Liverpool, Manchester United, Manchester City og Real Madrid fylgjast með Rafael Leao - Man Utd hefur áhuga á Van de Ven
Lengjudeild karla
Fylkir
LL 3
0
Ægir
Lengjudeild karla
Afturelding
LL 4
7
ÍR
Besta kvenna
Víkingur R.
LL 2
1
Stjarnan
Besta kvenna
Breiðablik
LL 2
0
Þróttur R.
Víkingur R.
2
1
Stjarnan
Freyja Stefánsdóttir '1 1-0
1-1 Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir '22
Jasmín Erla Ingadóttir '80 2-1
24.04.2026  -  19:15
Víkingsvöllur
Besta kvenna
Dómari: Brynjar Þór Elvarsson
Maður leiksins: Jasmín Erla Ingadóttir
Byrjunarlið:
41. Elizabeth Grace McClellan (m)
3. Áslaug Dóra Sigurbjörnsdóttir (f)
5. Emma Steinsen Jónsdóttir ('75)
8. Birta Birgisdóttir
9. Freyja Stefánsdóttir ('87)
17. Jasmín Erla Ingadóttir
18. Kristín Erla Ó Johnson
20. Bergþóra Sól Ásmundsdóttir
26. Bergdís Sveinsdóttir
27. Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir ('87)
35. Arna Ísold Stefánsdóttir ('65)
- Meðalaldur 23 ár

Varamenn:
1. Sigurborg K. Sveinbjörnsdóttir
7. Dagný Rún Pétursdóttir ('65)
11. Helena Ósk Hálfdánardóttir ('87)
13. Camilly Kristal Silva Da Rocha
16. Jóhanna Elín Halldórsdóttir ('75)
23. Elísa Birta Káradóttir
33. Þórdís Embla Sveinbjörnsdóttir
34. Anika Jóna Jónsdóttir ('87)
36. Karítas Björg Guðmundsdóttir

Liðsstjórn:
Einar Guðnason (Þ)
Dagmar Pálsdóttir
Unnbjörg Jóna Ómarsdóttir
Lisbeth Borg
Shaina Faiena Ashouri
Lára Hafliðadóttir
Jón Páll Pálmason

Gul spjöld:
Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir ('84)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Ótrúlega jafn leikur hér í Hamingjunni þar sem Víkingar taka öll þrjú stigin úr þessum leik.

Viðtöl og skýrsla koma inn seinna í dag, takk fyrir mig og góða helgi!
91. mín
Jóhanna með skot sem fer rétt framhjá markinu.
90. mín
+4 til uppbótar
90. mín
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

87. mín
Inn:Anika Jóna Jónsdóttir (Víkingur R.) Út:Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir (Víkingur R.)
87. mín
Inn:Helena Ósk Hálfdánardóttir (Víkingur R.) Út:Freyja Stefánsdóttir (Víkingur R.)
85. mín
Inn:Snædís María Jörundsdóttir (Stjarnan) Út:Þóra María Hjaltadóttir (Stjarnan)
84. mín Gult spjald: Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir (Víkingur R.)
83. mín
Víkingar vinna hornspyrnu Bridgette í markinu grípur þennan beint frá horninu
80. mín MARK!
Jasmín Erla Ingadóttir (Víkingur R.)
Stoðsending: Jóhanna Elín Halldórsdóttir
Víkingur að komast yfir! Jóhanna á hægri kanti kemur boltanum inn í teigin sem einhvern vegin finnur Jasmínu sem stendur beint fyrir framan markið og kemur boltanum inn í netið.
79. mín
Úlfa Dís með góða fyrirgjöf inn í teig sem stefnir beint á Birnu sem tekur skotið í fyrstu snertingu sem Elizabeth ver vel með að grípa.
76. mín
Víkingar komnir í flotta sókn. Bergdís kemur boltanum á Jóhönnu sem var að koma inn á. Jóhanna er komin í gott færi, en skýtur boltanum framhjá markinu.
75. mín
Inn:Jóhanna Elín Halldórsdóttir (Víkingur R.) Út:Emma Steinsen Jónsdóttir (Víkingur R.)
74. mín
Inn:Jana Sól Valdimarsdóttir (Stjarnan) Út:Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir (Stjarnan)
73. mín
HVERNIG?!? Víkingur kemst í svakalega hraðupphlaup þar sem 3 Víkings stelpur eru að hlaupa tað teig Stjörnuna og enginn Stjörnunleikmaður með þær. Fanney hleypur all leið upp og endar með að taka skotið ein gegn markvörð. Skotið endar í stöngina.
72. mín
Elizabeth með flotta vörslu eftir skot frá Fanney.
70. mín
Emma Steinsen meðe fyrirgjöf sem endar beint í fanginu á Bridgette.
68. mín
Inn:Fanney Lísa Jóhannesdóttir (Stjarnan) Út:Hulda Hrund Arnarsdóttir (Stjarnan)
65. mín
Inn:Dagný Rún Pétursdóttir (Víkingur R.) Út:Arna Ísold Stefánsdóttir (Víkingur R.)
62. mín
Brynjar dómari er ekki sáttur við þjálfarteymi hjá báða liðina sem öskrá báðir á hvort annað og dómarana á fullu.
57. mín
Úlfa Dís reynir lága fyrirgjöf en boltinn endar beint í fangið á Elizabeth
53. mín
Stjarnan með svakalegt færi reftir að boltinn endar inn í teig Víkinga og Murielle reynir að ýta boltanum inn í mark, en skýtur framhjá markinu.
50. mín
Bergdís með aukaspyrnu sem fer í vegg Stjörnuna.
49. mín
Einar, þjálfari Víkings, horfir hér upp í fjölmiðlastúkunna til athuga hvort var eini sem fannst þetta ætti að hafa verið rautt.
49. mín Gult spjald: Jakobína Hjörvarsdóttir (Stjarnan)
48. mín
Jakobína tekur niður leikmann Stjörnuna sem var nánast komin ein gegn markamanni. Ég set spunringarmerki um hvort þetta hefði átt að vera rautt þarna! Sá alveg á Brynjari að hann þurfti að hugsa í smá áður en hann dró upp spjaldið.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn! Murielle sparkar leiknum aftur í gang.
45. mín
Hálfleikur
Þetta hefur verið mjög jafn fyrri hálfleikur og allt getur gerst í þeim seinni.
44. mín
Stjarnan fær hornspyrnu Víkingar skalla boltanum í burtu.
42. mín Gult spjald: Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir (Stjarnan)
Ingibjörg með peysutog og fær fyrst gula spjald Bestu deildar í ár
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
39. mín
Lítið í gangi í leiknum þessa stundina. Boltin spilast á milli bæði lið en það er svona eina sem er í gangi.
29. mín
Geitin með myndir eftir mark Stjörnuna
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

28. mín
Arna Ísold með skot að löngu færi sem Bridgette léttilega með.
25. mín
Murielle fær góða sendingu upp og hún sér að Elizabeth stendur langt frá markinu og Murielle ákveður að taka skotið frá löngu færi. Elizabeth nær að ýta boltanum í burtu.
22. mín MARK!
Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir (Stjarnan)
Stoðsending: Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir
Stjarnan jafnar! Markið kom alveg upp úr þurru. Úlfu með sendingu frá hægri kanti inn í teigin sem endar á Ingibjörgu. Ingibjörg á svo frekar laust skot á markið sem Elizabeth ætti að gera miklu betur í, en boltir endar framhjá henni og inn í markið.
19. mín
Víkingar fá hornspyrnu.

Stjarnan koma boltanum í burtu.
18. mín
Víkingar fá sprett upp að teignum sem endar með skoti frá Bergdísi sem fer í varnamann og Bridgette í markinu grípur svo boltann.
12. mín
Hafliði með frábærar myndir af fagninu!
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
8. mín
Þóra María með skot sem fer í varnamann Víkings og Stjarnan eiga hornspyrnu.

Boltinn flýgjur yfir alla pakkan
1. mín MARK!
Freyja Stefánsdóttir (Víkingur R.)
Stoðsending: Jasmín Erla Ingadóttir
NÚ JÆJA! Þetta tók enga stunda og Freyja kemur Víkingum yfir á innan við mínútu. Jasmín með sendingu frá hægri kanti sem nær inn í tegiin beint á Freyju sem er ein beint fyrir framan markið. Freyja kemur þessum á milli lappirnar á Bridgette og Víkingar kmnir yfir.

Ég hélt að Freyja væri rangstæð í þessu marki en línuvörðurinn segir ekkert við því.
1. mín
Leikur hafinn
Arna Ísold sparkar þessu í gang!
Fyrir leik
Arna Eiríks spáir í 1. umferð Landsliðskonan Arna Eiríksdóttir fékk það verkefni að spá í leikina sem framundan eru.

Víkingur R. 3 - 1 Stjarnan
Ég held að Víkingur sé eitt af þeim liðum sem gæti verið í toppbaráttunni í ár ef allt smellur vel saman hjá þeim.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Fyrir leik
Dómarateymi Aðaldómari leiksins er nafni minn Brynjar Þór Elvarsson. Með honum til aðstoðar eru Kristinn Freyr Victorsson og Guðmundur Kristinn Davíðsson. Fjórði dómari leiksins er Arnar Hólm Einarsson. Eftirlitsmaður leiksin frá KSÍ er Gunnar Helgason.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Opnunardagur Í dag er opnunardagur Bestu deildar kvenna. Það verða tveir leikir spilaðir í dag, báðir á sama tíma. Á sama tíma og þessi leikur er spilaður eru Íslandsmeistarar að bjóða Þróttara á Kópavogsvelli.

Föstudagur:
Víkingur R. - Stjarnan 19:15
Breiðablik - Þróttur 19:15

Laugardagur
Fram - ÍBV 13:00
Valur - Grindavík/Njarðvík 16:00
Þór/KA - FH 16:00

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Fótbolti.net spá Stjörnuna í 4. sæti Stjarnan fer inn í nýtt tímabil í Bestu deildinni með ákveðna eftirvæntingu og von um gott sumar. Liðinu er spáð 4. sæti, sem setur þær í hóp þeirra liða sem eiga að vera í baráttunni rétt fyrir neðan toppinn, en hver veit ef hlutirnir smella fullkomlega? Nýr þjálfari er kominn til starfa sem gæti fært liðinu ferskleika og nýja nálgun, eitthvað sem Stjarnan þurfti mögulega. Undirbúningstímabilið hefur verið upp og niður, sem gerir það að verkum að erfitt er að lesa nákvæmlega hvar liðið stendur þegar mótið hefst. Hins vegar eru gæðin til staðar og þegar Stjarnan nær flugi hefur liðið sýnt að það getur keppt við þau bestu. Spurningin verður hversu fljótt nýjar áherslur skila sér inn á völlinn. Það eru orðin nokkur ár síðan Stjarnan sat á toppi íslenska kvennaboltans og margt hefur breyst síðan þá, bæði innan félagsins og í deildinni sjálfri. Draumurinn um að komast aftur á þann stað er vonandi til staðar.

Fyrir leik
Fótbolti.net spá Víking í 3. sæti Víkingur fer inn í nýtt tímabil í Bestu deildinni með háar væntingar eftir mikinn uppgang síðustu ár. Liðinu er spáð 3. sæti en á undanförnum tímabilum hefur Víkingur byggt sig hratt upp, meðal annars með bikarmeistaratitli. Síðasta tímabil var þó áminning um að leiðin upp á topp er sjaldnast bein lína. Byrjunin var erfið og úrslitin ekki í takt við væntingar, sem leiddi til þjálfaraskipta snemma sumars. Sú breyting skilaði sér hins vegar í betri frammistöðu og liðið náði að rétta úr kútnum og enda í efri hlutanum. Víkingur er ekki lengur liðið sem kemur á óvart, heldur liðið sem ætlar sér að berjast um þann stóra. Spurningin er hvort þeim takist að ná stöðugleika frá fyrsta leik og forðast þær sveiflur sem settu strik í reikninginn í fyrra. Ef þær ná því og byggja ofan á þann grunn sem hefur verið lagður síðustu ár, gæti Víkingur verið raunverulegur kandídat í Íslandsmeistaratitilinn.

Fyrir leik
Komnar/farnar Víkingur
Komnar
Helena Ósk Hálfdánardóttir frá Val
Jasmín Erla Ingadóttir frá Val
Grace McClellan frá Finnlandi
Elísa Birta Káradóttir frá HK
Þórhildur Þórhallsdóttir frá Fylki
Camilly Kristal Silva Da Rocha frá Þrótti
Hrafnhildur Hjaltalín frá Aftureldingu

Mynd: Víkingur R.


Farnar
Linda Líf Boama til Kristianstad
Gígja Valgerður Harðardóttir
Eva Ýr Helgadóttir hætt
Ashley Clark til Montpellier
Júlía Ruth Thasaphong til Grindavíkur/Njarðvíkur

Stjarnan
Komnar
Murielle Tiernan frá Fram
Telma Steindórsdóttir frá Fram
Jakobína Hjörvarsdóttir alfarið frá Breiðabliki (var á láni)

Farnar
Betsy Hassett hætt
Vera Varis
Esther Rós Arnarsdóttir
Henríetta Ágústsdóttir í HK (var á láni hjá Þór/KA)

Mynd: Stjarnan


Fyrir leik
Besta kvenna er að hefjast! Góða kvöldið gott fólk og verið hjartanlega velkomin á þessa beinu textalýsingu frá Víkingsvellinum þar sem Víkingur tekur á móti Stjörnuna í fyrstu umferð Bestu deildar kvenna.

Leikurinn hefst kl.19:15

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Byrjunarlið:
13. Bridgette Nicole Skiba (m)
4. Jakobína Hjörvarsdóttir
5. Eva Marie Wirtz
6. Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir
8. Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir ('74)
9. Birna Jóhannsdóttir
10. Anna María Baldursdóttir (f)
15. Hulda Hrund Arnarsdóttir ('68)
21. Þóra María Hjaltadóttir ('85)
26. Andrea Mist Pálsdóttir
29. Murielle Tiernan
- Meðalaldur 25 ár

Varamenn:
33. Tinna María Heiðdísardóttir (m)
14. Snædís María Jörundsdóttir ('85)
17. Fanney Lísa Jóhannesdóttir ('68)
18. Margrét Lea Gísladóttir
23. Rósa María Sigurðardóttir
24. Ásthildur Lilja Atladóttir
28. Erika Ýr Björnsdóttir
37. Jana Sól Valdimarsdóttir ('74)
40. Kara Sigríður Sævarsdóttir

Liðsstjórn:
Óskar Smári Haraldsson (Þ)
Rajko Stanisic
Benjamín Orri Hulduson
Hulda Björk Brynjarsdóttir
Beka Kaichanidis
Orian Burzic
Artur Kotyash
Birgir Freyr Magnason

Gul spjöld:
Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir ('42)
Jakobína Hjörvarsdóttir ('49)

Rauð spjöld: