Rogers opinn fyrir því að fara frá Villa - Leipzig setur verðmiða á Diomande - Grealish áfram hjá Everton?
Mjólkurbikar karla
Tindastóll
LL 0
1
Njarðvík
Mjólkurbikar karla
Afturelding
LL 6
1
Ýmir
Meistarakeppni kvenna
Breiðablik
LL 3
1
FH
Breiðablik
3
1
FH
Barbára Sól Gísladóttir '5 1-0
Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir '26 2-0
Agla María Albertsdóttir '57 3-0
3-1 Nia Raisa Christopher '79
03.04.2026  -  14:00
Kópavogsvöllur
Meistarakeppni kvenna
Dómari: Gunnar Freyr Róbertsson
Maður leiksins: Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir (Breiðablik)
Byrjunarlið:
1. Herdís Halla Guðbjartsdóttir (m)
3. Elísa Viðarsdóttir
4. Elín Helena Karlsdóttir
7. Agla María Albertsdóttir (f)
8. Katelyn Duong
14. Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir ('67)
17. Karitas Tómasdóttir
18. Kristín Dís Árnadóttir
26. Líf Joostdóttir van Bemmel ('77)
27. Barbára Sól Gísladóttir
30. Edith Kristín Kristjánsdóttir
- Meðalaldur 24 ár

Varamenn:
12. Taylor Kane (m)
6. Mikaela Nótt Pétursdóttir
21. Kristín Vala Stefánsdóttir
22. Dórothea Ósk Haraldsdóttir
24. Helga Rut Einarsdóttir
29. Sunna Rún Sigurðardóttir ('67)
40. Lilja Þórdís Guðjónsdóttir ('77)
- Meðalaldur 18 ár

Liðsstjórn:
Ian David Jeffs (Þ)
Ásgerður Stefanía Baldursdóttir (Þ)
Stefán Logi Magnússon (Þ)
Olga Ingibjörg Einarsdóttir
Bryndís Arna Níelsdóttir
Hjörtur Fjeldsted
Sæmundur Arnór Sigurðsson

Gul spjöld:
Kristín Dís Árnadóttir ('42)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Breiðablik eru meistarar meistaranna Gunnar Freyr flautar til leiksloka í Kópavoginum og niðurstaðan 3-1 fyrir Breiðablik og Breiðablik vinnur fyrsta mögulega titil tímabilsins.

Takk í dag. Gleðilega páska!
90. mín
Tveimur mínútum bætt við
87. mín
Lítið að gerast inni á vellinum FH stelpur eru að reyna en Blikar verjast vel.
79. mín MARK!
Nia Raisa Christopher (FH)
MAAAAAAAAARK Jónína með langan bolta upp völlinn. Elín Helena misreiknar boltann og Nia sleppur í gegn og klárar færið vel.

3-1 !
77. mín
Inn:Lilja Þórdís Guðjónsdóttir (Breiðablik) Út:Líf Joostdóttir van Bemmel (Breiðablik)
75. mín
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

71. mín
Nia í færi!!! Hafrún Birna fær boltann við hliðarlínuna og á frábæran bolta inn á Niu sem nær skoti á markið en skotið beint á Herdísi.
68. mín
Nia gerir vel Fær boltann og tekur vel við honum og á skot sem fer beint á Herdísi.
67. mín
Inn:Sunna Rún Sigurðardóttir (Breiðablik) Út:Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir (Breiðablik)
66. mín
Hrafnhildur Ása!! Barbára Sól með frábæran bolta inn á teig FH og Hrafnhildur Ása nær að taka við honum og reynir skot á markið en skotið í varnarmann.
65. mín
Inn:Hildur Katrín Snorradóttir (FH) Út:Birna Kristín Björnsdóttir (FH)
65. mín
Inn:Mackenzie Elyze Smith (FH) Út:Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir (FH)
61. mín
Agla María með frábæra aukaspyrnu inn á teiginn og Barbára Sól alein en nær ekki setja boltann á markið.
60. mín Gult spjald: Katla María Þórðardóttir (FH)
Katla María tekur Hrafnhildi Ásu niður.
57. mín MARK!
Agla María Albertsdóttir (Breiðablik)
Stoðsending: Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir
MAAAAAAAAAAARK Vandræðagangur í öftustu línu hjá FH og Hrafnhildur Ása stelur boltanum af Birnu og leggur boltann til hliðar á Öglu Maríu sem setur boltann í autt netið.

3-0 Blikar
51. mín
Ragnheiður Skúladóttir fer ílla með Barbáru og keyrir í átt að teignum og á skot sem Herdís ver
46. mín
Seinni hálfleikurinn farin af stað
45. mín
Inn:Helena Maree Errington (FH) Út:Berglind Freyja Hlynsdóttir (FH)
45. mín
Inn:Hafrún Birna Helgadóttir (FH) Út:Thelma Lóa Hermannsdóttir (FH)
45. mín
Inn:Ragnheiður Th. Skúladóttir (FH) Út:Ingibjörg Magnúsdóttir (FH)
45. mín
Hálfleikur
Það er kominn hálfleikur í Kópavoginum.

Breiðablik leiðir inn í hálfleik með tveimur mörkum.

Tökum okkur korter.
43. mín
FH fær aukaspyrnu á hættulegum stað Ída tekur spyrnuna en boltinn í vegginn. Katla nær til boltans og á skot sem fer framhjá.
42. mín Gult spjald: Kristín Dís Árnadóttir (Breiðablik)
37. mín
Skógarhlaup hjá Steinunni Steinunn tekur hlaup úr teignum og Líf kemst á undan og kemur boltanum inn á teiginn en það kemur ekki að sök og Blikar fá hornspyrnu sem ekkert varð úr.
35. mín
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
30. mín
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð



Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

26. mín MARK!
Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir (Breiðablik)
Stoðsending: Agla María Albertsdóttir
MAAAAAAAARK Karítas vinnur boltann hátt á vellinum af Ídu og Hrafnhildur Ása á gott spil við Öglu og fær boltann aftur og Hrafnhildur á skot sem syngur í fjærhorninu!

2-0 BLIKAR
21. mín
HRAFNHILDUR ÁSA!! Agla María með boltann í átt að Hrafnhildi Ásu sem gerir vel að ná til boltans og á skot sem fer rétt yfir!

Færi fyrir Blika
16. mín
Hafliði okkar maður á myndavélinni
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð



Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

13. mín
ÍDA MARÍN Dauðafæri!!!!!

Ída Marín fær boltann inn teiginn frá Ingibjörgu og á skot sem er varið.

Besta færi FH
11. mín
Barbára Sól!!! Agla María með frábæran bolta inn á Barbáru sem skallar boltann yfir markið.
9. mín
Lítið að gerast FH er að reyna vinna sig inn í leikinn og eru farnir að pressa Blikana hærra uppi á vellinum.
5. mín MARK!
Barbára Sól Gísladóttir (Breiðablik)
Stoðsending: Elísa Viðarsdóttir
MAAAAAAAAARK Elísa Viðars fær boltann aftast á vellinum og Barbára Sól tekur frábært hlaup inn á teiginn og Elísa sér það og lyftir boltanum inn á teiginn. Barbára tekur við honum með kassanum og leggur boltann síðan í netið.

1-0 BLIX
1. mín
Fyrsta hornspyrna leiksins Hrafnhildur Ása keyrir upp vinstri vænginn og vinnuf hornspyrnu.

Agla María tekur spyrnuna en boltinn afturfyrir.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er byrjað Gunnar Freyr er búin að flauta þennan leik á.

FH byrjar með boltann og sækir í átt að Fífunni.
Fyrir leik
Svanfríðarbikarinn Í Meistarakeppni kvenna er keppt um Svanfríðarbikarinn til minningar um Svanfríði Guðjónsdóttur sem vann ötullega að uppbyggingu knattspyrnu kvenna á Íslandi. Hún var fyrsta konan sem kjörin var í stjórn Knattspyrnusambands Íslands.
Fyrir leik
Nokkrar myndir frá vetrardýrðinni í gær
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

   03.04.2026 06:30
Myndaveisla: Snjórinn sigraði í Meistarakeppni KSÍ
Fyrir leik
Styrktarleikur fyrir unga fótboltastelpu sem berst við krabbamein Leikurinn er styrktarleikur fyrir Kolfinnu Rán Færseth, fótboltastelpu fæddri árið 2013 sem hefur verið að berjast við krabbamein.

Aðgangseyri er 2000 krónur og rennur allur ágóði af leiknum óskiptur til Kolfinnu. Hægt er að nálgast miða á Stubbi.

„Með leiknum vilja félögin sýna samstöðu og leggja sitt af mörkum til að styðja Kolfinnu Rán og fjölskyldu hennar,“ segir í tilkynningu.

Kolfinna hefur lokið 16 lyfjameðferðum og á tvær eftir. Í desember síðastliðnum fór hún til Svíþjóðar í aðgerð þar sem lærleggurinn var fjarlægður alveg upp í mjaðmakúlu og settur íhlutur í staðinn. Jafnframt þurfti að taka tvo af stóru vöðvunum framan á lærinu og framundan er því mikil endurhæfing bara við að læra að ganga aftur.

Reikningur Kolfinnu:
0702-15-190113
Kt.190113-2210
Fyrir leik
FH Komnar
Mackenzie Smtih frá Fram
Elín Björg Norðfjörð Símonardóttir frá Haukum
Nia Christopher frá Bandaríkjunum
Helena Errington frá Bandaríkjunum

Farnar
Thelma Karen Pálmadóttir í Häcken
Arna Eiríksdóttir í Vålerenga
Elísa Lana Sigurjónsdóttir til Kristianstad
Maya Hansen
Macy Elizabeth Enneking
Margrét Brynja Kristinsdóttir í Val
Valgerður Ósk Valsdóttir í Hauka
Harpa Helgadóttir í Fram (lán)
Fyrir leik
Breiðablik Komnar
Bryndís Arna Níelsdóttir frá Svíþjóð
Taylor Kane frá Bandaríkjunum
Elísa Viðarsdóttir frá Val
Katelyn Duong frá Bandaríkjunum
Mikaela Nótt Pétursdóttir frá FHL
Olga Ingibjörg Einarsdóttir frá Fram (var á láni)

Farnar
Andrea Rut Bjarnadóttir til Anderlecht
Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir til Parma
Birta Georgsdóttir til Genoa
Heiða Ragney Viðarsdóttir til Eskilstuna
Heiðdís Lillýardóttir hætt
Jakobína Hjörvarsdóttir alfarið í Stjörnuna (var á láni)
Katherine Devine
Katrín Ásbjörnsdóttir hætt
Kyla Elizabeth Burns
Samantha Smith til Boston Legacy
Sara Svanhildur Jóhannsdóttir alfarið í Fram (var á láni)
Kristín Magdalena Barboza í Fram (var á láni hjá Haukum)
Berglind Björg Þorvaldsdóttir ólétt

Mynd: Breiðablik
Fyrir leik
Leikið aftur frá upphafsflauti Leik Breiðabliks og FH í Meistarakeppni kvenna, sem hófst í gær, var frestað vegna mikillar snjókomu. Leikurinn hófst fimmtán mínútum á eftir áætlun og þegar reynt hafði verið að spila í átta mínútur var leikurinn blásinn af.

Leikurinn hefur verið settur á aftur kl. 14:00 á Kópavogsvelli í dag (Kórinn í Kópavogi er varavöllur) og verður hann leikinn að nýju frá upphafsflauti.

   02.04.2026 14:47
Flautað af á Kópavogsvelli - Spilað á morgun

   02.04.2026 15:18
Guðni Eiríks: Sagði að ef hann myndi ekki taka ákvörðunina þá myndi ég gera það fyrir hann

   02.04.2026 15:36
Ian Jeffs: Veit ekki hverjar geta mætt á morgun
Byrjunarlið:
1. Steinunn Erna Birkisdóttir (m)
2. Birna Kristín Björnsdóttir ('65)
6. Katla María Þórðardóttir (f)
7. Nia Raisa Christopher
9. Berglind Freyja Hlynsdóttir ('45)
10. Ída Marín Hermannsdóttir
11. Thelma Lóa Hermannsdóttir ('45)
13. Deja Jaylyn Sandoval
29. Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir ('65)
37. Jónína Linnet
41. Ingibjörg Magnúsdóttir ('45)
- Meðalaldur 22 ár

Varamenn:
12. Aldís Guðlaugsdóttir (m)
5. Mackenzie Elyze Smith ('65)
8. Helena Maree Errington ('45)
18. Elín Björg Norðfjörð Símonardóttir
19. Hildur Katrín Snorradóttir ('65)
22. Eva Marín Sæþórsdóttir
33. Unnur Thorarensen Skúladóttir
36. Ragnheiður Th. Skúladóttir ('45)
42. Hafrún Birna Helgadóttir ('45)
- Meðalaldur 19 ár

Liðsstjórn:
Guðni Eiríksson (Þ)
Hlynur Svan Eiríksson (Þ)
Dagur Óli Davíðsson (Þ)
Hjörtur Hinriksson
Vigdís Edda Friðriksdóttir
Harpa Finnsdóttir
Haraldur Sigfús Magnússon

Gul spjöld:
Katla María Þórðardóttir ('60)

Rauð spjöld: