Chelsea og Arsenal vilja Kroupi - Man Utd bjartsýnt á að landa Ederson og Tonali - Inter hefur áhuga á Kepa
Besta karla
Stjarnan
LL 0
1
Fram
Lengjudeild karla
ÍR
LL 3
1
HK
Lengjudeild karla
Leiknir R.
LL 0
0
Grindavík
Besta karla
Breiðablik
LL 6
3
KR
Lengjudeild karla
Afturelding
LL 4
3
Þróttur R.
Besta karla
Víkingur R.
LL 5
0
FH
Besta karla
Keflavík
LL 1
0
Þór
Besta karla
KA
LL 0
1
Valur
ÍR
3
1
HK
Orri Bjarkason '51 1-0
Orri Bjarkason '76 2-0
Stefán Þór Pálsson '87 3-0
3-1 Alexander Örn Guðmundsson '88
22.05.2026  -  19:15
Þarfaþingsvöllurinn
Lengjudeild karla
Aðstæður: Rigning og smá gola - flott knattspyrnuveður
Dómari: Pétur Guðmundsson
Byrjunarlið:
1. Vilhelm Þráinn Sigurjónsson (m)
4. Sigurður Karl Gunnarsson
8. Emil Nói Sigurhjartarson
9. Bergvin Fannar Helgason
14. Víðir Freyr Ívarsson ('57)
17. Óliver Andri Einarsson ('68)
23. Ágúst Unnar Kristinsson (f)
25. Jón Arnar Sigurðsson
33. Ísak Atli Atlason ('68)
46. Tareq Shihab ('68)
61. Orri Bjarkason ('82)
- Meðalaldur 22 ár

Varamenn:
27. Jóhannes Kristinn Hlynsson (m)
2. André Musa Solórzano Abed ('68)
3. Halldór Atli Kristjánsson ('68)
5. Hrafn Hallgrímsson ('82)
10. Stefán Þór Pálsson ('68)
11. Guðjón Máni Magnússon ('57)
16. Sæþór Ívan Viðarsson
- Meðalaldur 25 ár

Liðsstjórn:
Jóhann Birnir Guðmundsson (Þ)
Ívan Óli Santos
Ómar Atli Sigurðsson
Hákon Dagur Matthíasson
Kristján Atli Marteinsson
Davíð Örvar Ólafsson
Jónþór Atli Ingólfsson

Gul spjöld:
Orri Bjarkason ('1)
Sigurður Karl Gunnarsson ('20)
Tareq Shihab ('64)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
ÍR-ingar sigra 3-1 HK-ingar komust lítt áleiðis í uppbótartímanum og sterkur sigur ÍR í jöfnum leik staðreynd.

Skýrsla og viðtöl síðar í kvöld
90. mín
A.m.k. 4 mínútur í viðbót
88. mín MARK!
Alexander Örn Guðmundsson (HK)
3-1 Þeir eru ekki búnir að gefast upp!

Alexander Örn fylgir góðu skoti og setur boltann í autt markið.
87. mín MARK!
Stefán Þór Pálsson (ÍR)
Stoðsending: Bergvin Fannar Helgason
3-0 og ÍR-ingar að klára þetta Stefán Þór skorar eftir laglegt spil Bergvins Fannars.
86. mín
Inn:Alexander Örn Guðmundsson (HK) Út:Dominik Radic (HK)
Þeirra síðasta skipting í dag
84. mín
Góð sókn HK HK-ingar komust upp að endalínu og settu boltann út í teiginn á Radic sem átti skot beint á Vilhelm sem varði vel. Flaggið því næst á loft, boltinn líklega farið útaf.
83. mín
Skipt um bolta Pétur ekki sáttur við þrýstinginn í boltanum og fær næsta bolta í leik
82. mín
Inn:Hrafn Hallgrímsson (ÍR) Út:Orri Bjarkason (ÍR)
Orri verið virkilega flottur í dag
76. mín MARK!
Orri Bjarkason (ÍR)
Stoðsending: Stefán Þór Pálsson
Hans annað mark! Stefán Þór finnur Orra Bjarkason utarlega í hægra megin í vítateignum. Orri gerir engin mistök og á þéttingsfast skot í fjærhornið. Ólafur í boltanum en það var ekki nóg.
74. mín
Bergvin með fínt skot Vann boltann á miðjum vallarhelmingi HK, gefur á liðsfélaga og fær hann svo aftur. Á svo skot sem fer framhjá
72. mín
Inn:Atli Þór Gunnarsson (HK) Út:Atli Hrafn Andrason (HK)
Atli fyrir Atla
68. mín
Inn:Stefán Þór Pálsson (ÍR) Út:Ísak Atli Atlason (ÍR)
Þreföld skipting heimamanna
68. mín
Inn:Halldór Atli Kristjánsson (ÍR) Út:Tareq Shihab (ÍR)
Þreföld skipting heimamanna
68. mín
Inn:André Musa Solórzano Abed (ÍR) Út:Óliver Andri Einarsson (ÍR)
Þreföld skipting heimamanna
67. mín Gult spjald: Atli Hrafn Andrason (HK)
Brot á miðjum vellinum
65. mín
Inn:Karl Ágúst Karlsson (HK) Út:Tumi Þorvarsson (HK)
65. mín
Inn:Magnús Arnar Pétursson (HK) Út:Þorvaldur Smári Jónsson (HK)
64. mín Gult spjald: Tareq Shihab (ÍR)
Aukaspyrna fyrir HK Fínasta fyrirgjöf sem Dominic Radic skallar yfir markið
62. mín
Bergvin í færi Kom sér framhjá hverjum HK-ingnum á fætur öðrum og kemur sér í skotfæri sem Ólafur nær að skutla sér í og verja.
59. mín
Jóhann Þór í færi Atli Hrafn vinnur boltann nálægt D-boga ÍR-inga, kemur boltanum á Jóhann sem skýtur framhjá. Þarna hefði hann mátt setja boltann á rammann
57. mín
Inn:Guðjón Máni Magnússon (ÍR) Út:Víðir Freyr Ívarsson (ÍR)
Fyrsta skiptingin í dag Víðir skilað góðu starfi í dag.
55. mín
Sigurður Karl! Sigurður Karl í dauðafæri, vinnur boltann hátt á vellinum, ákvað að fara sjálfur og í skotið en boltinn sveif vel yfir mark HK. Þarna hefði hann hæglega getað tvöfaldað forustuna
51. mín MARK!
Orri Bjarkason (ÍR)
Fyrsta markið komið Orri Bjarkason skorar fyrsta mark leiksins! Var skyndilega kominn einn í gegn og rennir boltanum framhjá Ólafi snyrtilega.
49. mín
Nú vilja HK-ingar fá víti Jóhann Þór fær boltann utarlega í vítateignum, missir boltann aðeins frá sér en það er greinilega togað í treyjuna hans og fellur hann við. Pétur dæmir ekkert og eru þeir alveg brjálaðir á bekknum. Pétur biður menn um að róa sig.
47. mín
SKOT Í SLÁ ÍR-ingar fá hornspyrnu, boltinn berst út í teiginn þar sem þeir eiga hörkuskot í slánna. Boltinn barst aftur í teiginn og eftir mikinn darraðadans hreinsuðu HK-ingar frá.
46. mín
Leikur hafinn
HK hefja leik í seinni Þeir leika nú í átt að ÍR heimilinu, ÍR-ingar í átt að frjálsíþróttasvæðinu
45. mín
Hálfleikur
Það kominn hálfleikur Jafn og skemmtilegur leikur með mörgum færum á báða bóga.

Við tökum okkur korters pásu.
45. mín
Uppbótartíminn Við fáum að minnsta kosti eina mínútu í viðbót.

ÍR fær horn, sjáum hvort þeir geti nýtt sér það.
Stutta svarið við því er nei.
42. mín
..og nú ÍR nálægt Boltinn berst lágt inn í teig eftir hornspyrnu á nærsvæðið, en leikmaður ÍR nær til boltans en skýtur rétt yfir.

Þetta var klárlega af æfingasvæðinu.
40. mín
HK hársbreidd frá því Þorvaldur Smári með þrumuskot eftir hornspyrnu HK. Boltinn var hreinsaður út en ekki lengra en til Þorvaldar sem hitti boltann vel en rétt framhjá fór hann.
38. mín
Orrahríð að marki HK ÍR-ingar þjarma að HK-ingum. Eiga ein þrjú skot í sömu sókninni sem HK-ingar henda sér fyrir. Boltinn endar aftur fyrir endamörk og ÍR fær hornspyrnu. Upp úr henni kemur fín fyrirgjöf sem er skölluð yfir.

ÍR-ingar líklegri þessa stundina
33. mín
Vel spilað hjá ÍR Hafa náð að halda pressu á vörn HK í um mínutu sem endar með skoti Tareq Shihab. Skotið þokkalega beint á Ólaf Örn sem gerði vel og varði boltann til hliðar.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
31. mín
STÖNGIN! Dominic Radic í þröngu færi, tekur fast skot sem endar í utanverðri nærstönginni.
29. mín
Víti? ÍR-ingar vilja víti! Emil Nói á skot að marki og vilja ÍR-ingar meina að boltinn hafi farið í hönd leikmanns HK. Ómögulegt fyrir mig að segja hvort svo hafi verið.
26. mín Gult spjald: Haukur Leifur Eiríksson (HK)
Brot á miðjum vallarhelmingi HK ÍR-ingar á leið í sókn en hún stoppuð með því sama. Réttilega dæmt gult spjald.
24. mín
Frábær sókn ÍR-inga Vinna boltann hátt á vellinum, eftir slaka sendingu úr vörn HK. Boltinn berst út til vinstri og kemur flottur bolti fyrir á Bergvin Fannar sem skallar boltann framhjá. Líklega besta færi ÍR það sem af er leik.
20. mín Gult spjald: Sigurður Karl Gunnarsson (ÍR)
Hörkutækling Sigurður Karl Gunnarsson fær gult spjald fyrir alvöru tæklingu af gamla skólanum. Var aðeins á eftir Jóhanni Þór sem vinnur aukaspyrnuna.

Ívar Örn tekur spyrnuna sem er stórhættuleg! Boltinn svífur á fjærstöngina en enginn nær að reka ennið í knöttinn.
18. mín
Emil Nói á skot á mark Fer af varnarmanni HK og Ólafur á ekki í vandræðum með grípa boltann.
Lengjudeildin er á Livey - Með kóðanum fotboltinet fæst 30% afsláttur af fyrsta mánuðinum! Livey
11. mín
Endanna á milli Eftir að HK byrjaði betur hafa ÍR-ingar verið að ógna undanfarnar mínútur og vinna aðra hornspyrnu. HK skalla frá og eru skyndilega komnir fjórir á einn hinu megin á vellinum. Vilhelm gerir vel í að loka.
9. mín
HK-ingar ósáttir Telja að brotið hafi verið á Jóhanni Þór en Pétur dæmir ekkert. ÍR-ingar bruna í sókn og komast í álitlegt færi í kjölfarið og vinna hornspyrnu. Ekkert kom úr henni.
7. mín
Ágætis sókn HK Aron Kristófer fær boltann úti á vinstri vængnum, reynir að koma honum fyrir en boltinn hreinsaður í horn. Atli Hrafn býr sig undir að taka spyrnuna.

Spyrnan arfaslök, nær ekki yfir fyrsta mann og er hreinsuð í burt.
1. mín Gult spjald: Orri Bjarkason (ÍR)
..og fyrsta gula spjaldið Orri fer aðeins of hátt með löppina í tæklingu.
1. mín
Fyrsta aukaspyrna leiksins Hún kom eftir 10 sekúndur eða svo. Fínasta fyrirgjafarstaða fyrir Emil Nóa.
1. mín
Þetta er komið af stað Það eru ÍR-ingar sem hefja leik.
Fyrir leik
Þetta er að bresta á Liðin ganga inn á völlinn með Pétur dómara í broddi fylkingar. Stúkan er ekki beint þétt setin en ég trúi því að það rætist úr mætingunni á næstu mínútum.
Fyrir leik
Mennirnir með valdið Pétur Guðmundsson er með flautuna í dag. Honum til aðstoðar eru Arnþór Helgi Gíslason og Ásgeir Viktorsson. Dómaraeftirlitsmaður er Þórður Ingi Guðjónsson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Byrjunarliðin eru komin inn Jóhann, þjálfari Ír, gerir þrjár breytingar á byrjunarliðinu úr síðasta leik. André Musa Solórzano Abed, Stefán Þór Pálsson, Guðjón Máni Magnússon fá sér sæti á bekknum og í þeirra stað koma Óliver Andri Einarsson, Tareq Shihab og Orri Bjarkason.

Gunnar Heiðar gerir tvær breytingar á liði HK. Þorsteinn Aron Antonsson og Magnús Arnar Pétursson detta út og í þeirra stað koma Haukur Leifur Eiríksson og Þorvaldur Smári Jónsson.

Ívar Orri Gissurason er í leikmannahóp HK í fyrsta sinn í sumar en hann er kominn til landsins frá Bandaríkjunum þar sem hann er í námi.
Fyrir leik
Baddi Borgars spáir í 5. umferð lengjudeildarinnar Baldvin spáir HK sigri í kvöld

ÍR 1 - 2 HK
Gunnars Heiðars army heldur áfram að sanna sig sem eitt öflugasta lið deildarinnar og vinnur í Mjóddinni, sem er alltaf erfitt með Sölva Haralds trylltan ofan á gámnum við varamannabekkina að rífa kjaft við dómarann og andstæðingana.
Fyrir leik
HK HK-ingar sitja í 2. sæti Lengjudeildarinnar með 9 stig. Í síðustu umferð sóttu þeir sterkan sigur gegn Njarðvík eftir tap gegn Vestra í hörkuleik í umferðinni á undan.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fyrir leik
ÍR Fyrir leik eru ÍR-ingar með 4 stig í 8. sæti deildarinnar. Eftir góðan sigur í fyrstu umferð hafa komið tvö töp og eitt jafntefli.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
ÍR - HK Verið velkomin í þessa textalýsingu frá Þarfaþingsvellinum þar sem ÍR tekur á móti HK í 5. umferð Lengjudeildarinnar.

Mynd: Lengjudeildin

föstudagur 22. maí
19:15 ÍR-HK (Þarfaþingsvöllurinn)
19:15 Leiknir R.-Grindavík (Leiknisvöllur)
19:15 Afturelding-Þróttur R. (Malbikstöðin að Varmá)

laugardagur 23. maí
14:00 Njarðvík-Ægir (JBÓ völlurinn)
14:00 Grótta-Vestri (Vivaldivöllurinn)
14:00 Völsungur-Fylkir (GPG völlurinn)
Byrjunarlið:
1. Ólafur Örn Ásgeirsson (m)
4. Aron Kristófer Lárusson
9. Jóhann Þór Arnarsson
10. Atli Hrafn Andrason ('72)
15. Haukur Leifur Eiríksson
16. Svavar Örn Þórðarson
21. Ívar Örn Jónsson (f)
28. Tumi Þorvarsson ('65)
33. Dominik Radic ('86)
71. Þorvaldur Smári Jónsson ('65)
88. Sigurður Gunnar Jónsson
- Meðalaldur 24 ár

Varamenn:
25. Andri Már Steinsson (m)
3. Ívar Orri Gissurarson
17. Alexander Örn Guðmundsson ('86)
19. Atli Þór Gunnarsson ('72)
24. Magnús Arnar Pétursson ('65)
26. Viktor Helgi Benediktsson
29. Karl Ágúst Karlsson ('65)
- Meðalaldur 20 ár

Liðsstjórn:
Gunnar Heiðar Þorvaldsson (Þ)
Þjóðólfur Gunnarsson
Arnþór Ari Atlason
Sandor Matus
Sigurður Már Birnisson
Arnar Freyr Smárason
Ingvar Örn Kristinsson Valberg

Gul spjöld:
Haukur Leifur Eiríksson ('26)
Atli Hrafn Andrason ('67)

Rauð spjöld: