Slavia Prag
0
0
Valur
28.09.2022  -  13:00
Stadion Na Chvalech
Meistaradeild kvenna (1-0)
Aðstæður: Blautt gras og moldarpollar í markteigunum
Dómari: Eszter Urban (Ungverjaland)
Áhorfendur: 753
Maður leiksins: Arna Sif Ásgrímsdóttir
Byrjunarlið:
1. Olivie Lukasova (m)
6. Michaela Khyrova
7. Simona Necidova
10. Martina Surnovska ('90)
11. Franny Cerna
12. Denisa Vesela ('80)
16. Tereza Szewieczkova
17. Gabriela Slajsova
20. Diana Bartovicova
25. Tereza Krejvirikova
27. Tereza Kozarova ('90)

Varamenn:
24. Barbora Sladká (m)
26. Tereza Fuchsova (m)
4. Denisa Tenkratova
8. Kristýna Ruzickova
14. Lucie Bendova ('80)
15. Sejde Abrahamsson
18. Albína Goretkiova
19. Petra Divisova ('90)
77. Alika Keene ('90)

Liðsstjórn:
Karel Piták (Þ)

Gul spjöld:
Tereza Szewieczkova ('77)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Þetta er því miður búið. Ísland mun ekki eiga fulltrúa í riðlakeppni Meistaradeildarinnar þetta tímabilið.

Maður þarf að bíta í það súra epli að sjá tvö íslensk lið tapa 0-0 á tveimur dögum hér í Tékklandi.

Takk fyrir samfylgdina.
90. mín
+4

Þetta er að klárast. Eru nokkrar sekúndur til að skapa eitt lokafæri?
90. mín
Inn:Petra Divisova (Slavia Prag) Út:Martina Surnovska (Slavia Prag)
+3
90. mín
+2 ÞVAGA Í TEIGNUM EFTIR HORNIÐ

Mariana fær hörkufæri en er flögguð rangstæð.
90. mín
+2 VALUR FÆR HORN.

Sandra markvörður mætir í teiginn.
90. mín
+1

Það verða fjórar mínútur í uppbótartíma, að minnsta kosti.
90. mín
Inn:Alika Keene (Slavia Prag) Út:Tereza Kozarova (Slavia Prag)
90. mín Gult spjald: Bryndís Arna Níelsdóttir (Valur)
90. mín
Hættuleg sending frá Elísu sem lendir við fjærstöngina en þetta endar í markspyrnu. Fróðlegt að sjá hversu mikill viðbótartíminn verður frá þeim ungversku.
89. mín
Lucie Bendova með marktilraun vel yfir. Vlur ekki að ná nægilega mikilli pressu.
88. mín
Áhorfendavaktin: 753 á leiknum.
85. mín

84. mín
Hætta upp við mark Vals en endar á því að dæmt er sóknarbrot.
83. mín
Inn:Mariana Sofía Speckmaier (Valur) Út:Sólveig Jóhannesdóttir Larsen (Valur)
Síðasta skipting Vals... í venjulegum leiktíma allavega.
80. mín
Inn:Lucie Bendova (Slavia Prag) Út:Denisa Vesela (Slavia Prag)
78. mín
Anna með hættulega aukaspyrnu í teiginn og þarna var Elín Metta í HÖRKUFÆRI en nær ekki að stýra boltanum á rammann!
77. mín Gult spjald: Tereza Szewieczkova (Slavia Prag)
Brýtur á Ásdísi. Valur fær aukaspyrnu með fyrirgjafarmöguleika.
76. mín
Anna Rakel með hættulegan bolta inn í teiginn og munar litlu að Sólveig nái snertingunni.
75. mín
Stundarfjórðungur eftir. Sólin skín og vonandi nær Valur að koma þessu í framlengingu að minnsta kosti! Vandræðagangur í vörn Slavia og Valur fær horn...
73. mín
Inn:Bryndís Arna Níelsdóttir (Valur) Út:Cyera Hintzen (Valur)
73. mín
Inn:Þórdís Elva Ágústsdóttir (Valur) Út:Ásgerður Stefanía Baldursdóttir (Valur)
72. mín
Bryndís Arna er að koma inn. Gerir sig klára við hliðarlínuna.
71. mín

69. mín
Loksins gerði Valur eitthvað sóknarlega. Elín Metta með flottan sprett og á skot í hliðarnetið. Þetta var gott færi.
66. mín
Simona Necidova skallar framhjá.
64. mín
Hefur vantað mikið uppá gæðin í sendingum og ákvarðanatökum hjá Val núna. Slavia líklegra til að skora eins og þetta hefur verið að spilast.

Allir á bekknum hjá Slavia stóðu upp og heimtuðu vítaspyrnu en fá bara horn frá ungverska dómaranum.
63. mín
Hætta upp við mark Vals, skot framhjá. Kemur eftir misheppnað útspark Söndru.
62. mín
AFTUR KEMUR SLAVIA BOLTANUM Í NETIÐ EN MARKIÐ TELUR EKKI! Dæmt sóknarbrot í aðdragandanum.
61. mín

60. mín
Inn:Elín Metta Jensen (Valur) Út:Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir (Valur)
Elín Metta að koma inn.
59. mín
Slavia liðið verið betra síðustu minútur. Lítið verið að frétta hjá Val á þessum kafla leiksins.
58. mín Gult spjald: Sólveig Jóhannesdóttir Larsen (Valur)
Fyrir brot. Fyrsta áminning leiksins.
58. mín

57. mín

57. mín
SLAVIA SKORAR EN BÚIÐ AÐ FLAGGA RANGSTÖÐU!! Þær hlupu allar að fagna en tóku ekki eftir því að flaggið var löngu farið á loft.
56. mín
Slavia fær aukaspyrnu. Pétur allt annað en sáttur við ungversku dómarana þarna og lætur óánægjuna í ljós við fjórða dómarann. Skil hann vel.
55. mín
Elísa með tæpa sendingu til baka á Söndru, leikmaður Slavia mætir í pressuna en sem betur fer nær Sandra í boltann á undan.
55. mín
Slavia að reyna einhverja misheppnuðustu aukaspyrnuútfærslu sem ég hef séð. Boltanum sparkað afturfyrir. Þurfa aðeins að fínpússa þetta á æfingasvæðinu.
51. mín
Rosalegur vandræðagangur við marklínu Vals!!!! Arna endar á því að bjarga á línu. Einhver svakalegur misskilningur þarna í gangi milli leikmanna og boltinn endaði í drullupollinum á marklínunni.
49. mín
Ásdís með sendingu á Sólveigu sem er ein rétt fyrir utan teig en móttakan svíkur hana.
47. mín
Veðrið hefur verið ansi breytilegt hérna. Heitt og gott þegar sólin skín, áðan mætti rigning og svo kom smá vindur um tíma. Pétur Pétursson skiptir á milli þess að vera í skyrtu og úlpu.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn - Cyera Hintzen með upphafsspyrnu seinni hálfleiks. Sömu 22 leikmenn og hófu leikinn sem hefja seinni hálfleik.
45. mín
Valsliðið hefur verið betri aðilinn. En það þarf að koma þessum blessaða bolta inn í markið. Það verður að sjálfsögðu leikið til þrautar í dag. Munum við fara í framlengingu?
45. mín

Notum hálfleikinn í að henda inn byrjunarliðsmyndinni
45. mín
Hálfleikstölfræðin
Marktilraunir: 4-9
Horn: 2-3
45. mín
Hálfleikur
Tereza Szewieczkova og Lára Kristín með einhver orðaskipti sín á milli. Enn eitt tiltalið frá ungverska dómaranum. Í þessum skrifuðu orðum flautar hún til hálfleiks.
44. mín
Þórdís Hrönn fær tiltal. Hefði átt að fá gult en dómarinn að jafna þetta út.
42. mín
ÁSDÍS KAREN!!! Hörkuskot. Hitti boltann frábærlega og Lukasova þurfti að hafs sig alla við að verja þetta í horn.
41. mín
Þetta Slavia lið hefur alls ekki heillað mig. Það eru svo sannarlega möguleikar hér að slá það út á þeirra heimavelli.
39. mín
Þórdís með skot, eða misheppnaða fyrirgjöf, langt framhjá.
38. mín
Anna Rakel með hættulega aukaspyrnu. Sending inn í teiginn sem Arnar Sif kemst næstum því í, boltinn flýgur framhjá stönginni.
33. mín
BESTA FÆRI LEIKSINS TIL ÞESSA! Anna Rakel með baneitraða sendingu. Cyera Hintzen tekur skot í teignum en Lukasova nær að verja.
31. mín
Cyera nær að komast í lofandi stöðu en er flögguð rangstæð.
30. mín
Ásdís Karen með tilraun. Framhjá.
30. mín

Létt yfir mönnum á bekknum
29. mín
Úrslitasendingarnar eru að klikka hjá Val. Klisja en rétt þó.
28. mín
Ásdís Karen með frábæran varnarleik og hirðir boltann af Martinu Sornovsku sem var í góðri skotstöðu.
26. mín
Elísa með skot fyrir utan teig en talsvert yfir.
26. mín
Brotið á Önnu Rakel, þarna hefði leikmaður Slavia átt að fá gult spjald en sleppur með tiltal. Pétur hristir hausinn.
24. mín
Góð hornspyrna sem Lukasova misreiknar en hefur heppnina með sér að hann endar ekki hjá Valskonu.
23. mín
Elísa vinnur hornspyrnu fyrir Val þegar hún tekur fyrirgjöf sem er hreinsuð afturfyrir.
22. mín
Pétur Pétursson kallar eftir meira spili frá sínu liði. "Látið boltann ganga á milli"
21. mín
Leikmaður Slavia með ansi mikla bjartsýni og reynir skot af löngu færi. Sandra var aðeins komin af línunni en ekki svo langt.
19. mín
Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir kemst í góða stöðu í teignum en á sendingu/mögulega skot sem Lukasova handsamar.
18. mín
"Sprengja þetta upp!" hrópar Guffi bílasali. Pétur Pétursson horfir í stúkuna og glottir.
18. mín
Tereza Szewieczkova með skot á rammann sem Sandra ver.
17. mín
Ásdís með hættulega sendingu. Cyera Hintzen kemst í álitlega stöðu í teignum en á lausa marktilraun sem markvörður Slavia grípur auðveldlega.
16. mín
Cyera Hintzen með góða pressu. Það er ágætis hópur af stuðningsmönnum Vals í stúkunni. Lif í þeim svo sannarlega.
14. mín
Adda með skot, boltinn vel yfir.
12. mín
Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir með háa sendingu inn í teiginn sem Lukasova í marki Slavia grípur undir engri pressu.
11. mín
Elísa með fyrirgjöf sem Bartovicova hreinsar í horn. Fyrsta hornspyrna Vals. Koma svooo!
10. mín
Fréttamannaaðstaðan hérna á skemmtilegum stað. Erum nánast ofan á varamannabekknum hjá Slavia og heyrum hvert orð sem Karel Piták þjálfari liðsins segir. Skiljum reyndar ekkert orðin svo við græðum lítið á því.
9. mín
Ásdís fær langt tiltal frá ungverska dómaranum. Sumovska síðan með fyrirgjöf sem fór í hausinn á Örnu og svo afturfyrir. Hornspyrna.
4. mín
Martina Surnovska með skot í varnarmann, Lára Kristín kemst fyrir, og svo skýtur Gabriela Slajsova talsvert hátt yfir.
3. mín
Martina Surnovska með fyrirgjöf sem Sandra slær út úr teignum. Það rignir aðeins en er samt sól. Skemmtileg blanda.
2. mín
Denisa Vesela brunar upp hægra megin og vinnur horn fyrir Slavia.
1. mín
Leikur hafinn
Heimakonur hófu leik.
Fyrir leik

Fyrir leik
Hér verður leikurinn sýndur í beinu streymi:

Fyrir leik
Vallarþulurinn fær svona 4 fyrir framburð sinn á íslensku nöfnunum. Ekki jafn sleipur og þessi sem kynnti U21 landsleikinn í gær.
Fyrir leik


Valskonur fá stuðning frá Guffa bílasala sem keyrði hingað frá Vín ásamt unnustu sinni. Frúin hlær svo sannarlega í betri bíl frá bílasölu Guðfinns.
Fyrir leik
Það er búist við um 700 áhorfendum á þennan leik hér í útvhverfi Prag. Hálftíma Über ferð sem við fórum frá Pýramída hótelinu okkar. Ef þið eruð á leið til Prag er óhætt að mæla með því hóteli. Hefur meðal annars fengið meðmæli frá Gunnari Birgissyni íþróttafréttamanni.
Fyrir leik
Afskaplega skemmtilegir þessir moldarpollar.



Fyrir leik


Viðhafnarútsending hjá tékkneska sjónvarpinu í þessum leik. Ein myndavél og þeirra reyndasti maður heldur um stýrið.
Fyrir leik
Það hefur rignt í Prag í dag en núna er sólin farin að skína. Liðin eru að hita upp á þessum heldur fábrotna velli. Kvennaliðið spilar ekki á aðalleikvangi Slavia Prag og þessi leikur fer fram á Stadion Na Chvalech sem tekur rúmlega 3 þúsund áhorfendur. Það eru moldarpollar í markteigunum. Aðstæður af gamla skólanum fyrir þennan leik.


Fyrir leik
Byrjunarliðin eru komin inn.

Pétur Pétursson, þjálfari Vals, stillir upp sama byrjunarliði og í fyrri leik liðanna. Frá síðasta leik liðsins gegn Aftureldingu fara Elín Metta Jensen og Þórdís Elva Ágústsdóttir á bekkinn og inn koma Sólveig Jóhannesdóttir Larsen og Ásgerður Stefanía Baldursdóttir.
Fyrir leik


"Mér líst vel á þetta verkefni. Mér finnst við eiga séns á að setja eitt mark á þær til að byrja með. Þá er staðan orðin 1-1. Við eigum möguleika, en auðvitað þarftu að eiga góðan leik gegn þeim," sagði Pétur Pétursson, þjálfari Vals, á dögunum.

"Við eigum að fara út með kassann úti og ætlum okkur að sækja sigur. Við sýndum það þegar við pressuðum þær á réttum stöðum að við getum hæglega sett á þær og skorað. Það verður erfitt að fara til Tékklands en við þurfum bara að mæta með sjálfstraustið í botni og spila til sigurs," sagði Elísa Viðarsdóttir, fyrirliði Vals.

Rætt var um leikinn sem framundan er í Heimavellinum í gær. Þar voru Aníta Lísa Svansdóttir og Óskar Smári Haraldsson, þjálfarar Fram, gestir.

"Ég held að þær vinni þær og fari áfram," sagði Óskar Smári. "Mér finnst þær nægilega góðar til að vinna þetta lið og fara áfram. Þær eiga inni, þær voru slakar í fyrri hálfleik í síðasta leik. Svo sáu þær að þetta lið er ekkert betra en þær."

"Þær eru með sjálfstraustið í botni, búnar að vinna titilinn. Ég held að þær fari alla leið með þetta."

"Núna er næsta markmiðið þeirra að klára þetta," sagði Aníta Lísa.
Fyrir leik
Úr skýrslunni úr fyrri leiknum:
"Frammistaða Vals í fyrri hálfleik var ekki til útflutnings og var það sanngjarnt að Slavia Prag væri yfir í hálfleik. Valur var sterkari aðilinn í seinni hálfleik og fékk fjölda færi til að jafna en inn vildi boltinn ekki. Að lokum voru Íslandsmeistararnir óheppnar að fá ekki að minnsta kosti jafntefli úr leiknum." skrifaði Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson en Slavia Prag bjargaði á línu í lokin og fer með 1-0 sigur inn í seinni leikinn.

"Fremstu þrjár hjá Val voru ekki alveg á deginum sínum. Cyera fékk dauðafæri til að jafna og hafa bæði Sólveig og Þórdís átt betri daga."

Fyrir leik
Heil og sæl!

Teymi Fótbolta.net var á U21 landsleiknum í gær og hentugt að ná þessum leik í sömu ferð!

Velkomin með okkur til Prag þar sem Valur leikur gegn Slavia Prag í síðari leik liðanna í undankeppni Meistaradeildar Evrópug. Leikurinn fer fram hér í Tékklandi og hefst hann klukkan 13:00, eða 15 að staðartíma.

Fyrri leik liðanna lauk með 1-0 sigri Slavia Prag á Hlíðarenda og þarf Valur því tveggja marka sigur til að tryggja sér sæti í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu.

Spenna framundan.

Byrjunarlið:
12. Sandra Sigurðardóttir (m)
Ásgerður Stefanía Baldursdóttir ('73)
4. Arna Sif Ásgrímsdóttir
6. Lára Kristín Pedersen
7. Elísa Viðarsdóttir
8. Ásdís Karen Halldórsdóttir
11. Anna Rakel Pétursdóttir
13. Cyera Hintzen ('73)
14. Sólveig Jóhannesdóttir Larsen ('83)
17. Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir ('60)
21. Lillý Rut Hlynsdóttir

Varamenn:
1. Fanney Inga Birkisdóttir (m)
10. Elín Metta Jensen ('60)
15. Hailey Lanier Berg
16. Þórdís Elva Ágústsdóttir ('73)
18. Málfríður Anna Eiríksdóttir
19. Bryndís Arna Níelsdóttir ('73)
22. Mariana Sofía Speckmaier ('83)
24. Mikaela Nótt Pétursdóttir
26. Sigríður Theód. Guðmundsdóttir

Liðsstjórn:
Pétur Pétursson (Þ)
Matthías Guðmundsson

Gul spjöld:
Sólveig Jóhannesdóttir Larsen ('58)
Bryndís Arna Níelsdóttir ('90)

Rauð spjöld: