Chelsea og Arsenal vilja Kroupi - Man Utd bjartsýnt á að landa Ederson og Tonali - Inter hefur áhuga á Kepa
Besta karla
Stjarnan
LL 0
1
Fram
Lengjudeild karla
ÍR
LL 3
1
HK
Lengjudeild karla
Leiknir R.
LL 0
0
Grindavík
Besta karla
Breiðablik
LL 6
3
KR
Lengjudeild karla
Afturelding
LL 4
3
Þróttur R.
Besta karla
Víkingur R.
LL 5
0
FH
Besta karla
Keflavík
LL 1
0
Þór
Besta karla
KA
LL 0
1
Valur
Leiknir R.
0
0
Grindavík
22.05.2026  -  19:15
Leiknisvöllur
Lengjudeild karla
Dómari: Elías Ingi Árnason
Byrjunarlið:
1. Ólafur Íshólm Ólafsson (m)
4. Marko Veselinovic
5. Daði Bærings Halldórsson (f)
7. Birnir Breki Burknason ('71)
10. Shkelzen Veseli
15. Rúrik Gunnarsson ('92)
19. Axel Freyr Harðarson ('71)
33. Arnór Valur Ágústsson
43. Kári Steinn Hlífarsson ('71)
45. Djorde Vladisavljevic
55. Anton Fannar Kjartansson
- Meðalaldur 23 ár

Varamenn:
12. Jakub Górski (m)
8. Gísli Alexander Ágústsson
11. Aron Skúli Brynjarsson ('92)
16. Viktor Andri Pétursson ('71)
20. Dagur Ingi Hammer Gunnarsson ('71)
22. Þorsteinn Emil Jónsson ('71)
32. Eiríkur Örn Beck
- Meðalaldur 23 ár

Liðsstjórn:
Brynjar Björn Gunnarsson (Þ)
Gísli Friðrik Hauksson
Loftur Páll Eiríksson
Nemanja Pjevic
Ari Þór Kristinsson
Halldór Fannar Júlíusson
Arion Aron Veselaj

Gul spjöld:
Djorde Vladisavljevic ('45)
Daði Bærings Halldórsson ('77)
Anton Fannar Kjartansson ('93)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Shkelzen Veseli á síðasta skot leiksins og í takt við leikinn fer það hátt yfir og Elías Ingi flautar leikinn svo af.

Tíðindarlítill leikur og liðin skipta stigunum á milli sín.
96. mín
Síðasti séns? Leiknismenn fá hornspyrnu.
94. mín
Leiknismenn eru að reyna finna sigurmarkið en Grindvíkingar virðast vera að halda þetta út.
93. mín Gult spjald: Anton Fannar Kjartansson (Leiknir R.)
92. mín
Inn:Aron Skúli Brynjarsson (Leiknir R.) Út:Rúrik Gunnarsson (Leiknir R.)
91. mín
Fjórar mínútur í uppbót
89. mín
Er hetja í þessum leik? Get ekki sagt að það sé mikið sem bendir til þess að við fáum sigurmark í þennan leik en það fer hver að verða síðastur að skella á sig skikkjunni og vera hetjan í kvöld.
84. mín
Inn:Valur Þór Hákonarson (Grindavík) Út:Gunnleifur Orri Gunnleifsson (Grindavík)
84. mín
Dagur Ingi með hörkuskot sem Blakala ver.
83. mín
Rafael Victor reynir að gera þetta sjálfur í stað þess að nota hlaupin hjá liðsfélögunum og á skot sem er arfaslakt og beint í hendurnar á Ólafi Íshólm.
79. mín
Nálægt! Daði Bærings með tilraun sem fer rétt framhjá markinu!
77. mín Gult spjald: Daði Bærings Halldórsson (Leiknir R.)
76. mín
Boltinn dettur fyrir fætur Rafael Victor eftir fyrirgjöf frá hægri en Leiknismenn ná að koma boltanum burt áður en Rafael Victor áttaði sig á því að boltinn væri dottinn fyrir framan sig.
74. mín
Shkelzen Veseli fær boltann í D-boganum og reynir skot sem fer hátt yfir markið.
71. mín
Inn:Viktor Andri Pétursson (Leiknir R.) Út:Kári Steinn Hlífarsson (Leiknir R.)
71. mín
Inn:Dagur Ingi Hammer Gunnarsson (Leiknir R.) Út:Axel Freyr Harðarson (Leiknir R.)
71. mín
Inn:Þorsteinn Emil Jónsson (Leiknir R.) Út:Birnir Breki Burknason (Leiknir R.)
70. mín
Inn:Lárus Orri Ólafsson (Grindavík) Út:Mikael Máni Þorfinnsson (Grindavík)
68. mín
Rúnar Ingi snýr á Arnór Val og er í þröngu færi inni á teig út við endalínu og reynir skot sem Ólafur Íshóm ver vel.
65. mín
Grindvíkingar með fyrirgjöf sem fer afturfyrir.
60. mín
Shkelzen Veseli tekur aukaspyrnu beint í vegginn.
59. mín Gult spjald: Arnór Gauti Úlfarsson (Grindavík)
Stálheppinn að Damir var örlítið fyrir framan hann því annars hefði liturinn verið annar.

Shkelzen Veseli með flottan bolta inn í hlaup fyrir Birni Breka sem er tekinn niður.
58. mín
Leiknismenn búnir að þrýsta Grindvíkingum vel niður þessa stundina.
56. mín
Leiknismenn að þyngja pressuna en vörn Grindavíkur heldur. Kári Steinn með tilraun í varnarmann og gestirnir halda.
55. mín
Færi! Leiknismenn sækja og Arnór Valur sýndist mer það vera er í kjöraðstæðum til að koma fyrsta marki leiksins á blað en skotið er bara alls ekki gott og beint á Blakala.
54. mín
Grindvíkingar mun líflegri í seinni hálfleiknum en þeir voru í fyrri.
49. mín
Úffff Christian Bjarni í dauðafæri en boltinn framhjá markinu! Hvort boltinn hafi verið farin útaf fyrir sendinguna fyrir markið skal ósagt látið en þessi hefði alveg mátt fara allavega á markið.
47. mín
Anton Fannar brýtur klaufalega á Inga Þór virðist vera en sleppur með það.
46. mín
Leiknismenn sparka okkur af stað aftur en smá tafir urðu á byrjun seinni þar sem það þurfti að laga netið í markinu öðru meginn.

Vonandi fáum við meiri skemmtun, færi og mörk í þennan seinni hálfleik.
45. mín
Hálfleikur
Frekar tíðindarlítill fyrri hálfleikur að baki.

Fáum vonandi meiri skemmtun í seinni hálfleik.

Tökum okkur stutta pásu og snúum svo aftur í vonandi alvöru samba.
45. mín Gult spjald: Djorde Vladisavljevic (Leiknir R.)
+2

Líklega uppsafnað.
45. mín
+1

Grindvíkingar sækja hratt eftir horn hjá Leiknismönnum og Gunnleifur Orri á tilraun sem lekur framhjá markinu.
41. mín
Shkelzen Veseli reynir að komast í skotfæri en skotið er hátt yfir.
39. mín
Lítið að frétta hérna í Breiðholti þessa stundina.
34. mín
Leiknismenn eru að komast í fullt af flottum stöðum en vantar bara að breyta þessu í færi eða klára með skoti.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
31. mín
Inn:Rúnar Ingi Eysteinsson (Grindavík) Út:Stefán Jón Friðriksson (Grindavík)
Sýndist hann halda eitthvað aftan um lærið. Vonandi er þetta ekkert of alvarlegt.
29. mín
Arnór Valur reynir skot en það er framhjá.
26. mín
Djorde Vladisavljevic hendir sér í tæklingu á Rafael Victor og er í raun heppinn að fá ekki spjald.
21. mín
Grindvíkingar með tækifæri á að sækja hratt en missa boltann útaf.
18. mín
Leiknismenn með fyrirgjöf fyrir markið en hún fer í gegnum allan pakkann.
13. mín
Axel Freyr með tilraun framhjá markinu.
10. mín
Birnir Breki fær fyrsta færi leiksins en Robert Blakala sér vel við honum.
Lengjudeildin er á Livey - Með kóðanum fotboltinet fæst 30% afsláttur af fyrsta mánuðinum! Livey
10. mín
Leiknismenn eru að halda vel í boltann en eiga þó enn eftir að skapa sér færi.
6. mín
Kraftur í Leiknismönnum hér í upphafi.
4. mín
Mikael Máni tekur aukaspyrnu á miðjum velli og reynir að lyfta boltanum inn á teig en of innarlega og beint í hendurnar á Ólafi Íshólm.
1. mín
Leikur hafinn
Grindvíkingar sparka þessum leik af stað.
Fyrir leik
Inn:Robert Blakala (Grindavík) Út:Hjörvar Daði Arnarsson (Grindavík)
Breyting fyrir leik
Fyrir leik
Innbyrðis leikir Ég fór að grúska í innbyrðis viðureignir milli þessara liða, en nýja KSÍ síðan segir manni að þessi lið mættust fyrst 2001, en ég er nú ekki alveg viss um það þó ég sé af nýja skólanum. En vonandi fara fleiri sögulegar upplýsingar að birtast á þessari blessaðri síðu.

En allaveganna! Samkvæmt KSÍ hafa þessi lið mæst 18 sinnum, Leiknir aðeins sigrað einn, Grindavík sigrað 11 og 7 sinnum skilið jöfn.

Fyrsti leikur á að hafa verið 13. júní 2001 í gamla Coca-Cola bikarnum, en þar fór Grindavík með sigur af býtum á Leiknisvelli 1-4. Mark Leiknis skoraði Róbert Arnarson en mörk Grindavíkur skoruðu Paul McShane, Sinisa Kekic, Grétar Ólafur Hjartarson og Óli Stefán Flóventsson. Í þeim leik spilaði einmitt núverandi þjálfari Grindavíkur, Ray Anthony Jónsson.

Sigur Leiknis í þessum viðureignum kom á því herrans ári 2014, nánar tiltekið 10. maí, en þar sigraði Leiknir 1-0 með marki frá Sindra Björnssyni.

Stærsti sigrar Grindavíkur hafa verið með fjögurra marka mun, þ.á.m. leikur í fyrra sem fór 2-6 á Leiknisvelli og 4-0 árið 2016 í Grinda´vik
Hafþór Örn Laursen
Fyrir leik
Grindavík Grindavík situr einu sæti ofar en Leiknir í 6. sæti og eru með 6 stig eftir fjórar umferðir.

Þeir hafa náð einum sigri, gegn Völsungi, en gert þrjú jafntefli, þau hafa verið gegn Vestra, nágrönnunum í Njarðvík og ÍR.

Þeir komust í 16 liða úrslit í Mjólkurbikarnum þetta árið, en þeir sigruðu Elliða í 2. umferð 0-2, sigruðu Keflavík í 32. liða úrslitum í vítaspyrnukeppni, en töpuðu síðan fyrir rétt rúmri viku síðan gegn ÍA einnig í vítaspyrnukeppni.

Í seinustu umferð fengu þeir Völsung í heimsókn, en Grindavík sigraði þann leik 3-1, með mörkum frá Haraldi Björgvin Eysteinssyni, Heiðari Snæ Ragnarssyni og Rafael Victori.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hafþór Örn Laursen
Fyrir leik
Leiknir Leiknir situr í 7. sæti Lengjudeildarinnar með 5 stig eftir fjórar umferðir.

Þeir hafa sigrað Gróttu á útivelli, gert 1-1 jafntefli við Völsung og Þrótt og tapað svo gegn Aftureldingu.

Þeir hafa skorað 4 mörk í þessum fjórum leikjum, en Dagur Ingi Hammer er búinn að skora þrjú af þessum fjórum mörkum.

Í seinustu umferð mætti Leiknir Þrótti í Laugardalnum og náðu einu stigi þar.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Hafþór Örn Laursen
Fyrir leik
Komið þið sæl og blessuð og veriði velkomin á beina textalýsingu frá Leiknisvelli þar sem Leiknir tekur á móti Grindavík í 5. umferð Lengjudeildarinnar!

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

föstudagur 22. maí
19:15 ÍR-HK (Þarfaþingsvöllurinn)
19:15 Leiknir R.-Grindavík (Leiknisvöllur)
19:15 Afturelding-Þróttur R. (Malbikstöðin að Varmá)

laugardagur 23. maí
14:00 Njarðvík-Ægir (JBÓ völlurinn)
14:00 Grótta-Vestri (Vivaldivöllurinn)
14:00 Völsungur-Fylkir (GPG völlurinn)
Byrjunarlið:
31. Hjörvar Daði Arnarsson (m) ('0)
4. Damir Muminovic (f)
5. Arnór Gauti Úlfarsson
7. Gunnleifur Orri Gunnleifsson ('84)
8. Stefán Jón Friðriksson ('31)
10. Ingi Þór Sigurðsson
14. Haraldur Björgvin Eysteinsson
18. Christian Bjarmi Alexandersson
19. Rafael Victor
20. Mikael Máni Þorfinnsson ('70)
27. Heiðar Snær Ragnarsson
- Meðalaldur 23 ár

Varamenn:
1. Robert Blakala (m) ('0)
6. Viktor Guðberg Hauksson
9. Rúnar Ingi Eysteinsson ('31)
11. Valur Þór Hákonarson ('84)
17. Andri Karl Júlíusson Hammer
22. Lárus Orri Ólafsson ('70)
29. Lúkas Nói Tómasson
- Meðalaldur 22 ár

Liðsstjórn:
Ray Anthony Jónsson (Þ)
Marko Valdimar Stefánsson
Helgi Leó Leifsson
Aron Benediktsson

Gul spjöld:
Arnór Gauti Úlfarsson ('59)

Rauð spjöld: