Brunaútsala hjá Hömrunum - Tottenham og Man Utd slúður - Rashford til Real?
Besta kvenna
Víkingur R.
61' 0
1
Valur
Besta kvenna
Breiðablik
62' 2
1
FH
Besta kvenna
Þróttur R.
61' 0
1
Stjarnan
Besta kvenna
Fram
LL 3
2
Þór/KA
Besta kvenna
ÍBV
LL 1
1
Gri/Nja
ÍBV
1
1
Gri/Nja
0-1 Natasha Anasi '36
Allison Patricia Clark '92 1-1
25.05.2026  -  16:00
Hásteinsvöllur
Besta kvenna
Aðstæður: Vindur á annað markið.
Dómari: Guðmundur Páll Friðbertsson
Byrjunarlið:
1. Arden Joy La-Rose (m)
2. Ragna Sara Magnúsdóttir ('85)
5. Avery Mae Vanderven (f)
7. Edda Dögg Sindradóttir
10. Kristín Klara Óskarsdóttir
13. Sandra Voitane
14. Olga Sevcova
15. Magdalena Jónasdóttir
17. Viktorija Zaicikova ('67)
19. Erla Hrönn Unnarsdóttir ('80)
20. Allison Patricia Clark
- Meðalaldur 22 ár

Varamenn:
12. Ísey María Örvarsdóttir (m)
30. Guðný Geirsdóttir (m)
3. Hrafnhildur K. Kristleifsdóttir ('85)
6. Þóra Björg Stefánsdóttir ('67)
8. Ísafold Dögun Örvarsdóttir
16. Petra Metta Kristjánsdóttir
18. Inda Marý Kristjánsdóttir
21. Maríanna Jónasdóttir
24. Tanja Harðardóttir ('80)
- Meðalaldur 18 ár

Liðsstjórn:
Jón Ólafur Daníelsson (Þ)
Sigríður Lára Garðarsdóttir (Liðsstjóri)
Guðmundur Tómas Sigfússon (Aðstoðarþjálfari)
Richard Matthew Goffe (Aðstoðarþjálfari)
Elías J Friðriksson (Sjúkraþjálfari)
Embla Harðardóttir (Leikmaður utan hóps)
Guðrún Ágústa Möller (Liðsstjóri)
Filipe Andre Alexandre Machado (Markmannsþjálfari)

Gul spjöld:
Jón Ólafur Daníelsson ('10)
Olga Sevcova ('41)
Avery Mae Vanderven ('93)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
1-1 á Hásteinsvelli!! Skemmtilegum leik lokið á Hásteinsvelli.

G/N voru töluvert sterkari í fyrri hálfleik en Eyjakonur unnu sig vel inn í leikinn og pressuðu stíft á G/N í lokin og uppskáru með fínu marki. Lokaniðurstaða 1-1.

Viðtöl og skýrsla síðar í kvöld!

95. mín
Maci tekur spyrnuna en hún er léleg og hátt yfir.
93. mín Gult spjald: Avery Mae Vanderven (ÍBV)
Brýtur á Sophiu rétt fyrir utan teig. Hugsanlega síðasta spyrna leiksins.
92. mín MARK!
Allison Patricia Clark (ÍBV)
Stoðsending: Magdalena Jónasdóttir
ÍBV JAFNAR!!! Magdalena kemur fyrirgjöf frá vinstri og Allison Clark klárar mjög vel í hornið fram hjá Lauren og jafnar metin fyrir Eyjakonur!!
92. mín
Olga kemur með seningu inn á teiginn en G/N nær að koma boltanum í burtu.
90. mín
+3 í uppbótartíma.
90. mín
Inn:Tinna Hrönn Einarsdóttir (Gri/Nja) Út:Lily Anna Farkas (Gri/Nja)
89. mín
Olga með skot fyrir utan teiginn en það er laust og Lauren grípur boltann.
86. mín
Maci við að sleppa í gegn en brýtur á Hrafnhildi K. í leiðinni.
85. mín
Inn:Hrafnhildur K. Kristleifsdóttir (ÍBV) Út:Ragna Sara Magnúsdóttir (ÍBV)
84. mín
Inn:Rakel Sigurðardóttir (Gri/Nja) Út:Hildur Katrín Snorradóttir (Gri/Nja)
83. mín
Sophia með enn eina fyrirgjöfina en Avery nær að koma boltanum fram.
81. mín
Sophia kemur með fyrirgjöf frá vinstri en Ása Björg nær ekki til boltans og hann fer aftur fyrir.
80. mín
Inn:Tanja Harðardóttir (ÍBV) Út:Erla Hrönn Unnarsdóttir (ÍBV)
78. mín
Erla Hrönn kemur sér í skotfæri en skotið hennar er framhjá markinu.
78. mín
Ása fær boltann inn á teig ÍBV hægra megin en fyrsta snertingin svíkur hana svo hún setur boltann fram hjá úr þröngu færi.
77. mín
Olga með skot fyrir utan teig en það er beint á Lauren.
76. mín
G/N í góðu færi Ása Björg með flottan sprett upp hægri megin og kemur boltanum á Maci inn á teig ÍBV en skot hennar fer yfir markið.
74. mín Gult spjald: Sophia Faith Romine (Gri/Nja)
Sparkar boltanum í burtu eftir að búið er að flauta.
72. mín
ÞARNA MUNAÐI LITLU!! Þóra nálægt því skora beint úr horni!!! Setur boltann í samskeytin og þær ná ekki að taka frákastið. G/N koma svo boltanum í burtu.
70. mín
Sophia nær skoti. Köttar inn á hægri fótinn og tekur skotið en það er beint á Arden.
68. mín
Ragna Sara kemur með fyrirgjöf en hún er frekar slök og beint á Lauren.
67. mín
Inn:Þóra Björg Stefánsdóttir (ÍBV) Út:Viktorija Zaicikova (ÍBV)
67. mín Gult spjald: Ása Björg Einarsdóttir (Gri/Nja)
64. mín
Allison kemur með sendingu inn á teig ætlaða Olgu en hún er aðeins of há og Olga nær ekki til boltans.
63. mín
Maci reynir að senda Ásu Björg í gegn en einhver misskilningur á milli þeirra og sendingin fer bara beint aftur fyrir.
62. mín
Eyjakonur eru að pressa G/N nokkuð mikið þessa stundina og eru mjög nálægt því að refsa.
61. mín
Vel spilað hjá ÍBV. Ragna Sara setur boltann á Allison Clark sem er fyrir utan teig en skot hennar er hátt yfir markið.
58. mín
ÍBV Í FÆRI!! Kristín Klara komin nánst ein í gegn og nær skotinu en það er varið. Viktorija tekur frákastið en Emma F. kemur í veg fyrir að boltinn fari inn þar sem að Lauren, markvörður G/N er komin út úr markinu.
55. mín
Maci tók aukaspyrnu á miðjum vallarhelmingi ÍBV og kom með fína sendingu inn á teiginn og Sophia er hársbreidd frá því að ná til boltans.
54. mín
Magdalena reynir langa sendingu fram á Olgu en Lauren kemur út úr markinu og er fyrst á boltann.
52. mín
Viktorija tók skotið úr aukaspyrnunni en það fór hátt yfir markið.
51. mín
ÍBV fær aukaspyrnu á hættulegum stað, rétt fyrir utan teig.
50. mín
Clark reynir að lauma boltanum inn á Söndru en sendingin er of löng.
50. mín
Clark kemur með fyrirgjöf en Lauren á ekki í vandræðum og grípur boltann.
49. mín
Vel spilað hjá G/N sem endar á Maci kemur með fyrirgjöf en hún er of innarlega og Arden grípur boltann auðveldlega.
47. mín
Danai gerir vel vinstra megin og kemur sér í fyrirgjafastöðu en sendingin er slök og beint á Arden.
45. mín
Seinni hálfleik hafinn Þetta er farið af stað aftur!

Erla Hrönn sparkar okkur af stað.
45. mín
Hálfleikur
G/N leiða í hálfleik 0-1 í hálfleik. Myndi segja að G/N leiða nokkuð sanngjarnt í hálfleik.

Þær hafa átt hættulegri færi og upphlaup. Eyjakonur hafa samt sem áður átt ágætis sóknir inn á milli.
45. mín
Olga vinnur aukaspyrnu uppi vinstri megin. Fín fyrirgjafastaða. ÍBV náði ekki að gera sér mat úr þessu og G/N koma boltanum í burtu.
45. mín
+3 í uppbótartímma.
44. mín
HÆTTA INN Á TEIG ÍBV! Maci með hornspyrnuna fyrir G/N sem er stórhættuleg og þær eru nálægt því að pota boltanum inn en Eyjakonur koma boltanum fram.
44. mín
Sophia enn og aftur komin á hlaupinu upp vinstri megin en Ragna sara gerir vel á móti henni og kemur boltanum í horn.
41. mín Gult spjald: Olga Sevcova (ÍBV)
Sá ekki almennilega hvað gerðist þarna. En Emma Fanndal liggur eftir, eftir viðskipti við hana. Mér sýndist hún nú ekki gera mikið.
39. mín
Sophia keyrir upp vinstri vænginn enn og aftur og reynir að komast fram hjá Rögnu Söru, sem gerir virkilega vel og kemur boltanum aftur fyrir.
37. mín
Kristín Klara með fyrirgjöf frá hægri vængnum en Allison Clark nær ekki til boltans.
36. mín MARK!
Natasha Anasi (Gri/Nja)
G/N eru komnar yfir!! Sýndist þetta var Narasha á endanum. En eftir mikinn darraðardans inn á teig ÍBV eftir hornspyrnu nær hún að pota boltanum inn!
34. mín
Maci með hornspyrnu fyrir G/N og Emma Nicole nær skallanum en Arden er alveg með þetta og handsamar boltann.
33. mín
Hildur Katrín nálægt því að sleppa ein í gegn en Avery kemur boltanum í burtu á ögurstundu.
32. mín
Magdalena reynir aftur skotið af löngu færi en núna fer boltinn hátt yfir markið.
31. mín
KRISTÍN KLARA í færi! Olga kemur boltanum á Kristínu Klöru sem er staðsett rétt fyrir utan markteignhornið. Færið er svolítið þröngt og skotið ratar ekki á markið.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
30. mín
Clark kom með frábæran bolta inn fyrir á Olgu sem keyrir enn og aftur inn á teiginn í leit að skotfæri. Skotið hennar fer í varnarmann og dettur fyrir Magdalenu sem tekur bara skotið utan velli. Lauren í marki G/N rétt nær að blaka boltanum yfir.
27. mín
G/N enn og aftur í færi Maci keyrir upp með boltann og kemur honum á Sophie, vinstra megin. Hún er ein gegn Rögnu Söru og kemst framhjá henni og nær skotinu en það er hátt yfir.
26. mín
Maci með skot fyrir utan teig en það fór langt fyrir markið.
26. mín
Eyjakonur í færi Kristín Klara vinnur boltann af Sophie og boltinn dettur fyrir Allison Clark. Hún kemur boltanum aftur út á Kristín Klöru sem á mjög flotta fyrirgjöf inn á teiginn þar sem Olga er hársbreidd frá því að ná til boltans. En boltinn í gegnum allan pakkann og G/N ná að hreinsa.
24. mín
ÚFF þarna munaði litlu Ása Björg með flottan sprett upp hægra megin og kemur með boltann inn á teig ÍBV beint á Maci sem nær ekki alveg nógu góðu skoti og frekar auðvelt fyrir Arden í marki ÍBV.
23. mín
Gott spil hjá G/N. Hildur Katrín kemur svo með boltann út á Sophie sem tekur skotið en það fer af varnarmanni og til Arden.
21. mín
Lítið að frétta þessa stundina.
17. mín
Eyjakonur vilja víti!! Frábærlega spilað hjá ÍBV sem endar á að Olga fær boltann úti vinstra megin. Olga nær skotinu en það fer í varnarmenn. ÍBV vildi meina að boltinn hafi farið í höndina á varnarmanni G/N.
14. mín
Olga tók spynuna sjálf en G/N náðu að koma boltanum í burtu. Þær geystust svo upp í sókn og Hildur Katrín var nálægt því að vera ein í gegn en Edda Dögg með frábæran varnarleik nær að koma boltanum í horn.
13. mín
ÍBV fær aukaspyrnu á fínum stað úti vinstri megin. Brotið á Olgu.
12. mín
Ása með fína skot tilraun. Fékk boltann úti hægra megin og keyrði inn á teiginn og tók skotið með vinstri en það er fram hjá.
10. mín Gult spjald: Jón Ólafur Daníelsson (ÍBV)
9. mín
Sophia reynir að stinga boltanum inn á Ásu Björg en Sandra gerir vel í vörn ÍBV og er fyrst á boltann.
7. mín
Færi hjá G/N!! Sophia fékk boltann úti vinstra megin og kom með boltann inn á teiginn en Lily Anna nær ekki nógu góðu skoti. Boltinn endar svo hjá Ásu Björg sem nær skotinu en það er nokkuð langt fram hjá
5. mín
G/N heldur nokkuð vel í boltann hérna á upphafsmínútunum.
1. mín
DAUÐAFÆRI Kemur langur bolti inn fyrir vörn ÍBV og Ragna Sara misreiknar sig eitthvað og missir af boltanum. Sophia er allt í einu komin upp að endalínu og kemur með fyrirgjöf en Ása Björg rétt missir af honum!

1. mín
Leikur hafinn
Leikurinn er farinn af stað!

Gestirnir starta þessu og leika í átt að Týssvelli!
Fyrir leik
Jóhann Fjalar spáir markasúpu ÍBV 3 - 3 Grindavík/Njarðvík
Massa spennandi leikur. Nýliðaslagur af bestu gerð. Bæði lið byrjað mótið frábærlega, og þessi leikur verður veisla ef allar eru með. Verður skemmtilegasti leikur umferðarinnar þar sem mörkin flæða. Ef Lowry er með setur hún tvennu og Olga með 1. Farkas neglir í þrennu.

Fyrir leik
Velkomin til Eyja! Góðan daginn lesendur góðir og verið þið velkomnir í beina textalýsingu frá Hásteinsvelli i Vestmannaeyjum. Klukkan 16:00 hefst viðureign ÍBV og Grindavíkur/Njarðvíkur í sjöttu umferð Bestu deildar kvenna.

Um nýliðaslag er að ræða þar sem bæði lið fóru upp úr Lengjudeildinni í fyrra.

ÍBV er með tólf stig í 2. sæti deildarinnar en gestirnir sitja í 5. sætinu með sjö stig.
Mynd: ÍBV

Byrjunarlið:
1. Lauren Kellett (m)
5. Natasha Anasi
9. Lily Anna Farkas ('90)
12. Hannah McLaughlin
17. Sophia Faith Romine
18. Ása Björg Einarsdóttir
22. Sigríður Emma F. Jónsdóttir (f)
24. Danai Kaldaridou
26. Maci Nicole Teater
27. Hildur Katrín Snorradóttir ('84)
28. Emma Nicole Phillips
- Meðalaldur 24 ár

Varamenn:
20. Irma Rún Blöndal (m)
3. Brynja Pálmadóttir
6. Rut Sigurðardóttir
8. Katrín Lilja Ármannsdóttir
13. Lea Björt Kristjánsdóttir
15. Tinna Hrönn Einarsdóttir ('90)
16. Viktoría Sól Sævarsdóttir
19. Rakel Sigurðardóttir ('84)
23. Júlía Rán Bjarnadóttir
- Meðalaldur 22 ár

Liðsstjórn:
Gylfi Tryggvason (Þ)
Ellie Coffield (Leikmaður utan hóps)
Armandas Leskys (Aðstoðarþjálfari)
Þorsteinn Magnússon (Markmannsþjálfari)
Lúðvík Már Matthíasson (Sjúkraþjálfari)

Gul spjöld:
Ása Björg Einarsdóttir ('67)
Sophia Faith Romine ('74)

Rauð spjöld: