Fyrsta umferð Bestu deildar kvenna hefst í kvöld með tveimur leikjum. Umferðin klárast svo á morgun.
Landsliðskonan Arna Eiríksdóttir fékk það verkefni að spá í leikina sem framundan eru.
Landsliðskonan Arna Eiríksdóttir fékk það verkefni að spá í leikina sem framundan eru.
Breiðablik 1 - 1 Þróttur R. (19:15 í kvöld)
Spennandi leikur milli tveggja liða sem spiluðu vel í fyrra. Ég held að bæði lið fari frekar varkár inn í þennan leik og spái 1-1 jafntefli. Hrafnhildur Ása skorar fyrir Blika og Þórdís Elva fyrir Þrótt
Víkingur R. 3 - 1 Stjarnan (19:15 í kvöld)
Ég held að Víkingur sé eitt af þeim liðum sem gæti verið í toppbaráttunni í ár ef allt smellur vel saman hjá þeim.
Fram 1 - 1 ÍBV (13:00 á morgun)
Mér finnst mjög erfitt að spá fyrir um úrslit þessa leiks. Fram hefur misst marga af sínum bestu leikmönnum frá því í fyrra og ÍBV mætir til leiks með marga útlendinga sem ég þekki lítið til. Ég spái því að leikurinn fari 1 - 1.
Valur 6 - 0 Grindavík/Njarðvík (16:00 á morgun)
Ætli það sé ekki best að taka það fram fyrst að hér er ég alls ekki hlutlaus. Ég held að Valur byrji tímabilið á alvöru sprengju og bjóði nýliðana velkomna í Bestu deildina. Leikurinn fer 6-0 fyrir Val. Bryndís, Malla og Margrét Brynja setja 2 hver. Ég hvet fólk sérstaklega til þess að fylgjast með besta hægri bakverði deildarinnar í þessum leik.
Þór/KA 0 - 4 FH (16:00 á morgun)
Það hefur svo sem aldrei verið auðvelt að mæta Þór/KA á þeirra heimavelli en í þessum leik eru þær því miður að mæta ofurefli. FH stelpurnar hafa verið ekkert eðlilega góðar upp á síðkastið og mínar konur setja tóninn með 0 - 4 sigri. Katla setur eitt eftir horn, Ída kemur með eitt af 40 metrunum og svo koma tvö úr BKK kjúklingaræktinni(iykyk).



