding)
65. mín
Inn:Oliver Haurits (HK) Út:Ásgeir Marteinsson (HK)
62. mín
Geggjuð varsla!
Kári Steinn kominn í góða stöðu í teig HK tekur gott skot en Arnar Freyr ver frábærlega.
62. mín
Inn:Guðfinnur Þór Leósson (Afturelding) Út:Jökull Jörvar Þórhallsson (Afturelding)
61. mín
Afturelding fær horn, Aziz tekur hornið og kemur boltanum á Ásgeir Frank en hann skallar boltann yfir markið.
56. mín
HK fær aukaspyrnu u.þ.b. 10 metrum frá teignum, ágætis skotfæri. Ásgeir Marteins skýtur góðu skoti en Esteve Albons ver boltann í horn. Afturelding kemur boltanum frá úr horninu.
48. mín MARK!
Stefán Ingi Sigurðarson (HK)
Stefán Ingi að koma HK-ingum yfir!

HK fá horn en boltanum komið frá, Ívar Örn kemur boltanum aftur í svæðið, klafs í teignum og Stefán Ingi kemur sér í skotfæri og skorar.
Mjög vel gert hjá manninum sem hættir ekki að skora!
47. mín
Gott færi HK!
Örvar Eggerts með boltann í teig Aftureldingar rennir boltanum til hliðar á Stefán Inga sem neglir á markið en Esteve Albons ver skotið vel.
46. mín
Javier Robles sparkar seinni hálfleiknum hér af stað!
46. mín
Inn:Ívar Orri Gissurarson (HK) Út:Atli Arnarson (HK)
45. mín
Hálfleikur
Aðalbjörn flautar hér til hálfleiks. Afturelding byrjaði betur en HK gaf í og tóku völdin í seinni hluta fyrri hálfleiks. Ennþá allt jafnt hér á Malbikstöðinni að Varmá.
42. mín
Elmar Kári keyrir hér inn í teig HK og þrír vararmenn í honum, Elmar fellur niður, heimamenn heimta víti en Aðalbjörn dæmir ekkert.
38. mín Gult spjald: Stefán Ingi Sigurðarson (HK)
Fer hressilega í Esteve Albons, markmann Aftureldingar.
38. mín
Arnþór Ari vinnur boltann hátt uppi á vellinum gefur boltann, fær hann svo aftur og tekur skotið sem fer yfir.
36. mín
HK fær horn, Ásgeir Marteins tekur Bruno nær að koma hausnum í boltann en boltinn fer framhjá.
35. mín
Leikurinn búinn að róast síðustu mínútur en HK-ingar ná að halda betur í boltann.
22. mín
Fínasta tilraun hjá Atla!
Atli Arnars tekur gott skot á lofti fyrir utan teig, Esteve Albons slær hann aftur út í teiginn og varnarmenn Aftureldingar hreinsa boltanum í horn. Ekkert kom úr horni HK-inga.
13. mín
Í öðru horni HK fær Bjarni Páll aftur boltann og skýtur aftur í varnarmann og í þriðja horn HK í röð. Ekkert kemur úr þriðja horni HK-inga.
12. mín
HK fær horn, Ívar Örn tekur boltanum skallað frá en Bjarni Páll Linnet á þrumuskot sem fer í varnarmann og í annað horn.
9. mín
Afturelding að fá þriðja hornið í röð, Ásgeir Frank nær skalla sem er skallaður aftur út í teiginn, Robles reynir skotið sem komið er frá og að lokum koma HK-ingar boltanum frá.
8. mín
Aziz klobbar hér Bruno en nær ekki boltanum eftir það en fær aukaspyrnu. Aziz tekur sjálfur aukaspyrnuna sem endar með því að Birkir Valur skallar boltann aftur í horn.
2. mín
Afturelding að byrja þetta af krafti Elmar Kári fær boltann inn í teig með nokkra varnarmenn HK í sér og nær einhvernvegin skoti. En skotið er aumt og engin hætta fyir Arnar Frey í marki HK.
1. mín
Leikur hafinn
Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson flautar leikinn af stað og eru það HK-ingar sem byrja með boltann.
Fyrir leik
Leikmenn ganga hér út á völl, aðeins örfáar mínútur í að veislan hefjist.
Fyrir leik
Byrjunarliðin komin inn!

Heimamenn gera engar breytingar frá síðasta leik, enda engin þörf þar sem þeir völtuðu yfir Selfoss 4-1.

HK-ingar gera eina breytingu á sínu liði, út úr liðinu fer Eiður Atli en inn í stað hans kemur Ívar Örn sem sat út leikbann í síðasta leik.
Fyrir leik
HK

HK-ingar eru á toppi deildarinnar með 31 stig einu stigi meira en Fylkir sem er í öðru sæti deildarinnar. HK seldu nú á dögunum Valgeir Valgeirsson til Örebro og verður það stórt skarð til að fylla. Markahæsti leikmaður HK er Stefán Ingi Sigurðsson með 9 mörk í 12 leikjum.


Fyrir leik
Afturelding

Heimamenn í Aftureldingu hafa undanfarna leiki verið á miklu skriði. Í síðustu 3 leikjum hafa þeir skorað 13 mörk. Markahæsti leikmaður liðsins er Marciano Aziz leikmaður sem kom á láni frá KAS Eupen, en hann er með 5 mörk í aðeins 4 leikjum og hefur hann stimplað sig rækilega inn í lið Aftureldingar.
Afturelding sitja í 5. sæti deildarinnar með 22 stig.

Fyrir leik
Góðan og blessaðan daginn kæru lesendur og veriði hjartanlega velkomin í þráðbeina textalýsingu frá Malbikstöðinni að Varmá. Hér klukkan 19:15 mun fara fram leikur þar sem Afturelding mun taka á móti toppliði HK í 15. umferð Lengjudeildar karla.


Byrjunarlið:
25. Arnar Freyr Ólafsson (m)
4. Leifur Andri Leifsson (f)
6. Birkir Valur Jónsson
7. Örvar Eggertsson
8. Arnþór Ari Atlason
10. Ásgeir Marteinsson ('65)
14. Bjarni Páll Linnet Runólfsson ('76)
18. Atli Arnarson ('46)
21. Ívar Örn Jónsson
43. Stefán Ingi Sigurðarson
44. Bruno Soares

Varamenn:
3. Ívar Orri Gissurarson ('46)
9. Oliver Haurits ('65)
16. Eiður Atli Rúnarsson
23. Hassan Jalloh ('76)
24. Teitur Magnússon
29. Karl Ágúst Karlsson

Liðsstjórn:
Ómar Ingi Guðmundsson (Þ)
Bjarni Gunnarsson
Þjóðólfur Gunnarsson
Sandor Matus
Ólafur Örn Ásgeirsson
Ísak Jónsson Guðmann
Kári Jónasson
Dusan Ivkovic

Gul spjöld:
Stefán Ingi Sigurðarson ('38)
Birkir Valur Jónsson ('87)

Rauð spjöld: