Wijnaldum aftur í úrvalsdeildina? - Everton fylgist með Tchaouna - Bastoni ekki til Barca - Gordon efstur á óskalistanum
   sun 17. maí 2026 14:00
Ívan Guðjón Baldursson
Keppast um Bernardo - Deco horfði á Joao Pedro
Powerade
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
BBC er búið að taka saman slúðurpakka dagsins sem birtist hér í boði Powerade og er ýmislegt að frétta. Bernardo Silva, Joao Pedro og Georginio Wijnaldum eru meðal leikmanna sem koma við sögu í dag.


Juventus er að skipta um gír í tilraun sinni til að semja við portúgalska miðjumanninn Bernardo Silva, 31, sem yfirgefur Manchester City á frjálsri sölu í sumar. Atlético Madrid og Barcelona hafa einnig áhuga á leikmanninum sem á tæpa 500 leiki að baki á níu árum hjá City. (Corriere dello Sport)

Deco, yfirmaður fótboltamála hjá Barcelona, horfði á úrslitaleik enska bikarsins á Wembley til að skoða brasilíska framherjann Joao Pedro, 24. Chelsea hefur engan áhuga á að selja Joao Pedro sem er með 20 mörk og 9 stoðsendingar í 49 leikjum á tímabilinu. (Daily Mail)

Coventry City vann Championship deildina og leikur því í úrvalsdeildinni næsta haust. Liðið er að íhuga að krækja í Georginio Wijnaldum, 35, á frjálsri sölu þegar samningur hans við Al-Ettifaq rennur út í sumar. Wijnaldum verður 36 ára í nóvember. (Football Insider)

Everton er í leit að nýjum kantmanni og fylgist náið með Loum Tchaouna, 22 ára leikmanni Burnley sem hefur verið lykilmaður upp yngri landslið Frakklands. (Football Insider)

Wilfriend Gnonto, 22 ára kantmaður Leeds, er eftirsóttur af Freiburg. Leeds er reiðubúið til að selja Ítalann eða lána hann út með kaupskyldu. (Sky Sports Germany)

Alessandro Bastoni, 27 ára miðvörður, verður líklegast áfram hjá Inter þrátt fyrir mikinn áhuga frá Spánarmeisturum Barcelona. Börsungar eru ekki með fjármagnið sem þarf til að kaupa Bastoni sem líður vel hjá Inter og er með tvö ár eftir af samningi (Gazzetta dello Sport)

Brasilíski miðjumaðurinn Douglas Luiz, 28, snýr aftur til Juventus í sumar eftir að hafa verið lánaður til Aston Villa á seinni hluta tímabils. Villa getur fest kaup á Luiz fyrir 22 milljónir punda en mun líklega ekki gera það og því gæti Juventus gefið honum annað tækifæri til að láta ljós sitt skína í ítalska boltanum eftir misheppnað tímabil 2024-25. (Gazzetta dello Sport)

Þýskalandsmeistarar FC Bayern eru með Anthony Gordon, 25 ára kantmann Newcastle, efstan á óskalistanum. Belginn Charles De Ketelaere, 25 ára sóknarleikmaður Atalanta, er næstefstur á óskalistanum. (Football Italia)
Slapp
banner
banner
banner