Real Madrid ræðir við Mourinho - Chelsea og Newcastle vilja Nunez - Joao Gomes til Atlético?
Lengjudeild karla
Völsungur
LL 0
3
Þróttur R.
Lengjudeild karla
Ægir
LL 0
1
Grótta
Lengjudeild karla
Vestri
LL 4
3
HK
2. deild karla
KFA
LL 2
4
Kári
Vestri
4
3
HK
0-1 Jóhann Þór Arnarsson '16 , víti
Ibrahima Balde '34 1-1
Chriss-Albin Mörfelt '44 2-1
Ibrahima Balde '72 3-1
3-2 Jóhann Þór Arnarsson '80
Pétur Bjarnason '80 4-2
4-3 Dominik Radic '87
09.05.2026  -  14:00
Kerecisvöllurinn
Lengjudeild karla
Aðstæður: Sól og blíða framan af en varð skýjað þegar leið á leikinn
Dómari: Hreinn Magnússon
Áhorfendur: 170 manns hér í dag
Maður leiksins: Ibrahima Balde
Byrjunarlið:
1. Marvin Darri Steinarsson (m)
3. Edson Eduardo Dias Gomes
6. Ibrahima Balde ('89)
7. Jacob Stensson ('78)
11. Johannes Selvén ('69)
12. Thibang Phete
17. Gunnar Jónas Hauksson
22. Elmar Atli Garðarsson (f)
23. Breki Þór Hermannsson ('69)
27. Chriss-Albin Mörfelt ('69)
29. Konstantin Cheshmedjiev
- Meðalaldur 27 ár

Varamenn:
33. Benedikt Jóhann Þ. Snædal (m)
2. Gabríel Heiðberg Kristjánsson
9. Pétur Bjarnason ('69)
10. Þórður Gunnar Hafþórsson ('69)
14. Birkir Eydal ('78)
45. Guðmundur Páll Einarsson ('89)
77. Sergine Fall ('69)
- Meðalaldur 25 ár

Liðsstjórn:
Daniel Osafo-Badu (Þ)
Vladan Djogatovic
Ferran Montes I. Corominas
Jón Ólafur Ragnarsson
Jonathan Awrohum

Gul spjöld:
Elmar Atli Garðarsson ('68)
Ibrahima Balde ('77)
Daniel Osafo-Badu ('87)
Gunnar Jónas Hauksson ('87)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Ótrúlegur leikur að baki Leik lokið. Lokatölur 4:3 sigur Vestra og þeirra fyrsti.

Takk fyrir mig skýrsla og viðtöl væntanleg
91. mín
HK búnir að fá þrjár hornspyrnur í þeirri þriðju náði Atli Þór skalla í átt að marki sem fór í slánna og yfir
90. mín
5 mínútum bætt við
89. mín
Inn:Guðmundur Páll Einarsson (Vestri) Út:Ibrahima Balde (Vestri)
Balde frábær í dag
87. mín Gult spjald: Daniel Osafo-Badu (Vestri)
Fékk einnig gult eftir markið hjá Radic
87. mín Gult spjald: Gunnar Jónas Hauksson (Vestri)
Fær gult í kjölfar marksins, honum fannst vera brotið á sér.
Hann hefur mikið til síns máls
87. mín MARK!
Dominik Radic (HK)
Frábærlega gert Radic tekur frábæran snúning rétt fyrir utan teig Vestramanna og klárar svo vel framhjá Marvin.

Vestramenn brjálaðir vegna þess að þeir vildu fá brot rétt fyrir mark HK
83. mín
HK fá horn Boltin fyrir frá Atla sem Balde skallar frá
82. mín
Hér Fall og Jóhann báðir eftir samstuð, en standa báðir upp og eru í lagi
80. mín MARK!
Pétur Bjarnason (Vestri)
Stoðsending: Sergine Fall
Hvað er að gerast hérna Vestri fara beint upp í sókn og skora.
Gunnar gerir vel að finna Fall á hægri kantinum sem kemur með frábæran bolta fyrir á Pétur sem skorar
80. mín MARK!
Jóhann Þór Arnarsson (HK)
Hornspyrnan fyrir hættuleg, Marvin fær boltann í sig og boltinn berst til Jóhanns sem skorar
79. mín
Radic í fínu færi sem Marvin ver í horn
78. mín
Inn:Birkir Eydal (Vestri) Út:Jacob Stensson (Vestri)
78. mín
Inn:Atli Þór Gunnarsson (HK) Út:Magnús Arnar Pétursson (HK)
77. mín Gult spjald: Ibrahima Balde (Vestri)
HK fá aukaspyrnu í góðri fyrirgjafarstöðu.

Ívar kom með hættulegan bolta fyrir sem Jóhann skallaði í átt að markinu en Pétur komst fyrir það og hreinsaði í horn
74. mín
Inn:Róbert Quental Árnason (HK) Út:Tumi Þorvarsson (HK)
74. mín
Það átti sér stað skrítið atvik í þreföldu skiptingu Vestra að Hreinn dómari flautaði leikinn á áður en Pétur Bjarnason komst inn á völlinn.
Þannig Vestramenn voru einum færri í smá tíma
72. mín MARK!
Ibrahima Balde (Vestri)
Vááááááááá!!!!! Balde tekur aukaspyrnuna og skorar stórkostlegt mark sláinn inn
71. mín Gult spjald: Ívar Örn Jónsson (HK)
Straujar Fall sem var búinn að keyra upp allan völlin. Aukaspyrna sem Vestri eiga 1 meter fyrir utan teig
69. mín
Inn:Þórður Gunnar Hafþórsson (Vestri) Út:Chriss-Albin Mörfelt (Vestri)
69. mín
Inn:Pétur Bjarnason (Vestri) Út:Breki Þór Hermannsson (Vestri)
69. mín
Inn:Sergine Fall (Vestri) Út:Johannes Selvén (Vestri)
68. mín Gult spjald: Elmar Atli Garðarsson (Vestri)
Gult fyrir tuð.
66. mín
Mörfelt kemur með sendingu fyrir ætlaða Balde en HK-menn verjast vel.

Fjör í þessu síðust mínúturnar
65. mín
Vestramenn komast beint í færi hinummegin á vellinum, Selvén kommst í góða stöðu en kom með laf laust skot framhjá
64. mín
Færi! Aron Kristófer með huggulega sendingu fyrir á vinstri kantinum sem skilar sér alla leið á fær til Jóhanns, hann rennir sér á boltan en nær ekki að stýra honum í markið
62. mín Gult spjald: Aron Kristófer Lárusson (HK)
Aron fær gult í kjölfarið fyrir tuð
62. mín Gult spjald: Tumi Þorvarsson (HK)
Missir Elmar fram fyrir sig og rífur í hann.
61. mín
Smá hætta í vítateig Vestramanna. HK með fyrirgjöf fyrir sem Elmar nær ekki að hreinsa nógu vel en á endanum eftir smá klafs koma þeir boltanum í burtu
60. mín
Lítið að gerast þessa stundina
54. mín Gult spjald: Arnar Freyr Smárason (HK)
Mikil læti á bekk HK Þjálfarateymi HK manna mjög ósáttir við Hrein og hans menn hér í byrjun seinni hálfsleiks.
Þeir hafa eitthvað til síns máls að mínu mati en hinsvegar þetta verðskuldað gult spjald fyrir tuð
49. mín
Vestri fær aukaspyrnu á fínum stað. HK skalla frá.
47. mín
Fyrsta færi seinni hálfleiks Elmar með flotta sendingu í gegn á Breka sem kemur með skot yfir markið
46. mín
Breki skýtur seinni hálfleik af stað
45. mín
Hálfleikur
Vestramenn leiða í fyrsta sinn í sumar Tökum okkur 15 mínútur í pásu
45. mín
2 mínútum bætt við þennan fyrri hálfleik
44. mín MARK!
Chriss-Albin Mörfelt (Vestri)
Stoðsending: Thibang Phete
Frábær skyndisókn Vestramenn bruna upp í skyndisókn, Mörfelt kemur með boltan í gegn þar sem Cafú nær honum, fer inn á teiginn, leikur listilega á Þorstein Aron og setur boltann á Mörfelt sem skorar í opið markið
43. mín
HK eru með yfirhöndina þessa stundina HK eru búnir að taka öll völd á leiknum eftir mark Vestra og eru að ógna mikið á mark Vestra.
41. mín
HK-menn í langri sókn sem endar á skoti fyrir utan teig sem fer rétt yfir
34. mín MARK!
Ibrahima Balde (Vestri)
Stoðsending: Gunnar Jónas Hauksson
Frábærlega klárað! Gunnar tætir upp hægri kantinn og kemur með góða fyrirgjöf á Balde sem tekur vel við boltanum neglir honum í skeytinn.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
31. mín Gult spjald: Jóhann Þór Arnarsson (HK)
Seinn í tæklingu og tekur Edson niður, verðskuldað gult spjald
29. mín
Sórhætta við mark Vestra Jacob missir boltan á skelfilegan hátt á miðjum vallarhelming Vestra. Dominik Radic fær boltan og leikur á Marvin en varnamenn Vestra eru snöggir til baka og ná að verjast þessu
28. mín
Lítið að gerast þessa stundina, liðin skiptast á að halda boltanum en þau eru ekki að koma sér í færi
21. mín
Gunnar Jónas liggur og þarf aðhlyðningu.
Það virðist vera í lagi með hann.
20. mín
Skyndisókn Ólafur kemur með langan og háan bolta upp sem Jóhann eltir. Jóhann kemur boltanum fyrir en Elmar kemur þessu frá.
18. mín
Vestramenn í góðu færi Mörfelt vinnur vel upp kantinn og kemur með boltan fyrir á Selvén sem nær ekki að nýta sér þetta.

Vestri fá hornspyrnu í kjölfarið, sem ekkert kom úr.
16. mín Mark úr víti!
Jóhann Þór Arnarsson (HK)
Jóhann Þór fer sjálfur á punktinn og setur hann í vinstra hornið.
Marvin fór í rétt horn en náði ekki til boltans
15. mín
Viti!! Jóhann gerir vel að fara framhjá Edson, þá mætir Konstantin á svæðið og kemur með arfaslaka tæklingu og brýtur á Jóhanni
14. mín
2 hornspyrnur í röð hjá HK-mönnum Ekkert kom úr fyrstu en í þeirri seinni komst Aron Kristófer í gott færi en hann mokar boltanum yfir.
Lengjudeildin er á Livey - Með kóðanum fotboltinet fæst 30% afsláttur af fyrsta mánuðinum! Livey
11. mín
Fyrsta færi leiksins Vestra menn með góða sókn, Mörfelt fær boltan á miðjum vallarhelming HK- manna, sendir boltan á Selvén sem komstt í gott færi en
Ólafur varði í horn.
9. mín
HK fá hornspyrnu Selvén missti boltann á hættulegum stað, HK menn koma með sendingu fyrir sem Gunnar Jónas kemst fyrir.

Ekkert kom úr hornspyrnunni.
6. mín
Vestri fá hornspyrnu Selvén með boltann fyrir en HK-menn koma þessu í burtu
6. mín
Tumi liggur eftir brot frá Cafu.
Hann harkar þetta af sér enda lítið í þessu.
2. mín
Vestri með fína skyndisókn, Breki komst upp kantinn og kom með sendingu fyrir en þar var enginn
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er komið gang Atli Hrafn skýtur þessu í gang
Fyrir leik
Liðið eru að labba inn á völlinn Liðin rölta hér inn á völlin við hið fallega lag Hafið eða fjöllinn eftir Fjallabræður.
Fyrir leik
Byrjunarliðin Byrjunarlið Vestra

Daniel Badu gerir þrjár breytingar á sínu liðið á sínu liði frá síðasta leik. Pétur Bjarnason og Þórður Gunnar eru á bekknum í dag og Imran Mehanovic er meiddur. Jacob Stensson, Kosntantin Cheshmedjiev og Breki Þór Hermannsson koma inn í liðið.

Byrjunarlið HK

Gunnar Heiðar gerir tvær breytingar á sínu liði frá sigrinum á Ægi í síðustu umferð. Jóhann Þór Arnarson og Svavar Örn Þórðarson koma inn í liðið í stað Viktors Helga Þórðarsonar og Karls Ágústs Karlssonar.
Fyrir leik
Skemmtilegt Það er gaman að segja frá því að Daniel Badu þjálfari Vestra er að mæta gamla þjálfararanum sínum honum Gunnari Heiðari. Gunnar Heiðar þjálfaði Vestra í Lengjudeildinni árið 2022 og þá var Badu leikmaður Gunnars.
Fyrir leik
Þjálfararnir Þjálfari HK

Gunnar Heiðar hefur komið víða við þrátt fyrir að vera ungur þjálfari hann byrjaði þjálfara ferilinn í Vestmannaeyjum sem þjálfari KFS, hann þjálfaði Vestra eitt sumar og nú síðast gerði hann frábæra hluti með Njarðvík áður en hann tók við HK í Nóvember á síðasta ári.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Þjálfari Vestra

Daniel Badu er frekar reynslulítill sem aðalþjálfari í meistaraflokk. Badu var aðstoðarmaður Davíðs Smára fyrstu tvö tímabilin hans á Ísafirði, síðasta sumar þjálfaði hann Hörð í 5.deildinni og í vetur fékk hann starf sem aðalþjálfari Vestra. Það má segja að Badu sé smá spurningarmerki komandi inn í þetta tímabil og það er spennandi að sjá hvað hann gerir með Vestramenn í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Áfall fyrir Vestra Danski miðjumaðurinn Imran Mehranovic varð fyrir því óhappi að slíta krossband við brot Benedikts Daríusar leikmanns Fylkis í 2:0 sigri Fylkismanna í síðustu umferð. Þetta er mikil skellur fyrir Vestra liðið vegna þess að Imran hefur verið einn þeirra besti leikmaður á undirbúningstímabilinu og í deildinni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Slök byrjun Vestra Vestri hefur byrjað tímabilið frekar illa í Lengjudeildinni og eru með 1 stig eftir 2 leiki. Þessir leikir voru 1:1 jafntefli við Grindavík í fyrstu umferð og núna á Mánudaginn fóru þeir í Árbæinn og töpuðu fyrir Fylki 2:0.
Fyrir leik
HK hafa byrjað tímabilið vel HK hafa byrjað tímabilið vel og sitja sem stendur í 1. sæti Lengjudeildarinnar. Þeir byrjuðu tímabilið á sannfærandi sigri á nýliðum Gróttu 4:1 í Kórnum, í annari umferð tóku þeir á móti hinum nýliðum Lengjudeildarinnar Ægismönnum og sá leikur endaði með 2:1 sigri HK.
Fyrir leik
Félagskipti liðanna í vetur Vestri
Komnir
Ibrahima Balde frá Þór
Þórður Gunnar Hafþórsson frá Aftureldingu
Marvin Darri Steinarsson frá Gróttu
Edson frá Brasilíu
Imran Mehanovic frá Danmörku
Jacob Stensson frá Svíþjóð
Konstantin Cheshmedjiev frá Norður-Makedóníu
Chriss-Albin Alexander Mörfelt frá Svíþjóð
Breki Þór Hermannsson á láni frá ÍA (var á láni í Grindavík)

Farnir
Diego Montiel í KA
Jeppe Pedersen í KA
Guy Smit í Njarðvík
Morten Ohlsen Hansen til Færeyja
Anton Kralj til Keflavíkur
Eiður Aron Sigurbjörnsson í Njarðvík
Ágúst Eðvald Hlynsson í Þór
Gustav Kjeldsen í Stjörnuna
Arnór Borg Guðjohnsen í FH (var á láni)
Vladimir Tufegdzic
Mynd: Vestri


HK
Komnir
Svavar Örn Þórðarson frá Njarðvík
Sigurður Gunnar Jónsson frá Stjörnunni á láni
Dominik Radic frá Njarðvík
Atli Hrafn Andrason frá KR
Róbert Quental Árnason frá Leikni

Farnir
Atli Arnarson hættur
Dagur Orri Garðarsson í Val (var á láni frá Stjörnunni)
Eiður Atli Rúnarsson í ÍBV
Kristján Snær Frostason í FH
Bart Kooistra í Aftureldingu
Marten Leon Jóhannsson til Bröndby
Hákon Ingi Jónsson
Rúrik Gunnarsson í Leikni (var á láni hjá Grindavík)
Kári Gautason í KA (var á láni)

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fyrir leik
Spáin Markús Páll Ellertsson leikmaður ÍA er spámaður vikunnar.

Vestri 1 - 2 HK
Bæði lið fá rautt spjald en HK skorar seint í leiknum og tryggir sér sigurinn.
Fyrir leik
Dómaratríóið Dómarinn hér á Kerecis vellinum í dag er Hreinn Magnússon og honum til halds og trausts eru þeir Kári Mímisson og Kristinn Freyr Victorsson. Eftirlitsmaður er Lúðvík Þorgeirsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Velkomin á Kerecisvöllinn Góðan daginn kæru lesendur og verið þið velkomin á beina textalýsingu leiks Vestra og HK Í 3. umferð Lengjudeildarinnar.
Byrjunarlið:
1. Ólafur Örn Ásgeirsson (m)
2. Sigurður Gunnar Jónsson
4. Aron Kristófer Lárusson
5. Þorsteinn Aron Antonsson
9. Jóhann Þór Arnarsson
10. Atli Hrafn Andrason
16. Svavar Örn Þórðarson
17. Dominik Radic
21. Ívar Örn Jónsson (f)
24. Magnús Arnar Pétursson ('78)
28. Tumi Þorvarsson ('74)
- Meðalaldur 24 ár

Varamenn:
25. Andri Már Steinsson (m)
18. Róbert Quental Árnason ('74)
19. Atli Þór Gunnarsson ('78)
26. Viktor Helgi Benediktsson
29. Karl Ágúst Karlsson
45. Alexander Örn Guðmundsson
- Meðalaldur 20 ár

Liðsstjórn:
Gunnar Heiðar Þorvaldsson (Þ)
Gunnþór Hermannsson
Þjóðólfur Gunnarsson
Sandor Matus
Guðný Björk Halldórsdóttir
Sigurður Már Birnisson
Arnar Freyr Smárason

Gul spjöld:
Jóhann Þór Arnarsson ('31)
Arnar Freyr Smárason ('54)
Tumi Þorvarsson ('62)
Aron Kristófer Lárusson ('62)
Ívar Örn Jónsson ('71)

Rauð spjöld: