Besta deildin
Keflavík
LL
0
0
0
Breiðablik
Besta karla
ÍA
LL
1
1
1
KA

ÍA
1
1
KA

Markús Páll Ellertsson
'32
1-0
1-1
Diego Montiel
'70
22.04.2026 - 18:00
Akraneshöllin
Besta karla
Dómari: Helgi Mikael Jónasson
Áhorfendur: 707
Maður leiksins: Haukur Andri Haraldsson (ÍA)
Akraneshöllin
Besta karla
Dómari: Helgi Mikael Jónasson
Áhorfendur: 707
Maður leiksins: Haukur Andri Haraldsson (ÍA)
Byrjunarlið:
1. Árni Marinó Einarsson (m)
3. Johannes Vall
5. Baldvin Þór Berndsen
7. Haukur Andri Haraldsson
9. Viktor Jónsson (f)
11. Gísli Eyjólfsson
('45)
('45)
15. Gabríel Snær Gunnarsson
('78)
('78)
21. Böðvar Böðvarsson
22. Ómar Björn Stefánsson
('61)
('61)
25. Markús Páll Ellertsson
('86)
('86)
66. Jón Gísli Eyland Gíslason
- Meðalaldur 25 ár
Varamenn:
12. Logi Mar Hjaltested (m)
17. Gísli Laxdal Unnarsson
('61)
('61)
18. Rafael Máni Þrastarson
('86)
('86)
20. Ísak Máni Guðjónsson
('45)
('45)
26. Matthías Daði Gunnarsson
27. Brynjar Óðinn Atlason
28. Daníel Michal Grzegorzsson
35. Aron Kristinn Zumbergs
87. Styrmir Jóhann Ellertsson
('78)
('78)
Liðsstjórn:
Lárus Orri Sigurðsson (Þ)
Aron Ýmir Pétursson
Teitur Pétursson
Dino Hodzic
Mario Majic
Erik Tobias Sandberg
Rúnar Már S Sigurjónsson
Salvar Georgsson
Gul spjöld:
Jón Gísli Eyland Gíslason ('63)
Rauð spjöld:
Leik lokið!
Jafn í höllinni
Leiknum endar með 1-1 jafntefli og ég þykist vita það að bæði lið eru hundfúl með þessi úrslit þótt KA sé líklega ívið sáttari aðilinn.
Skýrsla og viðtöl á leiðinni.
Þangað til næst. Veriði sæl og lifi byltingin!
Skýrsla og viðtöl á leiðinni.
Þangað til næst. Veriði sæl og lifi byltingin!
88. mín
Bolti í þak
Er það ekki pínu þreytt að maður er að horfa á Bestu deildina árið 2026 og það er verið að stoppa leikinn í fimmta sinn (held ég) því boltinn fer í þakið. Þetta er ferlegt.
85. mín
Skemmtileg pæling hjá Jeppe
Reynir skotið frá miðju. Var að fíla þessa pælingu en bara aðeins of aumt skot hjá dananum.
83. mín
Jón Gísli tekur aftur spyrnuna inn á teiginn og það myndast mikið klafs þar. Boltinn kemur svo aftur inn á teiginn sem Baldvin nær til og skallar beint á Stubbinn.
83. mín
Annað horn
Jón Gísli tekur spyrnuna inn á teiginn sem KA menn hreinsa í annað horn.
80. mín
50/50
Skagamenn eru að fá að gjalda fyrir það að hafa ekki gert út um leikinn í stöðunni 1-0 því núna er þetta galopinn leikur og bæði lið jafnlíkleg að stela þessu. KA kannski ívið líklegri..
78. mín
Inn:Styrmir Jóhann Ellertsson (ÍA)
Út:Gabríel Snær Gunnarsson (ÍA)
Styrmir er mættur til leiks
73. mín
Haddi snillingur?
Eftir þessa þrefalda breytingu hjá Hadda er allt annað að sjá til KA liðsins. Miklu heildstæðari bragur á þeirra leik bæði varnar- og sóknarlega. Nú hóta þeir sigurmarki á meðan Skagamenn liggja djúpt niðri. Lárus hlýtur að fara að bregðast við þessu fljótlega.
70. mín
MARK!
MARK!Diego Montiel (KA)
Stoðsending: Valdimar Logi Sævarsson
Stoðsending: Valdimar Logi Sævarsson
Algjörlega gegn gangi leiksins!
Varamaðurinn jafnar þetta fyrir gestina!
Valdimar Logi fær boltann úti hægra meginn og kemur með frábæran bolta í gegnum allan pakkann og á fjærsvæðið. Þar er Montiel mættur og klárar fantavel framhjá Árna í markinu.
Hér er allt orðið jafnt!
Valdimar Logi fær boltann úti hægra meginn og kemur með frábæran bolta í gegnum allan pakkann og á fjærsvæðið. Þar er Montiel mættur og klárar fantavel framhjá Árna í markinu.
Hér er allt orðið jafnt!
69. mín
Gult spjald: Rodrigo Gomes Mateo (KA)
Gult spjald: Rodrigo Gomes Mateo (KA)
Fer aðeins og seint í tæklinguna á Vall og fær réttilega gult spjald.
66. mín
HVERNIG?!?!
Þeir geta ekki keypt sér mark!
Gísli Laxdal er kominn einn í gegn á móti Stubbnum sem ver glæsilega og svo aftur í tvígang. Boltinn berst svo til Viktors Jónssonar sem er nánast með opið mark fyrir framan sig en hann skýtur yfir markið.
Hvernig staðan er ennþá bara 1-0 er mér hulin ráðgáta. Gestirnir stálheppnir!

64. mín
Stöngin!
Frábær fyrirgjöf inn á teiginn sem Markús Máni skallar í stöngina og út. Gestirnir halda samt áfram að herja að marki Skagamanna.
63. mín
Gult spjald: Jón Gísli Eyland Gíslason (ÍA)
Gult spjald: Jón Gísli Eyland Gíslason (ÍA)
Fer eitthvað í andlitið á Kára og fær spjald fyrir.
61. mín
Gult spjald: Danijel Dejan Djuric (KA)
Gult spjald: Danijel Dejan Djuric (KA)
Djuric að dýfa
Seinasta sem Danijel Djuric gerði áður en hann fór útaf var að næla sér í gult spjald fyrir dýfu og fær pistilinn frá Hauki Andra Haraldssyni.
59. mín
Ótrúlegt færi!
Markús Páll fær langan bolta fram og potar honum í gegn á Gabríel sem er kominn einn gegn Stubbinum með mann í bakinu. Mér fannst hann taka of langan tíma í þetta og reynir of mikið að losa sig við manninn sem hann er með í bakinu.
Endar þannig að Stubburinn ver þetta í stöngina og nær svo að handsama boltann með herkjum.
Endar þannig að Stubburinn ver þetta í stöngina og nær svo að handsama boltann með herkjum.
55. mín
Valdimar Logi tekur spyrnuna inn á teiginn og það myndast mikið klafs áður en Skagamenn ná að hreinsa en sóknarpressa gestanna heldur áfram.
51. mín
DAUÐAFÆRI!
Markús Máni með skelfilega sendingu í öftustu línu sem Markús Páll kemst í og er kominn einn á móti Stubbnum. Hann tekur gott skot á markið sem Stubburinn ver í horn.
Þetta munaði ekkert eðlilega litlu!
Þetta munaði ekkert eðlilega litlu!
49. mín
Miklu meiri kraftur í heimamönnum
Skagamenn byrja af krafti og eru búnir að eiga nokkrar hættulegar tilraunir hér í upphafi síðari hálfleiks. Virðist lítið ætla að breytast hins vegar hjá KA-mönnum.
45. mín
Inn:Ísak Máni Guðjónsson (ÍA)
Út:Gísli Eyjólfsson (ÍA)
Gísli fer meiddur af velli í hálfleik
Fékk eitthvað högg á sig undir lok fyrri hálfleiks og fer hér af velli.
45. mín
Hálfleikur og þá gefst loksins tækifæri til að kynna sér framboð Framsóknar á Akranesi þar sem Ragnar Baldvin Sæmundsson leiðir öflugan lista miðjumanna.
Hér er skemmtileg grein eftir Liv Åse, sem skipar 2.sætið, um Íþróttabæinn Akranes.
Á Akranesi eru íþróttir ekki bara eitthvað sem gerist eftir skóla heldur hluti af lífinu sjálfu

Varsla!
Árni Marínó kýlir fyrirgjöf í burtu sem fer beint í lappirnar á Valdimari. Hann reynir að tjippa boltanum yfir Árna en hann nær að blaka boltanum aftur fyrir í horn.
42. mín
Rétt framhjá!
Ómar Björn með frábæra takta fyrir utan teiginn sem endar með snuddu í fjær hornið sem fer rétt framhjá. Viktor Jóns tæpur að ná í boltann sömuleiðis.
Skagamenn mikið betri aðilinn í dag!
Skagamenn mikið betri aðilinn í dag!
37. mín
Dauðafæri!
Haukur kemur boltanum í gegn á Markús sem keyrir inn á teiginn. Hann hefði getað skotið en kýs frekar að koma boltanum inn á teiginn þar sem Gabríel Snær er mættur. Gabríel er kominn í frábæra stöðu inn á teignum og tekur skotið sem fer rétt yfir.
Þessi hefði átt að fara inn!
Þessi hefði átt að fara inn!
36. mín
Komið fjör í leika
KA-menn hafa haldið meira og minna í boltann eftir mark MARKúsar. Það er allt annað að sjá þá en þeir ná ekki að skapa sér nógu góð færi þegar eða gera sig gildandi á seinasta þriðjungnum.
Svo eru bæði lið byrjuð að tuða aðeins í dómaranum, þó aðallega heimaliðið. Bergmálið í höllinni er eins og það á að vera og stendur fyrir sínu eins og alltaf.
Svo eru bæði lið byrjuð að tuða aðeins í dómaranum, þó aðallega heimaliðið. Bergmálið í höllinni er eins og það á að vera og stendur fyrir sínu eins og alltaf.
Er kominn tími á pizzu?
Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
32. mín
MARK!
MARK!Markús Páll Ellertsson (ÍA)
Stoðsending: Gísli Eyjólfsson
Stoðsending: Gísli Eyjólfsson
MARKÚS SKORAR!
KA-menn tapa boltanum á klaufalegum stað og Gísli Eyjólf keyrir upp völlinn. Skagamenn eru komnir í þrír á tvo stöðu þegar Gísli rúllar boltanum til hliðar á Markús sem setur boltann milli lappa Stubbsins.
Skagamenn eru komnir yfir!
Skagamenn eru komnir yfir!
27. mín
Og núna sækja Skagamenn!
Ómar Björn keyrir upp hægri kantinn og kemur boltanum fyrir á hættusvæðið þar sem mér sýnist það vera Viktor Jóns sem er mættur en KA-menn rétt svo ná að pota boltanum frá honum og að lokum í burtu.
Stórhættulegt færi.
Stórhættulegt færi.
26. mín
Rétt framhjá
Danijel Djuric fær boltann á vinstri vængnum og keyrir inn á völlinn áður en hann kemur með fyrirgjöf sem Sveinn Margeir skallar rétt framhjá.
23. mín
Fínasta byrjun
Ágætis byrjun á leiknum. KA-menn eru að vinna sig inn í leikinn hægt og bítandi á meðan Skagamenn hafa verið betri aðilinn heilt yfir þessar upphafsmínútur.
18. mín
Skagamenn=Arsenal?
Skagamenn fá hornspyrnu og einn stuðningsmaður ÍA sem situr hliðin á mér kallar á völlinn "koma svo Skaginn við erum Arsenal"
Því miður fyrir hann og aðra Skagamenn kom ekkert úr spyrnunni.
Því miður fyrir hann og aðra Skagamenn kom ekkert úr spyrnunni.
17. mín
Jón Gísli tekur aftur spyrnuna inn á teiginn og það myndast smá klafs inni á teignum áður en þeir hreinsa endanlega frá.
15. mín
Önnur hornspyrna
Jón Gísli tekur spyrnuna inn á teiginn sem KA menn hreinsa frá.
Sóknarpressa Skagamanna heldur hins vegar áfram og úr henni fá þeir annað horn.
Sóknarpressa Skagamanna heldur hins vegar áfram og úr henni fá þeir annað horn.
10. mín
KA-menn með sitt fyrsta færi
Rodri gerir frábærlega í að vinna boltann ofarlega á vellinum og rúllar honum til hliðar á Valdimar Loga. Hann stillir sér upp og tekur skotið sem fer yfir markið.
8. mín
Skagamenn sækja
Viktor fær boltann við miðjan D-bogann og er með nokkra í bakinu. Þegar hann virðist vera að fara að tapa boltanum potar hann honum út á Gísla Eyjólfs sem reynir skotið en það fer beint á Stubbinn.
6. mín
Sláin!
Markús Páll og Ómar Björn spila skemmtilega á milli sín í vítateig KA manna sem endar með skoti Ómars í þverslána. Gestirnir sleppa þarna með skrekkinn!
1. mín
Leikur hafinn
Haukur Andri sparkar okkur í gang!
Góða skemmtun og megi gula liðið vinna.
Fyrir leik
ÍA vs KA
— Kristalkúlan (@kristalkulan) April 22, 2026
Skagamenn á heimavelli með Gísla Eyjólfsson í holunni eru líklegir til árangurs og stuðullinn á sigur heimamanna er 1.91 hjá Epic.https://t.co/Hf21zb5fNn
Fyrir leik
Mikil læti og mikið vesen í hátalarakerfinu
Liðin ganga til vallar og það ómar þetta skelfilega hljóð í hátalarakerfinu svoleiðis að allir halda fyrir eyrun og líta í kringum sig.
Þetta er ekkert eðlilega vont í eyrun. Eins gott að Skagamenn nái að laga þetta.
Þetta er ekkert eðlilega vont í eyrun. Eins gott að Skagamenn nái að laga þetta.
Fyrir leik
Skemmtilegt viðtal við Gabríel Snæ
Gabríel Snær Gunnarsson mun 1. júlí halda til Svíþjóðar en hann er búinn að semja við sænska félagið Elfsborg sem kaupir hann af ÍA.
Gabríel ræddi um vistaskiptin og ýmislegt annað í skemmtilegu viðtali sem birt var fyrr í dag.
Gabríel ræddi um vistaskiptin og ýmislegt annað í skemmtilegu viðtali sem birt var fyrr í dag.
Fyrir leik
Byrjunarliðin klár: Ein og tvær breytingar á liðunum
ÍA tíðindi
Lárus Orri Sigurðsson, þjálfari ÍA, gerir eina breytingu á sínu liði frá tapinu gegn Breiðabliki. Gabríel Snær Gunnarsson (2008) kemur inn í byrjunarliðið fyrir Guðmund Þórarinsson sem er fjarri góðu gamni eftir að hafa meiðst gegn Breiðabliki. Matthías Daði Gunnarsson og Aron Kristinn Zumbergs koma svo inn á bekkinn. Gabríel Snær er á leið til Elfsborg í sumar.
KA tíðindi
Hallgrímur Mar Steingrímsson er áfram fjarri góðu gamni hjá KA, missir af sínum öðrum leik vegna mjaðmameiðsla.
Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, gerir tvær breytingar á sínu liði frá tapinu gegn Víkingi. Kári Gautason kemur inn fyrir Birgi Baldvinsson sem meiddist í síðasta leik og Sveinn Margeir Hauksson byrjar í stað Samuel Kroon sem er ekki með í dag. Jóan Símun Edmundsson kemur inn í hópinn eftir meiðsli og gæti spilað sinn fyrsta leik á tímabilinu. Sigurður Nói Jóhannsson og Dagbjartur Búi Davíðsson koma einnig inn í hópinn hjá KA.

Spáin góða
Þriðja umferðin fer af stað strax í kvöld og tók Sigurður Ragnar Eyjólfsson að sér það verkefni að spá í spilin. Siggi Raggi er að gera frábæra hluti sem þjálfari NSÍ Runavíkur þessa stundina og situr á toppnum í færeyska fótboltanum.
ÍA 2 - 1 KA (18:00 í kvöld)
Ég held að þetta verði baráttuleikur en ÍA hefur sigur á heimavelli. Deano aðstoðarþjálfari verður í banni og í rauðum bol í stúkunni að horfa á. Hann mun fagna sigri, sá hlær best sem síðast hlær! En án gríns þá er ÍA með gott lið og flott þjálfarateymi, þeir verða sterkir í sumar. KA hefur farið hægt af stað og það heldur aðeins áfram en svo hitna þeir þegar líður á mótið.

Akureyringar á botninum
Tímabilið fyrir norðan byrjar erfiðlega en þeir sitja á botninum eftir tvo tapleiki fyrstu tvo leikina sína í deild gegn Víking Reykjavík og Stjörnunni á heimavelli.
Ná þeir í sín fyrstu stig í deildinni í Akraneshöllinni?
Ná þeir í sín fyrstu stig í deildinni í Akraneshöllinni?

Fyrir leik
Skagamenn með 1 stig
Það má segja að Skagamenn hafi verið rændir í seinasta leik gegn Breiðablik sem þeir töpuðu. Í fyrstu umferð gerðu þeir 3-3 jafntefli gegn Fram í líflegum leik sem þeir misstu niður í jafntefli.
Skagamenn leitast því eftir sínum fyrsta sigri í sumar og fá tækifæri til að gera það gegn botnliðinu á heimavelli.
Skagamenn leitast því eftir sínum fyrsta sigri í sumar og fá tækifæri til að gera það gegn botnliðinu á heimavelli.

Fyrir leik
Höllin kallar!
Heilir og sælir ágætu lesendur og veriði hjartanlega velkomin í þessa þráðbeinu textalýsingu frá leik ÍA og KA, eða eins og sumir kalla leikinn: Baráttan um gula litinn.
Eins og landinn veit verður spilað inni í Akraneshöllinni góðu (og köldu), vonandi fáum við hörkuleik í kvöld á Skaganum.
miðvikudagur 22. apríl
18:00 ÍA-KA (Akraneshöllin)
18:00 Keflavík-Breiðablik (HS Orku völlurinn)
fimmtudagur 23. apríl
13:00 ÍBV-KR (Hásteinsvöllur)
17:00 Þór-Fram (VÍS völlurinn)
19:15 Valur-FH (N1-völlurinn Hlíðarenda)
19:15 Víkingur R.-Stjarnan (Víkingsvöllur)

13. Steinþór Már Auðunsson (m)
3. Kári Gautason
4. Rodrigo Gomes Mateo
8. Jeppe Pedersen
9. Sveinn Margeir Hauksson
('61)
('61)
14. Danijel Dejan Djuric
('61)
('61)
16. Jakob Héðinn Róbertsson
('61)
('61)
23. Markús Máni Pétursson
28. Hans Viktor Guðmundsson (f)
30. Guðjón Ernir Hrafnkelsson
44. Valdimar Logi Sævarsson
('92)
- Meðalaldur 25 ár
('92)
Varamenn:
1. Ívar Arnbro Þórhallsson (m)
11. Jóan Símun Edmundsson
('92)
('92)
15. Oliver Heiðarsson
('61)
('61)
19. Breki Hólm Baldursson
20. Diego Montiel
('61)
('61)
25. Bjarki Fannar Helgason
('61)
('61)
27. Árni Veigar Árnason
32. Sigurður Nói Jóhannsson
88. Dagbjartur Búi Davíðsson
Liðsstjórn:
Hallgrímur Jónasson (Þ)
Atli Sveinn Þórarinsson
Tryggvi Björnsson
Egill Daði Angantýsson
Nicklas Cleemann Rulle
Gunnar Smári Jónbjörnsson
Gul spjöld:
Danijel Dejan Djuric ('61)
Rodrigo Gomes Mateo ('69)
Rauð spjöld: