Kolo Muani óvænt orðaður við Liverpool - Mainoo að framlengja - Bernardo Silva á radarnum hjá Arsenal og Barcelona
   mið 22. apríl 2026 15:47
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Mjög auðvelt að mótivera sig fyrir síðustu mánuðina hjá ÍA
Komið inn á í fyrstu tveimur umferðunum.
Komið inn á í fyrstu tveimur umferðunum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Búinn að semja við Elfsborg.
Búinn að semja við Elfsborg.
Mynd: Elfsborg
Viktor Jónsson er einn allra besti framherji deildarinnar.
Viktor Jónsson er einn allra besti framherji deildarinnar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gabríel Snær Gunnarsson mun 1. júlí halda til Svíþjóðar og gengur þá formlega í raðir Elfsborg. Elfsborg er búið að kaupa hann en hann mun spila með ÍA fram að því.

Gabríel verður 18 ára í sumar og hefur spilað með meistaraflokki ÍA frá síðasta sumri.

Hann ætlar sér að nýta allar þær mínútur sem hann fær með liðinu fram að skiptum.

Nýtir vikurnar til að undirbúa sig eins vel og hann getur
Ertu sáttur við veturinn og stöðuna þína í hópnum?

„Já, ég er mjög sáttur með veturinn. Ég skoraði mikið á undirbúningstímabilinu og fannst ég koma mér vel inn í liðið."

„Nú er Besta nýbyrjuð og ég þarf bara að nýta allar þær mínútur sem ég fæ og verða að stærri leikmanni í liðinu,"
segir Gabríel.

Hvernig leggjast næstu tveir mánuðir í þig, hvert er markmiðið þitt?

„Markmiðið mitt áður en ég fer út er að hjálpa ÍA eins mikið og ég get, reyna að ná eins góðum úrslitum eins og hægt er, skora kannski nokkur mörk og skilja við ÍA eins vel og ég get."

Hvernig mótiverarðu þig verandi búinn að ganga frá næsta skrefi?

„Það er mjög auðvelt að mótivera sig til að spila fyrir ÍA. Frábær klúbbur með frábæra stuðningsmenn sem maður vill alltaf gera vel fyrir."

„Ég vil bara vera eins vel undirbúinn og ég get fyrir atvinnumennskuna og að gera vel hjá ÍA er skref í áttina að því."


Frábært að geta lært af Viktori
Er einhver leikmaður sem þú hefur fylgst með síðustu ár, reynt að læra af og lítur upp til?

„Viktor Jóns er náttúrulega mikill markaskorari og það er frábært að koma inn sem ungur framherji í meistaraflokk ÍA og hafa leikmann eins og hann til að læra af," segir Gabríel.

ÍA á leik gegn KA klukkan 18:00 í kvöld í Akraneshöllinni og eftir það eru níu deildarleikir og a.m.k. einn bikarleikur fram að félagaskiptum Gabríels.
Slapp
banner
banner