„Þetta var náttúrulega ótrúlegur leikur, bara mjög glaður að hafa unnið þennan leik. Við vissum að þetta yrði mjög erfiður leikur, "sagði Jóhann Birnir Guðmundsson, þjálfari ÍR.
Jóhann Birnir var kampakátur að loknum fyrsta leik liðs hans í Lengjudeildinni gegn Aftureldingu á útivelli.
Jóhann Birnir var kampakátur að loknum fyrsta leik liðs hans í Lengjudeildinni gegn Aftureldingu á útivelli.
Lestu um leikinn: Afturelding 4 - 7 ÍR
„Það er náttúrulega mjög gaman að skora fullt af mörkum, en við fengum líka fjögur mörk á okkur þ.a. það dregur aðeins úr þessu. Við erum mjög ánægðir með karakterinn og stemninguna, ánægður með strákana," sagði Jóhann Birnir.
Hver voru skilaboðin til leikmanna í hálfleik?
„Í hálfleik voru skilaboðin að sofna ekki á verðinum og halda forystunni. Við skoruðum svo strax eftir 2 mínútur í seinni hálfleik en þeir skoruðu svo tvö mörk í andlitið á okkur á fimm mínútum. Þetta var alltaf leikur þannig séð. Ótrúlegur leikur og skemmtilegur og bara gaman fyrir Lengjuna að fá svona leik. "
Afturelding sótti mikið og stundum var sem mark lægi í loftinu.
„Ég held að ég hafi ekki verið rólegur með úrslitin fyrr en á 92. mínútu, þegar mínúta var eftir. Þeir eru ekki að fara að skora þrjú mörk núna," sagði Jóhann Birnir léttur.























