Fotbolti.net
02.04.26 - 15:36
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Ian Jeffs: Veit ekki hverjar geta mætt á morgun

Auglýsing
Ian Jeffs, þjálfari Breiðabliks.

Ian Jeffs, þjálfari Breiðabliks.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
„Það var ekki hægt að spila í dag, það var alveg ljóst fyrir leikinn. Mér fannst ákvörðunin tekin full seint, hefði átt að blása leikinn strax af. Við viljum alltaf spila leik, þetta er ekki það, en ég var að hugsa um heilsu leikmanna og ég sá strax að þetta væri ekki að fara ganga upp í dag," sagði Ian Jeffs, þjálfari kvennaliðs Breiðabliks, við Hafliða Breiðfjörð eftir að flautað var leik liðsins gegn FH í Meistarakeppni KSÍ í dag.

Leikurinn verður kláraður á morgun, hefja á leik klukkan 14:00 á Kópavogsvelli og til vara verður spilað í Kórnum. Leikurinn verður spilaður í fullri lengd, frá fyrstu mínútu, á morgun.
Flautað af á Kópavogsvelli - Spilað á morgun
TENGT EFNI

Flautað af á Kópavogsvelli - Spilað á morgun

„Við vorum bara mjög góðar, áttum alveg 2-3 skot á markið, lágum svolítið á þeim," sagði Jeffsy á léttu nótunum um þær mínútur sem voru spilaðar áður en hann skipti yfir í alvarlegri tón. „Þetta var bara bíó, leikmenn áttu í erfiðleikum með að halda jafnvægi og voru að renna svolítið til. Mér fannst vera slysahætta og rétt ákvörðun að flauta leikinn af."

„Við þjálfararnir vorum ekki ánægðir með þetta. Dómarateymið tók svo ákvörðun og tóku rétta ákvörðun."


Í dag er skírdagur og margir komnir í páskafrí. Jeffsy var sjálfur ekki á leið í sérstakt páskafrí en miðað við svör hans verða mögulega einhverjir leikmenn fjarverandi á morgun.

„Það er það sem er pínu svekkjandi, ég var sjálfur ekki með neitt brjálað mikið plan, en ég veit að leikmenn í mínum hóp voru klárlega búnir að plana eitthvað. Við ætlum að taka stöðuna núna og sjá hvernig við mætum til leiks á morgun."

Heldur þú að þær mæti ekki allar?

„Það kemur bara í ljós á morgun. Ég er að fara taka stöðuna núna," sagði Jeffsy.
Hressar Blikastelpur.

Hressar Blikastelpur.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Reynt að hreinsa völlinn fyrir leik í dag.

Reynt að hreinsa völlinn fyrir leik í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.