Fotbolti.net
26.06.26 - 09:52
Kári Snorrason

Hundrað milljóna punda tilboði Liverpool hafnað

Yan Diomande.

Yan Diomande.

Canon

Mynd: EPA

Powerade
Hundrað milljóna punda tilboði Liverpool í Yan Diomande hefur verið hafnað, tveir miðjumenn Newcastle eru eftirsóttir og Dortmund setur 100 milljóna evra verðmiða á Nmecha. Þetta og margt fleira í brakandi ferskum föstudags slúðurpakka.
Arsenal hefur áhuga á að fá Bruno Guimaraes (28), brasilískan miðjumann Newcastle, í sumar. (Daily Mail)

Tottenham hefur fengið öðru tilboði sínu hafnað í Sandro Tonali (26), ítalskan miðjumann Newcastle. Newcastle vill fá um 100 milljónir punda fyrir leikmanninn. (Daily Mail)

Nýjasta tilboð Liverpool upp á 100 milljónir punda í Yan Diomande (19), kantmann frá Fílabeinsströndinni hjá RB Leipzig, hefur verið hafnað. (Teamtalk)

Crystal Palace vill fá 50 milljónir punda fyrir franska varnarmanninn Maxence Lacroix (26), sem Chelsea hefur mikinn áhuga á. (Football Insider)

Bournemouth hefur bæst í hóp félaga sem hafa áhuga á Richard Rios (26), kólumbískum miðjumanni Benfica. (Sport Witness)

Inter gæti reynt að fá Trevoh Chalobah (26), varnarmann Chelsea og enska landsliðsins, ef félaginu tekst ekki að semja við franska miðvörðinn Oumar Solet (26) hjá Udinese. (Gazzetta dello Sport)

Borussia Dortmund ætlar ekki að selja þýska miðjumanninn Felix Nmecha (25) fyrir minna en 100 milljónir evra. (Kicker)

Úlfarnir hafa sett 15 milljóna punda verðmiða á spænska vinstri bakvörðinn Hugo Bueno (23). Fiorentina hefur mikinn áhuga á leikmanninum. (Football Insider)
Arsenal hefur áhuga á Guimaraes.

Arsenal hefur áhuga á Guimaraes.

Canon

Mynd: EPA

Newcastle vill fá um 100 milljónir punda fyrir Tonali.

Newcastle vill fá um 100 milljónir punda fyrir Tonali.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.