Stones gæti farið aftur til Everton - Salah tekur Tyrkland fram yfir Sádi-Arabíu - Vicario á förum frá Tottenham
Lengjudeild karla
Grótta
LL 1
2
Leiknir R.
Lengjudeild karla
Þróttur R.
LL 3
1
ÍR
Lengjudeild karla
HK
LL 2
1
Ægir
Þróttur R.
3
1
ÍR
Ágúst Unnar Kristinsson '18
Kristján Atli Marteinsson '30 , sjálfsmark 1-0
Örn Bragi Hinriksson '33 2-0
Vilhjálmur Kaldal Sigurðsson '37 3-0
3-1 Emil Nói Sigurhjartarson '49
01.05.2026  -  19:15
AVIS völlurinn
Lengjudeild karla
Aðstæður: Kalt en bjart og stillt
Dómari: Hreinn Magnússon
Maður leiksins: Sigurður Egill Lárusson (Þróttur)
Byrjunarlið:
12. Aron Dagur Birnuson (m)
2. Eiríkur Þorsteinsson Blöndal
3. Stefán Þórður Stefánsson
4. Njörður Þórhallsson
8. Baldur Hannes Stefánsson (f)
10. Sigurður Egill Lárusson
21. Brynjar Gautur Harðarson
25. Hlynur Þórhallsson ('90)
27. Örn Bragi Hinriksson ('57)
32. Aron Snær Ingason ('90)
45. Vilhjálmur Kaldal Sigurðsson
- Meðalaldur 25 ár

Varamenn:
1. Þórhallur Ísak Guðmundsson
5. Kolbeinn Nói Guðbergsson ('90)
6. Jakob Ocares Kristjánsson ('74)
7. Tryggvi Snær Geirsson ('57) ('74)
19. Egill Harðarson
20. Viktor Steinarsson
24. Daníel Karl Þrastarson ('90)

Liðsstjórn:
Sigurvin Ólafsson (Þ)
Valgeir Einarsson Mantyla
Hans Sævar Sævarsson
Alexander Máni Curtis
Amir Mehica
Orri Sigurjónsson
Björn Sigurbjörnsson

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Öruggur sigur Þróttara hér í kvöld. Þetta var í raun aldrei spurning eftir rauða spjaldið.

Skýrsla og viðtöl væntanleg seinna í kvöld.
92. mín
Sigurður Egill með góðan bolta inn í teig og Jacob Ocares nær skallanum í átt að marki, en fer af varnarmanni og aftur fyrir.
91. mín
Venjulegum leiktíma lokið. Ekkert skilti í Lengjudeildinni en trúi því ekki að það verða margar mínútur í uppbótartíma.
90. mín
Inn:Daníel Karl Þrastarson (Þróttur R.) Út:Hlynur Þórhallsson (Þróttur R.)
90. mín
Inn:Kolbeinn Nói Guðbergsson (Þróttur R.) Út:Aron Snær Ingason (Þróttur R.)
84. mín Gult spjald: Helgi Freyr Þorsteinsson (ÍR)
Þetta er gult á einhvern í teyminu, sá ekki hvern bara að það var ekki á Jóhann aðalþjálfara ÍR. Það voru einhverjir hjá ÍR sem voru að biðja um víti, en mér fannst það ekki vera neitt.
82. mín
Emil Nói reynir skotið úr aukaspyrnu af mjög löngu færi. Skotið fer langt framhjá.
79. mín
Inn:Guðjón Máni Magnússon (ÍR) Út:Bergvin Fannar Helgason (ÍR)
79. mín
Ekki svo galið Bergvin Fannar fær boltann skoppandi til sín fyrir utan teig. Hann lætur vaða úr erfiðu færi og boltinn bara rétt framhjá.
76. mín
ÍR-ingar fá hornspyrnu. Emil kemur með spyrnuna á nær en Þróttarar hreinsa.
74. mín
Inn:Jakob Ocares Kristjánsson (Þróttur R.) Út:Tryggvi Snær Geirsson (Þróttur R.)
Tryggvi hefur eitthvað meiðst, kom inn á fyrir aðeins tæpum 20 mínútum.
68. mín
Mjög dauft yfir leiknum síðustu mínútur. Þróttarar frekar sáttir með sitt forskot og ÍR-ingar í erfiðleikum með að gera eitthvað fram á við manni færri.
64. mín
Inn:André Musa Solórzano Abed (ÍR) Út:Óliver Andri Einarsson (ÍR)
63. mín
Tryggvi reynir skotið beint úr aukaspyrnu, en þessi spyrna var mjög slök og Vilhelm ekki neinum vandræðum.
60. mín Gult spjald: Óliver Andri Einarsson (ÍR)
Seinn í tæklingu.
57. mín
Inn:Tryggvi Snær Geirsson (Þróttur R.) Út:Örn Bragi Hinriksson (Þróttur R.)
51. mín
Aron Snær í færi! Fastur bolti inn fyrir vörnina og Aron Snær er kominn í gegn. Færið er hins vegar frekar þröngt og hann tekur fast skot en Vilhelm ver frá honum.
49. mín MARK!
Emil Nói Sigurhjartarson (ÍR)
Beint úr aukaspyrnu! Emil með mjög flotta spyrnu sem fer yfir vegginn og undir slánna. Fyrsta skot ÍR-inga síðan þeir urðu manni færri að ég held. Þetta er kannski ekki alveg búið.
49. mín
ÍR-ingar fá aukaspyrnu á hættulegum stað.
48. mín
Sigurður Egill með fastan bolta fyrir og Örn rétt nær að pota í boltann en skotið í varnarmann.
46. mín
Inn:Víðir Freyr Ívarsson (ÍR) Út:Orri Bjarkason (ÍR)
Tvöföl breyting í hálfleik.
46. mín
Inn:Halldór Atli Kristjánsson (ÍR) Út:Hrafn Hallgrímsson (ÍR)
46. mín
Seinni hálfleikur er hafinn
45. mín
Hálfleikur
Sigurður Egill reynir skotið fyrir utan teig sem fer beint á Vilhelm og þá blæs Hreinn til hálfleiks. Algjör einstefna hér í Laugardalnum, enda ÍR-ingar manni færri. Þeir hafa hins vegar á köflum verið sjálfum sér verstir.
43. mín
Þróttarar vilja fá brot þegar Aron Snær var eiginlega sloppinn í gegn. Hreinn sleppur þessu, en ef hann hefði dæmt hefði hann mögulega þurft að gefa annað rautt. Líkast til rétt dæmt hins vegar, sýnist Aron bara missa jafnvægið.
37. mín MARK!
Vilhjálmur Kaldal Sigurðsson (Þróttur R.)
Stoðsending: Sigurður Egill Lárusson
Þeir ganga á lagið! Sigurður Egill með boltann úti á vinstri kantinum. Hann gefur boltann fastann fyrir og Vilhjálmur er mættur á nær. Hann nær akkúrat réttri snertingu á boltann til þess að hann fari innan við stöngina en framhjá Vilhelm.

Fyrsta markið sem maður getur sagt að hafi bara verið vel gert hjá Þrótti og ekki einhver katastrófa í vörn ÍR.
33. mín MARK!
Örn Bragi Hinriksson (Þróttur R.)
Gestirnir þvílíkir klaufar!! Vilhelm gefur boltann bara beint á Örn, alveg glórulaus sending. Örn tekur þá bara skotið, og Vilhelm kemst aðeins í það en boltinn lekur samt inn.

Það á bara ekkert að ganga upp hjá ÍR í kvöld virðist vera.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
30. mín SJÁLFSMARK!
Kristján Atli Marteinsson (ÍR)
Afskaplega klaufalegt!! Þróttarar eru með boltann úti á hægri kantinum og mér sýnist það vera Sigurður Egill sem kemur boltanum fyrir. Kristján Atli ætlar að skalla boltann frá en nær ekki nógu góðri snertingu. Hann endar þá á að skalla boltann aftur fyrir sig og ef þetta væri í rétt mark myndi maður kalla þetta stórkostlega afgreiðslu upp í hornið. Vilhelm átti ekki séns í þennan.

Gengur allt á afturfótunum hjá ÍR núna.
27. mín
Inn:Ísak Atli Atlason (ÍR) Út:Stefán Þór Pálsson (ÍR)
Ísak fer í vinstri bak og Jón Arnar í hægri þar sem Ágúst var.
26. mín
Leikurinn verið frekar rólegur síðan rauða spjaldið kom. Liðin enn að átta sig almennilega á því hvernig þeir eiga að höndla þetta.
18. mín Rautt spjald: Ágúst Unnar Kristinsson (ÍR)
Tekur niður síðasta manninn! Örn Bragi gerir ógeðslega vel í að vera fyrstur í lausan bolta og pota boltanum áfram á Aron Snæ sem er þá bara sloppinn í gegn. Ágúst reynir að halda í við hann en brýtur á honum í leiðinni og fær réttilega rautt. Aron hefði verið einn gegn markmanni annars.
16. mín
Þróttarar í góðu færi! Flott sókn hjá heimamönnum upp hægri kantinn. Aron Snær leggur boltann stutt á Eirík sem er stutt frá marki en færið frekar þröngt. Hann lætur vaða en Vilhelm sér við honum.
14. mín
Þróttarar með hornspyrnu og Sigurður kemur með spyrnuna á fjær. ÍR-ingar ná fyrsta skalla en Aron Snær nær þá lausa boltanum. Hann reynir að koma sér í betri skotstöðu og lætur svo vaða en þetta hátt yfir.
11. mín
Spyrnan slök hjá Sigurði Agli beint í vegginn og Eiríkur nær lausa boltanum. Hann lætur þá vaða af löngu færi en slakt skot sem fer hátt yfir.
Lengjudeildin er á Livey - Með kóðanum fotboltinet fæst 30% afsláttur af fyrsta mánuðinum! Livey
11. mín
Hrafn fer frekar hressilega í Vilhjálm Kaldal úti á vinstri kantinum og Þróttarar fá aukaspyrnu á fínum stað fyrir fyrirgjöf.
8. mín
Sigurður Egill tekur spyrnuna á nær þar sem Njörður fleytir boltanum áfram. Brynjar Gautur nær svo skallanum en hann er laus og beint á Vilhelm í markinu.
7. mín
Þróttarar fá fyrsta horn leiksins.
5. mín
Veikt vítakall Örn Bragi er með boltann úti á hægri kantinum og reynir að keyra inn á teiginn. Hann fellur við þegar kemur að fyrsta varnarmanni og baðar aðeins út höndum, en enginn almennilega hneykslaður á því að ekkert skildi vera dæmt þarna.
1. mín
Leikur hafinn
Hreinn flautar og það eru ÍR-ingar sem taka upphafssparkið.
Fyrir leik
Þetta fer að bresta á Leikmenn ganga til vallar og þá fer upphafsflautið alveg að gjalla.
Fyrir leik
Byrjunarliðin Það er tæpur klukkutími í leik og byrjunarliðin hafa verið birt. Það má oft sjá breytingar milli leikja hjá þjálfurum en ekki í kvöld. Því bæði byrjunarlið eru alveg eins og í síðustu umferð.
Fyrir leik
ÍR fær nýjan leikmann Tareq Shihab hefur gengið til liðs við ÍR en það var tilkynnt í dag. Það verður áhugavert að fylgjast með hvort hann taki eitthvað þátt í þessum leik.
Fyrir leik
Komnir og farnir Þróttur
Komnir
Sigurður Egill Lárusson frá Val
Adam Árni Róbertsson frá Grindavík
Aron Dagur Birnuson frá Stjörnunni (á láni)
Tryggvi Snær Geirsson frá Fram

Farnir
Kári Kristjánsson í FH
Liam Daði Jeffs í ÍBV
Viktor Andri Hafþórsson í Fjölni
Hrafn Tómasson í KR (var á láni)
Sigfús Árni Guðmundsson í Fram (var á láni)
Emil Skúli Einarsson í Gróttu
Benoný Haraldsson í Þrótt Vogum á láni

ÍR
Komnir
Jón Arnar Sigurðsson frá KR
Halldór Atli Kristjánsson frá Augnabliki
André Solórzano frá Hetti
Orri Bjarkason frá Breiðabliki á láni
Ísak Atli Atlason frá FH á láni
Sæþór Ívan Viðarsson frá Hetti
Róbert Kolbeins Þórarinsson frá KFG
Benedikt Þórir Jóhannsson frá KV

Farnir
Marc Mcausland í Víði
Alexander Kostic hættur
Reynir Haraldsson hættur
Breki Hólm Baldursson í KA (var á láni)
Óðinn Bjarkason í Aftureldingu (var á láni frá KR)
Gils Gíslason í FH (var á láni)
Gabríel Aron Sævarsson í Hauka (á láni frá Blikum)
Óliver Elís Hlynsson í Fram (var á láni)
Gúndur Elllingsggaard Petersen
Renato Punyed Dubon til Níkaragva
Fyrir leik
Livey með flotta umfjöllun Livey sýnir frá öllum leikjum Lengjudeildarinnar í sumar og verða einnig með umfjöllunarþátt eftir hverja umferð. Hægt er að sjá umfjöllunarþáttinn fyrir fyrstu umferð hér.
Fyrir leik
Dómarinn Hreinn Magnússon verður með flautuna í þessum leik en honum til aðstoðar verða Ragnar Þór Bender og Breki Sigurðsson. Hjalti Þór Halldórsson verður eftirlitsmaður KSÍ.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Ótrúlegur sigur ÍR-inga síðast ÍR fór í Mosfellsbæinn í fyrstu umferð þar sem þeir mættu Aftureldingu í opnunarleik Lengjudeildarinnar. Það er óhætt að segja að deildin hafi byrjað með látum þar sem ÍR vann leikinn 7-4. ÍR beytti mjög skilvirkum skyndisóknarbolta þar sem þeir voru rétt rúmlega 20% með boltann.


Fyrir leik
Þróttarar unnu í fyrstu umferð Það var risa slagur í fyrstu umferð þar sem Þróttarar mættu Njarðvík. Þrótturum er spáð fyrsta sæti í deildinni af þjálfurum og fyrirliðum en Njarðvík því þriðja. Þróttur vann leikinn með tveimur mörkum gegn engu, þar sem markaskorarar voru Örn Bragi Hinriksson og Hlynur Þórhallsson.
Fyrir leik
Lengjudeildin heilsar! Komið þið sæl og verið velkomin í beina textalýsingu frá leik Þróttar og ÍR í 2. umferð Lengjudeildar karla.

Leikurinn hefst klukkan 19:15 og verður spilaður á AVIS vellinum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Byrjunarlið:
1. Vilhelm Þráinn Sigurjónsson (m)
4. Sigurður Karl Gunnarsson
5. Hrafn Hallgrímsson ('46)
6. Kristján Atli Marteinsson
8. Emil Nói Sigurhjartarson
9. Bergvin Fannar Helgason ('79)
10. Stefán Þór Pálsson ('27)
17. Óliver Andri Einarsson ('64)
23. Ágúst Unnar Kristinsson (f)
25. Jón Arnar Sigurðsson
61. Orri Bjarkason ('46)
- Meðalaldur 23 ár

Varamenn:
2. André Musa Solórzano Abed ('64)
3. Halldór Atli Kristjánsson ('46)
11. Guðjón Máni Magnússon ('79)
14. Víðir Freyr Ívarsson ('46)
15. Mikael Trausti Viðarsson
33. Ísak Atli Atlason ('27)
67. Sadew Vidusha R. A. Desapriya

Liðsstjórn:
Jóhann Birnir Guðmundsson (Þ)
Helgi Freyr Þorsteinsson
Ívan Óli Santos
Ómar Atli Sigurðsson
Óliver Elís Hlynsson
Davíð Örvar Ólafsson
Jónþór Atli Ingólfsson

Gul spjöld:
Óliver Andri Einarsson ('60)
Helgi Freyr Þorsteinsson ('84)

Rauð spjöld:
Ágúst Unnar Kristinsson ('18)