Chelsea og Arsenal vilja Kroupi - Man Utd bjartsýnt á að landa Ederson og Tonali - Inter hefur áhuga á Kepa
   fös 22. maí 2026 08:30
Elvar Geir Magnússon
Chelsea og Arsenal vilja Kroupi - Man Utd ætlar að landa miðjumönnum
Powerade
Kroupi er spennandi leikmaður.
Kroupi er spennandi leikmaður.
Mynd: EPA
Sandro Tonali.
Sandro Tonali.
Mynd: EPA
Sumarglugginn nálgast og það er nóg í gangi í slúðrinu. BBC hefur tekið saman það helsta úr ensku götublöðunum og víðar.

Chelsea hefur blandað sér í baráttu við Arsenal um franska framherjann Eli Junior Kroupi (19). Bournemouth segir að leikmaðurinn sé ekki til sölu. (Mail)

Velski miðjumaðurinn Harry Wilson (29) hjá Fulham er meðal leikmanna á innkaupalista Unai Emery, stjóra Aston Villa. Hann fær 100 milljónir punda til að styrkja liðið eftir sigurinn í Evrópudeildinni. (Mirror)

Everton hefur einnig áhuga á Wilson, sem verður fáanlegur á frjálsri sölu þegar sammngur hans rennur út í sumar. (Sky Sports)

Manchester United er bjartsýnt á að ná að landa brasilíska miðjumanninum Ederson (26) frá Atalanta og ítalska miðjumanninum Sandro Tonali (26) frá Newcastle í sumar. (Sky Sports)

Brighton er í viðræðum við Olympiakos um kaup á portúgalska hægri bakverðinum Costinha (26) fyrir um 11 milljónir punda. (Athletic)

Arsenal og Juventus fylgjast með miðjumanninum Tijjani Reijnders (27) hjá Manchester City en hollenski landsliðsmaðurinn hefur fengið takmarkaðan spiltíma síðan hann kom til City í fyrra. (TeamTalk)

Newcastle vill fá belgíska framherjann Matias Fernandez-Pardo (21) frá Porto ef Anthony Gordon (25) færir sig um set í sumar. (Mail)

Manchester United horfir á bakvörðinn Lewis Hall (21) hjá Newcastle en Bayern München og Liverpool hafa einnig áhuga á enska landsliðsmanninum. (TeamTalk)

Inter hefur áhuga á spænska markverðinum Kepa Arrizabalaga (31) hjá Arsenal. (Gazzetta)

Ráðning Xabi Alonso til Chelsea gæti eyðilagt vonir Atletico Madrid um að fá Marc Cucurella (27) en Alonso vill halda spænska varnarmanninum. (Mundo Deportivo)

Hollenski varnarmaðurinn Jurrien Timber (24) verður verðlaunaður með nýjum samningi hjá Arsenal. (Caught Offside)

Liam Delap (23) færist nær því að yfirgefa Chelsea en Everton er í lykilstöðu til að krækja í enska sóknarmanninn. (Football Insider)
Slapp
banner
banner