Wijnaldum aftur í úrvalsdeildina? - Everton fylgist með Tchaouna - Bastoni ekki til Barca - Gordon efstur á óskalistanum
Besta karla
Valur
LL 3
2
Breiðablik
Besta karla
KR
LL 2
2
Fram
Besta karla
Keflavík
LL 1
1
Stjarnan
Besta karla
FH
LL 1
2
KA
Besta karla
Þór
LL 1
2
ÍA
Lengjudeild karla
Grindavík
LL 3
1
Völsungur
Valur
3
2
Breiðablik
Adam Ægir Pálsson '17 1-0
1-1 Ágúst Orri Þorsteinsson '55
1-2 Aron Bjarnason '80
Ingimar Torbjörnsson Stöle '84 2-2
Ívar Örn Árnason '94 , sjálfsmark 3-2
17.05.2026  -  18:15
N1-völlurinn Hlíðarenda
Besta karla
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson
Áhorfendur: 874
Maður leiksins: Lúkas Logi Heimisson (Valur)
Byrjunarlið:
18. Frederik Schram (m)
3. Hörður Ingi Gunnarsson
6. Bjarni Mark Duffield ('90)
12. Tryggvi Hrafn Haraldsson
14. Albin Skoglund ('58)
15. Hólmar Örn Eyjólfsson (f)
17. Lúkas Logi Heimisson
20. Orri Sigurður Ómarsson
23. Adam Ægir Pálsson ('74)
24. Myles A Veldman
28. Samúel Kári Friðjónsson
- Meðalaldur 29 ár

Varamenn:
25. Stefán Þór Ágústsson (m)
5. Kristófer Dagur Arnarsson ('90)
11. Ingimar Torbjörnsson Stöle ('74)
13. Kristján Oddur Kristjánsson
16. Loki Kristjánsson
21. Jakob Franz Pálsson ('58)
26. Emil Nönnu Sigurbjörnsson
30. Gunnar Karl Heiðdal
66. Ólafur Flóki Stephensen
- Meðalaldur 20 ár

Liðsstjórn:
Hermann Hreiðarsson (Þ)
Halldór Eyþórsson
Einar Óli Þorvarðarson
Örn Erlingsson
Chris Brazell
Kirian Elvira Acosta
Vignir Snær Stefánsson
Emil Alexander Larsen

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Leik lokið!
WOOWWWW! Þvílíkur leikur og þvílíkar lokamínútur. Ég verð bara að ná mér aðeins niður eftir þetta.

Viðtöl og fleira á leiðinni.

Ég segi takk fyrir mig, þangað til næst!
94. mín SJÁLFSMARK!
Ívar Örn Árnason (Breiðablik)
FLAAAUUTUUUUMMAAAARRKKKKKK!!!!!!!! Það ætlar allt um koll að keyra hérna á Hlíðarenda!

Tryggvi tekur spyrnuna inn á teiginn semfer í netið. Held að það var Hólmar sem átti skallann inn en ég gef honum þetta þar sem hann var í þessari baráttu.

Þetta er ekkert smá ósanngjarnt en svona er boltinn.

WOOOWWWW!

Uppfært: Boltinn fer af Ívari og inn. Sjálfsmark.
93. mín
Valsmenn fá hornspyrnu! Seinasta spyrna leiksins!
91. mín
HVERNIG DÆMIR HANN EKKI VÍTI?! Lúkas Logi kemst einn á móti markmanni og Anton ver glæsilega en boltinn fer þá í höndina á varnarmanni Breiðabliks, ein augljósasta hendi sem ég hef séð en Jóhann Ingi dæmir ekkert.

Nú þekki ég ekki reglurnar en þetta var hendi.
90. mín
+3 í uppbótartíma Fáum við sigurmark og smá dramatík hér í blálokin?
90. mín
Inn:Gabríel Snær Hallsson (Breiðablik) Út:Viktor Karl Einarsson (Breiðablik)
90. mín
Inn:Kristófer Dagur Arnarsson (Valur) Út:Bjarni Mark Duffield (Valur)
87. mín
Höskuldur kemur með ekki góðan bolta inn á teiginn sem Valsmenn eru í engum vandræðum með.
87. mín
Blikar að fá hornspyrnu
84. mín MARK!
Ingimar Torbjörnsson Stöle (Valur)
Stoðsending: Lúkas Logi Heimisson
Varamaðurinn jafnar þetta fyrir Valsmenn! Mögulega gegn gangi leiksins en Valsmenn eru búnir að jafna þetta!

Aftur er það Lúkas Logi sem á frábæran bolta inn fyrir, Ingimar Stöle keyrir í átt að markinu og lyftir boltanum yfir Anton. Stöngin inn fór boltinn og það er allt orðið jafnt á nýjan leik á Hlíðarenda.

Ég sagði að þetta yrði veisla og ég held að þetta sé bara rétt að byrja, núna eru bæði lið æst í sigurinn!
80. mín MARK!
Aron Bjarnason (Breiðablik)
WOOOOWWWW! Stórglæsilegt mark hjá Aroni Bjarnasyni!

Aron fær boltann fyrir utan teiginn, keyrir inn á völlinn og lætur vaða. Boltinn syngur í samúel, gífurlega vel gert hjá Aroni sem kemur Blikum hér í forystu eftir að hafa lent undir í fyrri hálfleik.

Hverju breytir þetta?
79. mín
874 áhorfendur á Hlíðarenda í kvöld
79. mín
Tryggvi tekur spyrnuna inn á teiginn sem fer ofan á þverslána og aftur fyrir.
78. mín
Valsmenn fá hornspyrnu
77. mín
Blikar halda áfram að sækja Spila sig vel upp völlinn sem endar með skoti frá Ágústi inn á teignum en Frederik ver vel.
74. mín
Inn:Ingimar Torbjörnsson Stöle (Valur) Út:Adam Ægir Pálsson (Valur)
70. mín
Höskuldur tekur enn eina hornspyrnuna sem Valsmenn verjast vel.
70. mín
Blikar fá hornspyrnu
68. mín
Tryggvi tekur spyrnuna sem fer beint í vegginn og Blikar sækja hratt!
67. mín
Valsmenn fá aukaspyrnu á stórhættulegum stað
67. mín
Aldursmunur á byrjunarliði og bekk hjá Blikum Athyglisvert að skoða meðalaldurinn á hóp gestanna. Byrjunarliðið er að meðaltali 29 ára gamalt en bekkurinn er 18 ára. 11 ár á milli.
64. mín
Inn:Arnar Bjarki Gunnleifsson (Breiðablik) Út:Kristófer Ingi Kristinsson (Breiðablik)
15 ára drengur að koma inn á
64. mín
Höskuldur tekur spyrnuna inn á teiginn sem Valsmenn hreinsa frá en sóknarpressa Blika heldur ótrauð áfram.
63. mín
Stöngin! Klafs í teig Valsmanna sem endar með skoti Óla Vals í varnarmann og stöngina. Þeir fá því hornspyrnu sem Höskuldur er að fara að taka að vana.
62. mín
Eitt lið á vellinum í seinni hálfleik Blikar eru allt í öllu í þessum seinni hálfleik og ég óska bara eftir því að Valsmenn mæti til leiks hér í seinni því það er aðeins eitt lið á vellinum og það er Breiðablik.

Bara tímaspursmál miðað við þessa byrjun hvenær annað Blikamark dettur.
60. mín
Blikar vilja vítaspyrnu! Sá ekki hver átti tæklinguna en Ágúst Orri fær boltann á teignum og tekur skotið áður en hann er sparkaður niður inni í vítateig Vals. Mér fannst þetta vera augljós vítaspyrna við fyrstu sýn og Blikar eru allt annað en sáttir en fá ekkert fyrir sinn snúð.
58. mín
Inn:Jakob Franz Pálsson (Valur) Út:Albin Skoglund (Valur)
Fyrsta breyting Valsmanna í kvöld
55. mín MARK!
Ágúst Orri Þorsteinsson (Breiðablik)
Stoðsending: Aron Bjarnason
Blikar jafna eftir góða byrjun! Aron Bjarna potar boltanum í gegn á Ágúst Orra sem gerir frábærlega inn á teignum og klárar virkilega snyrtilega framhjá Frederik í marki Vals.

Frábær byrjun á seinni hálfleiknum hjá Blikum sem uppskera jöfnunarmark.
53. mín
Höskuldur tekur spyrnuna inn á teiginn sem Valsmenn hreinsa frá en sóknarpressa gestanna heldur áfram.
53. mín
Blikar fá hornspyrnu
52. mín
Tryggvi Hrafn með skot rétt framhjá Tryggvi keyrir inn á völlinn og teiginn sem endar með skoti rétt framhjá markinu. Frábær sprettur hjá Tryggva sem hefði getað endað í verulega góðu marki.
51. mín
Kristófer Ingi! Gerir frábærlega og keyrir inn á teig Valsmanna. Hann reynir skotið á markið sem Frederik ver vel í markinu.

Blikar miklu betri þessar upphafsmínútur í seinni hálfleik.
49. mín
Blikar byrja af krafti Komast í góðar skotstöður áður en þeir fá hornspyrnu sem þeir ná ekki að nýta sér en þeir halda áfram að sækja.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn! Gestirnir úr Kópavogi sparka þessu í gang á ný, vonandi verða mörkin fleiri í seinni hálfleik.
45. mín
Inn:Anton Logi Lúðvíksson (Breiðablik) Út:Andri Rafn Yeoman (Breiðablik)
Ein breyting í hálfleik
45. mín
Hálfleikur
Valsmenn leiða í hálfleik Valsmenn leiða hér í hálfleik eftir mark Adams Ægis.

Tökum okkur korterspásu og mætum svo til baka að vörmu spori með seinni hálfleikinn.
45. mín
+1 í uppbót
43. mín
Höskuldur tekur spyrnuna inn á teiginn sem Valsmenn eru í engum vandræðum með að verjast.
42. mín
Blikar fá hornspyrnu
39. mín
Hendi? Kristófer Ingi fær boltann inni á vítateignum og tekur skotið á markið sem Hólmar Örn hendir sér fyrir. Mér sýndist boltinn fara í höndina á honum en ég á eftir að sjá þetta aftur. Það voru dræm köll um víti frá Blikunum.

En engu að síður dauðafæri sem Blikar eru óheppnir að hafa ekki nýtt.
37. mín
Lítið um að vera Það hefur færst ró í leikinn seinustu mínútur eða eftir að Valsmenn skoruðu. Blikar ríghalda í boltann en Valsmenn eru að verjast vel þessa stundina.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
33. mín
Blikar að taka yfir Breiðablik er hægt og bítandi að taka yfir þennan leik. Enda hér sókn á skoti Höskuldar við vítateigslínunua sem fer reyndar beint á Frederik í markinu.
28. mín
Blikar sækja Blikar gera vel og spila sín á milli. Aron Bjarna fær þá boltann inni í vítateig Valsmanna, hann reynir skotið sem Frederik ver út í teiginn.

Blikar aðeins að bíta frá sér.
25. mín
Þversláin! Lúkas Logi fær boltann fyrir utan vítateig Blika og lætur vaða, skotið endar í þverslánni. Sá það ekki en það gæti verið að Anton hafi náð snertingu á boltanum. Boltinn dettur svo út á Bjarna Mark sem hefði auðveldlega getað rúllað boltanum í tómt markið en hittir boltann fáranlega illa og klúðrar dauðafæri.

VAlsmenn leika á alls oddi þessa stundina!
23. mín Gult spjald: Viktor Örn Margeirsson (Breiðablik)
Valsmenn spila frábærlega sín á milli sem endar með tæklingu Viktors, sá ekki hvern hann tæklaði en þetta var hárréttur dómur að spjalda hann.
17. mín MARK!
Adam Ægir Pálsson (Valur)
Stoðsending: Lúkas Logi Heimisson
Stoðsending í heimsklassa! Valsmenn hafa tekið forystuna!

Lúkas Logi fær boltann fyrir utan vítateiginn úti vinstra meginn. Hann kemur með stórkostlegan bolta inn á teiginn sem Adam Ægir nær að pota í markið framhjá Antoni sem gat ekkert gert.

Frábær byrjun hjá heimamönnum!
14. mín
Stöngin! Aron Bjarna fær boltann inni í vítateig Valsmanna og tekur skotið sem fer í stöngina og útaf. Besta færi leiksins til þessa og Valsmenn stálheppnir að vera ekki búnir að fá á sig mark í þessum leik.
13. mín
Tryggvi tekur spyrnuna inn á teiginn sem Óli Valur hreinsar frá en sóknarpressa Valsmanna heldur áfram.
13. mín
Valsmenn fá nú hornspyrnu
10. mín
Bjarni bjargar á línu! Höskuldur tekur spyrnuna inn á teiginn þar sem Viktor Örn er mættur og stangar boltann á markið. Frederik Schram var búinn að játa sig sigraðan en þá mætir Bjarni Mark á línuna og bjargar af línu.

Bæði lið búin að skapa sér hörkufæri úr föstum leikatriðum þessar fyrstu mínútur leiksins.
9. mín
Blikar fá hornspyrnu
9. mín
Þetta var varsla sem gæti ratað í næsta Bestu deildar trailer.
8. mín
Þvílík varsla! Tryggvi tekur spyrnuna inn á teiginn sem fer beint á Hólmar sem stangar boltann á markið en Anton Ari sýnir þá glæsileg tilþrif og ver meistaralega.
8. mín
Valsmenn pressa Blikana hátt upp völlinn og fá hornspyrnu.
7. mín
Svona er ég að sjá þetta Breiðablik (4-3-3)
Anton
Óli Valur - Viktor - Ívar - Davíð
Höskuldur - Andri - Viktor
Ágúst - Kristófer - Aron

Valur (4-2-3-1)
Frederik
Hörður - Orri - Hólmar - Myles
Samúel - Bjarni
Lúkas - Albin - Adam
Tryggvi
5. mín
Höskuldur tekur spyrnuna aftur stutt á Óla Val sem kemur með góðan bolta á fjærsvæðið en Valsmenn gera aftur vel og bægja hættunni frá í bili.
5. mín
Önnur hornspyrna Gestirnir byrja þetta betur og fá aðra hornspyrnu hér á þessum upphafsmínútum.
4. mín
Blikar sækja að marki Valsmanna og fá fyrstu hornspyrnu leiksins.

Spyrnan er tekin í snati en Valsmenn gera vel í að verjast henni.
2. mín
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er komið í gang! Það eru heimamenn sem hefja hér leik á Hlíðarenda í kvöld.

Ég segi bara góða skemmtun!
Fyrir leik
Þetta fer að bresta á! Byrjunarliðin ganga til vallar og gera sig klár í slaginn. Fólkið er að tínast í stúkuna, veðrið er frábært, það stefnir í frábæran fótboltaleik ef mér skjátlast ekki.
Fyrir leik
Byrjunarlið Vals
Mynd: Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Byrjunarlið Breiðabliks

Fyrir leik
Byrjunarliðin afhjúpuð Albin Skoglund er meðal byrjunarliðsmanna hjá Val. Hjá Breiðabliki er miðvörðurinn Viktor Örn Margeirsson í byrjunarliðinu á kostnað Ásgeirs Helga Orrasonar sem þarf að sætta sig við hlutverk varamanns.

Blikar eru með mjög ungan bekki, meðalaldur upp á 18 ár.
Fyrir leik
Innkastið verður í beinni í kvöld
Fyrir leik
Spáin góða Kári Sigfússon, leikmaður Fylkis, fékk það skemmtilega verkefni að spá í 7. umferð Bestu deildarinnar. Þetta hafði hann að segja um stórleik kvöldsins.
Valur 1 - 2 Breiðablik (18:15 í kvöld)
Stál í stál en Ásgeir Helgi klárar þetta í uppbótartíma. Besti hafsent bestu deildarinnar og flottasti.
Fyrir leik
Þriðja liðið Dómari þessa stórleiks er Jóhann Ingi Jónsson. Honum til halds og trausts verða þeir Ragnar Þór Bender og Guðmundur Ingi Bjarnason, fjórði dómari kvöldsins er Vilhjálmur Alvar Þórarinsson. Eftirlitsmaður KSÍ er enginn annar en Þórður Georg Lárusson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Blikar ósigraðir en hefðu eflaust viljað byrja betur Breiðablik á enn eftir að tapa leik á tímabilinu en þrátt fyrir hafa þeir mjög líklega viljað fara betur af stað. Í seinasta leik gerðu þeir afar klaufalegt 3-3 jafntefli við FH-inga þar sem varnarleikurinn var ekki góður. Annars hefur varnarleikur Blika verið þeirra helsti styrkleiki í upphafi móts, eftir fyrstu 6 leikina hafa þeir einungis fengið á sig 5 mörk, þrjú þeirra komu í FH leiknum.

Núna í vikunni rétt mörðu þeir Þróttara í Mjólkurbikarnum og eru komnir áfram í 8-liða úrslitin. Viktor Örn Margeirsson fékk að líta rauða spjaldið í þeim leik en þrátt fyrir það kláruðu Blikar dæmið.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Kaflaskipt byrjun Valsmanna Byrjun Valsmanna á þessu tímabili hefur svo sannarlega verið kaflaskipt. Eftir að hafa tapað fyrstu tveimur leikjunum náði þeir þremur sigrum í röð á Stjörnunni, FH og ÍBV. Síðan þá hafa þeir tapað fyrir bæði Fram og KR.

Í kvöld bíður þeirra verðugt verkefni þegar Kópavogsbúarnir koma í heimsókn sem hafa eflaust einnig viljað fara betur af stað.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Sú lang Besta! Heilir og sælir ágætu lesendur og veriði hjartanlega velkomin í þessa þráðbeinu textalýsingu frá leik Vals og Breiðabliks í þeirri lang Bestu. Vonandi fáum markaleik, dramatík og alvöru læti hér á Hlíðarenda í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Byrjunarlið:
1. Anton Ari Einarsson (m)
5. Ívar Örn Árnason
7. Höskuldur Gunnlaugsson (f)
8. Viktor Karl Einarsson ('90)
9. Óli Valur Ómarsson
11. Aron Bjarnason
15. Ágúst Orri Þorsteinsson
18. Davíð Ingvarsson
21. Viktor Örn Margeirsson
23. Kristófer Ingi Kristinsson ('64)
30. Andri Rafn Yeoman ('45)
- Meðalaldur 29 ár

Varamenn:
4. Ásgeir Helgi Orrason
6. Arnór Gauti Jónsson
12. Gylfi Berg Snæhólm
13. Anton Logi Lúðvíksson ('45)
25. Bjartur Orri Jónsson
29. Gabríel Snær Hallsson ('90)
32. Kristinn Narfi Björgvinsson
33. Arnar Bjarki Gunnleifsson ('64)
77. Þór Andersen Willumsson
- Meðalaldur 18 ár

Liðsstjórn:
Ólafur Ingi Skúlason (Þ)
Særún Jónsdóttir
Haraldur Björnsson
Helgi Jónas Guðfinnsson
Dagur Elís Gíslason
Emil Pálsson
Jón Guðni Fjóluson

Gul spjöld:
Viktor Örn Margeirsson ('23)

Rauð spjöld: